Við Bretar erum alveg eins og við Íslendingar að því leyti til að þegar sólin skín rífum við okkur úr og rjúkum út til að nýta sólargeislana á meðan þeirra nýtur. Maður veit nefnilega aldrei hvenær dýrðinni lýkur. Nú er búið að vera sumar hjá okkur í heila viku, og hámarkinu náð um helgina. Brakandi hiti og glampandi sól. Við litla einingin mín eyddm helginni úti í garði, reyndum að lokka til okkar broddgelti, spiluðum frisbí, lásum og borðuðum allar máltíðir dagsins úti.
Bónus við svona hita er að maður nennir lítið að borða og ég meira að segja afþakkaði súkkulaði. Helgin fór því eins vel og hægt var að hægt að óska sér hvað hitaeiningafjöld varðaði og ég léttari á mánudagsmorgni en á laugardagsmorgni. Eitthvað sem hefur bara aldrei nokkurn tíman gerst áður.
Það var ljómandi þægilegt að þurfa ekkert að spá og spekúlera, og ekkert að þurfa að hnykla sjálfstjórnarvöðvann, bara borða eins og "eðlilegt" er. Mikið hlakka ég til þegar þetta verður normið hjá mér.
mánudagur, 10. júní 2013
sunnudagur, 9. júní 2013
Í ljósi þess að fyrir ekki svo löngu síðan var ég búin að "fatta" þetta alltsaman og hélt að ég væri alveg seif er alveg við hæfi að spóla aðeins tilbaka og athuga hvað gerðist. Helst finnst mér áhugavert að skoða viljastyrk alveg sérstaklega. Nú er alveg ljóst að ég er ekki búin að fatta rassgat og er alveg jafn glórulaus og ég hef alltaf verið. Getur það verið að viljastyrkurinn hafi brugðist? Eða varð ég bara kærulaus? Eða var ég að blekkja sjálfa mig og ég var í megrun allan tíman þó ég segðist vera að breyta um lífstíl? Var ég ekki í alvörunni að breyta neinu?
Ég trúi því staðfastlega að til að gera langvarandi breytingar þurfi að gera meira en að drekka meira vatn og sleppa snickers öðruhvoru. Það þarf að breyta algerlega um innri trú og sannfæringu um hvað sé rétt og gott og hvað skapi langtíma afleiðingar. Ég veit og trúi að það sé betra fyrir mig til langframa að sleppa því að borða snickers, sérstaklega þegar ég borða snickers til að láta mér líða betur. Það sem þetta svo algerlega snýst um er að sjá og skilja orsakir og afleiðingar. Þannig veit ég að þó að það sé ósköp næs núna að liggja lengur upp í rúmi og sleppa því að mæta í vinnu, þá eru langtíma afleiðingar svo inngreiptar í mig að ég myndi aldrei láta það eftir mér. Ég kýs mun frekar að sleppa þægindinum sem kúr upp í rúmi eru og mæti í vinnu af því að ég vil fá útborgað, ég vil fá að eiga hús og eiga fyrir mat og geta boðið fjölskyldu minni upp á öryggi.
Málið snýst sem sagt um að fá sjálfan sig til að skilja langtíma afleiðingarnar af því að velja hollari kostinn yfir skyndinautnina. Ef ég gæti í alvörunni séð og trúað því sem gerist ef ég vel oftast hollari kostinn þá væri þetta einfalt mál og maður þyrfti ekki að grípa til viljastyrks. Nú segi ég að ég skilji og trúi þessu. En það getur bara ekki verið, ekki í alvörunni. Því ef ég liti á málið á sama hátt og ég mæti í vinnu, eða vaska upp eða bursta tennurnar nú þá væri ég þvengmjó og þyrfti ekki frekar að pæla í þessu.
Vinnan núna er þessvegna falin í að fá mig til að samþykkja langtíma afleiðingarnar.
Af því að það er ekki fokkings sjéns að ég verði aftur feit.
Fokk nei.
laugardagur, 8. júní 2013
Nei! Bara allt í einu kominn föstudagur aftur og vikan var rétt að byrja! Þetta hlýtur að hafa eitthvað að gera með að eldast svona. Dagarnir langir en árin þjóta hjá hraðar og hraðar. En svona er það nú víst bara, öll brjóst hneigjast í suðurátt fyrr eða síðar og ekki þýðir að gráta það. Það forðar því nú samt ekki að ég er alltaf, að því að mér finnst, kúguppgefin.
Ég er ekki alveg viss hvort það sé bara aldurinn sem veldur þessu eða hvort það sé þetta stanslausa samviskubit sem ég er með og hef haft síðan 2003. Það var árið sem Lúkas fæddist og ég fékk minnimáttarkenndina. Mér finnst ég nefnilega vera glatað foreldri. Hann er aldrei í réttum fötum, borðar vitlausan mat, spilar tölvuleiki og horfir á sjónvarp út í eitt. Ég hef nefnilega ekki tíma til að ala hann upp. Ég er alltaf í vinnunni, eða þreytt eða að taka til eða læra eða elda. Og ég er með stanslausa minnimáttarkennd gagnvart öllum öðrum foreldrum sem eflaust leyfa börnunum sínum ekki að drekka kók og láta þau fara í fimleika og þylja svo upp margföldunartöfluna með þeim á meðan að þau leika létta þroskaleiki. Og ég er með samviskubit yfir að hafa hvorki tíma né orku til að sinna honum svona vel.
Þegar ég byrjaði í lífstílnum 2009 var ég í vinnu þar sem ég gat notið morgunmatarins með Láka, labbað svo með hann í skólann og hafði svo tíma til að rækta mig, læra og elda og plana áður en ég mætti í vinnu klukkan tvö. Þetta var fullkomið. Og alger forréttindi að hafa tækifæri til að gera þetta. Þegar ég svo byrjaði hjá Lloyds var þar rækt á svæðinu sem ég hafði auðveldan aðganga að. Og ég var ekki í ábyrgðarstöðu þannig að ég fór heim áhyggjulaus. Núna aftur á móti finn ég að allar mínar prédikanir um að "maður býr bara til tíma til að mæta í ræktina" hljóma hálf hrokafullar. Jú, ég get mætt í ræktina en það er þá til að bæta á samviskubitið sem ég er nú þegar að berjast við hvað son minn varðar.
Ég verð víst að éta ofan í mig margar af þessum hrokafullu yfirlýsingum frá 2009 og 2010.
En það þýðir samt ekki að ég sé hætt að trúa sjálfri mér, það þýðir bara að ég hef lært lexíu hér og að ég hef lært örlitla auðmýkt. Og það er öllum hollt.
Ég get hjólað og ég geri það. Hvað frekari líkamsrækt varðar þá hef ég bara ekki tíma akkúrat núna. Ekki til að gera það nógu skipulega til að það hafi eitthvað að segja. Ég hef því ekki um annað að velja en að einbeita mér algerlega að mataræðinu.
Með því að einbeita mér að mataræðinu í viku léttist ég um 1.3 kíló. En eftir að hafa skráð þau samviskulega í 222 vikur verð ég að viðurkenna að þau hafa orðið litla merkingu fyrir mér. Þetta eru kíló sem ég er búin að sjá koma og fara hundraðmilljónsinnum. Ég ætla þessvegna ekki að telja þau neitt frekar upp. En um leið og ég passa aftur í gallabuxurnar númer 14 skal ég æpa upp yfir mig.
Og núna ætla ég að eyða gæðatíma með Láka og reyna að kenna honum að hjóla.

mánudagur, 3. júní 2013
Það er allt að verða vitlaust í vinnunni. Ég er að sameina tvö teymi, flytja á milli hæða með allskonar mismunandi tölvukerfi, reyna að læra á handvömmina, ásamt því að kljást við sérlega erfiða samstarfskonu. Þetta náði alltsaman hápunkti í dag þegar tölvukerfið brást þegar ég minnst mátti við því. Ég hafði tekið með mér hafragraut og ávexti, ásamt eggjaköku og möndlum. Nýja reglan segir engin unnin matvara. En um 10leytið, eftir að sýna bara rósemd og yfirvegun út á við á meðan að inni í mér hljóp ég hjálparvana og veinandi um í hringi í angistar-og kvíðakasti gat ég ekkert gert annað en að troða hverri kexkökunni á eftir annarri til að viðhalda róseminni út á við.
Ég sá án þess að þurfa mikið að pæla í því að ég var að gera mistök númer eitt. Það er að leyfa tilfinningu að ráða för frekar en að treysta á innri sannfæringu. Innri sannfæring stjórnast af skynsemi sem segir að það að velja heilbrigðari kostinn, að hreyfa mig og sýna jafnaðargeð á raunastundu sé það sem best sé að gera og það sem veitir langtímahamingju. Tilfinning er ákafari og hömlulausari og segir mér að fullnægja hvaða hvötum sem er núna, núna, núna! Og sér í lagi að það að troða í mig kexi láti mér líða betur. Auðvitað líður mér betur við að troða í mig kexi. Í svona umþaðbil fjórar sekúndur. Og svo er það búið og ekkert stendur eftir en samviskubit. Og það lækna ég með að troða í mig kexi. Bráðsniðugt alveg hreint.
En sólin skein og þegar ég gat ekki unnið meir rauk ég heim á hjólinu, fór lengri leiðina og náði um átta kilómetrum í blakandi sól og blíðu. Og gaf sjálfri mér svo engan tíma til að hugsa, náði bara í ketilbjöllurnar og fór út í garð að sveifla. Þar með stóð ég við helminginn af loforðum dagsins og þyki bara nokkuð kát með það.
Það var líka ágætis áminning þetta að láta ekki tilfinningar stjórna sér. Ég þarf bara að komast aftur í æfingu með það rétt eins og ég þarf að komast aftur í æfingu með að sveifla bjöllum.
Harðsperrur allan hringinn á morgun.

laugardagur, 1. júní 2013
Ég hef afskaplega lítinn áhuga á að grenja, gnísta tönnum eða rifa í hár mitt eða skegg. Að vera reið, sár og vond við sjálfa mig núna hefur engin áhrif. Og breytir ekki að ég er búin að þyngjast um 15 kiló síðan ég náði að verða léttust 86 kíló.
Þetta er allt saman voðalega skrýtið. Ég var svo viss um að ég væri búin að "ná" þessu. Ég hélt að ég væri búin að koma þessu öllu saman svo inn í eðlilegan feril að ég þyrfti ekki að pæla í þessu neitt frekar. Sko, ég vil nefnilega ekki vera í megrun. Og þessi sannfæring mín um að maður eigi ekki að vera í megrun stangaðist á við að ég var samt í megrun. Og ég get ekki annað en gert uppreisn.
Þegar manni er sagt að það þurfi bara að gera litlar breytingar, labba aðeins meira og sleppa einu og einu snickers þá er verið að ljúga að manni. Það að snúa við öllu sem maður trúir á og velur í hvert einasta skipti sem maður tekur ákvörðun er ekkert að gera smáar breytingar. Og þetta var mér ofviða. En svona er þetta bara. Ég er ekki tilbúin í að færa mig yfir í þetta ástand þar sem maður velur náttúrulega rétta kostinn. Ég þarf að halda áfram að vera í megrun. Akkúrat núna er ég líka bara sátt við það. Mig langar frekar að komast aftur í gallabuxurnar mínar sem eru númer 14 og vera í megrun en að vera ekki í megrun og halda áfram að fitna. Ég hef valið það að halda stríðinu áfram.
Mig langar ekkert frekar en að "lose the diet, love my body, find peace" og allt það en það er bara ekki að gerast. Ég er ekki sátt.
Ég er hinsvegar í stuði. Og það veit alltaf á gott.

laugardagur, 11. maí 2013
Samkvæmt talningu í morgun er ég rétt um hálfnuð með mastersritgerðina. Hún er enn ljót og þarfnast allrar minnar athygli til að ég nái að klára að skrifa, laga og setja upp fyrir maí lok. Í ofan á lag fékk ég stöðuhækkun í vinnunni og þarf núna að vera með mannaforráð yfir tólf manneskjum auk þeirra átta sem ég sá um áður. Það er ásamt því að taka yfir Professional Negligence deildinni (handvömm?) og þarf því að læra allt sem því fylgir. Þetta er auðvitað svakalega spennandi og sýnir sjálfsagt að það hefur einhver tekið eftir mér og treystir mér til starfsins. Launahækkun er þó lítil og þetta er frekar stökkpallur til frekari starfa. En samt, þetta hefði ekki getað gerst á verri tíma. Ég var búin að plana vinnu/heimalíf jafnvægið þannig að hallaði á vinnuna í maí og júní til að einbeita mér að ritgerðinni. Það verður víst lítið um það og ég þarf bara að halda áfram að skrifa á kvöldin og um helgar. Bloggið hefur óneitanlega þjáðst fyrir. Ég klára alla mína ritfærni í skýrslugerð og ritgerðarsmíð.
Hluti af mér er líka dálítið nervös yfir nýjustu hugmyndinni minni. Um leið og ég hef skilað af mér ritgerðinni ætla ég að byrja að æfa fyrir þríþraut (tri-athlon).Bara sprint vegalengd sem er 500-750 metra sund, 20 km hjól og 5 km hlaup. Ég er ekki alveg tilbúin í járnkarlinn. Ég er búin að finna mér plan, á sundbol, hjól og hlaupaskó og sé því ekkert mér að vanbúnaði. Ég verð reyndar að labba meira en að hlaupa út af hné en það er það sem er svo brilliant við þríþrautina að maður þarf ekki að vera sérfræðingur í neinu, bara ágætur í öllum þremur. Hugmyndin er enn ómótuð og eins og ég segi þá er ritgerðin og vinnan í fyrirrúmi núna en ég er byrjuð að plana lengri hjólatúra og að vinna aftur í að labba/hlaupa. Næst kemur svo "brick" æfingar þar sem ég sameina sund/hjól og hjól/hlaup. Og svo er það að finna keppni og setja dagsetningu.

föstudagur, 3. maí 2013
Ég er mikið búin að vera að velta fyrir mér hvort bragðlaukarnir í mér hafi breyst með hollari lífsháttum eða hvort það að eldast einfaldlega breyti því sem mér finnst gott. Aðallega er ég búin að vera að spá í þetta síðan að Ólína sagði mér að hún hafði prófað að baka kjúklingabaunasmákökurnarir sem ég setti hér inn fyrir nokkru og að hún hafi aldrei smakkað neitt jafn hræðilegt á lífsleiðinni. Mér datt fyrst í hug að þær væru barra fyrir áunna bragðlaukur, eitthvað sem maður venst bara þegar maður borðar bara hollt. Svo hugsaði ég með mér að kannski var ég bara svona helsvelt af sætindum að jafnvel eitthvað jafn vitlaust og kjúklingabaunasmákökur yrðu bragðgóðar. Svo varð ég að taka það til skoðunar að kannski hefði Ólína rétt fyrir sér og að kökurnar væru bara hrikalegar til átu. Og ég varð að prófa.
Skolaði af og hreinsaði kjúklingabaunir. Setti í skál og bætti svo við fullt af hnetusmjöri. Og svo líka dálítið vel af kókóssmjöri. Svo sullaði ég saman við þetta hlynssýrópi. Og svo aðeins meira af því. Vanilludropar, salt, lyftiduft og matarsódi. Aðeins meira af kókóssmjöri. Svo datt mér í hug að gera þetta að súkkulaðibrownies frekar en smákökur og setti fullt af Hershey´s kakó út í. Maukaði og maukaði. Svo sá ég það í hendi mér að það væri við hæfi að setja fullt af súkkulaðibitum út í. Bætti svo við meira af hnetusmjöri og súkkulaðibiðum. Setti svo í form og bakaði og skar svo í búta eins og um brownie´s væri að ræði. Borðaði svo með rjóma.
Mér fannst þetta ægilega gott. Ég er greinilega með svona háþróaða heilsubragðlauka.
En verð líklegast líka að viðurkenna að viðbæturnar eru heilmargar.

fimmtudagur, 18. apríl 2013
Það eru bráðum komin 10 ár síðan að ég flutti hingað til Wales og það hefur margt gerst á þessum tíma. Mörg kíló komið, farið, komið aftur og farið enn einu sinni. Ég er búin að vera með heimþrá eiginlega allan tímann líka. Það er eitthvað alveg sérstakt við að vera Íslendingur, meira að segja þó að það séu bara við Íslendingar sem segjum að það sé alveg spes að vera Íslendingur. Heimþráin hefur reyndar alltaf skánað meira og meira með árunum. Frá því að vera nánast eins og líkamlegur sársauki niður í það sem hún er núna; svona smávegis eftirsjá. Fyrir utan hvað ég sakna mömmu og pabba stanslaust. Það breytist ekkert. Ég og Lúkas erum núna að fara í stutt frí til Íslands. Við erum að fara til Benidorm í sumar og vegabréfin okkar renna út bráðum og það þarf að redda því. Þetta er ágætis afsökun fyrir vikufríi heima.
Vanalega væri ég nánast lömuð af spenningi. Allt fólkið! Harðfiskurinn! NÓAKROPPIÐ! Skyrið!Mamma og pabbi! En núna er ég líka með smávegis fyrirvara. Fyrirvara sem ég skammast mín ægilega fyrir. Síðast þegar ég var á Íslandi var ég 86 kíló. Ég hljóp 10 km án þess að finna fyrir því og lyfti þungum lóðum. Ég prédikaði hægri vinstri um staðfestu, sannfæringu og góða vana. Núna er ég 10 kílóum þyngri, með ónýtt hné og get ekki hlaupið og hef algerlega dottið út úr þeim góða vana að lyfta þungum lóðum.
Þetta er ekkert til að skammast sín fyrir. Ég er í gífurlegu ferli akkúrat núna, ferli sem ég þarf að ganga í gegnum til að komast heil frá þessu öllu saman. Ferlið fól í sér tímabil þar sem matur var aftur gerður löglegur og það óhjákvæmilega hafði í för með sér tilraunaát. Ég gerði mér fyllilega grein fyrir að ég myndi þyngjast Og ég stend við þetta ferli mitt, ég er sannfærð um að ef ég fari í gegnum það allt komi ég út úr því sátt við það hver ég er. 100% hamingjusöm og það hvort sem ég er 100 kíló eða 60.
Og þessvegna finnst mér leiðinlegt að ég sé smá nojuð yfir því að fólkið heima sjái mig og hugsi með sér að ég sé hætt að hugsa um heilsuna. Í fyrsta lagi þá segir mín heimspeki það að það eigi ekki að skipta fólkið mitt máli hvort ég sé feit eða mjó, það eigi að pæla í því hvort ég sé kát eða leið. Í öðru lagi þá segir heimspekin mín það að það eigi ekki að skipta mig máli hvort fólk sé að hafa áhyggjur af því hvort ég sé feit eða mjó. En ég bara get ekki að því gert.
Ég er að reyna að hætta því en það skiptir mig enn máli hvort ég sé feit eða mjó.

sunnudagur, 7. apríl 2013
Ég keypti mér um daginn svona litlar ofnskálar eða "ramekins" til að búa til "einhleypa eplaköku". Þetta snýst allt um skammtastærðir ekki satt? Ég er búin að nota skálarnar stanslaust síðan ég fékk þær. Um síðustu helgi bjó ég til grænkáls og feta ídýfu. Gufusauð 200 g af kálinu þartil það var skærgrænt og hristi og kreisti svo af því allt vatn. Maukaði svo saman 100 g af feta, þrjár vænar matskeiðar af grískri jógúrt, matskeið af olífuolíu og einn maukaðan hvítlauksgeira, salt og pipar. Blandaði svo við kálið, setti í litlu skálarnar og bakaði inni í ofni í 25 mínútur. Borðaði heitt með hrökkbrauði og brokkóli og svo settí ég afganginn kaldan út á salat daginn eftir. Ég er líka búin að baka parmesan-egg og einn skammt af bökuðum kókós-og trönuberjahafragraut. En mig vantar enn epli.
| Bakaður hafragrautur fyrir einn. |
mánudagur, 1. apríl 2013
þriðjudagur, 19. mars 2013
| Jógúrtsósa - hnetusmjör |
sunnudagur, 17. mars 2013
![]() |
| Þjóðsöngurinn sunginn. |
| Garry og Tracy í velskum peysum |
![]() |
| Þjóðhetjan Alex Cuthbertson skorar "try" |
![]() |
| Og enskir geta ekkert gert en horft á þar sem Wales fagnar. |
Þegar við náðum svo að skora "try" (þegar einn leikmaður hleypur með boltann alla leið yfir endalínu) ekki einu sinni heldur tvisvar, varð allt vitlaust. Gleðin yfir að vinna, gleðin yfir að hafa skemmt allt fyrir Englandi, gleðin og stoltið yfir því að vera best var ólýsanleg. Ég veit bara ekki hvort það er hægt að skilja þetta sem Íslendingur, við vonum jú að við vinnum Dani og Svía í handbolta, en þegar við dettum svo úr keppni byrjum við að halda með þeim. Það myndi aldrei gerast hér. "Swing low, sweet chariot" er lagið sem enskir rugby áhangendur syngja og í gærkveldi sungum við Walesverjar "You can stick your chariots up yer arse".
| Brjálað stuð - velski fáninn í bakgrunni. |
| Blindfull og kát. |
Í dag er þjóðin svo að vakna upp, með dálitið rykugan haus, en hamingja enn allsráðandi. Við erum 6 Nations Champions, enn einu sinni.
