þriðjudagur, 9. september 2003

Dave er buinn ad vera a namskeidi fyrir "Lab Supervisers" i dag og i gaer. Hann aetti vanalega ad vera i frii, enda vann hann alla helgina. Svo a hann ad vinna a morgun og fimmtudag, og var buinn ad lofa Liam ad vinna fyrir hann um naestu helgi. Thannig ad hann a ekki fri fyrr en a midvikudag i nasetu viku. Vid hofum svo sem alveg fullt vid peninginn ad gera, en eg verd nu ad segja ad mer leidist smavegis thegar hann er svona mikid i burtu. Oll namskeidin min byrja ekki fyrr en i naestu viku thannig ad nuna reynir a imyndunaraflid. Eg for i sund, svona baedi til ad drepa timann og svo er thad lika svo hollt. Allir krakkarnir eru farinir aftur i skolann nuna thannig ad eg hafdi laugina eiginlega ut af fyrir mig. Thvilikur munur, eg gat bara varla haett ad synda. Eg get notad timann a medan ad eg syndi i ihugun. Jah, eda svona, i dag t.d. reyndi eg ad skipuleggja husakaup. Eg er ordin svo leid a teppinu heima, ser i lagi af thvi ad eg veit fyrir vist ad undir teppinu eru thessar lika glaesilegu golfjalir sem svo audveldlega maetti pussa upp og tha vaeri komid svona gammeldags parket.

Thad er ekki bara gamla folkid her i Wales sem talar mikid. Hreinlega allir tala mikid. A atvinnuleysisstofunni fer madurinn sem situr vid hlidina a mer ad tala um hvad baeturnar seu litlar og lelegar og hvad hann eigi erfitt med ad lata enda na saman. I sundi fer konan i naestu sturtu ad tala um hvad vatnid se heitt og hvad hun se lengi ad fa heita vatnid heima hja ser til ad hitna. I budinni tala vidskiptavinir um verlsunarhaetti nu og adur, vedrid, mat, elli, veikindi, hamingju og allt a milli himins og jardar. Mamma hans Dave hringir i mig og talar ut i eitt, Tracy hringir og talar mikid, eg fattadi meira ad segja ad thegar Dave byrjar tha er erfitt ad fa hann til ad thagna. Er eg svona mikill thumbari og allir Walesverjar svona aedislega kammo, eda er thetta einum of?
Eg var ad reyna ad komast inn a bloggid hja Gretti, en tolvan her a bokasafninu neitar adgangi vegna klamfengis. Hvad er hann Grettir eiginlega ad tala um?

mánudagur, 8. september 2003

Mig bradvantar matvinnsluvel. Taeki sem hraerir deig, theytir rjoma, sker nidur graenmeti og blandar heilsudrykki. Bradvantar.
Verslunarstjorinn i HB-Budinni hringdi i mig adan og sagdi ad ekkert vaeri sjalfsagdara en ad senda mer nyjan brjostahaldara! Hun baud mer ad fa annadhvort somu gerd af haldara og skemmdist eda tha alveg nyja tegund sem hun sagdi ad vaeri alveg eins lagadur en hringirnir ur sterkara efni en plasti og hentadi thvi kannski betur. Eg sagdi henni ad senda mer bara nyju tegundina. Eg er bara svo glod og hissa. Aldrei datt mer i hug ad thetta yrdi svona audvelt. Eg veit ekki einu sinni hversvegna eg sendi haldarann upphaflega, eg helt aldrei ad thad kaemi neitt ut ur thessu. Er thetta ekki frabaert? Nyr brjostahaldari. Madur lifandi.
Vid eldudum lambalaeri i gaerkveldi, kominn timi til ad kanna muninn a islensku fjallalambi og svarthofdunum her. Eg hringdi i Sigguommu til ad fa nakvaemar authentiskar islenskar leidbeiningar svona til ad svindla ekkert a kjotinu. Ofninn minn er frekar lelegur og neyddist til ad steikja kjotid a haerri hita en maelt var med. Mer tekur afskaplega sart ad thurfa ad tilkynna ad velskt lambakjot er svona lika miklu, miklu betra en thad islenska. Ullar- og brundbragdid sem er svo illa falid i islenska kjotinu og skin i gegnum jafnvel staerstu skammta af siser-all er ekki ad finna i thvi velska. Eg hef eiginlega bara ekki smakkad betra laeri. En eg verd reyndar ad vidurkenna ad mig vantadi baedi raudkal og Ora graenar. Eg bar svo fram ostakoku i eftirrett, fann ekkert daim en setti bara snikkers i stadinn. Dave er farinn ad vera dalitid ahyggjufullur yfir thessu ollu saman. Hann er sannfaerdur um ad thessir " glory days" eigi eftir ad taka enda og bradlega thurfi hann ad fara ad lifa a velska thjodarrettinum (kurekabaunir a ristudu braudi). Hann er natturulega nuna ordinn godu vanur, en hefur lika ahyggjur af bumbunni sem er buin ad koma ser thaegilega fyrir a honum. Hann tharf engar ahyggjur ad hafa, mer finnst vodalega gaman ad elda. Einu breytingarnar sem verda eftir ad Jones Jr. kemur er ad eg aetla ad hafa thetta allt adeins heilsusamlegara. Ostakokur vera kannski ekki a matsedlinum svo glatt, en hann verdur sko ekki svangur. Greyskinnid.

Vid skodudum lika bil i gaer sem vid akvadudum ad vaeri bara snidugt ad kaupa. Eg lagdi meira ad segja a minnid hvad hann heitir. Vauxhall Astra...eitthvad, hann er allavega station bill. Sv ona lika fjolskylduvaenn. Vid gatum ekki ad thvi gert en ad hlaegja dalitid thegar vid stodum okkur ad thvi ad skoda skottid med tilliti til thess hvort vagninn kaemist ekki audveldlega thar fyrir. Jesus wept! thad sem madur er ordinn gamall. Steisjon bill! Hvad um thad, billinn er a godu verdi og mjog finn og liggur vel eda hvad madur a ad segja thannig ad vid aetlum ad kaupa hann. Fyrst tharf adeins ad stussast i tryggingunum og thesshattar en ad odru leyti er allt kalppad og klart. eg hitti i leidinn Trevor fraenda og Jean fraenku. Jean spurdi mig hvort eg vaeri ad vonast eftir strak eda stelpu og eg sagdi ad eg vaeri med strak fyrir (nokkud) vist. Tha vildi hun fa ad vita hvad hann heti. Her eru nofnin akvedin og gefin ut longu fyrir faedingu. Eg modgadi meria ad segja tengdamodur mina orlitid thegar eg neitadi ad segja hvad barnid aetti ad heita. Dave thurfti ad utskyra fyrir henni ad Islendingar gaefu ekki upp nafnid. Eg hef allaveg aldrei fengid ad heyra nafn fyrir skirn. Ekki ad eg viti afhverju thad er en ekkert ad thvi ad vera sma hjatruarfullur. Vid erum reyndar ekki alveg buin ad akveda nafn thannig ad eg vil ekkert segja, og eg sagdi thad bara vid Jean. Vid vitum ekki hvad barnid heitir.

föstudagur, 5. september 2003

Eg get varla haldid aftur af m er, gleditarin streyma nidur bustnar kinnarnar, og hnakkaspikid hristist til og fra. Eg er ad hlusta a Gerdi G. Bjarklind lesa utvarpsauglysingar. Lambakjot er a tilbodi i Noatuni. Oli Palli er ad spila Queen. Aldrei hefur lambakjot verid jafn freistandi, aldrei hefur Oli Palli verid jafn skemmtilegur, aldrei hefur Freddie Mercury hljomad betur. Mikil er taeknin og mattug. Og Ras 2 rular!

Eg er sumse a bokasafninu i Wrexhambae nuna. Akvad ad kikja vid eftir vinnu enda er thetta allt samtengt kerfi, bokasafnid her og i Rhos. Og einhver er munurinn a tolvunum her og thar thvi her get eg hlustad a Ras 2. Og her vil eg vera. Eg er lika eiginleg buin ad lesa allar baekurnar a litla safninu i Rhos, en her eru radir af olesnum bokum.

Eg er farin ad finna dalitid fyrir olettunni, eg er daudthreytt og er ogedslega heitt. Sumarid akvad ad koma aftur eftir sma hle og nuna er aftur yfir 20 stiga hiti. Uss og svei, eg er engin brunkukanina og vil bara fa fint haust. Enda er eg nuna ad fara ad byrja i skolanum og tha a ad vera haust. Jah, eg segji skolanum en er i raun og veru ad fara a thrju mismunandi namskeid. Naesta thrifjudag eigum vid tilvonandi foreldrar Babi Jones ad maeta a foreldranamskeid til ad laera ad vera foreldrar. Vonandi ad thad se agaetis vegnesti, thad veit gud og lukkan ad vid erum baedi half nervos. Svo skradi eg mig a Creative Writing namskeid. Eg hef tima nuna og datt i hug ad thad vaeri gaman ad sja hvernig skapandi skrif eru kennd. Kannski ad ritstillinn breytist hja mer? Og ad lokum er eg ad fara a tolvunamskeid, svona til (JESS!! SIGGA BEINTEINS ER AD SYNGJA NEI EDA JA!!) hafa pappir upp a ad kunna a tolvur thegar eg fer a vinnumarkadinn eftir barnsburd. Eg er spennt fyrir thessu ollu, styttir timann fram ad burdi og allt nam er gott.

Eg veit ekki afhverju midvikudagsfaerlsan kemur a thridjudag, en bara svona til ad leidretta allan miskilning tha a Dave afmaeli 3. sept. Vid forum ut ad borda um kvoldid og thad var yndislegt. Vid forum ekki mjog oft ut, vid eiginlega gleymum okkur oft bara heima, vid erum sjalfsagt alveg hraedilega leidinlegt par, viljum bara vera tvo saman. Thad hlytur ad eldast af okkur. En allavega thad var voda gaman ad fara ut, og mikid tharf eg ad eignast indverska matreidslubok, hvernig fara their ad thvi ad bua til tikka masala. Thad er bara ekki sama sosan og madur faer i krukku.

þriðjudagur, 2. september 2003

Og suma daga vaknar madur og litur ut eins og skilgetid afkvaemi andskotans. Og thad thratt fyrir ad dagurinn se buinn ad vera ljomandi so far. Eg laumadist nidur i nott og nadi i pakkana hans Dave og setti vid rumid thannig ad thad fyrsta sem hann sa var hruga af pokkum og kort og fineri. Hann hafdi nu bara aldrei lent i odru eins, vanalega faer madur bara kort. Hann var rosalega anaegdur med hringinn sem eg hafdi keypt a Islandi, tho hann se i staerra lagi. Og oll fotin sem eg keypti smellpossudu og hann er svo saetur og finn i ollu. Og sem betur fer tha er hann lika anaegdur med allt saman. Hann atti ekki til ord yfir ad Mamma og Pabbi skyldu hafa sent gjafir lika, og var svona lika anaegdur med Islands bolinn. Thad er svo gaman ad gefa folki sem er svona anaegt. Hann er nuna ad tala vid tryggingarfelagid, vonandi ad thad se allt i finu lagi lika. Eg tharf annars ad drifa mig heim i sturtu og svoleidis af thvi ad vid aetlum ut ad borda i kvold. Vid akvadum ad halda okkur vid uppahaldid og aetlum til Llangollen a litla indverska stadinn okkar. Hann er svo ad vinna um helgina en eg er ad hugsa um ad hafa annan i afmaeli a laugardag eda sunnudag og profa ad elda velskt lambalaeri. Their halda thvi fram ad her se besta lambakjot i heimi, og eru reyndar fraegir fyrir lambid sitt um allan heim. (Hversvegna flytjum vid ekki eitthvad af okkar ut?) eg er enn ekki buin ad profa venjulegt steikt lambalaeri og er ordin dalitid forvitin. Tha hef eg lika afsokun fyrir ad gera loksins Daim ostakokuna hennar Rutar, hun getur verid afmaeliskakan hans Dave. kakan thad er ad segja, ekki Rut.
Fekk sma sjokk i gaerkveldi thegar Dave hringdi um thad leyti sem hann atti ad vera kominn heim ur vinnunni og sagdist hafa lent i sma slysi. Thad var allt i lagi med hann en billinn okkar er dalitid illa beygladur. Hann var i oretti og er ad finna ut ur thvi nuna hvernig vid komum ut ur thessu. Hann var i halfgerdu sjokki i gaer og eg held ad thetta hafi verid verra en hann vill lata uppi, en eg er bara fegin ad thad er allt i lagi med hann. Hann er svekktur yfir bilnum, en eg get ekki sed ad thad se eitthvad sem skiptir mali. Svo lengi sem Dave er i lagi tha skiptir ekkert annad mali. Svo ma alltaf horfa a thad thannig ad thetta er agaetis astaeda til ad kaupa nyjan bil sem er alveg kominn timi a.

Eg var ad koma fra ljosmodurinni. Nuna eru um 8 vikur eftir ef allt er a rettum tima. Babbie Jones hefur thad mjog gott, er ordinn stor og hefur minna plass nuna til ad hreyfa sig. Eg var sma ahyggjufull um daginn af thvi ad mer fundust hreyfingarnar breytast dalitid en thad er bara vegna thess ad hann hefur minna plass. Hjartslatturinn er sterkur og reglulegur og eg sjalf veit varla af thvi ad eg se olett. Ljosunni fannst eg vera halffol en eg verd nu bara ad vidurkenna ad thetta er minn edlilegi litur kominn aftur a nefid. Freknurnar minar fra hitabylgjunni eru ad hverfa ein og ein og eg er aftur ordin bleiknefjinn sem eg a ad mer ad vera. Aetli ad thad se bara ekki kostur a vissan hatt ad vera feit svona thegar eg hugsa um thad. Eg er von thvi ad vera med bumbu og kann ad hreyfa mig svo vel fari. Strandadi hvalurinn er mer vel kunnugur. Mer finnst eg vera svo fin og saet thessa dagana. Mamma sendi mer buxur sem eru svona lika finar a mer. Svo a eg adrar voda finar olettubuxur og thar sem ad allar peysurnar minar eru teygjanlegar tha get eg notad thaer eiginlega allar. Munurinn er ad nuna ma eg vera med mallann ut i loftid og tharf ekki ad halda honum inni. Harid er sitt og thykkt og neglurnar aldrei verid jafn langar og sterkar. Og hudin svo fin, ekki ein bola i syn. Mer finnst voda gaman thegar svona er. Eg verd nu ad vidurkenna ad mer hefur alltaf fundist eg sjalf vera bara alveg hreint agaet en nuna er eg hreinlega bara falleg. Hi hi, nu veit eg ad mamma les thetta og fer hja ser, hun getur bara ekki vanist thessu sjalfholi, en eg er bara ad segja thad sem mer finnst. Thad skiptir mig voda litlu hvort einhver se sammala mer eda ekki, svo lengi sem mer lidur vel tha hlytur takmarkinu ad vera nad. Eg horfdi reyndar a Pop Idol thatt um daginn og folk lifir i otrulegri sjalfblekkingu. Kannski ad eg se ad blekkja sjalfi mig svona svakalega? Aeji thad skiptir tha ekki neinu mali. Og eg veit ad mommu finnst eg lika vera saet.

mánudagur, 1. september 2003

Eg er a leidinni ut a posthus ad gera dalitid sem er mer alveg nytt og framandi. Eg aetla ad kvarta og skila. Thad hef eg aldrei a aevinni gert adur. Eg keypti i byrjun juni voda finan brjostahaldara i HB-budinni, ekkert i frasogur faerandi, eg kaupi oll min naerfot thar. Um daginn brotnadi svo allt sem heldur taekinu saman thannig ad hann er onothaefur. Rumir tveir manudir eru ekki nogu langur liftimi a brjostahaldara, mer er alveg sama hversu storbrjosta madur er. Hvad um htad, vanalega myndi eg bara verda pirrud, henda haldinu og kaupa svo nytt, en eg hef akvedid ad lata thetta ekki svo lett fra mer sleppa. Eg skrifadi thvi kurteisislegt bref til verslunarstjorans og aetla ad senda thad og flikina tilbaka med theirri osk ad eg fai nyjan haldara. Og eg er eiginlega bara dalitid anaegd med sjalfa mig. Sko mina, bara standa a sinu og allt thad. Adalastaedan er reyndar ad eg er enn ekki buin ad finna bud sem selur over-the-shoulder-boulder-holder undir nafni Otto Titzlinger's i minni staerd og er a bara of faa haldara til ad lata thennan renna mer ur greipum. Power to the people.

