laugardagur, 2. apríl 2011

Eitt kíló í plús í morgun. Ég er alveg róleg, þetta er útskýranlegt; tími mánaðarins, smá stress, aðeins of mikið brauð um síðust helgi, líkami er ekki vanalega til í að léttast margar vikur í röð. Fullt af eðlilegum útskýringum.Þetta er ekkert mál. Fer af auðveldlega aftur. Ég er alveg róleg. Tek þessu með stóískri ró. Sei, sei, já. Held bara mínu striki. Alveg salíslök með þetta.


Helvítis djöfulsins andskotans hurðarlaust helvíti!

Engin ummæli: