Ég las alveg sérlega áhugaverða grein um daginn. Það virðist sem svo að vísindamenn hafi fundið það út að líkamsrækt hafi áhrif á DNA. DNA nútímamannsins er orðið uppfullt af "merkjum" (tags) sem breyta því hvernig það er lesið af frumum. Þannig eru vöðvar í líkamanum sem fá enga æfingu komnir með merki sem hindrar þá við að brenna fitu og orku. Og líkamsrækt við lága ákefð virtist ekki breyta þessu. En hinsvegar þegar æfing var stunduð af ákefð, þ.e.a.s allavega 30 mínútur við 80% ákefð, þá kom í ljós að þessi "tags" fóru og betri sykur og fitubrennsla átti sér stað.
Þannig er hægt að útskýra hversvegna ég léttist ekki þrátt fyrir löng hlaup. (Já, Ragga, ég veit, ég veit!) Ég hef ekki minnkað matinn neitt, borða bara meira af hollum mat (meira en er hollt) og það að minnka sykur niður í ekki neitt virðist ég hafa túlkað sem svo að ég hafi frítt spil til að auka skammta úr góðu hófi. Og á sama tíma hef ég nánast hætt að gera "vöðvaæfingar" en hleyp bara. Þó að ég reyni mikið að viðhalda æfingungum sem Julia Jones, hlaupaþjálfarinn setti mér, þá á ég það voða mikið til að renna mér í þægindin sem langt, rólegt hlaup gefa. Ég hugsa svo vel þegar ég er að hlaupa rólega. En ef tilgangurinn er að verða fljótari, hraustari og léttari er engin spurning um að ég þarf að auka ákefðina.
Ég er þessvegna í síðustu og þessari viku búin að gera þrennt. Ég er búin að leyfa sjálfri mér að borða smávegis súkkulaði. Og því fylgdi mun meiri meðvitund um skammtastærðir. Það kom í ljós að þó ég væri að borða hafragrautinn sykur, hunangs og rúsínulausann, þá var ég búin að stækka skammtinn um helming og hlaða hann fullan af cacao nibs, maca dufti, kókósolíu og hnetusmjöri. Það sem áður var um 300 kalóríur allt í allt með smá hunangi eða rúsínudreitli var núna allt í einu orðið 700 kalóríur, en sykurlaust. Ægilega sniðugt. Eða hitt þó. Og ég sem hélt ég væri klárari en þetta. Kemur í ljós að ég er jafn mikill bjálfi og konan sem heldur að "lífrænt" þýði hiteiningalaust.
Hitt sem ég er svo búin að gera er að passa að hlaupaæfingar innihaldi góðan skammt af fartlek og ég er búin að vera að leika mér með ketilbjölluæfingar inn á milli. Og keyrði af gífurlegum krafti og hvíldi stutt inn á milli.(og það rumdi í vöðvafjallinu inni í mér af gleði og hamingju!)
Það þriðja og allra mikilvægasta er að ég er búin að reyna að hafa gaman af þessu öllu saman. Ég var búin að tapa gleðinni og stuðinu. Þetta var orðið leiðinlegt og kvöð og uppspretta vonbrigða. Og það gengur náttrúlega ekki. Þegar það gerist, þegar maður tapar gleðinni þá þarf maður að stoppa við og skoða hvað er í gangi. Ég hef það fyrir reglu að vera í stuði og ætla ekkert að breyta því neitt núna.
Sykurleysistilraunin er ekki búin. Ég er að aðlaga sykurneysluna að mér. Ég ætla að halda áfram að sleppa unnum sykri að mestu leyti. Ég ætla að halda áfram að sleppa unnum sykri í sósum og þessháttar. Ég ætla að halda áfram að sleppa þurrkuðum ávöxtum að mestu leyti. Og bakkelsi er alveg út úr myndinni. Ég er búin að uppgötva að kökur og kruðerí er það sem veldur geðveikinni hjá mér. Súkkulaði er ekki jafn hættulegt og kökusneið eða hvítt brauð. Ég get borðað eitt súkkulaðistykki og verið alveg róleg, en gefðu mér eina kökusneið og ég iða um þar til öll kakan er uppétin.
Svona hefur þetta alltaf virkað best fyrir mig; ég prófa og geri tilraunir og tek svo með mér það sem virkar fyrir mig. Hitt læt ég bara vera. Málið er að það er alveg sama hversu mikið ég þyl upp að þetta sé ekki megrun heldur lífstíll þá er lokaniðurstaðan alltaf sú að ég þarf samt að borða minna og hreyfa mig meira og stundum er það bara hundfúlt. Maður verður bara að drullast til að gera það samt. Og þá er um að gera að reyna að gera það besta úr öllu. Og tilbreyting er lífsins krydd.
Númer eitt, tvö og þrjú er nefnilega að vera í stuði og halda hópinn.
mánudagur, 26. mars 2012
sunnudagur, 25. mars 2012
Tölvulaus er ég bara hálf manneskja. Það er ómögulegt að geta ekki skrifað niður það sem mér dettur í hug. En nú er allt komið í lag þannig að ég get aftur byrjað að hugsa.
Vikan er búin að vera löng og ströng í vinnunni og ég því orðin langþjáð þegar sunnudagur loksins rann upp. Ég var búin að skrá mig í þriggja mílna hlaup fyrir góðgerðarátakið Sport Relief og hafði séð það fyrir mér sem þriðja innleggið í "12 á 12" verkefninu mínu. Líkamsrækt, peningasöfnun fyrir góðan málstað og útivistardagur og skemmtilegheit fyrir alla fjölskylduna; gæti ekki verið betra.
Lukkan var yfir okkur og hér er ljómandi veður, upplagt til útivistar. Eiginlega meira en ljómandi, ég hugsa að hitinn hafi slagað hátt upp 20 gráður um miðjan dag. Glampandi sól og stilla. Við pökkuðum þessvegna með okkur nesti því hlaupið átti að fara fram í Ty Mawr sem er gullfallegt svæði þar sem við förum oft í göngutúra og stoppum í lautarferð.
Hægt var að velja um sex, þrjár eða eina mílu. Ég hafði ákveðið að fara bara þrjár sem rétt slaga í 5km. Fannst það bara nóg í svona skemmtiskokki. Hef líka sterkan grun um að ég sé alls ekki í 10 km formi lengur.
Við komum okkur fyrir við upphafsreit, og tveir af leikmönnum Wrexham FC sáu um upphitun og smá pepp og allir þáttakendur í jafn glampandi skapi og sólin skein. Það var ekki neinar tímamælingar og öll stemningin meira stuð og gaman frekar en alvarlegt hlaup eins og það sem ég tók þátt í í desember. Fullt af fólki í búningum, sá sem helst stóð upp úr var klæddur eins og varúlfur. Eða ég vona að þetta hafi verið búningur. Leiðin sem var hlaupin var frá Ty Mawr Barn, í gegnum dalinn framhjá ánni og upp að Ponctysyllte Aquaduct.
Þar þurfti maður að klifra upp snarbrött þrep upp að aquaduct, snúa svo við og hlaupa niður og svo upp aftur í gegnum skóginn að endalínunni. Þetta var bara skemmtilegt. Ofboðslega fallegt umhverfi, allir í góðu skapi og ég smitaðist af stemningunni og fór heldur geist af stað. Hélt tempói við mjóa stelpu allan tímann. Þurfti reyndar að labba aðeins en bætti það alltaf upp með að hlaupa því hraðar þegar ég hljóp. Kom svo í mark á 33:20, minn langbesti tími.
Við markið stóðu svo borgarstjórinn og Danny Wright og Glen Little sem báðir spila fyrir Wrexham. Þeir létu mig fá medalíu og ég heimtaði að fá mynd með Glen svo ég gæti montað mig við Dave. Dave er harður Wrexham aðdáandi, fór meira að segja með mig á leik þegar ég fyrst kom hingað (við töpuðum 3-0 fyrir Macclesfield og ég hef verið í leikbanni síðan).
Svo sátum við úti í sólinni, borðuðum nesti, lékum okkur og skoðuðum náttúruna allt í kring.
Ég safnaði ekki miklum pening, borgaði £10 sjálf og fékk önnur £20 í styrki, en mér líður samt vel með það, allt hjálpar og ég fékk stórskemmtilegt hlaup út úr deginum. Við keyrðum síðan aðeins um á leiðinni heim og reyndum að mæla út nýjar hlaupaleiðir fyrir mig. Mjög spennandi.
| Allir að koma sér fyrir. |
| Tilbúin! |
Hægt var að velja um sex, þrjár eða eina mílu. Ég hafði ákveðið að fara bara þrjár sem rétt slaga í 5km. Fannst það bara nóg í svona skemmtiskokki. Hef líka sterkan grun um að ég sé alls ekki í 10 km formi lengur.
| ég og Glen Little, miðjumaður Wrexham FC - Lukkan yfir mér! |
| Aquaduct. |
| Lúkas með Ty Mawr dalinn í baksýn. |
Svo sátum við úti í sólinni, borðuðum nesti, lékum okkur og skoðuðum náttúruna allt í kring.
Ég safnaði ekki miklum pening, borgaði £10 sjálf og fékk önnur £20 í styrki, en mér líður samt vel með það, allt hjálpar og ég fékk stórskemmtilegt hlaup út úr deginum. Við keyrðum síðan aðeins um á leiðinni heim og reyndum að mæla út nýjar hlaupaleiðir fyrir mig. Mjög spennandi.
| Komin með medalíu og welsh hottie upp á arminn; mín aðal klappstýra . |
laugardagur, 24. mars 2012
sunnudagur, 18. mars 2012
Thjodarithrott okkar Veilsverja er rugby og vid stondum okkur alveg hreint agaetlega. Motid i ar, thar sem England, Irland, Skotland, Wales, Frakkland og Italia kljast, er einn af hapunktunum a rugby vertidinni og i ar small allt saman hja Wales. Vid hofdum unnid fimm af sex leikjum sem thyddi ad vid hofdum unnid motid. Best af ollu var ad vid unnum Englendinga, eda eins og Kelly Jones i Steriophonics syngur; "got beat by the irish, got beat by the scots, but we don't care, as long as we beat the english". Malid snerist nu um ad vinna thennan sidasta leik gegn Frokkum lika til ad fa ekki bara vinningstitilinn, heldur einnig "Grand Slam" titilinn.
Magkona min og svili budu okkur ad koma a pobbinn til ad fylgjast med leiknum. Og tho eg skilji hvorki upp ne nidur i reglunum gat eg ekki annad en hrifist med. Klukkan tvo var pobbinn stutfullur, allir i raudum velskum rugby peysum, einn og einn med slagord eins og "I support 2 teams: Wales and whoever England is playing!". Allir med bjor i glasi og rifandi stemning. Frakkar byrjudu a ad fa viti, og komust 3 stig yfir okkur. En svo tok velska lidid vid ser og vid skorum "try" (thegar einn leikmadur naer ad hlaupa med boltann alla leid yfir endalinu) og nokkur viti og lokatalan 16-9. Eg gat ekki annad en tekid thatt af fullum krafti, hoppadi um og aepti og skraekti og drakk otaepilega af bjor. Og var i alvorunni hraerd thegar bikarnum var lyft og velski thjodsongurinn var sunginn af krafti. Lagid er reyndar afskaplega fallegt og mer hefur alltaf thott vaent um thad.
Vid akvadum svo ad rolta upp i Ponciau a The Colliers (namumanna klubbinn) til ad fylgjast med Irlandi og Englandi keppa um annad saetid. Thar var rifandi stemning og allir studdu Ira af heilum hug. Thvi midur vard okkur ekki ad oskinni um algera nidurlaegingu Englendinga, their unnu 30-9. Skemmtilegt er tho ad segja fra thvi ad thessi rigur er allur i godu, i rugby er ekki thetta ofbeldi sem fylgir t.d fotbolta. A rugby leikjum sitja ahangendur fra mismunandi lidum hlid vid hlid og allt i godu. Thetta hefur verid utskyrt med ad rugby er yfirstetta ithrott a medan fotbolti er leikur verkamanna. En eg aetla nu ekki ad fara a kommenta a thad.
Vid roltum svo a annan pobb, drukkum enn meira, bordudum sausage roll og scotch egg og skemmtum okkur konunglega. Eg skal svo vidurkenna ad um attaleytid og milljon bjorum sidar var eg buin a thvi og vid Dave skundudum heim, blindfull og kat, haestanaegd med Grand Slam sigurinn og frabaeran dag.
I dag er maedradagur og eg er buin ad fa yndislegt kort sem Lukas bjo til, morgunmat i rumid og loford um indverskan take away i kvold. Lifstillinn faer sma pasu vegna thynnku i dag. Skitt med thad.
Tolvan min er i vidgerd og eg nenni ekki ad breyta lyklabordinu hans Dave thannig ad thad verdur litid um skrif i vikunni.
miðvikudagur, 14. mars 2012
Þvílík og önnur eins hamingja. Ég pakkaði hlaupagallanum í morgun af því að ég hafði hug á að fara aftur Wrexham-Rhos leiðina. En þegar vinnu var lokið og ég komin í gallann bara gat ég ekki hugsað mér að fara í strætó og bíða eftir að hlaupa. Sólin glampaði á síkinu, fólk tifaði um allstaðar og borgin öll víbraði af vori og lífi. Ég ákvað á stundinni að hlaupa í gegnum Chester og sjá svo bara til hversu langt ég kæmist. Og mikið rosalega var þetta skemmtilegt. Alveg ný leið, allt nýtt að sjá, smá útúrdúr og ég komst alla leið að hringtorginu þar sem maður velur um Manchester, Chester eða Wrexham. Greip strætó þar og sat svo skælbrosandi og rennandi sveitt í gegnum Rossett og Gresford og hálfa leiðina til Rhos þar sem ég ákvað að hlaupa síðasta kílómetrann heim til að ná síðustu geislum sólarinnar. Allt stress dagsins lekur úr manni. Það jafnast bara nánast ekkert á við gott hlaup. Kannski er það merkilegra fyrir mig að geta gert svonalagað en fólk sem alltaf hefur getað notað líkama sinn til svona hreystiverka. Ég er alltaf jafn hoppandi glöð þegar ég geri eitthvað sem kemur mér á óvart. Mér varð hugsað út frá því um hugmyndafræðina sem heitir Healthy at Every Size og Fat Acceptance. Hér er hugmyndin sú að maður hætti að hatast við sjálfan sig og líkama sinn, hætti þessum jó jó megrunarkúrum, hætti þessi endalausa niðurrifi og umfaðmi sjálfan sig og líkamann eins og hann er. Í HEAS er ekki verið að tala um að "gefast upp" heldur er hugmyndin frekar að maður heiðri líkama sinn með líkamsrækt sem manni finnst skemmtileg og borði mat sem nærir og gefur vellíðan. Fat Acceptance virðist vera meira að því lútandi að sættast við að maður sé feitur og byrja að elska líkama sinn í sínu feita formi. Mér finnst í öllum þeim greinum sem ég hef lesið um þetta að skilaboðin séu að þau okkar sem erum að reyna að verða heilbrigðari og jafnvel grennast séum að því vegna þess að við hötumst við likama okkar. Ég hata ekki líkama minn - það virðast vera skilaboðin frá HAES fólki, að það að vilja grennast þýði að ég sé óhamingjusöm af því að ég hata sjálfa mig og að ég þurfi að læra að elska líkama minn með öllum sínum bugðum og sveigjum og hrukkum og krukkum. En ég elska likama minn. Hann er lifandi sönnun hversu ótrúlegur mannslíkaminn er. Ég gat misboðið honum árum saman og hann er samt núna sterkur og fallegur. Ég er rosalega sæt. Ég elska sjálfa mig og líkama minn.
En það þýðir ekki að ég sjái ekki að ég geti gert betur. Að vilja verða hraustari og fljótari að hlaupa er ekki talið vera merki um óhamingju og sjálfshatur hjá íþróttamanni. Af hverju þarf það að þýða að ég sé haldin sjálfshatri?

laugardagur, 10. mars 2012
Það voru ýmsar hugsanirnar sem þutu í gegnum hausinn þegar ég las grein Brynhildar á Vísi um í gær. Ég hef alltaf haft mínar skoðanir á fordómum gagnvart feitum sem eru alveg hreint sláandi. Feitt fólk fær síður vinnu, fær verr borgað og þarf að greiða meira fyrir líf- og sjúkdómatryggingar fyrir utan að fá háðsglósur og leiðindi svona almennt frá samfélaginu. Og allt þetta er alveg forkastanlegt.
Nú hef ég sveiflast um í skoðunum mínum á þessu öllu saman. Að sjálfsögðu þykir mér ömurlegt til þess að hugsa að fólki sé mismunað á þeim forsendum einum að það séu fitubollur. Og ekkert þótti mér leiðinlegra en að heyra ljóta hluti sagða um útlit mitt þegar ég var feit. Enn verra var þegar mér var sagt að ég væri svo sæt og frábær, en ég gæti verið svo mikið frábærari ef ég myndi léttast aðeins. Allt þetta gerði mig forherta í því að hata mjótt fólk og vilja berjast fyrir rétti mínum til að vera feit óáreitt. En á sama tíma langaði mig ekkert meira en að vera mjó.
En málið er hvað sem öllum mannréttindum líður þá er óhollt að vera of feitur. Ég þarf ekki að telja upp hjartasjúkdóma, sykursýki, öndunarsjúkdóma, liðaveiki, krabbamein, svefnörðugleika og almenna likamlegan sársauka. Það sem ég hef svo líka fundið út meðörlitlum rannsóknum er sláandi. Krabbamein t.d greinist síður í offeitu fólki vegna þess að læknar og hjúkrunarfólk eiga erfiðara með að gera skoðanir á feitu fólki. Fitan felur kvillan betur. Ef hann svo finnst er mun erfiðara að gera skurðaðgerðir á feitum, bæði vegna aðgengis og fylgikvilla. Að auki er algengt að offeitir fá of lágan lyfjaskammt. Þetta er svo fyrir utan að offita er algeng ástæða fyrir rangri greiningu.
Læknar eru síður tilbúinir til að leyfa of feitum konum að fá aðgang að frjósemismeðferðum vegna þess að þær ganga verr á offeitum. Líffæraflutningar eru meira að segja haldið frá offeitum vegna þess að vandamál eftir aðgerðir eru mun meiri og flóknari en á grönnum sjúklingum.
Sjálf var ég mest leið á hvað mér var alltaf illt allstaðar. Ég var svakalega heilsuhraust, svona eins og Brynhildur, með lágt kólesteról, fínan blóðþrýsting og allt í fínu lagi. En mér var illt allstaðar. Þá er ég sérstaklega að hugsa um hnén. Ég var ekki þrítug og gat ekki labbað. Fyrir utan að vera með núin og nudduð læri þá var ég líka sveitt og másandi og átti erfitt með að halda í við fólk á göngu. Þetta var ömurlegt. Og ef ég reyni að setja mig í spor Brynhildar sem segist vera þrjátíu kílóum of þung, og hugsa tilbaka um fimmtán þá var ég enn með verki hér og þar þá. Sérstaklega í hnjám.
Kannski er ég bara svona ómerkileg manneskja. Ég gat nefnilega ekki annað en hugsað með öfund hvað hún ætti rosalega gott. Hún er í svo fínni vinnu og þarf ekki að hafa áhyggjur af peningum. Kannski ef ég fengi vinnu sem ég hef áhuga á og hætti að vera andvaka allar nætur af áhyggjum af því hvernig í ósköpunum ég eigi að borga næsta reikning myndi ég komast á þetta stig sem ég þrái svo heitt; að vera sátt við mig eins og ég er. Mér þykir svakalega leiðinlegt ef þetta er málið, að ég setji verðmiða á sjálfa mig. Að fyrst ég sé blönk þurfi ég að bæta mér það upp með að vera mjó.Ég hélt nefnilega alltaf hingað til að ég hafi verið stolt af öllu sem ég hef gert í lífinu. Ég hef greinilega ekki gert nóg fyrst mér finnst leiðinlegt að eiga svona lítinn pening. Hitt er svo að hluti af mér, feiti hlutinn, hreinlega trúir Brynhildi ekki. Feiti hlutinn af mér segir hana ljúga. Að það sé EKKERT sem er í lagi við að vera þrjátíu kílóum of þung og mér er skítsama hversu heilsuhraust hún segist vera. En það er bara langþjáð fitubollan í mér sem hugsar svona ljótar hugsanir. Að mestu leyti öfunda ég hana bara að vera komin á stað í heilanum þar sem hún er í alvörunni sátt við að vera feit. Það er staðurinn sem ég vil vera á.
En ég er líka örlítið uggandi yfir greininni. Ég held nefnilega að fullt af fólki (í þessum skrifuðu orðum hafa 3313 manns "líkað" greinin) lesi greinina og hugsi með sér að það sé bara fínt að vera feitur. Að það séu lágmarks mannréttindi að fá að troða sig út af súkkulaði, hammara og kók. Að það sé bara vont fólk sem heimtar að við séum öll eins, að við séum öll mjó. Að þessi endalausa umræða um spik og fitu og spelt og agave og blóðsykur og fartlek sé orðin svo leiðinleg. Og ég get ekki að því gert að að hugsa að þessu leyti sé greinin óábyrg. Því þó Brynhildur kenni sér einskis mein er ekki alveg jafnvíst að allt hitt feita fólkið sé jafn heilsuhraust. Og að það lesi svo grein sem segir að það sé í lagi að vera of feitur. Og það heldur svo áfram að éta McJónas og Snickers.
Ég dáist að Brynhildi. Mér finnst æðislegt að hún sé svona hamingjusöm. Að hún hafi fundið sinn verðleika án þess að þurfa að miða hann við kílóafjölda. Það er engin spurning um að það er allt of mikið af (kven)fólki sem setur samasem merki á milli þess að vera mjór og að vera hamingjusamur. Og mér finnst greinin frábær með mannréttindi í huga. En ég verð líka að segja að þegar ég segi frá minni eigin reynslu þá er ég hamingjusamari núna en þegar ég var þrjátíu kílóum þyngri. Samt var ég í betri vinnu þá og hafði engar áhyggjur af peningum. Ég efaðist líka aldrei um eigin verðleika, hversu feit sem ég var. Mér var bara alltaf illt allstaðar. Þannig að mér finnst bara að það hefði átt að fylgja með greininni svona viðvörun sem segir að engu að síður þá sé það ekki hollt svona almennt að vera of feitur.

föstudagur, 9. mars 2012
Það er búið að taka mig heila EILÍFÐ að fullkomna þessar. Og nú loksins eru þær tilbúnar.
Kókóshnetuhveiti er í raun afgangurinn sem verður eftir þegar olían og vatnið og mjólkin hafa verið fjarlægð úr hnetunni. Hveitið er í raun bara þurrkað hratið sem eftir verður. Þannig að það er ekki bara hollt heldur er það líka umhverfisvænt og sparneytið. Hér er verið að nýta afurð sem annars væri hent. Glútenlaust, kolvetnin eru nánast bara trefjar, fitulítið, bragðgott og ódýrara en önnur hnetuhveiti. What´s not to love?
En það virkar alls ekki eins og venjulegt hveiti. Það sýgur í sig allan vökva og fitu þannig að maður þarf að nota miklu minna magn en af venjulegu hveiti. Það er smá vinna að fatta hvað hentar best og hvernig er best að nota það.
Ég borða þessar í morgunmat og hádegismat og í kvöldkaffi. Ég bý til vænan skammt og geymi inni í ísskáp í tvo, þrjá daga. Smyr með smjöri, eða kókósolíu eða möndlu- eða kasjúhnetusmjöri. Fersk bláber... rjómi... nammi nammi namm.
Kókóshnetuhveitilummur.
1/3 bolli kókóshnetuhveiti
1 tsk lyftiduft
salt
Allt sigtað saman
4 egg
1 bolli (250 ml) mjólk
1 tsk vanilludropar
Msk kókósolía.
Hræra allt nema olíuna vel saman. Bræða olíuna á non stick pönnu og hella svo út í deigið og hræra. Hella svo deiginu á pönnuna í lummu stærð. Svona þrjár, fjórar lummur í einu. Láta vera þangað til að margar loftbólur eru komnar á yfirborðið. Snúa þá við og steikja í þar til gullnar allt um kring.
Ég elda á gasi og ég er með puttana á hitanum allan tímann sem ég er að steikja lummurnar.Upp og niður. Þannig að ég veit ekki hvort það er auðvelt að gera þær á rafmagnshellu. Það er heilmikið trix að þekkja hvenær þær eru tilbúnar til snúnings, snúa þeim svo snögglega þannig að ekkert leki út og allt er eins og á að vera. En maður minn, eru þær þess virði. Og nú er ég orðin svo sjóuð að ég hendi í þær, steiki og ét á 10 mínútum flat.

fimmtudagur, 8. mars 2012
(Ástarþakkir allemaal fyrir tölvupósta og kveðjur og komment, ég er agndofa yfir hvað allir vilja mér vel.)
Ég er ekki pirruð yfir því að léttast ekki um þessi síðustu fimmtán. Ég er pirruð yfir því að vera pirruð á að léttast ekki um þessi síðustu fimmtán. Ég er nefnilega á allt öðrum stað núna en þegar ég var rúm hundraðogþrjátíu kíló. Þá setti ég mér markmið sem miðuðu að því að verða heilbrigð en þau voru líka mjög tölfræðilega miðuð. Ég sá spikið gersamlega leka af mér og það var afskaplega mikilvægt þá. Ég þurfti á því að halda að sjá töluna á vigtinni fara niður á við til að að geta haldið áfram. Ég spurði sjálfa mig að því hvað ég væri tilbúin að gera til að léttast og það kom í ljós að ég var tilbúin til að gera heilmikið. Ég var tilbúin til að borða minna, til að taka út sætindi, kex og kökur, til að gera tilraunir með grænmeti og ávexti og hollara matfang, ég var tilbúin til að hreyfa mig meira og ég var tilbúin til að fórna allskonar tilbúnum hækjum og þægindum fyrir tímabundin óþægindi.
Núna er þetta allt annað umhverfi sem ég er að kljást við. Tilgangurinn er ekki lengur sá að léttast. Að léttast á að vera svona gleðilegur fylgifiskur. Tilgangurinn er að laga í mér heilann. Tilgangurinn er að vera hamingjusöm í eigin skinni feit eða mjó. Tilgangurinn er að hætta að vera svona upptekin af því að léttast og einbeita mér einungis að því að vera heilbrigð. Þess vegna verð ég svona reið þegar ég fyllist örvæntingu yfir því að léttast ekki. Ég á að vera komin yfir svoleiðis tilfinningar.
Ég hef nefnilega engan áhuga akkúrat núna á að gera það sem ég gerði í upphafi. Mig langar ekki til að telja og vigta. Mig langar ekki til að stjórna með smásjá öllu því sem ég borða. Mig langar ekki til að líða eins og neitt sé fórn eða að ég sé að sleppa einhverju. Og það eitt þýðir að ég kem ekki til með að léttast á sama hátt og ég myndi gera ef ég væri tilbúin til að mæla út grunnbrennslu, áætla kolvetnisskammt, auka hann á meðan á viðhaldi stendur, telja og vigta, telja og vigta. Ég er bara ekki til í þetta núna. Ég ætla að borða alvöru,hollan mat, þegar ég er svöng, þangað til ég verð södd. Ég er sannfærð, algerlega hundrað prósent sannfærð um að ef að ég geri það, borða alvöru, lifandi fæðu í mannsæmandi skammti og hreyfi mig eins og ég hef tíma til þá, að lokum, fari þessi síðustu fimmtán kíló. Ég hef engar áhyggjur af því. En ég verð að kenna sjálfri mér að vera þá líka samkvæm sjálfri mér og hætta að kveina yfir því að léttast ekki. Það er það sem ég þarf að laga.