Dave minn verdur svo thritugur a midvikudaginn. Eg er miklu spenntari en hann, enda er eg buin ad kaupa handa honum tvennar buxur, skyrtu, bol, nariur og silfurhring, og get ekki bedid eftir ad gefa honum pakkana. Mamma og pabbi sendu lika pakka thannig ad eg aetla ad setja fotin hvert i sinn pakkann thannig ad hann fai milljon gjafir til ad opna. Vid aetlum svo ut ad borda a uppahaldsveitingastadinn okkar. Honum finnst thetta ekki merkilegt, og segist ekki vilja neitt vesen, en eg veit ad hann er bara ad segja thad. Thad vilja allir lata vesenast i ser. Eda er thad bara eg? Thvi meira vesen, thvi betra.

föstudagur, 29. ágúst 2003

Gamalt folk her i Wales er med alveg serstaka spjallthorf. Kannksi ad eg laeri listina ad spjalla vid kunn- og okunnuga her? Eg t.d. hitti konu i morgun sem sagdi mer allt um serlega pinleg kvenvandamal sem hun a vid ad strida, og thad an thess ad kynna sig, svona rett a medan vid bidum eftir thristinum nidri i bae. Gott ad heyra. Svo i vinnnni hitti eg Dennis Thatcher. Nema ad Dennis Thatcher do fyrir rumum manudi ef eg man rett og var havaxinn og drykkfelldur. Gamli, sem var litill og saetur og angadi ad Lapsang te fremur en G&T, syndi mer engu ad sidur eldgamlan passa sem a stod Dennis Thatcher. En hann neitadi algerlega ad lata uppi um hvort hann vaeri med passann hans Dennisar, eda hvort hann heti einfaldlega Dennis Thatcher lika. Hmmm...

Vid i vinnunni erum buin ad selja nokkur bunt af jolakortum nuna. Ja, eg sagdi jolakort, thad er vist ekki seinna i rassinn gripid, agust alveg ad verda buinn og svona. Rett 4 MANUDIR! i jol. Iesu Kristi (sja madur er bara farinn ad sletta a velsku!) er thetta ekki adeins of snemmt? Mind you, eg hef bara held eg aldrei sed jafn falleg kort og thessi og eg a sjalfsagt eftir ad kaupa nokkur stykki, madur tharf ju ad send kort thetta arid til ad monta sig af kroganum, eg get ekki sent mynd af sjalfri mer eitt arid en sleppt thvi ad senda myndir af barninu...thad vaeri nu ad fara med thessa romudu hogvaerd mina alveg til helvitis.

Jaeja, eg aetla ad fara heim og henda kjulla i ofninn, og kura svo hja manninum yfir sex and the city. Sem minnir mig a ad segja ad thessi seria er alveg serlega skemmtileg, og kemur thaegilega a overt, thar sem eg var fyrir svo gifurlegum vonbrgdum med tha sidustu.

miðvikudagur, 27. ágúst 2003

Eg kikti adeins vid her a bokasafninu adur en eg fer ad hitta Fru Jane Williams. Akvad ad kikja adeins inn a Domustadi sem mer finnst vera vodalega skemmtilegt blogg. I nylegri faerslu (25.08.03) segir eitthvad um profleysi Sigurdar Kara. Hann er einn af nyju thingmonnunum sem mer hryllti svo mikid vid og eg tharf nuna endilega ad fa ad vita hvad Daman a vid. Er hann ekki allur thar sem hann er sedur eins og restin af thessum skitbuxum? Explain please???

þriðjudagur, 26. ágúst 2003

Mig er buid ad langa svo til ad hlusta a Ras 2 sidustu daga. Eg er buin ad margreyna ad hlusta herna i gengum tolvuna a bokasfninu en ekkert gengur, her er vist ekki nyjasta windows media player og their eru svo framsaeknir tharna hja utvarpinu ad ekkert minna dugar theim. Eg verd bara ad vona madurinn fari bradum ad kaupa thessa snuru sem vantar til ad koma netinu i gagnid heima hja okkur. En ekki aetla eg ad reka a eftir honum. Allt a hans eigins tima.

Vid forum adeins ut a djammid a laugardagskvoldid med vinnufelogum hans og einum odrum maka. Eg hitti sumse loksins Jamie og Keri kaerustuna hans. Vid erum buin ad vera ad plana ad hittast og elda eda fara ut ad borda saman nuna heillengi en alltaf kemur eitthvad upp a: dave og Jamie eru ad vinna thegar Keri er i frii og ofugt, eg fer til Islands thegar allir eru i frii eda tha ad fjolskyldubod koma i veg fyrir party. Hvad um thad, mer leist svona aegilega vel a thau og nuna er verid ad vinna i thvi ad finna godan tima til ad hittast. Eg skemmti mer vel uti a lifinu, tho svo ad thad hafi verid adeins of mikil laeti a pobbunum ad minu mati. Her er klubbatonlist spilud a fullum krafti a ollum pobbum thannig ad thad er nanast utilokad ad tala saman. En eg fattadi ut fra thessu hvernig folk fer ad thvi ad na saman. Madur ser einhvern sem manni list a, svo aepir folk i sma stund og brosir an thess ad heyra ord af thvi sem hinn segir, og thannig tharf enginn ad hafa ahyggjur af thvi ad vera skemmtilegur, svo kyssist folk bara thegar ad thad er ordid nogu fullt og vonar thad besta daginn eftir thegar thad tharf ad tala saman. Mer fannst afskaplega gaman ad fylgjast med thessu. Eftir nokkra svona pobba stungum vid fjogur svo af inn a Scruffy Murphy's thar sem lett irsk stemmning rikir og vid gatum talad saman. Allt i allt ljomandi skemmtilegt kvold og thad var gott ad sja ad eg er ekki ad missa af neinu. Eg er haestanaegd med ad horfa a sjonvarpid a laugardagskvoldum. En mer finnst thad samt enntha dalitid skrytid.

Vid akvadum svo ad fara ad sja Pirates of the Carribbean a sunnudagskvoldid. Mer fannst hun storskemmtileg, svona ekta aevintyramynd fyrir mig og ekki skemma Orlando Bloom og Johnny Depp fyrir. Hubba hubba! Mer vard reyndar dalitid orott thegar Dave sagdi a leidinni heim ad bradum gaetum vid ekkert skroppid svona i bio fyrivaralaust, vid thyrftum ad byrja a thvi ad finna barnapiu. BARNAPIU!

Eg tharf a morgun ad fara ad Hitta Fru Jane Willams sem sem vinnur hja Social Security Office her i Wrexhambae. Hun hringdi i mig um daginn og sagdi mer ad koma i klukkutimavidtal svo eg geti fengid social security number og thesshattar. Hun vildi endilega ad eg kaemi med oll gogn sem eg fyndi vardandi vist mina her i UK. Eg fekk halfgert sjokk thegar eg var buin ad tala vid hana, sa fyrir mer svona green card vidtal thar sem hun vaeri ad reyna ad gripa mig vid lygar um astaedurnar fyrir thvi ad eg er herna. Sem er half faranlegt, thad vaeri sjalfsagt mun audveldara fyrir mig ad vera bara a Islandi, thar er allt mitt, fyrir utan hvad thetta pappirsstrid er djofull flokid. Svona er thad nu stundum flokid ad verda astfangin.

föstudagur, 22. ágúst 2003

Eg kom vid a greanmetismarkadnum a leidinni heim ur sundi og vinnumalaleysi og keypti allskonar graenmeti. Algerlega nytt fyrir mig, eg get ekki sagt ad graenmeti se eitthvad sem hefur freistad min hingad til en uppstillingin var svo djusi og thad var allt svo odyrt ad eg stodst ekki matid. Toppadi svo kaupin med nytindum breskum jardaberjum sem eg aetla ad drifa mig i ad borda nuna. Goda helgi allemal.

miðvikudagur, 20. ágúst 2003

Her skin sol enn i heidi og mer thotti thvi vid haefi ad fara med Tracy magkonu minni i sma baejarferd. Hun thurfti ad versla thannig ad eg kom med og hafdi stjorn a strakunum hennar svo hun hafdi tima til ad skoda vel og vandlega. Eg hefdi sidan viljad stoppa og fa mer Latte einhversadar en Ethan litli fekk ad velja veitingastad og thetta er vist universal med litla krakka: hann valdi McDonalds. Svosem alltaf ljuft ad renna nidur einum burger, eg segi thad nu svo sem. Hun keypti gjof handa Babbie Jones, utigalla a nyfaedd sem er eins og rolla. Vodalega kruttlegt.

Annars, takk fyrir uppskriftina Hanna, aetli ad eg hafi ekki pae a bordum 3. september lika, madur verdur ad gera eitthvad naes fyrir manninn tho hann se alveg a moti thvi a fagna thritugsafmaelinu. Eg veit ad hann slaer ekki hendinni a moti godri koku;)

mánudagur, 18. ágúst 2003

Eg for a vinnumidlunina i gaer i annad sinn. Nuna hitti eg fulltruann "minn" sem ser um mig hedan i fra og hann var svaka finn. Hann virtist vita nakvaemlega hvad hann var ad gera, eg thurfti ekki ad utskyra eitt ne neitt, hann hafdi gert thetta allt adur, flutt folk og rettindi a milli landa. Thvilikur munur! A ollum stofnununum sem eg diladi vid heima var eins og eg vaeri fyrsta manneskjan sem vaeri ad gera thetta. Vera olett, flytja til utlanda, verda atvinnulaus...Malid er ad eg er eiginlega alveg pottthett a thvi ad eg er ekki fyrsti Islendingurinn sem gerir thetta. Mr. Adams (fulltrui), stakk upp a ad eg hringdi i felagsthjonustuna til ad komast ad thvi hvort eg kaemist ekki ad hja theim i starf og starfsthjalfun eftir faedingu. Hann sagdi ad eg fengi nu sjalfsagt ekki vinnu nuna, enda bara 10 vikur i faedingu, en eg gaeti svo sannarlega farid ad reyna ad koma mer ad. I samhengi vid thetta er eg buin ad akveda ad fara a tolvunamskeid sem hefst nuna i september. Eg hef tha pappir til ad syna ad eg hafi kunnattu a tolvur og thad hlytur ad hjalpa. Namskeidid er vist midad ad grunnthorfum atvinnulifsins. Reyndar er annad namskeid i sama kvoldskola sem eg er alveg veik i ad komast a en verd vist ad bida thar til eftir faedingu. Trampoline for adults. Frabaer hreyfing og utras segja their i auglysingunni. Mikid langar mig ad komast i thetta. Hoppa a trampolin i klukkutima. Og tha er madur buinn ad hreyfa sig fyrir tha vikuna! Jah, eg baeti kannski vid einum og einum sund/jogatima og tha er madur seif. Glaesilegt.

Island er ekkert aegilega populaer her akkurat nuna. Og eg er eiginlega sammala Bretunum. Hvalveidar eru halfskringilegar akkurat nuna. Ef vid vaerum had hvalveidum og hefdum oll alist upp a hvalkjoti og notudum spikid til hitaveitu, tha myndi eg kannski skilja hvalveidar. Ef vid hefdum lafad inni i Hvalveidiradi og aldrei haett hvalveidum eins og Nordmenn tha skipti thetta sjalfsagt ekki mali. En ad byrja aftur nuna eftir 14 ar skytur dalitid skokku vid. Og Bretarnir aetla ad haetta ad borda islenskan fisk aftur. Er thetta i alvorunni vesenisins virdi? Don't get me wrong, mer er alveg sama um thessa hvali, eg er ekki buin ad breytast i Graenfridung eda neitt, en mer er annt um landid mitt og eg get ekki sed ad hvalveidar geri okkur neitt gott.

Eg er komin 30 vikur a leid. 10 vikur eftir. Oh mi god!
Haldidi ekki ad thad hafi bara verid mus ad sprikla herna fyrir utan husid mitt! Eg henti ut pappakassa fullum af dagblodum her a stettina hja mer svona til ad lata hann vedrast adeins adur en vid forum med hann i Sorpu. (By the way tha henda their bara drasli her, ekkert er endurunnid). Og musin snudradi i kassanum og stokk svo ofan i hann og eg sa hana ekki koma upp ur aftur thratt fyrir ad pota i kassann. Kannski er thetta frettamus sem vildi lesa dagblodin! Merkilegast er ad pabbi sagdi mer i gaer ad Kolbeinn hefdi slasad sig a musaveidum i Ammrikunni og Asta sendi mer postkort thess efnis ad hun hefdi sed mus. Hvad eiga allar thessar musir (miklu skemmtilegri beyging) ad takna?

Vid heittelskadi forum i natturugongu i gaer. Keyrdum ad almenningsgardi her rett hja sem heitir Nant Mill. Vedrid var svo fint ad hthad var ekki haegt ad sitja inni. Vid lobbudum fyrst i gegnum skog, medfram litilli a, upp og nidur haedir thangad til ad vid vorum ordin sveitt. Eg nadi ad brenna mig a brenninetlum sem mer fannst mjog skemmtilegt, svona eitthvad sem madur ser i biomyndum. Heittelskadi bjargadi svo domu med thvi ad nudda einhverri annarri plontu a brenndu hendina og laeknadi brunann. Er hann ekki aedislegur! :) Vid roltum svo tilbaka, enda var Babbie Jones farinn ad siga sma i, og settumst a thartilgerda bekki og bordudum samlokur og drukkum kok. Thegar vid komum heim var eg i svo miklu sunnudagsskapi ad eg bakadi koku handa okkur sem vid hamudum i okkur og drukkum mjolk med. Med thessu moti vorum vid baedi of sodd til ad borda kvoldmat thannig ad vid satum bara og spiludum a spil (eg skulda honum £ 3. 45!) fram a kvold. Eg var buin ad gleyma hvad mer finnst gaman ad spila, eins og eg er nu reyndar leleg og tapa illa. Eg og Audur spiludum oft og hun vann alltaf. Stundum drukkum vid heila flosku af Bailey's med klaka svona a medan ad vid spiludum og ekki spillti thad fyrir. MMMMmmm Bailey's...

Eg atti reyndar skemmtilegan dag a laugardaginn lika. Eg og tengdo forum i baeinn og hun for med mig i allar barnabudirnar og keypti og keypti fot og dot handa Babbie Jones. Hann a nuna eg held bara eiginlega allt sem litid barn tharf ad eiga svona fatakyns. Eg aetla sjalf ad kaupa handa honum utigalla og tha er hann bara tilbuinn. Allavega tha var voda naes ad vera bara svona tvaer saman ad kynnast, vid fengum okkur ad borda thegar vid vorum bunar ad versla og eg held ad vid seum bara vinkonur nuna. Eg saknadi mommu minnar samt alveg ferlega vid thetta og brynnti musum (sko! fleiri mys!) lengi eftir ad eg kom heim. Greyid Dave. Hann tharf ad vera allt; madurinn minn og vinur og foreldri og allt. En hann stendur sig eins og hetja thannig ad eg get ekki kvartad.

föstudagur, 15. ágúst 2003

Eg er tha buin ad taka fostudagshringinn minn, vinna i morgun og sund og svo nuna er eg komin a bokasafnid. Eg er buin ad finna lettlestrarefni fyrir helgina og er ad hugsa um ad setjast ut i gard thegar eg kem heim.

Thad var voda gaman i vinnunni i dag. Ny stelpa, Rachel, var ad vinna og hun var voda hress. Svona stelpa sem talar og talar og er god og indael. Hun er buin ad vera atvinnulaus heima hja ser og var ad verda vitlaus a ad hanga. en hun er omenntud og tha er erfitt ad finna vinnu herna, thetta er i annad sinnid sem hun er gerd "redundant". En hun er dugleg og a orugglega eftir ad finna eithvad. Mikid hlytur thad samt ad vera omurlegt ad hafa ekki a.m.k. einhverja menntun og oskir um starf, heldur thurfa bara ad taka hverju sem bydst af thvi ad thad er starf. Eg var buin ad segja Dave ad koma ad na i mig eftir sundid og nadi ekki i hann til ad breyta thvi. Annars hefdi eg bodid henni med i Latte a kaffihusi (Ja kaffihusi!) sem eg fann. Eg sagdi vid hana ad vid faerum bara naesta fostudag.

Eg for svo i sund med sundtoflurnar sem Kristin let mig fa og thvilikur munur. Eg strunsadi bara um alveg ohraedd vid alla drulluna a golfinu og naut thar af leidandi sundsins helmingi meira. Eg tok eftir thvi ad thad er skilti uppihangandi sem a stendur: "Please shower before entering swimming baths" en folk labbar bara framhja. Eg aetla thvi ad taka thad verkefni a mig ad standa vid sturturnar aepandi "jus ze sjover!!" og "No sjover, no svimm ju dorti pigg!!". Eg er bara ekki buin ad akveda hvort ad eg nota thyskan hreim til ad geta aept sem haest eda hvort eg nota posh accent til ad hraeda verkalydinn til hlydni. Dave stakk upp a posh thyskum hreim. Eg tharf adeins ad hugsa thetta ut.

A morgun er svo komid ad thvi ad fara med tengdo ad skoda barnadot. Hun er alveg aest i ad kaupa handa okkur allskonar drasl, er buin ad lata okkur fa fyrir rumi og vill lika kaupa fot og drasl a morgun. Eg veit ekkert hverning eg a ad vera, hun er dalitid overpowering, tho hun vilji rosalega vel, og eg a svo erfitt med ad segja "nei mer finnst thetta ekki fallegt" eda "mig langar i thetta". Eg sannfaerdi Dave reyndar i gaer um ad born geti vel sofid med saeng. Eg er nefnilega buin ad vera ad skoda teppi og drasl sem velsk born sofa med og sorry, en mer myndi lida eins og vondri modur ef eg leti barnid mitt hirast undir svona lusateppum. Thannig ad eg tharf ad fa senda barnasaeng og ver, pronto, fra Islandi, Islandinu goda. (Og Huldamma!, thad ma alveg standa Jesus eitthvad a verinu!:)

sunnudagur, 10. ágúst 2003

Jæja þá er bara komið að því að fara heim aftur eftir mikið prýðisgóða dvöl hér á Íslandi. Ég hitti alla sem ég þurfti að hitta (nema Mogensen, jävla!) og gat stolt sýnt bumbuna mína þannig að ég fer sátt heim aftur. En ég er líka búin að ákveða að ég kem ekki aftur á klakann án mannsins míns. Ég hlakka strax orðið til næsta sumars þegar ég kem með hann og Babbie Jones og fer með þá hringinn og sýni allt sem fallegast er hér á landi hér. Dave hefði t.d. skemmt sér konunglega í gær; honum hefði þótt skemmtilegt og skrýtið að grilla í mígandi rigningu. Honum hefði þótt fyndið að standa í fjörunni í kæfandi grútarlykt og syngja sjómannalög. Honum hefði þótt frábært að fara í partý þar sem allir sátu í hring og sungu. Hann hefði sjálfsagt líka haft gaman af því að fara á ball þar sem elsti maðurinn var 76 og sá yngsti 14. Og báðir jafn fullir.

Ég þarf að þjálfa upp í mér spjallið. Ég bara er ekki með svona spjallgen í mér. Maður hittir fólk sem maður hefur að sjálfsögðu ekki séð lengi lengi, en ég kemst bara ekki lengra en:"Nei hæ! hvað segir þú gott?" Svo þegi ég og allir halda að ég sé svona hrokafull. Ef ég reyni að neyða sjálfa mig til nánara spjalls þá fer ég bara að segja bláókunnugu fólki frá mínum innstu hjartans málum þannig að ég virka annaðhvort sérlega einföld eða pínlega opin. Ég bara veit ekki hvernig maður fer milliveginn. Kannski er bara allt í lagi að vera svona. Kannski líður mér alltaf vel af því að á mér hvíla engin leyndarmál eða vandræðalegheit, ég burðast ekki um með neinar byrðar. Hvað um það, í gærkveldi á Hafnardögum hefði ég vilja tala meira við fullt af fólki en fólk var svo fullt að það var ekki hægt. Ó vell, næsta sumar verð ég bara full líka og næ að tala við fólk þá.

þriðjudagur, 5. ágúst 2003

Hann Dave minn er búinn að bjóða vinafólki sínu (verðandi vinafólki míinu býst ég þá við) í mat. Hann er búinn að lofa hæfileika mína sem kokks í hástert og þau eru farin að hlakka til að smakka dásemdirnar. Ég aftur á móti er alveg í mínus því ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að bjóða upp á. Þarf ég að hafa "íslenskt eldhús"? Gera einhvern djúsí fiskrétt svona bara af því að ég er Íslendingur? Eða má ég hafa mangó kjúklinginn hennar Kristínar sem er víst sérlega góður þó hann sé nú ekki spes Icelandic? Ég veit það eitt að ég ætla að gera ostaköku í eftirrétt því hana geri ég vel og bæði erum við Dave sólgin í ostakökur. Kannski að ég skrifi bara upp lista af nokkrum for og aðalréttum sem ég veit að ég get gert góða og leyfi Dave að velja af listanum. Annars eru allar góðar hugmyndir vel þegnar.

Annars er ég hálf svekkt út í Ísland. Ég kom hérna gagngert til að gera það klárt að ég fengi fullt fæðingarorlof eins og ég tel mig eiga rétt á en strax við fyrstu stofnun í dag kom babb í bátinn. Ég er bara ekki viss um að ég geti dílað við eitthvað vesen núna því eins og áður hefur komið fram eru tárin fljót að koma ef eitthvað bjátar á og það gerðist einmitt í dag. Maðurinn hjá Fjölskyldu- og Styrktarsjóði sagði mér að ég hefði fengið rangar upplýsingar og að ég ætti ekki rétt á greiðslum úr þeim sjóði eins og þeir hjá KÍ höfðu sagt mér. Ég rétt náði að segja bless áður en ég brast í grát og ég er bara búin að vera niðurdregin allan dag út af þessu. Verst er að þegar ég er dán þá finnst mér ég líka vera ófríð. Eins og ég er búin að vera sæt núna mánuðum saman þá var ég voðaleg útlits í dag. Ekki gaman það.

Ég hitt i reyndar Ólínu í gær og það var alveg frábært því hún róaði mig voða mikið niður með þetta stress mitt um að eiga allan heiminn handa Babbie Jones. Maður þarf bara að eiga mjúka bómullargalla og þá eru þau sátt. Ég ræð við það. Ég er svo tilbúin að gefa honum alla mína ást og vona að það komi í staðinn fyrir veraldlega hluti. Vonandi er það nóg.

mánudagur, 4. ágúst 2003

Mamma mín á alveg forláta baðvog. Fallega hannaðan grip sem virkar dálítið grennandi vegna framúrstefnulegs útlits. Sjálf á ég ekki vigt og er eiginlega alveg sama. Ég veit að ég er dálítið væn þessa dagana en finnst ég löglega afsökuð. Engu að síður þá var eitt af því fyrsta sem ég gerði þegar ég kom heim var að stíga á téða vog og kanna ástandið. Og viti menn, ég hef einungis þyngst um tvö kíló síðan að barnið kom undir, fyrir einum sex mánuðum! ég á tvímælalaust meira inni en það, barnið sjálft vegur orðið kíló núna. Ég hlýt því að hafa grennst sjálf fremur en hitt. Ég verð greinilega að herða við mig í ísátinu. Foreldrar mínir eru aftur á móti algjerlega háðir vigtinni. Hún er ekki inni á baði, heldur stendur hún á miðju stofugólfinu þar sem þau óttast hana og dýrka svona eins og hjáguð einhvern. Nokkrum sinnum á dag stíga þau á hana og í hvert sinn bærast varir þeirra í hljóðri bæn um hagstæða tölu. En eins og aðrir guðir þá verður hún sjaldan við bænum þeirra og niðurlút stíga þau af henni í þeirri vissu að það eina sem þeim tekst að safna af einhverju viti eru fleiri aukakíló. Ég skil eiginlega ekkert í þeim. Ég held einmitt að mamma mín og pabbi séu bara með myndarlegra fólki sem ég hef séð.

sunnudagur, 3. ágúst 2003

Tha, nei þá, er madur komin heim i frí. Mikid ljómandi gott að hitta gamla settið og fá appelsín og lakkrís. Eina vandamálið er hvað ég sakna mannsins mikið. Það er bara ekkert gaman án hans. Mikið er maður fljótur að venjast því að vera tveir. Og mikið óskaplega er það gott að vera tveir.

miðvikudagur, 30. júlí 2003

Vid Dave forum til Chester i gaer, ad skoda dot handa litlu barni i Mothercare World. Eg er enn i vaegu sjokki. Thetta byrjadi allt mjog sakleysislega; vid saum thad sem vid vorum ad leita ad, vagna, og fundum fljott draumavagninn. Hann er alveg svakalega flottur, svona torfaeruvagn, ur grabrunu ruskinni eda eitthverju thesshattar og er bilstoll, vagn og kerra allt i einu. Liggur vel i beygjum og klaedir baedi mig og manninn serlega vel. £ 220. Sem eg held ad se nokkud vel sloppid, svona midad vid hvad madur faer. Allavega, vid akvadum svo ad rolta um budina og sja hvad okkur vantar. I stuttu mali tha vantar okkur allt og eg veit ekki hvar eg a ad byrja. Hvad a eg ad eiga margar samfellur? Morg nattfot? Hufur, vettlinga, sokka? Hvad tharf eg ad kaupa handa mer? Tharf eg ad eiga brjostapumpu? Bad, skiptibord, skiptitaska, barnastoll, endalaust af fotum... og hvad a eg ad kaupa mikid af nyfaeddu doti? Thad er bara svo og svo lengi sem hann verdur nyfaeddur. Staekka thau ekki med ognarhrada? Eg verd ad vidurkenna ad mer bara fallast hendur og eg get ekki keypt neitt thegar eg horfi fram a thetta allt saman. Eg snerist i hringi inni i budinni i meiri og meiri taugaaesingi og endadi a ad labba ut med tvo litla sokka i poka. Eg bara meika thetta ekki. Mig vantar allt og veit ekki hvar eg a ad byrja. Eg er svo hraedd um ad gera einhverjar vitleysur, setja hann i vitlaus fot eda gefa honum of mikid ad borda eda hafa of heitt inni hja mer eda gleyma honum i Kringlunni eda skipta ekki rett a honum eda...eda...hvernig fer folk eiginlega ad thessu? Eg veit thad bara ad eg ma ekki hugsa of mikid um thetta, eda skoda baeklinga med barnadoti og tha fer eg i sjokk. Og samt, samt bara get eg ekki bedid eftir ad hitta hann.

mánudagur, 28. júlí 2003

Merkilegt stundum thetta lif. Eg er nu svo lansom ad hafa ekki erft svefnraskanirnar fra henni mommu, brodir virdist hafa tekid thad allt a sig. Eg sef bara og sef og hef thad nadugt. Eg virdist nu samt ekki alveg hafa getad latid thetta i fridi thvi Dave hefur afskaplega skringilegar svefnvenjur. Hann sefur eiginlega bara vodalega litid. Eiginlega eins og mamma nema hann er svo lukkulegur ad thegar hann er buinn ad vera andvaka i nokkrar naetur tha tekur hann thad allt ut i einu. Mjog skrytid fyrir mig sem er sofnud fyrir midnaetti og sef streit i 8 tima ekkert mal. Eg helt ad madur aetti ad saekjast i einhvern sem likist pabba manns, ekki mommu! Og tho hann se dokkur yfirlitum eins og gamli, tha held eg bara hreinlega ad mer detti stundum kenjar sem mamma segir vera fra Sydra-Velli i hug thegar eg fylgist med honum. Alveg skrytid thad.