þriðjudagur, 12. mars 2013
Við pöntuðum okkur forrétt þegar við fórum út að borða á sunnudaginn. Með forréttinum (kjúklingastrimlar) komu þrír sellerístilkar. Og ég bara get allsekki útskýrt það en stilkarnir voru svo lokkandi og djúsí útlits að áður en ég vissi af var ég búin að grípa einn og taka stóran bita. Ég hata sellerí. Sellerí er grænmeti djöfulsins og hann notar það til að skafa úr eyrunum eftir því sem ég best vissi. En þarna var ég, kjamsandi á stilknum eins og enginn væri morgundagurinn. Og það var gott. Meira en gott. Ég hef ekki komist í búð síðan en hef um lítið annað hugsað en sellerí. Og um leið og ég kemst í búð ætla ég að ná mér í búnt. Ég er búin að setja upp fyrir sjálfa mig allskonar mismunandi ídýfur; jógúrt og hvítlauks, sólþurrkaðir tómatar og möndlusósu, chili, bbq... möguleikarnir eru endalausir. Mest hlakka ég til að dýfa selleríinu í hnetusmjör. Ég bara finn það á mér að það er epísk blanda áferðar, bragðs og lyktar.
Rosalega er ég þroskuð.
Á meðan að ég bíð eftir selleríinu þarf ég að láta heimatilbúið bounty duga. Ástand er þetta.

sunnudagur, 10. mars 2013
Í dag er mæðradagur í Bretlandi og ég fékk þessvegna knús og fínt kort frá syni mínum. Hann stendur fastur á því að við þurfum líka að fara eitthvað út, en mig grunar reyndar að það verði hálftilgangslaus ferð því hér er löng hefð fyrir að fara með mömmur út að borða á þessum sunnudegi og því ólíklegt að við fáum borð nokkur staðar. Endum sjálfsagt á McDonalds. Sem er kannski líka bara ágætt.
Ég hef allt sem ég þarf hér heima, strákana mína tvo og kaffi vikunnar; Australian Basalt Blue. Sjaldgæft kaffi sem flestir Ástralir vita ekki einu sinni að sé ræktað í Ástralíu. Verðmiðinn aðeins hærri en uppáháldskaffið hingað til, Blue Sumatra, en engu að síður vel viðráðanlegt. Sumir kaffiáhugamenn vilja meina að Australian sé jafn gott og hið margrómaða, rándýra, Jamaica Blue. Sjálfri fannst mér það vera létt með krydduðum ilmi. Miðlungs sýra og vægur hnetukeimur. Vottur af sýrópi. Ljómandi gott morgunkaffi með nýju kókós og trönuberjakökunni minni.
![]() |
| Við mægðin á góðri stund. |
laugardagur, 9. mars 2013
Ég skal viðurkenna að ég hélt aðeins niðri í mér andanum í morgun þegar ég steig á vigtina. Ég veit reyndar ekki alveg afhverju ég var að vigta mig, það er ekki partur af prógramminu. Það hefur eitthvað með excel skjalið mitt að gera. Ég á samviskusamlega skráða vikulega þyngd síðan 2009 og skjalið er orðið eitthvað meira en bara vitnisburður um það sem ég borða. Ég hélt niðri í mér andanum því það er núna liðinn smá tími síðan ég gerði síðustu uppreisnina og sór að hætta þessu öllu saman. Auðvitað er risastór hluti af mér sem liggur flöt af skelfingu og áhyggjum yfir því hvað áráttuætan myndi gera þegar hún fengi frelsi. Ég hélt að ef mér væri gefinn laus taumurinn myndi ég ekki hætta að éta.
