mánudagur, 9. maí 2005

Ekki fer allt eins og planað er. Síðan að ég tilkynnti að hingað væri sumarið komið er búið að rigna non-stop. Ég eyddi síðasta mánudagsmorgni í að smyrja samlokur og baka köku, setja kaffi á brúsa og pakka saman teppi og munnþurrkum. Sólin skein í heiði og það var kát lítil fjölskylda sem trítlaði niður Ty Mawr fjall í leit að góðum lundi til að á. Hálfa leið niður fjallið og algerlega án nokkurrar viðvörunar drundi þruma og svo lýsti elding upp allt svæðið og himnarnir opnuðust. Á fimm sekúndum vourm við og allt okkar hafurtask rennandi blautt og við á miðju fjalli. Ég hef aldrei séð annað eins. Þetta var eins og í bíómynd. Við komumst aftur í bílinn við illan leik og enduðum því á að borða samlokurnar okkar á stofugólfinu. Og enn rignir.

sunnudagur, 1. maí 2005

Jei það er komið sumar! Við Lúkas vorum á stuttermabolum á róló í dag. Og plönuð er allsherjar pikknikk útvistar veisla á morgun fyrir alla fjölskylduna. Ef einhver vill með á verðum við í Ty Mawr um ellefu leitið. Gúrkusamlokur og fitu-og eggjalaus gulrótarkaka í boði.

fimmtudagur, 21. apríl 2005

Ég seldi svo svakaleg mörg gleraugu í síðustu viku að ég fékk tveggja tíma frí í verðlaun. Ég er því búin að vera að skrúbba kofann núna síðan um hálffjögur og held bara að það verði ekki hreinna en þetta hjá mér. Ef svo er þá er það bara Huldamma sem þyrfti þá að koma og benda mér á hornin sem ég tók ekki eftir. Ég er búin að skemmta mér konunglega við þetta, er með Vilhjálm Vilhjálms á hæsta og dilla mér við rykklútinn. Skrýtið hvað það gerir manni að búa í útlöndum. Aldrei hefði ég sett Villa á fóninn heima. En mikið syngur hann nú fallega.

Ég þarf svo að fara að drífa mig í að setjast við að skrifa niður gestalista fyrir brúðkaup og senda út boðskort. Það er nú ekkert svo svakalega langt í brúðkaupið, kannski svona 7 til 8 kíló. 10 ef lukkan er með mér.

sunnudagur, 17. apríl 2005

Mér dettur aldrei neitt sniðugt í hug að gera á frídögunum mínum. Ég virðist alltaf eyða sunnudeginum í að þrífa húsið og svo bara fatta ég ekki upp á neinu meir til að gera. Maður sem býr í útlöndum og allt og ætti að geta gert hvað sem er. Málið er náttúrulega að hér eins og annarstaðar þá kostar allt eitthvað og bæði pund og krónur eru alltaf af skornum skammti. Núna til dæmis myndi ég vilja keyra til Llangollen og rölta aðeins um, setjast svo inn á kaffihús og fá mér kaffi og eplaköku. En meira að segja svoleiðis smáræði er "over budget" eins og er. Eða fara með Láka í dýragarðinn í Chester. Það er alveg úr myndinni. Þannig að við förum bara út í garð og spörkum í bolta. Hingað til hefði ég sjálfsagt bakað eina litla rjómaköku en nýji lífstíllinn segir að svo sé ekki ráðlegt.
Talandi um nýja lífstílinn. Ég fann á netinu þetta líka brilliant plan til að fylgja og er núna búin að vera að venjast því síðan á miðvikudag. Gengur svona líka vel, maður ræður svona mikið til hvað maður borðar, það eru bara skammtarnir sem eru dálitið mikið minni en ég er vön. Og svo náttúrulega bara heilbrigð skynsemi sem segjir manni að sleppa Snickersinu og fá sér epli í staðinn. Dave er með mér í þessu sem gerir þetta allt miklu auðveldara og skemmtilegra, þetta er orðið svona dálítið eins og hobbý hjá okkur að lesa innihaldslýsingar og telja karólínur. Þannig að "fingers crossed" við verðum glæsileg brúðhjón í sumar!

miðvikudagur, 13. apríl 2005

Hvað er verið að gera heima hjá mér? jú, hvað annað en að horfa á fótbolta. Yndislegt alveg hreint. Þetta er að verða vandræðalegt, ég þekki orðið flesta leikmenn og þjálfara liðanna hér í Bretlandi og mikið orðið til í Evrópu líka. Ef ég fer ekki að passa mig þá verð ég búin að læra "offside" regluna áður en ég veit af.

Og talandi um að passa sig þá er enn eitt átakið hafið, og ekkert grín í þetta sinnið, nú verður maður að passa í kjólinn. Brúðkaup 9. júlí og ég eins og Herðubreið ásýndum. Mér tókst í dag að forðast allar kexkökurnar í vinnunni og er nokkuð ánægð með sjálfa mig. Verð þó að viðurkenna að inntaka tóbaks hefur aukist um helming. Kransæðastífla eða krabbamein, það er valið.