Eg er mjog nervos yfir heimforinni. Audur hringdi i gaer og vid raeddum adeins naeturlifid i Reykjavik. Eg sagdi vid hana ad thegar ad Dave for ut a lifid tha spurdi eg hvert hann faeri og hann sagdi bara thetta vanalega, pobbana sem hann hefur farid a sidustu tiu arin. Eg for ad hlaeja og sagdi vid hann ad ef hann kaemi heim med mer nuna tha myndi eg ekki vita hvert vid aettum ad fara thvi thad breyttist svo ort. Audur spurdi mig tha hvort eg vildi fa ad vita hvert madur aetti ad fara. Ju, madur a ad byrja a 101, fara svo a Mojito eda Olstofuna og enda svo a Kaffi 11. (?!!?) Eg for fra Islandi fyrir tveimur manudum sidan, TVEIMUR! og eg hef aldrei heyrt minnst a neinn af thessum stodum. Eg er sjalfsagt ordin baedi hallo og omurleg og get hvergi latid sja mig. Eg drekk ekki einu sinni retta drykkinn. Nuna er vist enginn madur med monnum a Islandi nema hann drekki Mojito. I fyrra var thad Cosmopolitan. Hvad er thetta med Islendinga og trend? Eg er svo fegin ad vera laus ur fra thessari barattu um ad vera smart og trendi. Fattar thad enginn ad eina leidin til thessa d halda uppi standardnum sem hefur verid settur a Islandi tharf madur ad stela fra Simanum? Thad eru allir a hausnum og samt heldur gedveikin bara afram. Hvad um thad, eg gat ekki annad en hlegid thegar Ausa sagdi ad mafur yrdi ad drekka Mojito. Sidast thegar eg drakk Mojito var eg i Madrid. Hafdi villst inn i Barrio sem heitir Sueca, thar sem Kubverjar, Sudur-Amerikanar, sigaunar og hommar bua. Einhver framtaksamur Kubverjinn hafdi brotid nidur einn vegg a litlu husi thannig ad vid gapti opid herbergi. Thar inni var planki lagdur ofan a tvaer tunnur til ad bua til barbord, og a barbordinu stod stor tunna og vid hlid hennar litill vindlakassi. Upp ur tunnunni jos hann Mojito i plastglos og madur keypti ser halfan liter a 100 peseta (50 kall). Svo stod madur bara a gotunni med folkinu og hlustadi a sigaunana spila og syngja og pissadi svo utan i vegg ef thannig stod a. Fataekradrykkur. Hvad aetli ad thotulidinu a Islandi thaetti um thetta, vitandi ad thad borgar sjalfsagt 1200 kall fyrir dreitil ad drykknum? I honum er by the way Romm, hrasykur, mulinn is og fersk mynta. En hver timir ad kaupa ferska myntu a Islandi? Ruglid alltaf hreint. Getur ekki einver startad trendi sem krefst thess ad madur drekki Islenskt i vatn og sitronu? Madur a ad minnsta kosti fyrir einu eda tveimur glosum af theim edaldrukk.

föstudagur, 25. júlí 2003

Thetta var stutt strid: elsku kallinn gafst upp rett eftir kvoldmat a midvikudag, en hefur sidustu tvo daga tekist ad reykja undir 10 sigarettum a dag. Eg verd ad vidurkenna ad eg er halffegin, hann neitar ad nota hjalpargogn en tharf svo greinilega a einhverju sliku ad halda.

Gaerkvoldid var svo alveg yndislegt. Vid pokkudum nidur samlokum, kok og kaffi a brusa, teppi, regnhlif og tveimur utilegustolum og heldum af stad. Leikritid var synt i Erddig (borid fram orvigh) sem adur var herragardur en er nuna opinber gardur og listhus i rauninni. Husid sjalft og gardurinn er alveg storfenglegt og frabaer bakgrunnur fyrir leikritid. Minnti helst a Netherfield thar sem Mr. Bingley bjo. Thad var uppselt a syninguna og thvi nokkur hopur folks sem var tharna samankominn i litlu rjodri, umlukid haum trjam. Vid komum stolunum okkar fyrir og nosludum a samlokunum okkar og drukkum kaffi og nutum vedursins. Flestir hinna leikhusgestanna voru greinilega sjoadir i thessu, margir voru med svona ekta "picnic-baskets", tagakorfur serhannadar til ad halda hnifaporum, glosum, diskum og mat. Velflestir komu med kaelt hvitvin, salat og kaldan kjukling. Og allir eiga svona utilegustola eins og eru naudyn a Islandi, med bjorhaldi. Eg get ekki bedid eftir naesta sumri. Tha aetla eg sko vera buin ad eignast svona korfu og fylla hana af hvitvini. Skitt med kjullann. Dave var svo alveg hissa thvi allt um kring var folk ad tala med thvi sem hann kallar "posh-accent". Hann helt ad thad vaeri enginn posh i Wrexham, en sagdi svo ad thad vaeri svo sem eftir mer ad thefa uppi snobblidid. Eg get natturulega ekki sed ad thad ad fara i utileikhus med samlokur se "fint", en svona er thetta her, allt skipt nidur og skipulagt.
Leikritid sjalft var svo alveg frabaert. Thau voru bara fimm sem leku oll hlutverkin og thad var sett upp i svona yktum gaman farsa stil, enda bydur textinn og karakterarnir upp a slikt. Textann fra Austen notudu tha omengadann enda afskaplega fyndinn og skemmtilegur texti. Dave, sem ekki hafdi lesid bokina skemmti ser konunglega, thratt fyrir ad ohaett se ad segja ad Hroki og Hleypidomar se fyrsta "Chick-lit" bokin, og er oneitanlega ekkert annad en hreinraektud astarsaga. Vid skemmtum okkur svosem oll alveg konunglega, hlatraskollin omudu ut i velska sumarnottina sem stod undir vaentingum. thad kolnadi og hvessti thegar tleid a kvoldid, og tha kom teppid ser vel, og svo um leid og Darcy og Lizzie nadu saman, byrjadi ad uda sma. Og svo thegar leikararnir hneigdu sig tha byrjadi ad hellirigna og stytti lofatakid kannski otharflega mikid. Vid pokkudum thvi saman i flyti og flyttum okkur heim eftir alveg frabaert kvold.

Eg aetla ad drifa mig heim nuna, var ad koma beint ur vinnu og sundi og er halfthreytt. Sumarfriid var ad byrja hja skolakrokkunum (ekki aetla eg ad vera kennari her!) og sundlaugin thvi full og ovenju skitug golfin. Eg er ekki par hrifin og tharf ad reyna ad finna gamla Speedo plast sandala thegar eg kem heim. Eg er ekki alveg ad venjast thessu "sund an sturtu" fyrirkomulagi.

miðvikudagur, 23. júlí 2003

Thad rikir stridsastand a heimilinu i dag. Madurinn er ad gera enn eina tilraunina til ad haetta ad reykja. Hann reyndi fyrst ad minnka alltaf skammtinn um eina a dag, og thad gekk agaetlega, thangad til ad eitthvad gerdist til ad hann byrjadi aftur. Eg man ekki hvad. Sidan hefur hann reynt tvisvar ad haetta cold turkey og hefur lengst dugad til klukkan 5. Mer skilst reyndar ad honum se alvara i dag og nu se ad duga eda drepast. Vandamalid er ad eg er lika ad drepast. Givi minn gour, hann er eins og ljon i buri, stikar um og geltir a mig ef eg segji eitthvad. Mer skildist a Hulduommu ad hun hafi verid svona, langadi i helst til ad drepa einhvern. Eg er thvi ekkert of spennt akkurat nuna fyrir thvi ad vera nalaegt honum. Uss og svei. Eg haetti bara ad reykja og tho mig langi stanslaust i sigo tha haga eg mer ekki eins og bjani! Eg hef voda litla samud med honum, svona okkar a milli. Thad hjalpadi reyndar ekki ad vid vorum ordin matarlaus og thurftum ad fara i bud ad kaupa i matinn. Eg elska thad ad versla i matinn herna, og get verid allt upp undir tvo tima i matvorubud, medan hann verdur pirradri og pirradri. Eg reyndi thvi ad flyta mer i dag og naut thar ad leidandi ekki verslunarinnar eins og eg er von, og hann var samt pirradur. Thetta er aegilegt. Eg sagdi vid hann ad hann yrdi ad fa lyfsedil fyrir Zyban en hann vill ekki gera thad. En eg sver thad ad eg nenni ekki ad bua med honum i svona skapi. Vonandi er thetta bara fyrsta daginn. Ju minn eini!

Ja, eins gott fyrir hann ad haga ser a morgun thvi tha eigum vid mida a Hroka & Hleypidoma. Vid thurfum ad fara med teppi og samlokur og bidja til Thors um ad thad rigni ekki. Thad spair reyndar rigningu en thad er ekki alltaf haegt ad stola a spadomana her. Eg er buin ad hlakka til ad sja leikritid i margar vikur og aetla ad njota thess. Thetta er vist alveg ljomandi skemmtileg uppfaersla og min uppahalds bok.

þriðjudagur, 22. júlí 2003

Mig langadi alveg svadalega a kaffihus i gaerkvoldi. Rolta nidur i bae, fa mer einn latte og smok og tala um hvad mig langar i kaerasta vid Astu. Merkilegt hvad gamlir hundar setjast seint.

mánudagur, 21. júlí 2003

Asta hringdi i gaerkvoldi og minnti mig a ad thad eru teapar tvaer vikur thangad til ad eg kem til Islands i sumarfri. Alveg frabaert thad. Eg er natturulega spennt yfir thvi ad hitta mitt folk, en mest held eg ad eg hlakki til ad leyfa ollum ad finna litla sparka. Eg kemst bara ekki yfir hvad mer finnst thad gaman. I gaerkvoldi hvildi eg bokina sem eg var ad lesa a bumbunni og hann sparkadi svo fast ad bokin hreyfdist. Svo fae eg reyndar regluleg taugaafoll thegar mer finnst hann ekki sparka nog og held ad tha se eitthvad ad hja honum. Eg segji thad og stend vid thad ad eg skil enn ekki hvernig folk fer ad thvi ad eiga born, madur hlytur ad vera blar af ahyggjum allan daginn, thad er svo otal margt sem getur komid fyrir thau.

A laugardagskvoldid skildi Dave mig eftir heima med snakk og viedeo og for sjalfur ut ad hitta strakavini sina. Planid var ad drekka bjor. Hann helt ad eg hefdi eitthvad a moti planinu (eg sver thad ad strakar hafa svo margar ranghugmyndir um konur, eg "a" ad vera reid af thvi ad hann drekkur bjor! Eg skil ekkert i thessu, eg vaeri svo sannarlega drekkandi bjor ef thad vaeri ekki ohollt akkurat nuna) en eg var mjog anaegd med ad hann faeri ut. Engin astaeda til ad einangra sig fra vinum sinum tho madur eigi oletta kaerustu. Thannig ad eg hafdi thad ljuft, horfdi a "Real women have curves" (agaet en hefdi matt vinna betur ur efninu), drakk Diet-Coke og bordadi snakk og Maltesers thangad til ad mer vard bumbult. Thegar hann kom svo heim skreid hann upp stigann, rakst a vegg, sagdi mer ad thad vaeri ekkert gaman an min, gubbadi i klosettid og sofnadi svo i ollum fotunum til fota. Thegar hann vaknadi svo i gaermorgun var hann alveg i minus og helt ad eg vaeri reid og ad hann thyrfti ad gera eitthvad spes fyrir mig. Eg skil ekkert i thessu, ju kannski ef hann vaeri stanslaust fullur eda ef hann vaeri leidinlegur thegar hann drekkkur eda eitthvad thannig tha vaeri thetta kannski odruvisi, en einu sinni?! Eg se bara ekkert ad thessu. (Hann segist reyndar aldrei framar munu drekka, en eg hef nu svo sem sagt thad sjalf i thynnku.) Mer finnst meira ad segja fulli-dave alveg hrikalega skemmtilegur. Sem er mikill lettir.

miðvikudagur, 16. júlí 2003

Alla vikuna er vedrid buid ad leika vid okkur veilsverja, thangad til a midvikudagskvold thegar skyndilega kom thetta lika thrumuvedur med tilheyrandi latum. Eg hreinlega missti af ER (nyjum) vegna thess ad eg var svo spennt yfir latunum, hoppadi um og splaskadi i rigningunni. I gaer helt svo afram ad rigna thar til ad midbaerinn flaeddi yfir. Vid buum efst a haed og thurfum ekki ad stressa okkur a svoleidis veseni sem betur fer. I dage r svo aftur 30 stiga hit. Annadhvort i okkla eda eyra.

Eg var ad koma ur vinnunni, eg held ad planid um ad kynnast folki se dottid um sjalft sig, enda bara gamlar kellingar sem vinna tharna. Mer finnst samt voda gaman ad vinna thannig ad thad er svo sem i lagi. Eg kikti inn i OxFam og thar er yngra folk. Sjaum hvad setur. Mer synist eg vera buin ad koma reglu a thetta, fer i vinnuna, fae mer drykk, fer svo ad synda, stoppa vid her a leidinni heim. Mjog gott. Eg keypti allavega svaka fin sundgleraugu i dag thannig ad ef eg syndi ekki nuna tha fae eg samviskubit og thad gengur ekki upp. Kilometri i dag. Thad er fin byrjun.

Min beid svo oveaent bref i hotmeilinu. Saffron Gallup, breska stulkan sem bjo hja okkur og kenndi med okkur Mommu a Reydarfirdi, skrifadi upp ur thurru vegna thess ad hun verdur a Islandi i thrjar vikur i agust og vill endilega hittast. Eg var eiginlega buina ad gleyma Saffron, hafdi ekki heyrt i henni arum saman. En alltaf gaman ad endurnyja kynnin. Hun spurdi i brefinu hvort thad vaeri kannski tilgangslaust ad reyna ad hitta a mig a Islandi, eg byggi sjalfsagt a einhverri tropiskri eyju i Sudurhofum, en eg gat skrifad til baka og sagt ad nei,tha byggi eg reyndar i Wales. Hun er fra London og finnst Wales sjalfsagt hallaerislegasti stadur a jardriki. Thad verdur samt gaman ad hitta hana, eg er akkurat a Islandi a sama tima og hun.
Dave hringdi i morgun ur vinnunni med aldeilis skemmtilegar frettir: hann fekk stoduhaekkun, er nuna ordin yfir a rannsoknarstofunni og laun og annad fer haekkandi i samraemi vid thad. Hann fer tha lika smam saman ad vinna skemmtilegri vaktir, 12 timar a dag er svona i lengsta lagi ad minu mati. Thetta gaeti natturulega ekki hafa komid a betri tima, svona med barn a leidinni og svona. Mer skilst ad thad se nettur aukakostnadur sem fylgir thvi ad eiga barn, ha pabbi, er thad satt? ;) Allavega thad er alltaf gott ad fa svona vidurkenningu fyrir ad madur se einhvers virdi a vinnustadnum og hann hlakkar til ad takast a vid abyrgdina sem fylgir mannaforradum. Duglegur strakur!

Hja mer er hins vegar allt i kaosi. Thegar eg kom hingad tha voru syningar a nyjustu seriunni af ER thegar hafnar, og eg missti thvi af fyrstu thattunum. Eg dro djupt andann og hugsadi med mer ad eg gaeti litid vid thvi gert, betra ad hafa eitthvad ER en ekki neitt. Og thessi seria er alveg ljomandi. Um daginn tok eg svo eftir thvi ad their a Channel 4 eru ad endursyna gamla ER thaetti klukkan 10 alla virka morgna. Eg kikti a einn en thurfti ekki ad horfa thvi thetta var sidasta seria, Mark halfdaudur og allt i volli. Sem betur fer thvi eg er alveg a moti thvi ad horfa a sjonvarpid a morgnana, eg aetla ekki ad verda heimavinnandi husmodir sem horfir a spjallthaetti um framhjahald og DNA fadernisprof. Nei takk! I morgun kveikti eg svo ovart a sjonvarpinu thegar eg var ad setja fjarstyringuna a rettan stad og hvad er i gangi? ER thattur sem eg hef ekki sed! Their eru ad syna fyrri hluta thessarar seriu nuna! Thannig ad eg horfi a thetta allt i vitlausri rod. Og tharf nuna ad fara ad horfa a daytime TV. Givi minn gour, thetta er allt ofugsnuid. Hvernig sny eg mig ut ur thessari klipu?