Kannski hef ég komið sjálfri mér í þetta klandur. Ég skrifa bara fyrir sjálfa mig. En ég get heldur ekki neitað því að u.þ.b tvöhundruð manns kíkja hingað inn á hverjum degi. Og ég ímynda mér að mikið til af lesendum mínum leiti til mín til að fá inspirasjón og hvatningu. Og þegar ég, ár eftir ár, segi ekki frá neinum stórfenglegum leyndarmálum um hverning á að "léttast um tuttugu kíló á tveimur mánuðum" eða þegar ég missi sjónar á mínum eigin markmiðum, fæ ég herping í magann. Ég hlýt að vera að valda fullt af fólki vonbrigðum. Ég er bara engin fyrirmynd.
Það eina sem ég veit er að mér líður milljón, trilljón sinnum betur núna, meira að segja þegar ég er kveinandi í angist og örvæntingu, en mér leið þegar ég var alvöru feit. Og það er góð tilfinning.
Næst; uppskrift að kókóshnetuhveiti ammrískum pönnukökum.

sunnudagur, 4. mars 2012
Ég vigtaði mig í gærmorgun. Tvö kíló í plús. Og ég er send aftur á byrjunarreit. Hvað kílóafjölda varðar er mér alveg sama. Ég á við að ég er send á byrjunarreit hvað hugsun varðar. Sykurlaus og hrein, innan skammtamarka, regluleg hlaup og tiltölulega lítið stress að undanförnu og ég þyngist um tvö kíló. Og allt sem ég er öskrar og æpir að þetta sé bara ekki réttlátt. Að ég bara geti ekki meir. Að ég sé búin að reyna allt. ALLT. Og það virðist engu máli skipta hvað ég geri; ég losna ekki við þessi síðustu fimmtán kíló. Og ég get ekki að því gert en að setjast bara niður, gráta og gefast upp. Ég get ekki meir. Öll hugsun sem segir að þetta snúist um að vera heilsuhraust og heilbrigð hverfur. Allt sem segir að þetta snúist ekki um buxnastærð eða hvernig ég lít út fer út um gluggann. Það eina sem ég get hugsað um er að ég sé feit. Feit, feit, feit. Feit og verði alltaf feit.
Þegar þetta gerist reynir sá hluti af sjálfri mér sem er æðri vitund að taka yfir. Æðri vitund er skynsöm og ástrík og hún reynir að segja mér það sem ég veit að skiptir máli, að ég sé að vinna ævilangt starf, að þetta taki tíma, að það skipti í alvörunni ekki máli hvort ég sé í buxum númer tíu eða sextán, það segi ekkert um hversu verðmæt ég sé sem manneskja. Og þetta allt saman er rétt hjá æðri vitundinni.
En suma daga langar mig til að taka æðri vitundina, kyrkja hana hægt og henda henni svo fyrir svínin.
Sjálfseyðingarhvötin tekur svo við af fullum krafti. Tvö kíló í plús? Okei, þá fer ég og fæ mér MacJónas, sjeik og þrjú mismundandi súkkulaðistykki. Þetta er hvort eð er tilgangslaus barátta.
(Ég drekk svo bara spínatsjeik í þrjá mánuði, losna við þessi fokkings fimmtán kíló og sjáum svo hvað setur. Af því að það er jafn hjálplegt og að fá sér MacJónas.)
Þegar ég er svo hálfnuð með súkkulaðistykki númer tvö rennur aðeins af mér. Ég veit að ég er ekki að fara að gefast upp. Það er á engu að gefast upp. Ég er nefnilega ekki sama manneskjan lengur. Lífstíllinn er ekki einu sinni lífstíll lengur, hann er bara lífið.
En ég þarf greinilega að vinna aðeins í því sem ég segi, hugsa og geri. Það er ekki alveg samræmi í þessu. Er tilgangurinn að losna við fimmtán kíló í viðbót? Er hann að vera "sæt"? Er hann að vera einfaldlega sterk og fljót að hlaupa? Ég þarf að skoða þetta betur.
Best er að hugsa málið á meðan maður hleypur. Best að taka sprett.

fimmtudagur, 1. mars 2012
Ég fæ oft góðar hugmyndir, segi við sjálfa mig að drífa hitt og þetta af, massa annað og koma öðru í gang. Og geri svo voðalega lítið í því. Ég var búin að segja að það væri ljómandi góð hugmynd að hlaupa heim úr vinnunni. En ef satt skal segja þá var ég ekki með á hreinu hvort ég væri bara að segja það eða hvort ég ætlaði í alvörunni að láta af verða.
Þannig að þegar ég tilkynnti að sumarið væri komið, að það væri tími til að pakka niður vetrarhlaupagallanum, sá ég líka að ég þyrfti að standa við það sem ég hafði sagt. Það var kominn tími á skipulag.
Ég pakkaði hlaupagallanum í hlaupabakpokann í gærkvöld og fór í léttum (en gasalega smart) fötum í vinnuna í morgun. Vann svo eins og mófó við að afskrifa skuldir og lækka vexti (er ég ekki góð?), fór svo í hlaupagallann inni á klósetti og í strætó. Fór frá Chester til Wrexham og svo í stað þess að taka tengistrætó frá Wrexham til Rhos lagði ég í hann. Þetta er náttúrulega sama leiðin og ég hleyp á laugardagsmorgnum, nema bara í hina áttina. Og nú skil ég afhverju ég er alltaf að hlaupa svona ægilega hratt til Wrexham. Öll leiðin er niður í mót. Sem að sjálfsögðu þýðir að tilbaka er hún fricking upp í mót. Ég er líka búin að vera að vinna af mér föstudaginn, er sem sé í fríi á morgun, tróð bara allri vinnuvikunni á fyrstu fjóra dagana. Þannig að kannski var ég smávegis þreytt. Ég veit ekki. Allavega þá gafst heilinn upp á miðri leið. Sagði mér að stoppa, ég væri ekki hlaupari, hvað ég væri eiginlega að þykjast. Ég gerði þá trixið mitt þar sem ég kanna hvaðan þreytan kemur; sendi spurningu í fætur, í leggi, í læri, í mjaðmir og hendur. Ég spyr lungun hvort þau fái nóg súrefni, og hjartað hvort það sé að hamast of mikið. Ef allt þetta er í lagi þá veit ég að vandamálið er heilinn. Og það er nú bara orðið skemmtilegt að berjast við heilann í mér. Hann er rugludallur sem ég hef gaman að kljást við. Ég lofa mér allskonar skemmtilegheitum ef ég hleyp hálfan kílómetra í viðbót. Svo segi ég við sjálfa mig hvað það sé gaman að vera svona hraust, svona hress, finndu muninn! Og þá get ég stundum meira að segja ekki bara hlaupið aðeins lengra, heldur hraðar líka. Vííí hvað það er gaman að taka sprett! Og áður en ég veit af er ég komin á leiðarenda. Þetta virkar ekki alveg alltaf, en svona oftast.
Ég var allavega kát og hress þegar ég kom heim í kvöld. Skárra en að veltast um í strætó.
Þannig að þegar ég tilkynnti að sumarið væri komið, að það væri tími til að pakka niður vetrarhlaupagallanum, sá ég líka að ég þyrfti að standa við það sem ég hafði sagt. Það var kominn tími á skipulag.
| Komin heim. |
Ég var allavega kát og hress þegar ég kom heim í kvöld. Skárra en að veltast um í strætó.
þriðjudagur, 28. febrúar 2012
Þær skeggræddu það fram og tilbaka frá því um hálftíu í morgun hvort þær ættu ekki bara að fá sér súkkulaðistykki samstarfskonur mínar. Voðalega sem þær langaði í, og að mestu leyti ætti þær það skilið, báðar höfðu þær farið í ræktina í síðustu viku. En samt. Önnur þeirra á leið í sumarfrí, hefur bara átta vikur til að léttast um sjö kíló og hin nýbúin að eignast barn og þyrfti helst að ná af sér fæðingaskvapinu. En það eru nú alveg átta vikur fram að fríi og dagurinn leiðinlegur, súkkulaði myndi hjálpa.
Svona hringsnérust þær í kringum súkkulaðið þar til loksins að önnur þeirra stóð upp, fór í kaffiteríuna og kom tilbaka með kaffi og tvö Twirl.
Hvernig stendur á því að tvær fullorðnar konur þurfa að ganga í gegnum þessar hringborðsumræður áður en það er orðið réttlætanlegt fyrir þær að fá sér eitt súkkulaðistykki? Af hverju má fólk ekki bara fá sér smá nammi og njóta þess án þess að þurfa að skila inn í þríriti afsökunum og ástæðum? Mikið er þetta orðið erfitt allt saman. Og mikið eru þetta hræðileg örlög okkar allra að þurfa að lifa með þessu stanslausa samviskubiti.
