mánudagur, 24. september 2007

Í dag er svo komið proper haust hér í veils. Rok og rigning. Við Lúkas í stórræðum, þurftum að taka marga strætóa til að komast í vinnuna hans Dave. Við erum að breyta skilmálum á húsnæðisláni, engin ástæða til að berjast í bökkum ef bankinn býður betri díl. En við Dave höfðum sumsé gleymt að skrifa undir eitt plaggið og til að koma þessu öllu til skila á réttum tíma þurftum við Láki að fara á Industrial Estate, fá kvittun og svo aftur í bæinn og í banka áður en við gátum slakað á með sausage á disk hér heima. Allt þetta í hávaðaroki og rigningu. Málum reddað núna þannig að ég ætti að vera seif að koma mér í framhaldsnám í janúar. Hafði vonast eftir að komast inn á haustönn en bíð enn eftir meðmælum frá Háskóla Íslands. Skrýtið það annars. Maðurinn sagðist ætla að stinga þessu í póst í þarsíðustu viku en enn bólar ekki á einu né neinu. Hvað um það, ég held að janúar sé betri hvort eð er, þá verðum við öll kominn inn í nýja sístemið í skólanum hans Láka.

Ég er hress og kát sem stendur, mér finnst þessi árstími alltaf skemmtilegastur, er lítið hrifin af sumri og sólaryl nema svona rétt fyrst. Núna er orðið dimmt og löglegt að kúra sig bara sem mest niður með bók í hönd. Mér finnst það alltaf best. Ég er líka sannfærð um að ég sé búin að finna réttu leiðina fyrir mig í lífinu, er semsé með áætlun. Ég get ekki á mér heilli tekið nema ég sé með gott plan í huga, og er núna með ein þrjú sem öll spila saman. Frábært. Heili, hjarta og kroppur allt í plani.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nú er ég að drepast úr forvitni. Hvaða framhaldsnám ertu að fara í venan? Hver eru þessi þrjú plön?
Kv. Kristín G

Nafnlaus sagði...

Æðislegt að heyra að þú skulir vera með plan...þú virðist alltaf glöð og kát þegar plan hefur formast í heila þér krúttið mitt ;)
ástarknús frá mér til þín :)

Nafnlaus sagði...

Okei, fyrst Kristín byrjaði þá viðurkenni ég líka að ég er að drepast úr forvitni. Hvernig hljóma plönin??