laugardagur, 23. janúar 2010



Dave greip mig í morgun áður en ég lagði af stað í laugardagsmorgunskokkið. Hann sagði að ég væri "slender" og vildi endilega festa á filmu. Þegar við fyrst sendum hvort öðru myndir þá var möguleikinn um að hittast einhvern tíman enn frekar fjarlægur þannig að ég sendi honum mynd af mér sem var tekin þegar ég var hjá Magna og var rosa flott. Í alvörunni þá var ég búin að þyngjast aftur um 20 kíló en mig grunaði ekki að ég myndi nokkurn tíman hitta hann og hafði litlar áhyggjur af svindlinu. Þegar svo að því kom að hittast þá varð ég að viðurkenna fyrir honum að ég væri aðeins feitari en á myndinni minni. Sem betur fer var hann meiri maður en svo að það skipti hann máli. Engu að síður þá finnst mér gaman að geta núna sjö árum síðar verið konan sem hann pantaði eftir mynd á netinu! Enda getur hann ekki skilað mér og fengið endurgreitt.

3 ummæli:

Hulda sagði...

hahahha góð :). Þú ert ógeðslega flott gella elsku dúllan mín :)

Harpa sagði...

Vá hvað þetta er flott mynd. Þú ert líka bara eins og professional hlaupari!

murta sagði...

Maður verður að hafa réttu græjurnar Harpa!