Mér datt reyndar líka í hug að afsakanaflaumið væri að einhverju leyti beint til mín. Það er vitað mál að ég fæ mér ekki kex, kökur eða önnur sætindi þegar þau eru á boðstólum og flest hafa þau tekið eftir að ég hef hægt og bítandi verið að léttast. Og það er svo komið að þegar einhver fær sér nammi er mér tilkynnt að það sé út af hinu eða þessu. Og svo er mér sagt að ég sé spes og öðruvísi, ég hafi "willpower" og "motivation". "Oh," er svo andvarpað, "I wish I had your willpower."
Um leið og við tökum viljastyrk og hvatningu og setjum viljastyrk í krukku og hvatningu í dós og sjáum fyrir okkur sem hugtök sem standa fyrir utan okkur verður þetta að miklu máli. Eins og að við þyrftum að teygja okkur upp í efstu hillu til að ná í krukku af viljastyrk og dós af hvatningu. Og við færum ábyrgðina frá okkur sjálfum. Viljastyrkur og hvatning breytast í utanaðkomandi áhrifavalda sem við höfum enga stjórn á eða vald yfir. Og við stynjum upp yfir okkur að við höfum engan viljastyrk og fáum okkur annað snickers.
Um leið og við sjáum að viljastyrkur og hvatning eru ekki einingar sem standa út af fyrir sig og úr seilingu verður þetta allt miklu einfaldara og auðveldara. Ef við viljum gára vatnið verðum við að fleyta steininum.
Mér finnst þetta allt voðalega einfalt. Ef maður ætlar að fá sér súkkulaði þá gerir maður það bara. Það kemur mér ekki rassgat við. Það þarf enginn að afsaka sig fyrir mér. Og það síðasta sem ég hef áhuga á er að skemma súkkulaðið fyrir samstarfskonum mínum. Skárra væri það nú. Ég hef engan áhuga á að vera enn ein ástæðan fyrir samviskubiti.
Ég er nefnilega ekkert spes eða öðruvísi eða með eitthvert viljastyrksgen. Ég ber einfaldlega ábyrgð á sjálfri mér, samviskubitslaust.
Í öðrum fréttum þá er hér heldur betur farið að vora. Ég hélt ég myndi drepast úr hita við hlaupin í kvöld. Það er kominn tími til að pakka niður vetrarhlaupagallanum og ná í stuttbuxurnar. Djöö... kominn tími að raka á mér lappirnar!

sunnudagur, 26. febrúar 2012
| Innihaldið |
1 dós af kókósmjólk (full fita) sem hefur verið geymd í ísskáp.
4 eggjarauður
4 eggjahvítur
1 væn matskeið rice syrup (frúktósalaust - en fullt af glúkósa þannig að ég er að svindla örlítið hérna.)
2 matskeiðar vanilludropar
| Heslihnetuísinn |
Blanda svo öllu saman ásamt vanilludropunum og setja í litlar plastdósir. Svo tekur ímyndunaraflið við. Ég lét eina dósina vera hreina, í eina setti ég kókósflögur, í eina fóru ristaðar, muldar hesli- og pekanhnetur og þá síðustu fór teskeið af kasjúhnetusmjöri, cacao nibs og ristaðar möndluflögur. Svo frysti ég og hrærði til að mylja ískristalla á hálftímafresti.
| Með fleiri hnetum og smá slettu af rjóma. |
| Kókósflögur |
| Hnetusmjör og cacaonibs. |
laugardagur, 25. febrúar 2012
Þar sem ég stóð við uppvaskið fékk ég uppljómun. Heilinn í mér var að hugsa um pizzu og súkkulaðiköku, svona hálfshugar, þegar vitund mín sagði heilanum að mig langar ekki í pizzu og súkkulaðiköku. Mig langar í hollt af því að mér líður svo vel af því og af því að það er svo gott á bragðið. Hugsunin var eitthvað á þá leið að mig langar til að fá pizzu í öll mál en svo mótmælti ég sjálfri mér vegna þess að mig langaði frekar í hafragraut í morgunmat. Og grænkálssalat í hádegismat. Og húmmús. Og nýja kókóshnetuísinn minn. (Uppskrift á leiðinni).
Mikið ósköp finnst mér gaman þegar heilinn í mér þarf smá tíma til að venjast svona nýjum hugsunargangi, ég er svo vön að hugsa feitt að ég fatta stundum ekki að það er mér í alvörunni orðið eðlisægra að hugsa mjótt.
Út frá þessu datt mér líka í hug eitthvað sem ég hafði lesið hjá Ben Davis. Hann er búinn að léttast um milljón kíló og er hættur að vera þunglyndur. Hann var líka haldinn spilafíkn en hefur núna "stjórn" á henni. Hann skrifar í gær að hann hafi farið með vini sínum svona spontant til Vegas til að spila- "because we are having fun, not because we need to" skrifar hann. Og þetta sló mig dálítið. Er þetta blekking fíkilsins? Er hægt að lækna sig af fíkn þannig að maður getur gert smá? FAA (Food Addicts Anonymous) eru ekki sammála. Samkvæmt þeim þarf maður bara að sleppa algerlega því sem maður er sjúkur í.
Sjálfri finnst mér það ágætis kenning. Ég er núna búin að vera sykur-frúktósa og hvítt hveiti laus núna í fjórar vikur og ég er ekki frá því að ástæðan fyrir þessari skýru hugsun sem ég hafði þarna við uppvaskið hafi komið til vegna þess að ég er frjáls frá lönguninni.
Annað sem ég hef verið að gera tilraun með er að borða þrjár stórar máltíðir á dag frekar en sex smærri. Ég borða þannig að ég er ekki svöng á milli mála, þetta er miklu auðveldara upp á vinnuna og það sem er allra best er að þetta skapar minni þráhyggju. Ég er ekki hugsandi um mat á eins til tveggja tíma fresti, bara fjögurra til fimm. Mér líður vel.
Vigtin hreyfist ekki akkúrat núna. En ég er líka eiginlega hætt að stíga á hana vegna þess að mér líður eins og ég sé þvengmjó núna. Ég sé og finn gífurlegan mun á mér. Og þegar ég sé að vigtin hefur ekki hreyfst þá byrja ég að efast um hversu mjó ég er og byrja að panikka og líða illa. Þannig að það er betra að halda sig frá vigtinni og líða vel. Mér finnst voðalega mikilvægt að líða vel.

fimmtudagur, 23. febrúar 2012
Ég sat í makindum aftast í strætó í gær á leið heim úr vinnu og kveikti á "podcast" sem ég hafði náð í frá BBC Radio 4 um daginn. The Food Program er skemmtilegur þáttur þar sem snert er á ýmsu því er kemur að mat. Þátturinn sem ég hlustaði á fjallaði um grunninn að þessu öllu; hitaeininguna. Og þar sem ég sat í strætó og hlustaði leið mér eins og ég ímynda mér að presti sem sat og hlustaði á Darwin tala um þróunarkenninguna hafi liðið. Allt sem ég hingað til hef trúað á og talið óhrekjandi sannindi eru þvættingur og tjara ein. Öll mín trúarbrögð voru tekin og tætt niður þar til ekkert stóð eftir.
Ég og milljónirnar sem telja hitaeiningar höfum alltaf vitað að í einu pundi af fitu eru 3500 hitaeiningar. Til að léttast um pund þurfum við að skapa 3500 kalóríu þurrð. Þetta er vísindaleg staðreynd sem enginn hefur talið nauðsynlegt að efast um. En næringarfræðingurinn sem talað var við lagðist í rannsóknir og komst að því að þetta er hæpið í besta falli, hreinn tilbúiningur í því versta.
Formúlan sem hér liggur að baki gerir ráð fyrir þremur þáttum. Sem svo þegar eru skoðaðir þá er bara einn af þessum þáttum staðreynd. Eitt pund er 453.5924 grömm. Það er staðreynd. Hinir þættirnir eru svo að í einu grammi af fitu eru 9 hitaeiningar og að eitt pund af mennsku fleski er 87% fita (lipide). En málið er að þessir tveir síðari þættir eru svo massíft breytanlegir að formúlan er gagnslaus.
Enda hef ég og eflaust líka hinar milljónirnar sem telja kalóríur staðið á vigtinni eftir nákvæmlega talda og vigtaða viku þar sem 500 hitaeiningaþurrð var sköpuð í hverjum degi í þeirri fullvissu um að eitt pund af fitu ætti að leka af manni og séð vigtina fara upp um tvö pund. Eða niður um þrjú. Ég sver að ég sé helvítið stundum fara til hliðar. Hversvegna?? veinum við og skiljum ekkert í þessu. En ég gerði allt rétt! Ég taldi, ég vigtaði og allt fyrir ekki.
Þegar maður spáir í þessu þá passar þetta alls ekki. Hvað ef maður er 50 kíló? Og skapar 1000 hitaeiningaþurrð á hverjum degi í heilt ár? Endar maður sem - 2 kíló eftir árið? Þetta er greinilega vitleysa og virkar ekki.
Það virðist sem svo að þessi þrá okkar til að einfalda hlutina er að gefa okkur allt of einföld svör við gífurlega flóknu efni.
Ég er þess vegna búin að gefast upp á þessu öllu saman. Allt sem ég held að sé rétt og satt er rugl og vitleysa. Ég ætla héðan í frá að halda mig við það eina sem hefur reynst mér vel. Ég ætla að borða alvöru mat þegar ég er svöng, þangað til ég verð södd. Og trúa engu nema ég segi það sjálf.