I gaer sat eg uti i solbadi thegar ad barnid for ad hreyfa sig. Ekkert oedlilegt vid thad nema ad i stad thess ad sparka eins og vanalega, tha var eins og hann vaeri a krafsa i mig. Alveg stodug svoleidis hreyfing. Svo for mer ad lida half illa yfir thessu og for inn. Tha haetti hann. Eg for aftur ut og tha byrjadi hann aftur. Eins og hann vaeri ekkert spenntur fyrir solinni. Kannast einhver vid thetta eda a eg von a vampiru?

þriðjudagur, 15. júlí 2003

Jaeja tha er eg alveg buin ad jafna mig a sjokkinu sidan i gaer. Vid kurdum okkur saman og skodudum myndirnar af litla prinsinum af Wales og erum ordin nett spennt eftir ad hitta hann. Eg get hreinlega ekki bedid eftir ad kynnast honum. Mikid verdur thad gaman.

Thad er enn einn solskinsdagurinn her, eg veit bara ekki hvadan allar thessar sogur um velska rigningu koma. En thau segja thad sjalf ad her se svo mikil rigning alltaf ad hun aetti ad vera theirra helsta utflutningsvara. Mer synist vedrid nu samt vera svona dalitid eins og a Islandi: algerlega outreiknalegt. Sem er hid besta mal. Eg aetti nu eiginlega ad vera uti i solbadi en er einhvern vegin ekki stemmd i thad. Merkilegt, eg fae halfgert samviskubit ef eg laet solina sleppa fra mer, madur er ordinn svo vanur thvi ad thurfa ad lepja hvern einasta geisla upp og ef madur sleppir thvi er madur naestum eins og landradamadur. Eg verd ad fara ad venjast thvi ad her er sumarid lengra en dagur og thad ma alveg buast vid solskini sem thessu i nokkurn tima.

A sunnudaginn rolti eg mer nidur brekkuna til ad heimsaekja tengdo. Tok med mer eina heimabakada koku til ad sverma fyrir theim og svona til ad koma sunnudagakaffishugmyndinni ad. Eg var klaedd i kvartbuxur, hlirabol og tatiljur, og solin skein thannig ad eg tok med mer vatnsbrusa til ad verda ekki thyrst a leidinni. Thegar eg var halfnud fattadi eg ad eg fann enkki utlenska lykt lengur. Nei, a leidinni fra Rhos til Johnstown tapadi eg utlensku lyktinni og nuna ilmar Wales eins og eg eigi heima her. Aetli ad eg finni tha prumpufyluna ad heita vatninu a Islandi (sem Dave var i losti yfir) naest thegar eg kem heim? Thad verdur spennandi ad sja.

Eg og tengdamodir min aetlum svo ad fara ad bonda dalitid. Hun minnti mig a ad thad eru bara 13 vikur thangad til ad piltur kemur og kominn timi til ad fara ad kaupa voggu og vagn og fleiri samfellur og nattfot handa honum. Hun vill endilega gefa okkur vogguna og fleiri fot. Eg segji natturulega bara takk aedislega. Juminn eini, eg tharf ad fara ad velja barnarum! Og svo aetlum vid mama ad skoda vagna thegar eg kem heim! Rosalega er thetta skrytid, eg fer alveg fra thvi ad vera veik af tilhlokkun ad fa drenginn upp i ad thora ekki fyrir mitt litla lif ad taka abyrgd a thessu. Uff!

Eg laerdi sidan nytt ord um daginn og thad hefur komist i algjort uppahald hja mer. "Dickwad". Thvi midur get eg aldrei notad thad, enda alveg framunalega donalegt, en Dave segir thetta alltaf um folk sem svinar fyrir hann eda er fyrir honum a einhvern hatt. I hljodi reyndar. Enda alveg framunalega kurteis ungur madur. Hann var meria ad segja ekki viss um hvort hann maetti segja Gunna og Simmi vid mommu og pabba, helt ad hann thyrfti ad kalla thau Mr. Karlson and Mrs. Sigrflodiflodiblodttir en gat thad ekki heldur, og svitnadi svo bara thegar thau hringdu af thvi ad hann var svo hraeddur um ad modga thau. Hi hi! Hvad um thad mer datt bara i hug ad einhver tharna uti myndi vilja faera ser thetta ord thad i nyt. Og svona by the way tha er "Twat" mun donalegra en eg helt. Eg helt ad thad vaeri svona eins og ad kalla einhver kjana eda aula en thad er meira eins og ad segja helvitis drullusokkur. Merkilegt hvad blaebrigdi tungumalsins eru manni stundum hulin.

mánudagur, 14. júlí 2003

Vid forum i dag i sonar og skodun. Vid vorum baedi mjog spennt en Dave tho kannski synu meira, hann var ju ad fara ad fa ad sja barnid i fyrsta sinn. Sonarinn er a spitalanaum thar sem eg kem til med ad eiga barnid og mer leist vel a spitalann sjalfann. Allt hreint og fint tho allt se dalitid gamalt. Hvad um thad, thegar eg lagdist a bekkinnn til ad fara i sonarinn sa eg strax ad thetta var ekki eins og eg vildi hafa thad. Sjonvarpsskjarinn sneri fra okkur Dave thannig ad vid saum ekki neitt. Stulkan sem skodadi sagdi ad hun myndi byrja a thvi ad skoda allt saman og svo myndi hun snua skjanum og syna okkur barnid. Svo vann hun bara i 15 minutur an thess ad segja ord vid okkur Dave. I sonarnum a Islandi sa eg allt sem gerdist og hun utskyrdi allt um leid og hun sa thad. Thad var mun thaegilegra. Eg spurdi ad lokum hvort allt vaeri ekki i lagi og tha sagdi hun bara biddu! Svo sneri hun loksins skajnum og vid saum hann og thad var natturulega mjog gott og Dave var alveg i skyjunum en eg var ordin svo nojud ad eg gat ekki notid thess og spurdi hana aftur hvort allt vaeri ekki i godu lagi. Hun sagdi ju svosem, nema ad hun gaeti ekki sed tvo hluti sem hun vildi fa ad sja. Svo aetladi hun ekki ad segja neitt meir. Eg thurfti bokstaflega ad toga upp ur henni hvad var ad: hun fann sumse ekki festinguna fyrir naflastrenginn ne heiladingulinn. Nokkud mikilvaegt baedi tvennt. Eg sagdi henni ad halda afram ad leita og syndi henni myndirnar fra Islandi thar sem thetta tvennt sest vel. Tha loksins sa hun thetta og vid fengum all clear. Eftir thetta var eg ordin nokkud taugaveiklud og vid attum enn eftir ad hitta faedingarlaekninn og ljosmodurina og skoda faedingardeildina. Mer leist ekki vel a laekninn en sem betur fer er hann bara eitthvad yfirmoppudyr, ser aldrei um faedingar, thad er allt i honudmun a ljosmaedrunum og odrum laeknum. Hann sa bara nafnid mitt, og gerdi rad fyrir ad eg vaeri vitlaus utlendingur og talad i allt of haegt og yfirlaetislega vid mig og utskyrdi eiginlega ekki neitt, eg hafdi thad a tilfinningunni ad hann aetladist bara til ad eg myndi setja allt i theirra hendur og afsala mer ollu radstofunarvaldi vegna thess ad eg vaeri utlendingur. Thegar vid sluppum fra honum hittum vid svo ljosuna mina og hun syndi okkur alla faedingardeildina. Thar var eg alveg buin ad fa nog, er nu ekki mikill bogur fyrir, og for bara ad grata. Thetta var allt svo yfirthyrmandi og erfitt og engin mamma og allt ad. En sem betur fer er hun aedisleg og leyfid mer bara ad grata thengad til ad eg gat utskyrt hvad var ad angra mig og hun lofadi mer ad hun myndi passa thad ad thad vaeri farid med mig alveg eins og allar adrar konur, eg redi thessu ollu saman sjalf, nakvaemlega hvernig eg vildi hafa thetta allt saman. Eg veit i raun ekki hvad kom yfir mig (eg er enntha i halfgerdu uppnami) mer leid bara eins og ad an thess ad hafa allt islenskt tha vantadi oryggisnet eda eitthvad thess hattar. Thad er ekkert ad faedingardeildinni, ekki neitt, allt mjog heimilislegt og vel utbuid, thannig ad thetta verdur allt i lagi. Mamma verdur bara ad koma um leid og barnid faedist og hjalpa mer fyrstu dagana med brjostagjof og allt thad. Greyid Dave, eg fer alltaf ad grata ef mer bregdur eda ef eitthvad kemur upp a, svona dalitid eins og eg se fimm ara. Fullordid folk er med svona innbyggdan gratstoppara, madur bregst allt odru visi vid, en stopparinn virkar ekki i mer akkurat nuna og eg skaeli bara. Hann spurdi hvort eg vildi ekki bara eignast barnid heima, en eg get ekki hugsad mer ad vera an hans i svo langan tima. eg myndi thurfa ad koma heim i byrjun agust og svo ma eg ekki fljuga eftir thad. Thad gengur bara ekki upp. Enda lika thegar ad eg hugsa um thad tha er thad ekki malid, eg held ekki ad thad se betra ad eiga barn a Islandi, thad ma bara ekkert gerast til ad mer bregdi tha er eg bara buin a thvi. Ef hun hefdi verid almennileg i sonarnum tha hefdi eg ekki einu sinni velt thessu fyrir mer. Hvad um thad eg er ad jafna mig og ljosan min skoradi enn fleiri stig, hun virtist skilja allt og vita nakvaemlega hvad hun atti ad gera til ad lata mer lida betur. Ekki amalegt thad.

Solin skin eiginlega of mikid nuna. Eg er eins og humar ad lit og nuna thegar klukkan er rett ad verda sex er eg ordin svona half dizzy og velkt af hita og svita. Dave er algjor sunbunny thannig ad hann situr haestanaegdur uti i gardi og verdur bara brunni og brunni, en sjalf get eg ekki meira en smastund i einu. Mer verdur bara omott. Enda er svona rakur hiti, allt limist vid mann. Eg bid bara i ofvaeni eftir fyrirframlofudu thrumuvedri.

Jaeja, eg aetla ad drifa mig heim og skoda myndina af Jones Jr. og kyssa Jones Sr. vel og vandlega, svona til ad minna mig a hversvegna eg er herna og hvad eg hef thad gott. Eg hef ekki heldur ekki haft almennilega raenu a ad skoda litla vel og vandlega, hann er reyndar buinn ad staekka alveg otrulega og posadi adeins fyrir okkur, veifadi og saug svo a ser thumalinn.

föstudagur, 11. júlí 2003

Miklir dyrdardagar framundan, 30 stiga hiti fram a midvikudag, med sma thumuvedri. Allt uppahald. Og thetta er buid ad vera mikid skemmtilegur dagur, eg tok straeto nidur i bae i morgun og vann i 4 tima i Cancer Research thrift shop. Hitti allskonar folk og skemmti mer konunglega. Thad litur ut fyrir ad eg se a voktum a fostudagsmorgnum, sem er ljomandi, gefur manni astaedu til ad hefja helgina i baenum, og svo er bara hringt i mann svona ef thad vantar folk. Eg er thvi ad hugsa um ad stoppa vid hja OxFam lika og bjoda mig fram einn eda tvo daga i viku thar. Thad er adeins odruvisi folk ad vinna thar sem gaeti sett meiri lit a lifid hja mer. Hvad um thad, vid sjaum til. Eftir vinnu stoppadi eg vid a samlokubar og for svo i sund. Drullukleprar sem thessi Bretar eru, uni-sex buningsklefar thannig ad madur er i sundbolnum allann timan, rett fer inn i litinn klefa til ad fara ur blalutum bolnum og i nariurnar. Og svo er madur med sjampo og handklaedi i skapnum allan timan lika thannig ad madur fer rennadni blautur um allt og allt golfid drulluskitugt. Bloo! Mig klaejadi hreinlega eftir ad skrubba svona "um mig midja". Og thvi midur er laugin innilaug thannig ad madur fer bara til ad synda, ekki til ad njota solarinnar. Hvad um thad, eg verd vist ad hlyda theirra reglum. eg er bara ad paela i thvi hvort eg komist aldrei yfir thetta, verdi alltaf svona med sma hrukkott tryni yfir skit og drullu eda hvort eg verdi smam saman samdauna og verdi drullubreti? Badir kostir eru slaemir ad minu mati. Hvad um thad, laugin var mjog flott og eg synti bara og synti og lidur alveg svakalega vel nuna. Vellidanin vegur eiginleg upp a moti ollu hinu. eg gelymdi reyndar sundgleraugunum minum i sundtoskunni hennar mommu og thyrfti eiginlega ad fa thau send, ha mamma?! (Sundgleraugu eru greinileg luxusmunadarvara her, enda synda allir med thurrt harid upp ur i kellingasundi, £ 18 stykkid!!)

Ad lokum verd eg ad segja fra hamingjunni a heimilinu. I gaerkveldi var prinsinn serstaklega hress og Dave setti hendina a bumbuna a mer. Og litli sparkadi thannig ad Dave fann fyrir thvi. Thvilik gledi og stolt! Enda aedislegt ad finna sporkin og loksnins eitthvad verulega athreifanlegt fyrir hann. Og eg verd vist ad tilkynna ad Babbie Jones mun leika knattspyrnu fyrir Wales innan tidar.

miðvikudagur, 9. júlí 2003

Jaeja, thetta er nu buid ad vera mikid oskapa godur dagur. Eg hringdi i Huldommu i gaer og fekk uppskrift ad marmarakoku sem eg bakadi i gaerkveldi til ad eiga handa ljosmodurinni. Hun kom i morgun og spjalladi vid okkur Dave. Thetta er allt svo miklu floknara her en heima, en mer list alveg serstaklega vel a hana og tha aetti thetta nu allt ad vera i lagi. Hun fekk handa okkur tima i sonar thannig ad heittelskadi faer ad sja litla prinsinn a medan ad hann er i modurkvidi. Og sa er spenntur. Svo spjalladi hun vid okkur um heima og geima og hrosadi okkur fyrir husid og hversu myndarlegt par vid vaerum. En hun vildi reyndar bara vatnsglas, ekki kokuna thannig ad vid Dave neydumst vist til ad borda hana sjalf, hmmm.

Hvad um thad, vid forum svo nidur i bae og stussudumst heilmikid. Eg a ad maeta a fostudagsmorgun til sjalfbodavinnu og allir voda spenntir ad hitta mig. Thetta verdur orugglega voda gaman, thaer virka allar alveg gedveikar kellingarnar sem vinna tharna. En meira um thad a fostudag. Eg fann sandala a sirkusfaeturnar minar og eg fekk Dave til ad segja "oooh hvad thetta er saett!" um pinkulitla strigasko. Svo roltum vid stefnulaust um i goda vedrinu og midbaejarhverfid er farid ad verda mjog kunnuglegt allt saman. Ad labba um stefnulaust er eina leidin til ad laera ad rata. Vid fengum okkur svo hadegismat a Cafe Zouk sem er svona stadurinn "okkar". Svo fnn eg stystu leidina i sundlaugina fra vinnunni og planid thvi nuna ad nota ferdina i baeinn til ad skella ser i sund. Verst er ad hver skipti kostar ein 3 pund. thad er nu bara dyrara en heima! A leidinni heim stoppudum vid svo vid i Erddig lisstamidstodinni og keyptum mida a "Pride and Prejudice". Uppsetningin er med fraegum ferdaleikhopi og er sett upp uti undir beru lofti. Vonandi ad thad rigni ekki en ef svo tha verdur madur bara ad koma med regnhlif. Eg er ekkert sma spennt fyrir thessu, ein af uppahaldsbokunum minum, i fallegu utileikhusi, med Dave mer vid hlid. Thetta verdur frabaert.

