fimmtudagur, 23. ágúst 2007



Lögreglan kom í heimsókn í skólann hans Láka í dag. Hann var smá svekktur af því að löggan kom ekki á bíl en Láki vildi sko fá að heyra "nínonínoníno!" Hvað sem því líður þá spurði löggan að fyrirlestri loknum hvort það væru einhverjar spurningar. Láki rétti þá upp hendi, stóð upp og söng hástöfum "Bob the builder". Spurning smurning, þegar hægt að performa þá gerir meður það.


Við erum loksins búin að mála þannig að núna er ekkert half and half. Voða röstik og fínt.

mánudagur, 20. ágúst 2007



Andrés vinur minn kom í heimsókn. 10 ár og við höfum ekkert breyst. Að hugsa með sér. Hann býr í Aberdeen þannig að belgíudvölin kom einhverri útþrá í okkur bæði. Þó að ég skilji ekki afhverju einhver vil frekar búa í Aberdeen en Madríd!

sunnudagur, 5. ágúst 2007

1. Mín fyrsta minning er ég fjögurra ára á Ibiza að pissa undir borði á veitingastað. Úti sem betur fer.

2. Ég hef engan áhuga á ferðalögum til fjarlægra stranda. Mér finnst tilhugsunin um að fara fótgangandi um Laos ógeðsleg. Ég vil bara fara til New York og Madrid.

3. Ég skammast mín fyrir að vilja ekki fara til Laos.

4. Ég segjist hafa gaman af því að elda. Það er ekki satt, ég hef gaman af því að borða.

5. Ég er óstjórnlega löt.

6. Ekkert myndi gera mig ánægðari en að finna gott mastersnám til að fara í þar eð ég er haldin sérlega slæmu menntasnobbi og vil geta sett stafi fyrir aftan nafnið mitt.

8. Ég trúi því í alvörunni að næsta laugardag vinni ég lottóið og það sem meira er að ég eigi það skilið fyrir að vera góð manneskja.