sunnudagur, 19. febrúar 2012
Ég var búin að sjá þetta
allt fyrir mér. Ég hafði hugsað mér að hlaupa innlegg númer tvö í 12 á 12 á
laugardagsmorgun. Ekki nóg með að ég ætlaði að hlaupa það, skínandi hress af
sykurleysi og hreinleika, heldur ætlaði ég að hlaupa það á persónulegu meti.
Helst að ná 5km á undir 34 mínútum og enda síðasta kílómetrann á undir sex
mínútum. Það hefði ég nú haldið. En málið er að ég er ekki búin að hlaupa í rúma viku núna. Ég er búin að vera veik alla vikuna, hef rétt lafað uppi í sófa og
svo fór ég í vinnu og rétt lafði dagana þar áður en ég kom heim og fleygði mér
aftur í rúmið. Það var útséð með persónuleg met. Ég myndi ekki setja það með
þessum undirbúningi.
Ég las það í tímariti um
daginn að þróunarkenning Darwins hefur þróast enn frekar. Nútíminn sýnir að það
eru ekki endilega þeir sterkustu og fljótustu sem lifa af, heldur þeir sem eru
fljótastir að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Ég vissi að aðstæður höfðu
breyst hjá mér. Ég var ekki í toppformi. Breyttar aðstæður hjá mér gáfu mér þá
valmöguleika að leggja af stað í hlaup, illa undirbúin, með lungnasýkingu og ofvæntingar
og nokkuð örugga útkomuna vonbrigði og „failure.“ Að mér hafi mistekist að
setja persónulegt met. Eða ég gat valið að leggja af stað með það í huga að
njóta þess að vera staðin upp úr veikindum. Að njóta þess að geta hlaupið í 40
mínútur. Að njóta þess að vorið er á næsta leyti og ég væri úti að njóta þess.
Að njóta þess að geta tekið mér viku frí en vera samt fær um að hlaupa í 40
mínútur. Að njóta þess að vera til.
Og það var málið. Ég vaknaði í morgun og heimurinn minn var þakin léttum snjóhjúp. Ég klæddi mig aðeins betur, fór í nýju "compression" sokkana mína og ég hljóp, ég naut þess, ég er hraust.
Ég hef hingað til alltaf
sagt að það sé allt í lagi að mistakast. En það er líka óþarfi að setja sjálfan
sig í aðstæður þar sem manni getur ekki annað en mistekist. Þá er sniðugra að
aðlaga sig að breyttum aðstæðum.
Ásta benti mér á áhugarverða pælingu sem kemur frá Anthony Robbins um daginn :
"Start realizing right
now that there's no such thing as failure. There are only results. You always
produce a result. If it's not the one you desire, you can just change your
actions and you'll produce new results. Cross out the word "failure,"
circle the word "outcome" in this book, and commit yourself to
learning from every experience." -- Unlimited Power, page 75
Og mér datt í hug að án þess kannski að hafa gert mér almennilega grein fyrir því þá er þetta í raun kjarninn á því sem ég hef verið að gera og það sem aðskilur þessa tilraun mína til heilsusamlegra lífs frá öðrum slíkum tilraunum. Hugarfar mitt er allt annað en það hefur verið áður. Ég gaf mér tíma, ég gaf mér leyfi til að gera tilraunir og ef eitthvað virkaði ekki gaf ég mér leyfi til að þakka fyrir mig og breyta svo um taktík. Og ég lærði smávegis af öllu sem ég gerði. Ef ég á að vera hreinskilin þá trúi ég því að það skipti í alvörunni engu máli hvort maður velur að telja kalóríur, hlaupa meira en maður étur, lyfta og hakka í sig prótein, banna kolvetni á kvöldin eða virkum dögum eða éta allt í hófi ef maður gefur sjálfum sér leyfi til að læra af öllu sem maður gerir og velja svo það sem best hentar hverjum aðstæðum þá ætti hvað aðferð sem er að virka. Svo lengi sem maður kýs að koma fram við sjálfan sig af alúð og virðingu og að sjá þetta alltaf fyrir sér sem "learning curve".
Er þetta bara ekki málið núna? Að hætta að sjá lífið fyrir sér í þessum hugtökum að annaðhvort takist manni eitthvað eða mistakist. Þetta er alltsaman tilraun hvort eð er og ef manni líkar ekki niðurstaðan breytir maður bara innlaginu. Simples.

föstudagur, 17. febrúar 2012
Ýmsar (rang)hugmyndir sem ég er haldin eru núna svona smávegis að breytast. Ég hef t.d nú nýverið tekið upp á því að vera oft með hárið slegið. Ég hef ekki getað það hingað til vegna þess að mér finnst eins og þegar feitt fólk er með hárið lafandi yfir herðar hverfi hvaða litli háls sem það er með algerlega og efri hluti líkamans breytist bara í eitt flæmi, einn massa. Ég ætti kannski að taka fram að þessar hugmyndir mínar eru einungis byggðar á því sem mér finnst um sjálfa mig, ég man ekkert sérstaklega eftir að hafa hugsað svona um aðra. Á sama hátt get ég ekki verið með belti. Eða svona þangað til nýverið. Ég hef meira að segja tekið upp á því að vera með belti á kjól. Hingað til hefði ég sagt að það væri bara til að skera magann í tvennt. Núna allt í einu leggur það áherslu á mitti. Ég hef líka ekki verið hrifin af því að vera með kinnalit. Fannst óþarfi að leggja áherslu á bústnar, rjóðar kinnar. En núna, núna er ég með burstann á lofti allan daginn að bæta á roðann.
Þetta þýðir líka að ég er alveg týnd. Nú þegar reglurnar mínar um snyrtimennsku gilda í raun ekki lengur og mér standa opnar dyr hingað og þangað er ég stanslaust að gera mistök. Æpti upp yfir mig af hryllingi fyrir tveimur vikum síðan yfir sinnepsgulri skyrtu með myndum af fiðrildum. Stóð svo sjálfa mig að því að prófa hana í dag, eftir að hafa dottið í hug að hún væri helvíti smart við leðurbuxurnar. (Sem eru að sjálfsögðu kapítuli út af fyrir sig.) Þetta þýðir að ég er að kaupa hitt og þetta til að prófa og svo virkar fátt saman og ég er alveg eins og hálfviti til fara flesta daga. Mikið vona ég að ég finni minn stíl bráðlega. Nú þegar ég er alveg hætt að hafa áhyggjur af kameltá.
Hitt er svo að allt snýst þetta í hringi og ýmislegt kemst aftur í tísku. Ég fattaði um daginn að í kringum árið 2000 var ég líka mjó. Ekki alveg jafn mjó og núna en ekki langt frá því. Ég hafði lifað á 1000 kalóríum á dag og synt og lyft eins og mófó í ár og var ægilega hamingjusöm (aðframkomin af hungri.) En ég átti þá kápu, eða svona "Mac" sem er búin að vera í tísku í vetur. Í réttum lit og allt. Ég mundi heldur ekki betur en að hún hafi verið í 16 sem ætti að vera fínasta mál núna. Leitaði að henni logandi ljósi um allt hús, þegar ég var minnt á að einhverju sinni þegar ég var á tímabili þar sem ég var ákveðin í að vera bara sátt við að vera feit og hætta að halda í gamla drauma tók ég öll svona föt og henti. Í ruslið.
Maður á aldrei að hætta að eltast við drauminn.
Þetta þýðir líka að ég er alveg týnd. Nú þegar reglurnar mínar um snyrtimennsku gilda í raun ekki lengur og mér standa opnar dyr hingað og þangað er ég stanslaust að gera mistök. Æpti upp yfir mig af hryllingi fyrir tveimur vikum síðan yfir sinnepsgulri skyrtu með myndum af fiðrildum. Stóð svo sjálfa mig að því að prófa hana í dag, eftir að hafa dottið í hug að hún væri helvíti smart við leðurbuxurnar. (Sem eru að sjálfsögðu kapítuli út af fyrir sig.) Þetta þýðir að ég er að kaupa hitt og þetta til að prófa og svo virkar fátt saman og ég er alveg eins og hálfviti til fara flesta daga. Mikið vona ég að ég finni minn stíl bráðlega. Nú þegar ég er alveg hætt að hafa áhyggjur af kameltá.
![]() |
| Í kápunni á menningarnótt fyrir ca 15 árum. |
Maður á aldrei að hætta að eltast við drauminn.
fimmtudagur, 16. febrúar 2012
Ég var heima í gær með hor í nös. Vanalega læt ég ekki þannig slíkt á mig fá, mæti galvösk í vinnu og tek bara lengri tíma í að jafna mig. Enda ekki fjárhagslega vænt að vera heima veikur; ég fæ ekki borgað fyrir veikindadaga. En í gær var ég með smá hita, enn með glýju í augum eftir Lundúnaferðina og bara hreinlega ekki stemmd til að berjast við hitann. Lá hérna uppi í sófa og horfði á sjónvarpið. Fékk mér hafragraut með ristuðum graskersfræjum og kanil og smá rjóma í morgunmat, flaxkorn og laukhrökkbrauð og harðfisk í hádeginu og chili með bláum maizflögum í kvöldmat. Uppgötvaði svo þegar ég var komin upp í að ég hafði látið fara framhjá mér dag sem ég hefði getað eytt í að smyrja á mér gúlann með crisco. Ég var veik, uppi í sófa, að vorkenna sjálfri mér smávegis, ein heima þannig að enginn hefði séð til mín. Ég hefði getað eytt deginum í að éta og ég fattaði það ekki einu sinni! Að hugsa með sér! Það er oft sem ég fatta svona lagað núna. Þar sem ég alveg óafvitandi eyði löngum tíma í að hugsa eins og mjó manneskja. Það finnst mér algert æði. Og hlakka til þegar ég fatta ekki einu sinni lengur að ég hafi hagað mér mjótt.