Ps er líka voða kát í dag, ég er bjartsýn með framþróun mála í vinnuleit, húsið mitt er svo fínt núna og Dave og Lúkas svo ljómandi báðir tveir. gaman þegar maður er svona innstilltur.

þriðjudagur, 5. apríl 2005

Ég eyði svo miklum tíma í að reyna að finna hamingjuna að ég hef ekki tíma til að njóta þess sem ég hef nú þegar. Er það ekki bara sannleikurinn?

Ég er enn að stússast í að finna vinnu sem veitti mér meiri lífsfyllingu. Nú er ég búin að sækja um vinnu hjá Velska innflytjenda ráðinu, ég hugsaði sem svo að ég væri fullkomin í þann starfa þar eð ég er innflytjandi sjálf. Reyndar er ég núna oft spurð hvort ég sé frá Corwen eða jafnvel Betis-y-Coed. Ég hljóma víst voðalega velsk. Verst að geta ekki sett hérna inn tóndæmi. Hvað um það. Launin eru snöggtum betri en hlandsúpan sem ég er á núna, og ég held að ég hefði meira gaman að vinnunni sjálfri. Mér er hreinlega meinilla við að selja fólki hluti. Hvort sem því vantar gleraugu eða ekki.

Maður er svo rétt búin að jafna sig á heimþránni eftir jólin þegar mamma og pabbi koma í heimsókn og ég er back to square one. Í þetta sinnið langar mig ekki til að flytja heim samt. Ég vil að þau flytji hingað. Þau voru svo dugleg að laga til hjá mér, hér er allt nýmálað og ljós uppsett. Húsið er eins fínt og það getur orðið, ja eða svona allt að því, og ég tími ekki að fara frá því alveg strax. Mikið voða var gaman að hafa þau. Mig vantar alltaf svo að fólk dáist að Lúkasi mínum, og hver betri til þess en gamla settið?

miðvikudagur, 9. mars 2005


Elvis í baði. Posted by Hello
Hér er verulega byrjað að vora og maður fyllist vellíðan og spenningi við það eitt. Ekki seinna vænna fyrir sól að fara að taka sig taki, mútter mamma og gamli á leiðinni og eins gott að við Veilsverjar getum boðið upp á sól og grill í garðinum. Lúkas þarf á að halda að fá smá meiri íslensku, hann talar bara ensku við mig. Eða sko, hann heldur því fram við mig að lömbin segji "baa" en ekki "me". Pabbi hans segir við hann "what sound do the sheep make?" og hann svara "BAAAA" þannig að ég spyr "hvað segja lömbin?" og aftur svarar barnið "BAA" alveg sama hvað ég segi oft "MEE MEE MEE" við hann. Skrýtið. Næst kemur að haninn segji "cock a doodle doo" en ekki gaggalagó.

þriðjudagur, 8. mars 2005

Hvernig bara stendur á því að ég er svaka skotin í kærastanum mínum en á sama tima finnst mér hann svo drepdrulluleiðinlegur og mikill kúkalabbi að ég get ekki setið í sama sófa og hann?

Þetta hversdags er að fara með mig. Mig langar til að vera í menntó og ekki hafa áhyggjur af nokkrum sköpuðum hlut öðrum en hvort ég komist inn á 22 án þess að vera með aldur og hvenær ég eignist kærasta. Mig langar til að vera á Rauðarárstígnum. Ég ætla að velt mér upp úr þessu í smástund og svo ætla ég að fara aftur í að njóta líðandi stundar.

miðvikudagur, 16. febrúar 2005


Hvernig er þetta eiginlega? Verður maður skítugur á puttunum þegar ma'r fer út? Posted by Hello

Lúkas á röltinu úti í garði. Posted by Hello
Ég er þá búin að koma hello aftur í gagnið, vonandi að ég verði þa´duglegri að senda myndir. Og taka myndir.

miðvikudagur, 9. febrúar 2005

Shrove Tuesday er þá liðinn og Ash Wednesday að síga á seinni hlutann. Hér er lítið haldið upp á öskudag en sprengidagur er aftur á móti kallaður pancakeday og allir úða í sig pönnukökum. Með sítrónusafa. Ég kemst ekki yfir þetta, pancakeday númer tvö hjá mér og aftur gleymdi ég að kaupa sítrónusafann. Greyið Dave fékk ekki pönnukökur eins og hann er vanur. Ég skemmdi svo reyndar pönnukökupönnuna mína, allt festist á henni og ég þarf að rannsaka það aðeins. Og svo ruglaðist ég í ríminu og hélt að bolludagur væri í dag. Og bakaði bollur í gær til að eiga í dag. Þetta veit ekki á gott.

fimmtudagur, 3. febrúar 2005

Ólav Veigar var á röltinu um Wrexhambæ í dag. Alltaf gaman að sjá Döppelgangers.

mánudagur, 31. janúar 2005

Ég er á fullu núna að skoða í kringum mig möguleikana á að kenna hérna. Er búin að finna prógramm þar sem ég get kennt og lært að kenna í einu. Sem hentar best þar sem ég hef ekki efni á að hætta að vinna. Ég er orðin alveg dauðleið í vinnunni, og bara verð að gera eitthvað í þessu. Merkilegt þá er tilhugsunin um að fara aftur að kenna bara mjög spennandi. Kannski að það sé bara málið, mér sé ætlað það ævistarf. Svona okkar á milli þá kæmi það mér ekki á óvart.

