mánudagur, 2. maí 2011

Þegar maður kemst ekki í rækt svo dögum skipti vegna konunglegs brúðkaups og verkalýðs, byrjar maður að stika um húsið og rífur í hitt og þetta lauslegt sem verður á vegi manns; eldhússtól, skrautmuni, stofuborð, krakka...allt þetta má nýta sér í að viðhalda vöðvamassa þegar maður er óbeislaður bolti svona rétt eins og ég. Láki er rétt um 35 kíló, og ég tek það í aðra nösina í hnébeygjum, þannig að ég minntist á við eiginmanninn elskulega að mig vantaði eitthvað þyngra til að taka almennilega á því. 35 kíló er barnaleikur einn.


Hann fölnaði örlítið greyið og án þess svo sem að vita hver Gyða Sól er, lýsti því yfir að hann hefði ekki áhuga á að vera giftur henni eins mikið og hann styddi mig í lífstílnum. En svo heyrði ég ekki hvað hann sagði næst, ég var of upptekin að henda honum þvert yfir garðinn, svona eins og trjádrumbi í hálandaleikunum. Djöfuls rosalegur bolti sem ég er. Best að henda einhverjum lörfum í tösku. Ísland bíður í ofvæni.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Snillingur!
Bkv
Alda

Magga Th. sagði...

Dáist að hugrekki þínu og staðfestu. Auðvitað hefur leiðin verið lögð fáránlegustu hindrunum hugans. En þegar þú hefur lent á þeim hefurðu gefið frat í þær, hoppað yfir og skilið hindranirnar eftir með skítinn og skömmina sjálfar. DÁSAMLEGT. Haltu svona áfram.