föstudagur, 17. desember 2010

Coco, mín kæra.
Já maður verður víst ekki 22 ára á hverjum degi og dagurinn í dag engin undantekning þar á, ég varð 36 ára. Að hugsa með sér, 36 ára gömul og aldrei verið í betra formi. Dagurinn í dag frekar venjulegur, létt átök við járnin í morgun, vinna og svo hingað heim. Með smá stoppi í Boots til að kaupa afmælisgjöf handa sjálfri mér; nýjan Chanel varalit. Oh, ég elska hann og pokann sem hann kom í. Ég ætla í tilefni þess að ég er orðin svona svakalega gömul og hrum að færa nammidag yfir á laugardag og fá mér indverskan með poppadom og naan og öllu annað kvöld og hnykla svo íviðhaldsvöðvann á sunnudag. Það er bara gaman og setur fútt í þetta að breyta aðeins út af plani. 36 ára. Ég á ekki eitt einasta aukatekið.

4 ummæli:

Guðrún sagði...

Afmæliskveðjur frá gamla settinu þínu, elsku litla Bla Blán!

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn ;o)
Töff að vera tútta og dörtísex - það gerist ekki heldur á hverjum degi ;)
kv. Þórdís ókunnug

ragganagli sagði...

Innilega til hamingju með afmælið dugnaðartúttan mín. Knús og kossar frá Naglanum.

Unknown sagði...

Mig langaði til þess að senda þér afmæliskveðju og í leiðinni baráttukveðjur. Ég er búin að lesa bloggið þitt í smá tíma og þú ert aldeilis að standa þig vel í baráttunni.Ég er sjálf í þessum sömu sporum og á líka afmæli 17. desember...og ákvað að bíða ekki lengur með að kommentera á bloggið þitt. Gleðilega hátíð.
Kveðja
Gurrý