Bláu maisflögurnar keypti ég í London. Nú þarf ég að kanna hvort svona sé selt hérna í menningarleysinu, en verð að viðurkenna að ég er heldur vondauf með það. Þetta eru bara venjulegar tortilla flögur nema að innihaldið er bara blár mais og salt. Ekkert annað. (Skoðið til samanburðar innihaldslistann á Doritos poka.) Og ég fann rannsókn sem er heldur vísindaleg til aflestrar en rennir sem sagt stoðum undir að blár maís sé antioxidant (hvað svo sem það er á íslensku), er bólgueyðandi, myndar vörn gegn krabbameinsmyndandi frumum og berst gegn fitufrumum. Sjálfri finnst mér mest til um hvað hann er fallegur. Skær fjólubláar flögurnar á disknum mínum veita mér hamingju og lífsfyllingu. Ég verð bara að segja það. Svo mikið finnst mér um það þegar ég fæ að prófa eitthvað nýtt og skemmtilegt. Sykurleysið hefur eiginlega bara aukið á þennan áhuga minn á mat. Eða kannski endurvakið forvitni og tilraunagleði sem mér finnst ekkert nema skemmtilegt. Súkkúlaðimús úr avókadó? Það held ég að það verði prófað um helgina!

þriðjudagur, 14. febrúar 2012
| Við enduðum svo uppi á Primrose Hill þar sem maður hefur útsýni yfir alla borgina. |
| Séð yfir Camden Market. |
| Það má náttúrulega ekki sleppa kvöldmat og tilboðið á ítölskum veitingastað sem lofaði tveimur pizzum á verði einnar var of gott til að láta vera. |
fimmtudagur, 9. febrúar 2012
þriðjudagur, 7. febrúar 2012
(Eftirfarandi færsla inniheldur það sem heitir á Engilsaxnesku TMI. Viðkvæmir vinsamlegast lítið undan núna)
Ég er niðurbrotin manneskja. Sjáiði til, ég hélt að ekki nóg með að ég væri að ná tökum á fíkninni, verða óvart í leiðinni þvengmjó og súpersnögg að hlaupa, þá væri ég líka búin að ráða niðurlögum á mínu stærsta vandamáli. Vandræðalega vandamálinu sem ég hef ekki minnst einu orði á hér eða annarstaðar. Ég hef borið þennan harm minn í hljóði (silent but deadly) þó stundum hafi hann líka brotist út með óhljóðum miklum og skruðningum. Eiginmaður minn og sonur hafa þurft að lifa við þetta lævi blandna andrúmsloft núna síðan ég hóf að feta mig á heilsubrautinni. Þannig að það voru mikið kátir menn sem horfðu á mig stoltir á fimmtudagskvöld og tilkynntu mér að ég hafði ekki prumpað síðan á sunnudag. Við hoppuðum um í kátínu og gleði litla fjölskyldan, loksins, loksins gátum við öll dregið andann léttar. Það virtist sem svo að ávextir gerjist hreinlega í görninni á mér og með þeim afleiðingum að ég syng stanslausan aftansöng innan helgi heimilsins. En án ávaxtanna er ég eins heilög og María Guðsmóðir sem lét örugglega aldrei vind um kinnar þjóta.
En það virðist sem svo að ég verði að láta í minni pokann fyrir íslenskri kjötsúpu. Rófur og hvítkál eru greinilega ekkert gamanmál.
Og ég hef endurheimt nafngiftina "mummy fartypants".
We are not amused.

sunnudagur, 5. febrúar 2012
| Lúkas og kókóshnetan. |
Andlega líður mér eins og milljón dollurum. Ég er yfirfull af krafti og nánast trúarofsa af sannfæringu um að loksins, loksins hafi ég fundið það sem er rétt og gott fyrir mig. Síðan að ég byrjaði að léttast fyrir þremur árum síðan hef ég prófað ýmislegt. Það eina sem ég hafði alltaf að leiðarljósi var að mér varð að líða vel. Og geta svarað spurningunni "Geturðu gert þetta að eilífu?" játandi. Og það er það sem ég hef gert og mér hefur liðið vel og ég hef lést um trukkfylli af spiki og er heilsuhraustari og hressari en nokkru sinni. En allan þennan tíma hef ég líka tekið rassíur þar sem ég treð andlitið fullt af sætindum og það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart að á meðan á ofátinu stendur haga ég mér nákvæmlega eins og ekkert hafi breyst. Ég geng í gegnum nákvæmlega sama taugastríðið og þegar ég var feit og hafði stanslausar áhyggjur af því að fá ekki nóg. Allt sem ég vil er frelsi og jafnvægi. Ég vil ekki vera háð efni og ég vil ekki að hegðun mín breytist vegna efnis.
Ég hef talið hitaeiningar, ég hef verið meðvituð um hvaða næringaefni eru í hitaeiningunum mínum, ég hef minnkað kolvetnið og aukið próteinið, ég hef borðað eins og vaxtarræktarrotta, ég hef reynt að borða af innsæi. Og allt þetta virkar og gerði mig ánægða. Að meðaltali léttist ég um 2-300 grömm á viku. Í þessari viku hef ég lést um 1 kiló. Og það er þó ég sé búin að troða mig út af smjöri og fitu og hnetum. Ég er semsagt búin að taka alla unna vöru út. Þar á ég við allt sem eitthvað er búið að fitla við. Þannig nota ég orðið hreint smjör og mjólk með fullri fitu. Ég fékk þannig hreinan latte í gær, ekki neinn helvítis skinny neitt. Og af því að ég fékk alvöru kaffi langaði mig ekkert í sykurhlaðna muffinsbolluna sem ég fæ mér vanalega með skinny latte. (Sjáiði vitleysuna sem ég hef verið gera hingað til?)
Kókóshnetur eru að rokka minni tilveru akkúrat núna. Ég nota kókósmjólk í quinoa grautinn minn, set kókósflögur út á jógúrt, nota olíuna til að búa til hnetukúlur, kókósrjóma til að búa til ís og hef líka tekið upp á að nota olíuna sem andlitskrem. Ég hugsa að ég þurfi að flytja til Indónesiu til að eignast bara mitt eigið kókóstré.
Vísisindin sem ég hef lesið mér til um þetta hafa sannfært mig um að sykur sé eitur og þar með talið frúktósi. Ég er ekki að halda því fram að ávextir séu hættulegir heilsunni, en ég er að segja að þeir geta verið það í því magni sem ég var að borða þá.
| Hér er ég búin að berja flikkið í sundur. |
föstudagur, 3. febrúar 2012
Í skemmtilegu samhengi við sykurlausu tilraunina mína hef ég tekið eftir umræðu um hollustu sykurs og agave síróps. Og ég verð að viðurkenna að það kemur mér stanslaust á óvart að það þurfi að ræða þetta yfir höfuð. Hvorugt er hollara en hitt, sykur eða agave, bæði er þetta eitur fyrir líkamann og rökin sem segja að agave hafi ekki áhrif á insúlínið og valdi þar með ekki sama sykur "spike" og hvítur sykur er í raun og veru ekki jákvæð rök því insúlín er eitt af hormónunum sem stjórna matarlyst.
Þegar við borðum fitu eða prótein eða flókin kolvetni þá bera ákveðin hormón í líkamanum skilaboð til heilans sem segja honum að við séum að fá næringu og svo að við séum orðin södd. Þetta gerist ekki þegar við fáum frúktósa. Agave er upp undir 90% frúktósi, borðsykur er 50% frúktósi og 50% glúkósi. Frúktósi fer í gegnum líkamann án þess að vekja nein skilaboð um að við séum orðin södd eða búin að fá nóg og þessvegna verðum við aldrei mett af frúktósa, ein leitum bara upp meira og meira. Samhengi á milli þess að vera háður sykri hefur ekki verið rannsakaður nóg, en sem stendur eru vísbendingar til þess að sykurfíkn sé raunveruleg líkamleg fíkn.
Þegar við sleppum að borða frúktósa kemst líkaminn í jafnvægi. Öll fíkn hverfur að lokum og við þurfum ekki að berjast við þessar stanlausu sveiflur. Við mettum líkamann, brennum hitaeiningum og borðum þegar við erum svöng. Þegar allt er í jafnvægi þá ættum við ekki að fitna þegar við borðum fitu, prótein og flókin kolvetni; líkaminn segir okkur þegar við erum búin að fá nóg og þegar okkur vantar meira.
Frúktósi hinsvegar fer óáreittur beint í lifur þar sem lifrin tekur til við að breyta honum í hreina líkamsfitu, líkt og hún gerir við alkóhól. (Þetta gerist ekki með glúkósa, sem líkaminn getur brotið niður.)