laugardagur, 15. janúar 2005

Þá er loksins ný sería af Bráðavaktinni hafin með tilheyrandi barkaþræðingum á gestum og gangandi, sjúkum og heilum, læknum og sjúklingum og virðast allir hafa gott af. Kannski að ég drífi bara í að láta barkaþræða mig og þá kannski grennist ég og fatta upp á hvað ég ætla að gera í framtíðinni.


laugardagur, 1. janúar 2005

Gleðilegt ár allir saman og takk fyrir allt liðið. 1. janúar. Hver hefði trúað þessu?

Mikið var nú gott að vera heima um jólin, sjá fína húsið mömmu og pabba, hitta vini og ættingja og éta á sig gat. Ég gleymdi reyndar að fá mér eina með öllu, ekki nógu gott. Heimsóknin hafði þó skelfilegar afleiðingar, ég er núna með svo mikla heimþrá að ég má vart kjur sitja, hugsa stanslaust um að flytja heim. Allt veltur á að fá vinnu og svo vorum við náttúrulega að kaupa okkur voða fínt hús og óþarfi að ana út í eitthvað sem á endanum er ekki best fyrir okkur, en ég get samt ekki hætt að hugsa að mig langi bara heim núna. Gott sé komið.

Ég er með plan. Ég sæki um að komast í þetta skilorðfulltrúanám sem ég er svo spennt fyrir og ef ég kemst inn þá verðum við hér næstu tvö árin á meðan ég klára það, borgum aðeins meira af húsinu og niður skuldir og sækjum svo um fínar vinnur á Íslandi, kaupum okkur hús og allir ánægðir. Dave minn er búin að segja að hann vilji bara vera þar sem ég sé og fylgi mér. Það er nú samt kjánalegat að rjúka bara af stað, við finnum handa honum fína vinnu fyrst. Hinsvega ef ég kemst ekki inn í þetta nám þá veit ég ekki hvað ég geri. Ég er orðin meira en leið í vinnunni, enda átti það bara aðv era tímabundið verkefni. Ég er nú svo yfirfull menntahroka að mér finnst háskólagráðan mín illa nýtt í gleraugnabúð með 10.000 pund á ári. Ég hefði meira upp úr því að vera réttindalaus kennari á Íslandi og þá er nú mikið sagt!

Áramótin voru voða klén hér svona eins og jólin, ég vann til sex og eldaði svo indverskan. Við horfðum svo á bíómynd og ég var farin að sofa upp úr eitt. Aðeins fínna í kvöld, ég er búin að bjóða tengdó í mat og ætla að elda fallegan fiskrétt. Er búin að leggja fallega á borð og skipa öllum að klæða sig aðeins upp á. Mér leiðist þessi skortur á hátíðleika hér í Bretlandi.

þriðjudagur, 21. desember 2004

Maður er bara rétt ókominn til landsins...búin að pakka og er að reyna að fá mér kríu áður en við leggjum af stað. Sjáumst um 3 á morgu. bjútífúl!

fimmtudagur, 16. desember 2004

Ég verð þrítug á morgun. Ég er ekki alveg tilbúin, er ekki búin að gera allt sem planað var fyrir þann aldur. Reyndar er það bara eitt sem ég á eftir að gera. Ákveða hvað ég vil verða þegar ég er orðin stór. Og því miður þá finnst mér einhvernvegin eins og ég verði stór á morgun. Í fyrsta sinn á ævinni er ég ekkert sérstaklega spennt fyrir afmælinu mínu. Engin plön, ég er að vinna bæði á morgun og laugardag og ég er búin að fá áfmælisgjöfina frá Dave. Dekurdag á Lavender Beauty House sem var algjört æði. Þrítug. Úff.

mánudagur, 6. desember 2004

Jæja þá er nú að koma mynd á húsið, flest allt komið á sinn stað, bara eftir að mála, setja upp sturtu, skipta um eldhúsinnréttingu, rífa niður garðhúsið, laga þakið á skúrnum... en það hlýtur allt að koma svona smám saman.

Ég og Lúkas vorum rétt í þessu að koma úr bænum, lukum við jólainnkaupin á mettíma og á met"budget". Engar gjafir dýrari en 2 pund fimmtíu sem hlýtur nú að vera nokkuð gott. Ég er að vona að fólk taki velviljann fram yfir verðlag og fyrigefi mér hvað ég ér lásí í ár. Ég var jú að kaupa hús og er pyngjan því dálítið létt.

Ég er orðin hálfóþreyjufull eftir jólunum. Það verður svo frábært að koma heim. Ég er reyndar líka strax farin að kvíða að fara aftur heim (flókið þetta heima hér og heima þar), þetta er svo ofboðlsega stuttur tími sem við höfum. Hver mínúta verður nýtt til hins ýtrasta.

Ég ætla að hengja eina mynd upp í viðbót og skipta svo á bleyju.