Eg aetla ad drifa mig heim nuna, Dave er orugglega buinn ad setja stolana ut, thad er 30 stiga hit og otharfi ad eyda solardegi fyrir framan tolvu. Madur er svo saetur med sma lit. Ta ra.

þriðjudagur, 8. júlí 2003

Eg var ad koma fra ljosmodurinni og mer leist nu bara vel a hana sem er gott. Mer synist nu samt ad eg thurfi ad gera allt upp a nytt, hun tok ad minnsta allt blodid ur mer og aetlar ad senda i somu rannsoknir og voru gerdar heima. Blodthrysingurinn er alveg godur og edlilegur thannig ad eg hef ekki miklar ahyggjur af thvi lengur, nu er thad eina sem veldur mer ahyggjum er keisarafaeding. Eg las i bokinni ad thad er mikil fylgni a milli offitu og keisara og ljosan stadfesti thetta. Eg vil alls ekki gera thetta med keisara. Eg vil endilega faeda barnid. Thannig ad nuna er eg akvedin i ad passa mig gifurlega thad sem eftir lifir medgongu. Graenmeti og fiskur. Annad sem pirradi mig orlitid var ad hun sagdi ad eg vaeri of langt gengin med til ad thad vaeri haegt ad kanna Downs-Syndrom og spinobifida (einhverskonar likamlegur galli). Thau hefdu getad haft samband vid mig mun fyrr. Fyndast vid thetta allt saman er ad hun kemur heim til min i fyrramalid. Eg skil kerfid herna engan vegin. Eg hitti hana i dag og vid spjolludum og hun hlustadi a barnid og tok blod og blodthrysting, en a morgun vill hun koma heim til min til ad spjalla og fa sjukrasoguna mina. Tha getur hun lika sagt mer hvenaer eg get farid ad skoda spitalann og hvernig ante-natal timarnir funkera. En afhverju gerdi hun thetta ekki bara i dag? Vill hun sja hvernig eg by til ad fullvissa sig um ad eg bui ekki i dophreysi eda hvad? Ekki thad ad mer se ekki sama, tha getur Dave hitt hana lika og eg get leikid hostess sem mer finnst gaman, en samt??

Sem stendur horfi eg dalitid a sjonvarpid, vid erum med fimm stodvar sem stendur og sjalfri finnst mer thad nog en mer skildist a manninum eitthvad i sambandi vid fotbolta ef vid faum Sky...hann um thad svo sem. Eg horfi adallega a thaetti sem snua ad heimilinu og husum. Svona dalitid eins og innlit/utlit nema bara godir. Uppahaldid er Better Homes thar sem ad madur getur skrifad og bedid um hjalp og tha kemur innanhussarkitekt med her manna og a einni helgi tekur hann hluta hussins i gegn. Madur bidur kannski um nytt eldhus og tha faer madur thad. Eina er ad madur veit ekkert hvad er i gangi og thetta er allt voda mikid surprise. En alltaf tekst theim voda vel til og allt er aedilsegt. Eg sit algerlega heillud ad fylgjast med breytingunni. Their geta tekid svona venjulegt breskt eldhus (thau eru oll alveg svakalega litil og an skapaplass og innstungna og ljot og skrytin) og brjota veggi og bua til thessi yndilsegu storu bjortu eldhus sem eru baedi eldhus og bordstofa og allt nytt. Mig langar svo ad skrifa theim en aetla ad bida thar til ad eg a mitt eigid. Thetta er nefnilega allt okeypis, sjonvarpstodin borgar morg thusund pund i thetta. En svo eru lika thaettir um hus, their eru t.d. nuna ad velja Britain's best home og mikid eru til morg falleg heimili her. Merkilegt samt hvad their eiga erfitt med ad sleppa thessum hraedilegu teppum sinum, i glaesilegu minimalista husi er engu ad sidur enn blatt teppi a ollu. Alveg skrytid thad. Svo er annar thattur sem er svakalega skemmtilegur en mest af illkvittni. Thar skiptast vinir a ibudum og fyrir £ 500 eiga their ad lagfaera eitthvert herbergi. Thad fer undantekningarlaust urskeidis og allt verdur vitlaust. Mjjog gaman ad sja thad. Ad sidustu ma eg ekki missa af "How clean is your house" thar sem ad tvaer hraedilegar kellingar finna ogedlsega skitug hus og syna hvesu ogedlsegt allt er og thrifa thad svo og reyna ad kenna skitalubbunum sem thar bua hvernig a ad thrifa. Tha er eg alveg i essinu minu oa og aeja yfir skitnum hja bretunum og hreyki mer af hversu hreinlat eg se. Enda buin ad koma mer upp frabaerri rutinu til ad halda husinu minu hreinu og fallegu med adeins 20-30 min. vinnu a dag. Og svo kannski einni og einni vorhreingerningu. En eg reyndar skil ekki hhvernig a thvi stendur ad Bretar virdast alveg heilladir af arkitektur og husum og heimilum en svo er allt alveg glatad heima hja theim i alvorunni. Kannski horfa their bara a sjonvarpid en gera svo aldrei neitt i husinu sinu.

Breta fremja lika afskaplega skrytin mord. Her er byssueign i lagmarki, ekki einu sinni loggan notar byssur og allir eru ad sjalfsogdu haestanaegdir med thad. Bera saman glaepatidni her og i Bandarikjunum og hreykja ser hatt yfir thvi hvad their seu mikid betra folk. En i stadinn fyrir ad skjota hvorn annan svona eins og Kaninn gerir tha eru mordin her personuleg og pervertisk. Nuna er i gangi rannsokn a dauda tvitugs fallhlifarstokkvara sem hrapadi til dauda ur morg thusund feta haed thegar hvorki adal- ne varahlifin virkudu. I fyrstu var talid ad thetta vaeri hraedilegt slys en nuna er komid i ljos ad einhver hafdi fyrir thvi ad sarga i sundur rettu bondin til ad skemma badar fallhlifarnar! Otrulegt en satt og bara alveg eins og i biomynd. Allar adrar frettir af mordum eru svo bara ogedlsegar, allt tengt naudgunum, hrottalegum mordum a bornum eda tha ad ellilifeyristhegar eru bardir til dauda. Half omurlegt allt saman.

A morgun tharf eg svo ad fara i heljarinnar leidangur. Eg thyrfti eiginlega ad fara og kanna hargreidlsustofur baejarins. Mig vantar ordid ad lata ad laga adeins a mer lubbann, bara snikka adeins endana svo thad haldi bara afram ad sikka, en stend sjalfa mig ad thvi ad treysta ekki breskum klippara til ad klippa mig. Eg kem natturulega heim i agust og gaeti latid gera thetta tha en thad gengur eiginlega ekki upp. Eg by her og aetla ad bua her og get ekki alltaf farid til Islands i klippingu. Nei, eg verd bara ad rolta um og reyna ad finna stofu sem er smart. Thad verdur ad segjast ad smart utlitandi stofur og godar klippingar haldast oneitanlega oft i hendur. Svo ma lika reyna ad skoda hvada vorur klipparinn notar. Eg er t.d. alltaf svag fyrir Paul Mitchell. Sjaum hvad setur.

Og nu verd eg ad fara adur en eg set baedi mig og ofaett barn mitt i haettu a surefnisskorti vegna svitalyktarinnar af konunni vid hlid mer. Ta ra.

mánudagur, 7. júlí 2003

Ok, eg held ad eg se buin ad setja inn komment. Sjaum hvort thetta virkar.
Eg fekk moggann sendan fra Huldommu i dag, veglegur var hann og ekki sist vegna thess ad eitt af rumlega sjohundrud nofnum sem utskrifudust ur Haskola Islands var mitt. Og nu er loksins buid ad reka lokahnykkinn a thessa utskrift. HTad ad Mogginn skuli birta nafnid mitt er sonnunin sem eg thurfti. Mikid hlakka eg til thegar Dave kemur heim ur vinnunni i dag og eg get synt honum hvad Island er enntha kruttlegt.

Thad var nu reyndar skrytid ad fletta mogganum thvi stuttu eftir ad eg fann nafnid mitt, rakst eg a minningargrein sem Hanna vinkona min hafdi skrifad um unga danska konu sem var henni tengd. Eg gat ekki ad thvi gert en ad hugsa hvad thetta er allt skrytid, tharna sat eg himinlifandi yfir ad sja nafnid mitt i Mogganum en nokkrum bladsidum aftar er thad ekki svo gledilegt. Otrulegt hvad lifid er dyrmaett og hvad madur gleymir thvi oft.

Og talandi um lifid, tha er eg tvofold thessa dagana, eg finn ordid svo skyrt fyrir thvi ad eg er med lifandi veru inni i mer. Rannveig hringdi i gaer og spurdi tistandi hvort mer thaetti thetta ekki alveg otrulegt. Malid er ad eg get bara ekki talad um thetta eda lyst thessu. It's too big for words. Eg held ad thad skilji thetta hvort ed er enginn sem ekki hefur ordid olettur. En tharna er hann. Sparkar fastar ef eg er ad hlusta a tonlist eda ef eg er ad reyna ad slaka a. Eg finn ordid sporkin med hendinni sem gerir thetta enn raunverulegra. Eg er farin ad finna fyrir thunganum og er farin ad hugsa meira og meira um faedinguna og hvada ahrif thetta hefur i raun a lif okkar Dave. Og malid er ad eg get bara varla bedid eftir ad hitta hann.

Velskan er farin ad valda mer alveg svadalegum heilabrotum. Eg get bara hvergi komid henni inn i nein thekkt skipurit yfir evropsk tungumal. Hvar a hun eiginlega heima? Hun hljomar hvorki ne litur ut eins og neitt sem eg hef sed adur. Veilsverjar eru keltar fremur en Anglo-Saxonar, og lita reyndar ut fyrir thad, her eru allir mun dekkri yfirlitum en i Englandi, en thydir thad ad velska se geliskt mal eins og irska og skoska? Eg finn bara ekki ut ur thessu. Eg er buin ad finna nokkrar sidur, svona "teach yourself Welsh" en ekkert gengur. Eg bara nae ekki hljomfallinu. Eg ber allt fram eins og Islendingur en thad er allt of harkalegt, velskan er mjog syngjandi. Og their bua til sin eigin ord thannig ad madur getur ekki fundid t.d. computer. Nei their thurfa ord eins og tolva! Og their eru ekkert serstaklega hrifinir af serhljodum. Myndi einhver vilja eiga heima i Gwffwnnwch til ad mynda? Merkilegt.

Eg bakadi lummur a sunnudaginn. Dave er alveg himinlifandi yfir haefileikunum, hefur himinn hondum tekid eftir ad hafa bordad beans on toast sidustu 10 arin. Hann og eg fitnum reyndar svona nokkud i takt, hann heldur fram samudarolettu (eg segji skortur a hreyfingarleysi). Sjalf get eg kennt ad jofnu prinsinum litla af Wales og rjomaisati. eg kemst ekki af nema nokkra klukkutima an thess ad fa vanilluis hraerdan ut i hnetusmjori. Eg reyndi nokkru sinnum ad bera vid olettu "cravings" en malid er ad ef eg er alveg hreinskilin tha er eg buin ad vera med svona "cravings" alveg bara sidan ad eg man eftir mer. Og eg er alveg haett ad reyna ad ljuga ad umheiminum og hvad tha sjaflri mer um hvernig heilinn i mer virkar. Hann hefur sidustu 28 arin eda svo veinad a vanillinis med hnetusmjori. Og oletta er engin afsokun. (God damn it!)

föstudagur, 4. júlí 2003

Ja, thad er komin osk um ad eg getji komment a siduna, og eg hef ekkert a moti thvi, vandamalid er ad eg er buin ad steingleyma hvernig i oskopunum madur fer ad thvi og nenni ekki ad stussast i thvi her a bokasafninu. Eg vildi helst ad einhver mundi nenna ad gera thad fyrir mig. En ja thad vaeri oneitanlega gaman ad fa vidbrogd.

Eg fekk nu aldeilis vidbrogd i gaer. Eg var ad stussast i baenum, og byrjadi svona unofficially ad skoda sandala, bara svona ad thvi ad mig langar vodalega i sandala. Kemur ekki i ljos ad eg passa bara ekki i sko her i Wales. Staersta numerid sem var til synis var numer 7 en eg nota greinilega sko numer 8. Eg endadi a thvi ad fara i hverja einustu skobud i Wrexham og hvergi nokkurstadar sast par i minni staerd. Eg kom heim i rusli og madurinn minn hlo sig mattlausan og kalladi mig frik! Hann hefur aldrei heyrt af konu sem notar sko numer 8. Thannig ad eg er ekki lengur islensk gydja, eg er ordin islensk trollskessa. Eg er ekki par hrifin! Ekki mer ad kenna tho velskar kellingar seu allar vanskapadar med fot sem thaer geta omogulega balanserad a! Frik!

Annars gerdi eg goda ferd i baeinn, eg fekk umsoknareydublad hja Cancer Research og vonandi fae eg ad vinna sma sjalfbodavinnu thar nokkra tima a dag. Stjorinn var haestanaegd ad eg vaeri ad saekja um, en thad var svo mikid ad gera hja henni ad hun sagdi mer ad fylla ut umsoknina og koma aftur seinna. Eg gat thvi ekki sagt henni ad eg vaeri bomm og myndi adeins vinna i samraemi vid thad. Vonandi er thad ekkert mal, hun virtist svo fegin ad fa sjalfbodalida og eg er til i ad vinna heilmikid. Otrulegt hvad thaer eru alltaf bissi tharna, folk her er mjog working class og tho nokkur almenn fataekt. Og her er folk ekkert feimid vid ad vera fataekt eins og heima. Her er enginn ad thykjast ad vera neitt annad en thad sem hann er. Eg er dalitid skritin herna innan um Bretana, annars vegar virka eg "posh" med thvi ad bera fram latte heima hja mer og leita ad mozzarella og fersku engifer i budinni, hins vegar er ekki haegt ad setja mig i stett eftir thvi hvernig eg tala plus ad eg er ottalega donaleg af thvi ad eg gleymi alltaf ad segja "please" og segji kannski piss i stadinn fyrir wee. Mjog flokid allt saman. Heppin er eg ad madurinn er heilladur ad thessu, og hann bidur spenntur eftir naesta vandraedamomenti.

Eg aetla thvi as skila inn eydubladinu og utskyra astandid og vonandi fae eg ad vera med. Thad er fullt af kelllingum ad vinna tharna thannig ad eg kemst i kynni vid folk, asamt thvi ad interacta vid vidskiptavinina. Og hef meiri tilgang med deginum. Eg helt aldrei ad eg myndi segja thetta en thad er komid nog af frii.

Svo hringdi ljosan i gaer. Eg gat nu ekki annad en hlegid. Hun hringdi og sagdi "oh hvad er gott ad heyra loksins fra ther", eg hugsadi nu med mer ad hun hefdi getad hringt fyrr ef hun saknadi min svona mikid. Svo helt hun ad Island vaeri thridja heims riki, var alveg steinhissa thegar eg sagdi henni ad eg hefdi verid hja ljosmodur og fengid allskonar laeknisthjonustu og vaeri buin ad fara i sonar, asamt thiv ad vera med plogg um thetta allt saman. Hun helt i alvoru ad eg vaeri komin ruma fimm manudi a leid an thess ad fara til laeknis. (Ekki mer ad kenna ad thad tok breska kerfid manud ad hafa samband vid mig!) og svo sagdi hun mer ad hringja a stofuna sina og panta tima a thridjudaginn og ef simadaman segdi ad thad vaeri allt fullt tha atti eg ad segja ad eg vaeri ad hringja ad beidni hennar og ad hun hefdi sagt ad eg maetti alveg koma. Bidum nu adeins. Afhverju setti hun bara ekki upp tima, og hringdi svo i mig til ad segja mer klukkan hvad eg aetti ad koma? Eg gat nu ekki annad en hlegid. Hvad um thad, eg fylgi glod theirra reglum og hringdi a stofuna hennar og fekk tima klukkan tolf a thridjudag. Og lidur mun betur. Eg var ordin half nojud yfir thvi ad vera ekki med ljosmodur. Eg tharf hana til ad komast i foreldratima og svo eru alltaf einhverjar spurningar sem madur hefur. Svo er eg ordin mjog spennt ad komast i skodunarferd um spitalann. Ljosmodirin arranserar thvi thannig ad madur fer i svona hopferd um faedingardeildina og faer ad sja allt og spyrja. Fint ad fara med fleiri maedrum, theim dettur kannski eitthvad i hug sem madur gleymir sjalfur. Eg er lika mjog spennt ad sja hvernig spitalinn litur ut thvi Channel 4 er buin ad setja af stad samkeppni um skitugasta spitalann i Bretlandi! Folk hringir inn med hryllingssogur og sjonvarpskallarnir far og rannsaka malid og i haust verdur skitugasti spitalinn kryndur. Ekki serstaklega traustvekjandi thad og mer sem finnst nog um drulluna her. Islendingar og Bretar hafa afskaplega mismunandi skitastudul.

Mest skemmti eg mer i vangaveltum um hversu fullordin eg se ordin og hvernig mer gengur ad takast a vid thessa fullordinsadstaedur sem eg er buin ad koma mer i. Olett, med kall. Hver hefdi truad thessu? A vissan hatt er eg afskaplega fegin ad eg hafi nad thvi ad verda svona gomul an thess ad hafa buid med neinum, eda i raun og veru att kaerasta. Eg stend sjalfa mig ad thvi ad gera svo skrytna hluti sem eg hef alltaf sagt ad eg myndi aldrei gera og hef fordaemt adrar konur fyrir. T.d. ad segja ekki thad sem eg meina. "Er eitthvad ad astin min?" spyr hann og eg svara med thjosti "nei, ekkert" en thad er i raun og veru allt ad! Afhverju segji eg thad ekki bara? Eg veit ofur vel ad hann les ekki hugsanir og thad sem meira er hann truir mer thegar eg segi ad ekkert se ad. Og heldur i godri tru ad allt se i fina lagi. Thetta se eg og hlae ad sjalfri mer, en stundum er thetta osjalfrad vidbrogd. Eg held ad stundum thurfi madur bara ad vera stelpa og haga ser svona. Eg se thetta utan fra og er ordin nogu throskud til ad tala um thetta vid hann (og thad sem var sidan upphaflega ad) an thess ad allt fari i haaloft. Eg man eftir mommu ad bysnast yfir skeggharum i vaski, eg held meria ad segja ad hun hafi bysnast yfir thessu i eihver 30 ar, an thess ad gamli minn geri svo sem mikid i thvi. Eg hef alltaf velt fyrir mer afhverju hun skoladi thau bara ekki nidur, hun var ju ad nota vaskinn og thad er ekkert mal ad skvetta sma vatni a thau. Thangad til um daginn ad eg var ad fara ad bursta tennurnar og heitteilskadi hafdi rett adur komid og kysst mig til ad syna ad hann var skegglaus og mjukur. Lovely alveg hreint. Nema hvad ad skeggid var allt i vaskinum. Og adur en eg vissi var meg buin ad aepa a hann. Osjalfratt. Eg for nu reyndar ad hlaeja thvi hann var svo grunlaus um hvad hann hafdi gert, kom alveg af fjollum. Vid skulum sja hvernig thetta fer. Vonandi hreinsar hann bara vaskinn hedan i fra. Ef ekki, tha vona eg lika ad eg nenni ekki ad stressa mig a thvi. Thad er svo mikill otharfi ad stressa sig yfir svona smamunum.

miðvikudagur, 2. júlí 2003

Thad fer alveg otrulega mikill timi fretta i fotbolta her medal velskra. Beckham sem er vist ad flytja sig fra Man. Utd. yfir til Real Madrid, thurfti t.d. ad fara i laekniskodun i gear. Skoduninni var sjonvarpad og thotti frettir. Mer finnast their lika vera helst til sjalfselskir, fatt af thvi sem eg myndi kalla heimsfrettum kemst i sjonvarpid, en thess i stad eyda frettastofur, sem eg helt ad vaeru alvoru eins og BBC, tima i frettir af folki sem er fraegt fyrir ad vera fraegt. Svona dalitid eins og ef Frettastofa rikissjonvarpsins myndi segja landsmonnum fra thvi ad Fjolnir hefdi fengid a broddinn um helgina. Eg er ekki hrifin af thessu, og svona eru flest dagblodin lika. Eg sem brenn af vanthoknun yfir Sed og Heyrt sneplinum er komin til landsins sem fann thetta allt upp. Eg er ad verda klikk a frettum af Jade sem tok thatt i Big Brother (raunveruleikasjonvarpsthattur) fyrir TVEIMUR arum sidan! Jesu Kristi! (Hun var by the way ad eignast barn med Jeff og thau skirdu barnid Bobby Jack.) Thannig ad eg tharf ad laera ad lesa mbl.is.

Talandi um nofn a born tha skemmtum vid Dave okkur vid thad i gear ad skrifa nidur nofn sem koma til greina a Kevin P'al. (Gott nafn!) Dave er ekkert spenntur fyrir ad skira hann einu af thessum fallegu velsku nofnum sem eg er buin ad finna, eina velska nafnid sem honum list a er Gerwyn, sem mer finnst hraedilegt. Thegar thad kom i ljos tha stingur hann bara upp a einhverjum fotboltakollum. Joseph Jones spiladi sumse fyrir Wrexham '73-'75 og var vist nokkud lunkinn og thykir thvi eiga skilid ad lata barnid heita eftir ser. Sama gildir um Mick nokkurn Jones. Uss og svei. Islensk nofn eru eiginlega ur myndinni, eg get ekki gert barninu thad ad thurfa alltaf ad stafa nafnid sitt. ( Yes my name is Porlakur, thats the icelandic letter thorn, which looks like a P but with a longer line, o-r-l a with a comma on top k-u-r. Pronounced Thorloukur. Yes. Me mam's Icelandic.) Nei thetta er of mikil byrdi. Vid skrifudum bara allt sem okkur datt i hug i gaer og akvadum svo ad lata hann sjalfan bara rada. Kannski litur hann ut eins og Tom Jones, kannski eins og Starkadur. Hvur veit?

mánudagur, 30. júní 2003

Thad var ekkki vel valid ad fara i baeinn a fostudag. Thegar eg lagdi af stad var adeins smavegis udi og eg var ad vona ad rigningin vaeri ad haetta. En aldeilis ekki. Akkurat thegar eg var i midbaenum byrjadi thessi hellidemba og eg red ekki neitt vid neitt og ad lokum leit eg ut eins og utignasmadur, med hargreidlsuna i molum og maskarann um allt. Eg akvad thvi ad slaka a og fa mer kaffi og bida med ad bjoda fram adstod mina i sjalfbodavinnu, thvi eg held ad thau hefdi aldrei truad thvi ad eg gaeti hjalpad. Eg leit ut fyrir ad thurfa hjalp sjalf. Eg dulladist thvi um baeinn og keypti mer snyrtivorur og sokka a manninn en eyddi satt ad segja mestum timanum i ad skoda barnafot. Merkilegt alveg hreint. Mer var smeira ad segja alveg sama tho eg saeji ekkert sem mer leist a handa sjalfri mer, eg hefdi getad eytt milljonum i barnid, og thad er ekki einu sinni faett enntha! Eg a enn eftir ad kaupa isbjarnarhufuna handa honum. Lifsaudsyn ad fa hufu med eyrum. Hann er lika ordin svo raunverulegur nuna, hann sparkar og sparkar i mig, og i gaer sver eg ad eg gat fundid thad i gegnum allt sem eg er med aukalega utan a mer. Vonandi hef eg rett fyrir mer, Dave er ordin halfofundjsukur ad finna ekki fyrir neinu. Thad vaeri gaman fyrir hann ad finna fyrir thessu lika.Hann reyndar talar og talar vid magann a mer, og eg sver ad litli er farinn ad thekkja roddina hans thvi hann verdur aestari thegar pabbi hans er buinn ad tala vid hann i smastund.

Dave var ad vinna um helgina thannig ad vid gerdum svo sem ekki mikid. Eg for sumse i baeinn a fostudag og tok svo hreingerningu a laugardag. Vid fengum okkur svo Indian Takeaway a laugardagskvoldid. Indverskur er tvimaelalaust i uppahaldi hja mer. £ 16 fyrir mat handa okkur badum sem dugar i kvoldmat og snarl daginn eftir. Svo bydur hann lika upp a moguleikann ad borda upp ur kassanum fyrir framan kassann, eda leggja fint a bord og fara i veitingahusaleik. Mjog skemmtilegt. Og alveg serstaklega bragdgott. Eg hugsa ad pizzur verdi heimalagadar hedan i fra. (Engar ahyggjur pabbi, eg er buin ad finna Italskan veitingastad sem vid getum farid a thegar thu kemur i heimsokn.) I gaer var svo aftur alveg svadalega gott vedur og eg sat uti i 80 cm gardinum minum med bok allan daginn og er nu bara ordin nokkud saelleg. Nagrannarnir heilsudu allir upp a mig, allir stoppa og spjalla sma og folkid i naesta husi sem var ad koma ur velheppnudum "car boot sale" leidangri gaf okkur fullan poka af bokum. Vid erum reyndar i vandraedum med bokahillur en kunnum ekki vid ad afthakka gott bod. Vid skelltum okkur svo ad sja alveg svadalega vonda mynd. Bruce Almighty med Jim nokkrum Carrey. Vid aetludum a Matrix:relaoaded en lasum vitlaust a timann og misstum af henni. I stad thess ad keyra alla leid til baka aftur akvadum vid ad fara bara a naestu mynd. Stundum kemur vel ut ur thvi, ne thvi midur ekki i thetta sinnid. Uff og ojbara, ammriskir sykurpudar og saetindi. Eg helt ad Dave myndi ekki lafa alla myndina. Eg hlo reyndar einu sinni svo mikid ad eg gret af mer allann maskara en thad var einu sinni og svo var ekkert nema vidbjodur. Best var ad thad atridi kom Carrey litid vid. Svo komum vid heim og eg leyfdi elskunni minni ad horfa a lokaleikinn i einhverjum fotbolta i sarabot. Hann sofnadi yfir fotboltanum. Og svaf reyndar svo i sofanum allt kvoldid. Ekkert spennadi thessi bolti!

Annars er eg nu ordin eins og innfaedd. Eg for nefnilega a laugardaginn og keypti mer lottomida. Mer fannst thad dyrt, ein lina i sjalfvali kostadi heilt pund, en vinningurinn eitthvad til ad velta fyrir ser. 15 milljon pund! Thad er meira en eg tharf svo eg imyndadi mer ad eg vaeri ein af 15 sem fengi vinninginn. Svo reyndar kom i ljos thegar vid Dave forum ad eyda peningunum ad okkur vantadi 2 milljon punda svo eg faekkadi vinningshofunum nidur i 6. Eg var svo med tvo retta. Ekki nog en god byrjun finnst mer og eg hugsa ad eg fari ad spila med hedan i fra. Thetta eru natturulega alvoru vinningsupphaedir.

Jaeja nu er litli farinn ad sparka i blodruna a mer og eg tharf ad fara a kloid. Serlega othaegilegt, madur heldur ad madur se i spreng en svo koma bara nokkrir dropar. En svona okkar a milli, alveg thess virdi.

föstudagur, 27. júní 2003

Jaeja tha er skinkumyrju krisan yfirstadin og eg er enntha sodd eftir ad hafa naslad a ostahornum og Ben & Jerry's i allt gaerkvold. Hann er allt of godur vid mig madurinn, gefur mer is og sukkuladi og segir samt alltaf ad eg se falleg. Svo thegar eg kom nidur i morgun eftir ad hann var farinn i vinnuna, fann eg astarbref sem hann hafdi skilid eftir handa mer. Ekki veit eg hvad eg hef gert til ad eiga thetta allt skilid. En eg er med samviskubit thvi hann gerir allt til ad lata mer lida vel herna og lidur illa thegar ad eg verd leid, eins og ad thad se honum ad kenna. Stundum verdur madur bara down alveg sama tho ad madur se anaegdur med lifid og tilveruna i heildina. Mamma var eitthvad ad skirfa um ymiskonar utlitseinkenni og sjukdomsastand evroputhjoda og kom henni margt a ovart. Eg verd ad segja ad eg hefdi aldrei sett thad nidur sem thjodareinkenni a Bretum ad their vaeru romantiskir. Svona veit madur aldrei!

Eg er nuna loksins a leid i baeinn, en er ekki alveg buin ad akveda hvort eg aetla ad fara, i dag er i fyrsta sinn bresk rigning eins og madur ser i biomyndum. Allt i einu byrjar allt ad grana og svo byrjar gjorsamlega ad pissa nidur og allir, sem rett adan voru i stuttbuxum, eru komnir i regngalla og med regnhlifar a loft. Otrulegt. Best ad fara nidur a straetostoppistod og sja hvort eg blotni i gegn a thvi. Ef ekki tha haetti eg mer liklegast nidur eftir.

þriðjudagur, 24. júní 2003

Aaetlanir um ferdalag nidur i bae i dag voru blasnar af med morgunfrettunum. I alla nott geysudu uppthot i midbae Wrexham, a milli innflytjenda, logreglu og rasista. Molotov-kokteilum kastad og rudur brotnar asamt blodugum slagsmalum. Tho svo ad allt se komid i ro nuna tha aetladi loggan ad halda afram handtokum og rannsokn i dag og blokkera af einhver svaedi, thannig ad eg aetla ad bida med ad fara nidreftir. I dag alla vega. Spennandi! Dave jatti thvi i morgun ad kynthattahatur vaeri einn ljodur a radi samlanda hans, hingad eru innflytjendur fyrst ad koma nuna og thad er einhver olga i gangi. Hann bar Walesbuum ekki goda soguna i fyrsta sinn.