Frúktósi er náttúrlegt efni og aðalsuppistaðan í ávöxtum og auðvitað er ekkert að því að borða ávexti. En það má líka hafa í huga að flest vítamín,snefil-og næringarefni ásamt trefjum sem við þurfum úr ávöxtum er hægt að fá úr grænmeti. Og þannig má minnka neyslu á frúktósa. Við erum gerð til að þola mjög lítið af honum.
Allt þetta ætti að nægja til að sannfæra fólk um að agave er ekki hollara en sykur. Ég hef sagt það áður að sykur er sykur og það skiptir ekki máli í hvaða formi hann kemur.
Ástæðan fyrir því að ég er svona svakalega pirruð á þessu agave kjaftæði er að það og aðrir slíkir heilsukostir valda svo gríðarlegum misskilningi hjá fólki. Það grípur þetta á lofti að slíkt sé hollara en eitthvað annað, raðar því svo í sig með engri hugsun um að allt inniheldur þetta kalóríur og að lokaniðurstaðan er alltaf sú hin sama; ofát og offita.
Svo lengi sem fólk getur stjórnað meðalhófinu þá skiptir litlu máli hvaða eitur það kýs, hvítan sykur eða tískuheilsuvöruna sem er í gangi í það og það skiptið.
Ef fólk er hins vegar eins og ég og getur ekki stjórnað meðalhófinu og rorrar um í fíkn og óstjórnlegu áti þegar frúktósi er kynntur til sögunnar er best að reyna að sleppa þessu bara öllu. Tilgangurinn hjá mér er ekki einu sinni að reyna að létta mig, mig langar einfaldlega til að koma jafnvægi á líkamann, til að geta komist á þetta stig þar sem ég er frjáls undan fíkninni, þar sem líkaminn segir mér þegar ég er svöng og þegar ég er södd.

þriðjudagur, 31. janúar 2012
Mér líður örlitið betur í dag. Hausverkurinn orðinn að daufum undirtón og öðruhvoru sem ég fann fyrir svona bylgju af ógleði. Versta líkamlega þrautin er þessi skrýtni þurrkur í munninum og óbragð af eiginlega öllu. Ég drakk átta lítra af vatni en allt kom fyrir ekki, tungan límist við góminn í eyðimerkurþurrki. Og það var óþol í mér. Svona herpingur í maganum og enn er ég yfirkomin af sorg.
Ég passaði mig vel, fylgdi fyrirmælum þeirra sem hafa hætt á sykri og fyllti matseðilinn með fitu. Og fullt af kókosolíu sem mér finnst vera sæt. Hér hef ég sérstaklega í huga það að fita gefur mikla fyllingu þannig að maður þarf ekki jafn mikið af henni og af öðrum næringarefnum, ásamt því að gefa sálræna fyllingu. Þegar ég fæ hnetur finnst mér ég líklegri til að halda mér við efnið. Vísindin segja að líkaminn skynjar fitu vel og gefur skýr merki um að maður sé orðin saddur þegar maður borðar góða fitu. Þannig er nóg fyrir mig að fá nokkrar möndlur eða ostbita ef ég er svöng og það fyllir mig alveg.
Morgunmatur: Hrágrautur (Rúgflögur, chia fræ, kókóshnetuflögur, 3 ristaðar möndlur, kanill og vanilluhrísgrjónamjólk)
Millisnarl: Grísk jógúrt með kókósolíuristuðum fræjum og pekanhnetum
Hádegismatur: Grænt salat með hvítlauksoliu og quinoaklatta og köld spænsk ommiletta.
Hafrakaka með heslihnetusmjöri
Millisnarl: 6 brasilíuhnetur
Kvöldmatur: Spænsk ommiletta (hinn helmingurinn)
Kvöldsnarl: Harðfiskbiti
Ekki sykurarða í augnsýn. Og ég er alveg pakksökk. Og af einhverjum dýrðlegum ástæðum langar mig í fyrsta sinn á ævinni ekki í eitthvað gott. Ég er svo einbeitt og sannfærð um réttmæti afeitrunarinnar að það virðist vera að hafa þau áhrif á mig að ég þarf ekki að berjast við "cravings". Vonandi að það haldist eitthvað.
Fór út að hlaupa eftir vinnu í kvöld og hafði smá áhyggjur af því að vera orkulaus en það var þvert á móti, ég fór 7 km og skemmti mér vel. Hefði getað haldið áfram en rann út á tíma. Víbrandi af orku.

mánudagur, 30. janúar 2012
Ég er með öran hjartslátt. Ég er með dúndrandi hausverk. Ég er undarlega þurr í munninum og með skrýtið bragð. Ég sveiflast á milli þess að skjálfa úr kulda og fá svitaköst. Ég er skjálfhent. Ég er með svima og mér er óglatt. Ég er svo sorgmædd. Mig langar helst til að rúlla mér saman í kúlu og leggjast bara niður og vera ekki til lengur. Ég er svo reið. Svo, svo reið. Að hugsa með sér! Að ég sé svo háð efni að ég geti látið það hafa áhrif á mig bæði andlega og líkamlega. Hluti af mér er alveg heillaður af ferlinu, hluti af mér er með æluna í hálsinum af reiði yfir því að hafa komið sjálfri mér í þessa aðstöðu.
Ég hefði aldrei trúað því hvað þetta er erfitt. 48 stundir án sykurs og þetta eru áhrifin. Ekki það að ég sé við það að fara út í kaupfélag til að kaupa mér snickers, mig langar ekkert í sætindi. Ég er með of mikinn viðbjóð á þessum fráhvarfseinkennum til að geta hugsað mér að langa í sætindi. Ég hef aldrei verið jafn sannfærð um að ég sé að gera rétt og þessi einkenni eru það sem er að sannfæra mig. Það að líða þetta illa, líkamlega og andlega eru svo skýr merki um að ég sé óeðlilega háð sykrinum. Og að því fyrr sem ég losa mig við þetta eitur úr líkamanum því betra.
En givi minn góur hvað þetta er vont.

sunnudagur, 29. janúar 2012
Það virðist sem svo að bara tilhugsunin um að gefa sykur upp á bátinn hafi góð áhrif á mig; 88.5 kíló eftir hlaup í morgun og þannig 1.2 kíló farin síðan síðasta sunnudag. Ég segi náttúrulega bara takk og amen við því.
Ég er búin að vera að nota undanfarna daga í undirbúning fyrir sykurlausa lífið. Ég sé það í hendi mér að þetta á eftir að vera meira en að segja það. Ef við horfum gróflega yfir það sem ég borða þá ætti það svo sem ekki að vera mikið mál fyrir mig að taka sykurinn út. Ég borða mikið óunna vöru, elda eiginlega allt sjálf, hef gríðarlega þekkingu á hráefni og er alltaf að spá í hollustu. En svo tínist þetta til; hunang eða sweet freedom í öllu sem ég baka. Döðlur og rúsínur í öllu sem ég baka og í hrágrautum og sem snarl. Agave í möndlumjólkinni minni, St Dalfour sultu með hnetusmjöri, eplabökur, hunang í dressingum og út á grillað grænmeti... fyrir utan það sem svo ég tek ekki eftir. Og þá eru að sjálfsögðu ótaldir upp ávextirnir og smoothie-arnir sem ég borða og drekk. Þetta á eftir að vera meira en að segja það.
Það fyrsta sem ég tók eftir var að heilinn í mér byrjaði strax að tifa til að finna staðgengla. Ég gúgglaði hrísgrjónasýróp og var ægilega glöð þegar ég sá að það var sem mig grunaði og það er frúktósalaust. Svo byrjaði ég að rannsaka stevia, náttúrulegt sykurefni sem er ekki búið til úr frúktósa. Ég er alveg háð því að fá sætt. Ég fattaði meira að segja að ég skipti öllum máltíðum í aðalrétt og eftirrétt. Þar með talinn morgunmatnum. Þannig fæ ég mér egg (savoury) í aðalrétt og svo morgunmúffu (sætt) með kaffi á eftir. Ein máltíð, skipt í tvennt. Hádegismatur er alltaf salat og svo þýskt brauð með hnetusmjöri og sultu, eða eitthvað prótein og svo múffa eða döðlur eða eitthvað sætt á eftir. Sama gerist á kvöldin, ég fæ mér kvöldmat og passa svo að fá mér jógúrt með hnetum eða hungangristaðar hnetur eða eitthvað gott og sætt á eftir.
Ég ákvað því í morgun eftir hlaup að fá mér einréttaðan morgunmat og "savoury" ekki sætan. Bjó til scrambled egg og ristaði rúgkornabrauðið sem ég bakaði um daginn. Smurði það með smurosti með pipar og lauk. Eggið ofan á og þetta maulaði ég í mestu hamingju. Var smávegis týnd í nokkrar sekúndur þegar ekkert sætt fylgdi en lagaði það svo fljótt með góðum kaffibolla. Og las aftan á smurostpakkann. Og hvað er talið upp? Jú fecking fructose syrup! Maður er semsé hvergi óhultur. Og eins gott að ég hef gefið mér góða viku í undirbúning, hann leynist nefnilega allstaðar sykurinn og það á eftir að taka langan tíma að lesa á allt og venja sig á það. Ég hugsa að það verkefni komi til með að reynast erfiðara en sjálf fráhvarfseinkennin.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)