Eg tharf thvi ad endurskoda verkefni dagsins. Og eg er eiginlega ad spa i ad gera bara ekki neitt. Litli prinsinn af Wales er buinn ad vera i svakalegu studi i tvo daga nuna, sem veldur thvi ad eg sef og sef a milli thess sem hann sparkar i blodruna innan fra og eg tharf ad hlaupa a kloid. Svo er 25 stiga hiti og engin astaeda til ad vera med laeti. NEi, eg aetla ad setja drykk i glas og setjast ut med Harry Potter.

Annars tha for eg i gongutur i gaer i leit ad kirkjugardinum i Rhos. Eg hef alltaf verid svag fyrir gomlum kirkjugordum, thad hefur eitthvad med soguna ad gera, og er buin ad vera veik i ad komast i gardana sem seg se her. Their eru allir eldgamlir og legsteinarnir allt odruvisi en vid eigum ad venjast. Alveg svadalega spennandi. Eg for i vitlausa att og fann ekki kirkjuna tho svo ad eg heyrdi i kirkjuklukkunum odruhvoru. Eg skipti thvi um game-plan og akvad ad skoda alla pobbana. Their eru nu thonokkrir en eiginlega buid ad loka theim ollum. The coach and horses leit skemmtilega ut, gamall breskur sveitapobb sem er orugglega skemmtilegur ad vetri til vegna arineldarins. Svo var thad The nag's head, sem mer leist reyndar ekki a, virkadi adeins fyrir krimma og fotboltabullur. Dave sagdi mer ad folk faeri ekki svo mikid lengur a lokalinn, faeri frekar nidur i Wrxham til ad tjutta aerlega um helgar. Mer thykir thad midur. THessi pobbamenning er eitthvad sem eg helt ad vaeri svo rotgroin i Bretann ad thvi fengi ekkert breytt. En eins og allt annad tha runnast menningin ut og verdur einsleitari og einsleitari. Eg aetla ad reyna ad njota menningarmunarins eins og eg get i stad thess ad agnuast ut i Branston's Pickle og HP sosu og fotbolta. Thetta er thad litla sem er eftir af bretanum og thad var hann sem eg vard astfangin af.

mánudagur, 23. júní 2003

Og tha er efri haedin komin i stand, ad gestaherberginu fratoldu. Vid maludum badherbergid a fostudag og thvilikur munur. Allt glansandi hvitt og fallegt. Adur var thad belikt. Og enginn venjulegur bleikur litur thad, nei, thad var dalitid eins og Barbie hefdi fengid drullu thar yfir alla veggi og thad sem verra var: olli lamandi haegdatregdu. En nu er allt komid i lag, og tha meina eg allar pipulagnir.

A laugrdaginn forum vid svo ut ad borda. Eg hafdi ekki sagt Dave fra thvi ad eg vaeri ad utskrifast og thess vegna var svo sem til litils ad vera i nettri fylu thegar eg fekk ekki hamingjuoskirfra honum. Hann er ju ekki skyggn. Var sma deprimerud thegr eg hugsadi ad nu aetti eg ad vera ad taka i spadann a Pali Skulasyni, en thad lagfeardist fljott thegar ad eg mundi ad tha hefdi eg thurft ad finna fot fyrir tilefnid. Ad finna sparifot med bumbu ofan a venjulega bumbu er verkefni sem eg oska ekki a nokkurn mann. Vinkona hans (fyrrverandi kaerasta hummph!) vildi endilega fara ut ad borda og hitta mig, og syna Dave nyja kareastann sinn. Sv o baettist vid annad par. Thau voldu veitingastadinn og eg verd ad segja ad hefdi eg vitad hvernig hann vaeri hefdi eg afbodad og heimtad ad Dave faeri med mig i mins eigins spes utkriftardinner. Thetta var kinverskur Hard-Rock. Svakaleg laeti og einungis hladbord um ad velja. Stadsett i v erslunarmidstod. Hrikalega ammriskt (ojojoj) og atti ekki heima i Englandi. (Ja vid skruppum til Englands sem var nu dalitid gaman). Eg hata hladbord, enda ganga thau geng ollu sem eg held heilagt sem fitubolla, og thad er ekki bara af snobbastaedum sem eg segji thetta. THo thad spili orlitid inn i. Svo voru svo mikil laeti ad eg heyrdi aldrei hvad allir voru ad tala um og missti af ollu. THo enskan se god eru thetta adstaedur sem bara innfaeddir rada vis. Eg komst thvi aldrei inn i umraedurnar og sat eisn og auli i tvo tima. Mjog othaegilegt. Sem betur fer var Dave sammala mer og sor ad vid faerum i utskriftardinner naest thegar v id eigum pening. Hann for svo med mig i bokabud a sunnudaginn og keypti handa mer nyja Potterinn thannig ad eg er s'att.

I dag var eg drekkhaldin verkefnum en leiddist samt. Thad er thvi komid gott af thessum husmodurleik og eg aetla nidur i bae a morgun og bjoda fram adstod mina i Oxfam budinni. Thannig skemmi eg ekki maedralaun, hef tilgang med deginum, hitti folk og get lagt inn gott ord fyrir sjalfa mig i samhengi vid thetta social work daemi. Eg hugsa ad eg taki med mer sundgallann og skelli mer i laugina i leidinni. Eg er enn ekki buin ad kanna thad system allt saman. Eg fattadi um heldgina ad eg er ad gera thetta a allt annan hatt en eg vanalega tek a thvi ad bua erlendis. eg stola allt of mikid a Dave til ad hjalpa mer i stad thess ad gera bara thad sem mer dettur i hug og laera thannig a hlutina. Eg rata enn illla thvi eg er alltaf farthegi i bil i stad thess ad labba, eg bid hann ad hringja og spyrja i stad thess ad gera thad bara sjalf. Og thad gengur ekki upp ollu lengur. Eg a heima herna og verd ad laera a umhverfi mitt a minum forsendum og fra minum sj'onarh'ol. Eg get ekki bara latid hann um allt. Og thad sagt tha aetla eg ad nota thetta indaelis vedur i gongutur. Nos da.

miðvikudagur, 18. júní 2003

Eftir taepar tvaer vikur af skuringum og drullumalli, er eg ordin nokkud viss um ad hedan i fra se adeins mins eigins drulla sem se og verdur i husinu og thad er nu mikid i lagi. Mafdur er nu bara sattur vid sins egins er thakki? Eg akvad thvi eftir ad haf skurad eldhusgolfid i morgun ad eg aetti ad fara ad skoda umhverfi mitt adeins nanar. Eg for einn hring um thorpid sem er enn voda kruttlegt en heldur fataeklegt, husin morg i nidurnislu og folk ekki jafn stressad yfir thvi ad henda rusli a goturnar og vid Islendingar. Thegar eg var buina ad fara einn hring akvad eg ad fara inn a bokasafnid sem er herna a horninu hja mer og kanna hvort eg fengi ad vera med, tho eg se utlendingur og svona. Ekki malid og her sit eg thvi vid megatolvu a hverfisbokasafninu og se ekki betur en ad hingad komi eg til med ad koma oft og mikid. Tengingin er ofurfljot og ekki er madur rukkadur thannig ad thad verdur vart betra. Eg er ekki fra thvi ad eg fai mer eina bok eda svo adur en eg fer a eftir.

Sautjandi juni for vel fram her i Wales. Eg var vakin med morgunmat i rumid i tilefni "Iceland day" og heittelskadi stakk upp a ad fara med mig i verlsunarferd i eina af verslunum Iceland-kedjunnar til ad kaupa frosinn fisk svona til ad vera i islensku studi. Eg thakkadi fyrir morgunmatinn en heimtadi Kentucky Fried Chicken i stad fisksins og fekk. Gott ad vera Islendingur erlendis.

Eg get sed thad ad tho svo ad eg finni mer nu alltaf eitthvad til dundurs tha lidur ekki langt thangad til ad mer fer ad leidast thessa daga sem Dave er ad vinna. Hann vinnur fra 7-7 og mer finnst thad helst til langur vinnutimi. Eg er ad hugsa um ad saekja um nokkrar vinnur sem eg hef sed auglystar herna i kring, sem kassadama, eda eitthvad. £4.50 a timann, 16 tima a viku. Thad vaeri nu bara meira svona til ad gera eitthvad nytt og hitta folk frekar en ad vinna mer inn pening. en svo er thad alltaf spurningin hvort einhver radi mig komna fimm manudi a leid. Vid sjaum hvad setur.

Annars tha er eg buin ad taka myndir af husinu og umhverfinu. Eg hlakka til a fostudag thvi tha forum vid og kaupum restina af tvhi sem vantar, og tha get eg tekid myndir af efri haedinni. Garry, svili minn a skanna, eg vona ad eg komi myndum hingad inn bradlega. Ef ekki tha sendi eg bara myndirnar til mommu og their sem eru forvitnir verda ad fara og fa ser kaffi hja henni!

fimmtudagur, 12. júní 2003

Nu er eg hja tengdo og fekk ad blogga adeins, var ad fatta ad nu tegar eg er i utlondum ta tarf eg eiginlega ad detja upp kommentakerfi til ad heyra fra vinum minum. Eg er buin ad fa eitt e-mail sidan ad eg flutti ut. Eitt. I'm not impressed, ens og vid Walesverjar segjum svo oft!

Annars er enn allt eins og tad a aad vera. Vid Dave dullum okkur i husinu, erum buin ad vera skoda odyrar en fallegar lausnir a hinu og tessu eins og fataskapum og allt er tetta ad smella saman. Merkilegt eins og tad er margt ad gerast ta er eg eiginlega of anaegd med lif og tilveru til ad muna eftir einhverju til ad skrifa. Mig langar til ad lysa torpinu en vantar ord, tad er svo olikt ollu sem eg tekki, eg tarf ad eignast skanna og senda myndir, jah eda ta ad pressa a heimsoknir...

sunnudagur, 8. júní 2003

Og adur en madur veit af er madur bara kominn hem til sin! Gaman ad tvi. (Uff bara breskt lyklabord!) Hvad um tad, husid er voda kruttlegt to ad mikil vinna tyrfti til ad gera tad alveg almennilegt. Tad var einhver bolvud drusla sem bjo tar a undan okkur og vid eyddum mestum deginum i gaer i ad henda ut ogedi sem vid fundum i skapunum og trifa. Dave er algjor engill, trifur og trifur og roar mig nidur tegar ad eg byrja ad aepa yfir skitnum. Enda er tetta komid hja okkur nuna, vid eigum bara eftir ad setja hlutina a sinn stad. To svo ad arkitekturinn se svo odruvisi ad dotid mitt er orlitid hjakatlegt tarna ta hugsa eg ad mer takist nu alveg ad gera eins fint og mogulegt er. Eg tarf bara ad trifa meira en eg er von til ad vera alveg viss um ad hennar drulla fari og min komi i stadinn. Svo vann eg sma personulegann sigur i morgun. For i bad og steig upp ur badinu AN tess ad krulla saman taernar og tripla um a jorkunum. Kannski ad eg geti bara buid vid teppi, jah svona allavega tangad til ad eg a mins eigins hus. Eina vandamalid sem eg se i fljotu bragdi er ad eg er ekki spennt fyrir ad vera med barnid i husinu. I tad minnsta ekki akkurat nuna. Eg tarf ta ad fa proffessional carpet cleaner til ad laga til adur en hann kemur.

Eg er haestanaegd med lifd og tilveruna. Eg vaeldi sma i gaer en bara a medan ad eg var ad skrubba eldhusskapinn og eg held ad tad hafi verid vegna tess ad eg vil ekkert endilega skrubba eldhusskapa. Okkur Dave lidur afskaplega vel saman og stundum tegar eg horfi a hann vandraedast vid ad skrufa e-d saman ta er eg svo astfangin ad eg fae tarin i augun. Og tad er gott.

fimmtudagur, 5. júní 2003

Jæja, þá er maður nokkurn vegin niðurpakkaður og ekkert eftir nema að segja bless við Siggömmu og Huldömmu. Ég kemst vonandi á netið innan tíðar og held þá áfram að skrifa. Þangað til adiós!

miðvikudagur, 4. júní 2003

Ég er enn dolfallin yfir myndunum og sýni þær öllum sem sjá vilja og fleirum en það. Það verður að hafa það þó fólk sé ekki jafn spennt og ég, þetta er bara svo mergjað. Ég hlakka bara svo til að sýna Dave þetta og fara svo með honum aftur í sónar. Hann er nútíma-pabbi og verður að fá að sjá þetta allt saman.

Ég fékk smá svona "búhú, ég er að fara" í dag. Eins og ég er búin að þykjast vera svo kúl á þessu og að ég sé stutt í burtu og þetta sé ekkert og vil ekki segja bless því ég sé ekkert farin að eilífu. Þetta er bara dálítið flókið af því að ég á eftir að sakna allra minna svo mikið en er líka að brjálast úr tilhlökkun eftir að komast út og ofan á það bætist þessi himnasæla yfir barninu. Ég á bara dálítið erfitt með að skilgreina hvernig mér líður. Þetta líf, þetta líf!

þriðjudagur, 3. júní 2003

Í gær fór ég í sónar. Ég er eiginlega orðlaus yfir þessu kraftaverki og ef ég verð stuttorð þá er það vegna þess en ekki vegna þess að mér þyki þetta ekki merkilegt. Auður kom með mér enda treysti ég mér ekki til að fara ein, svona ef eitthvað væri að. Ég mydni segja að það er nauðsynlegt að fara með einhverjum því þetta er svo stórkostlegt, svo ótrúlegt að maður verður að hafa einhvern hjá sér til að deila kraftaverkinu. Fyrst vildi ég fá að vita hvort það væri ekki í lagi með hana og ljósan skoðaði allt vel og vandlega og það er allt á sínum stað; heili, hjarta, nýru, gallblaðra, bein og allt eins og það á að vera. Hún vildi aftur á móti ekki að óathuguðu máli taka undir að þetta væri stelpa. Hún skoðaði og skoðaði en skottið snéri sér eða setti hönd fyrir eða gerði eitthvað til að fela kynfærin svo út leit fyrir að við gætum ekki séð hvort væri. Ég lá þarna hálfgrátandi/hlæjandi, alveg í skýjunum yfir að allt var í lagi og hversu hress anginn var. Var allur á iði og virtist skemmta sér konunglega. Skyndilega snéri hann sér svo við blasti pungur og ljósan sagði að vart færi á milli mála að hér væri drengur á ferðinni! Og ég sem er búin að kalla hann Karlottu í 4 mánuði! Hvað nú? Carlos? Hvað um það ég fékk myndir sem ég get ekki lagt frá mér, skoða og skoða til að sannfæra mig um að þetta sé í alvörunni að gerast. Hafði reyndar ekki staðist freistinguna og farið í frönsku búðina og keypt agnarsmáan sundgalla, sem er nú frekar fyrir strák. Merkilegt. Svo bíð ég nbú eftir að mamma komi heim, hún er sjálfsagt sú eina sem nennir að hlusta á mig og dást að myndunum út í eitt. Ég er viss um að öllum nýjum mæðrum hefur liðið svona og bið bara um þolinmæði og skilning, það kemst bókstaflega ekki neitt annað að núna, eins og ég sé sú fyrsta í sögu mannkyns sem eignast barn.