Á hverjum gefnum tíma er sagt að 80 milljón manns séu í megrun eða með einhverjar áætlanir um að breyta lögun sinni. Og billjón króna megrunariðnaðurinn elskar okkur öll og pumpar okkur full af nýjustu kúrunum um leið og þeir hlæjandi taka við peningunum okkar. Að undanförnu hefur það verið lífstíll og hægar breytingar og allt það en að lokum er tilgangurinn alltaf hinn sami; að breyta því sem þú ert núna. Og skilaboðin er þau hin sömu, að við séum óásættanleg eins og við erum.
Og þannig tæklar maður ástandið. Ég segi sjálfri mér að ég sé feit. Og að það sé vegna þess að ég sé veikgeðja, að ég sé ekki jafn dugleg og allt mjóa fólkið. Að það sé eitthvað að mér og að ég verði að breyta því. Og ég fer í megrun og um stund líður mér vel. Ég hef stjórn á sjálfri mér, ég borða minna. Mér er hrósað fyrir sjálfsstjórnina sem ég sýni, mér er hrósað fyrir að hafa vald yfir sjálfri mér. En svo liður tími og það verður erfiðara og erfiðara að fylgja reglunum. Ég hef einhvern tímann sagt að megrunarkúrar virki, það sé fólk sem virkar ekki. En það er líka hægt að horfa á þetta með meiri samúð og kærleika í garð okkar mannfólksins og segja að megrunarkúrar hafi innbyggt bilunarkerfi og að óhjákvæmilega komi fólk til með að gera uppreisn. Að við erum komin svo langt frá náttúrulegu hungur - næra merkjunum eftir áratuga megrunarkúra-ofáts hringsólið að það er ekkert skrýtið að við gerum uppreisn.
Ég er feit. En það er líka ekkert að mér. Ég er ekki veikgeðja eða eitthvað minna dugleg en annað fólk. Ég hef einfaldlega kosið að nota mat sem hækju í gegnum lífið. Og það er fullkomlega skiljanlegt val. Sem ungabarn er manni gefið að borða ef maður grætur og það er auðvelt að sjá samasemmerkið á milli matar og vellíðan. Það er ekkert rangt við að kjósa mat sem hækju. Og ég er ekki slæm manneskja þegar ég kýs að gera það.
Að segja sjálfum sér að maður sé vondur, slæmur, veiklundaður eru vondar tilfinningar og hvað geri ég þegar mér líður illa? Jú, ég fæ mér að borða. Hér liggur sumsé hundurinn grafinn. Ég borða, ég er feit, ég æpi á sjálfa mig fyrir veikleikann, mér líður illa, ég fæ mér að borða. Sjálfsásakanir og harka hafa aldrei leitt til breytinga. Forvitni og gæska leiða til breytinga.
Þegar mér datt í hug 2 kiló planið fannst mér ég vera ægilega sniðug. Og ég lagði enn einu sinni í að reyna að berja sjálfa mig til að breyta lögun minni. En inni mér saup ég hveljur. Ekki einu sinni enn. Ég bara get þetta ekki einu sinni enn. Ekki í eina mínútu. Ég get ekki haldið áfram að hatast við hver ég er, hvernig ég er, hvað ég geri. Ekki meira. Ég bara get það ekki. Og ég gerði uppreisn.
Og ég setti stjórnina aftur í mínar hendur. Ég er síðan þá búin að segja sjálfri mér daglega að ég sé bara ágæt. Ég spyr sjálfa mig hvort ég sé svöng. Ef ég er svöng þá fæ ég mér það sem mig langar í. Stundum er það salat. Stundum er það snickers.
En það er ekki þar með sagt að mig langi til að verða 130 kíló aftur. Mér fannst afskaplega óþægilegt að vera svo feit. Enda er ég alls ekki að mæla með því. En ég er hinsvegar að mæla með því að við slökum öll aðeins á. Að við hættum að segja sjálfum okkur að ef bara (setjið inn að eigin vali) gerist þá verði lífið betra. Að við séum ómöguleg eins og við erum núna. Það er eiginlega bara alveg merkilegt að hugsa til þess að vel gefið fólk allstaðar í heiminum skuli segja að jú það sé erfitt að halda sig við kúrinn, að maður falli af vagninum aftur og aftur. En undantekningalaust segir það svo með vonarglampa í augunum að "einn daginn mun mér takast að halda mér við efnið!"
Af hvaða ástæðum sem það var svo, það er erfitt að breyta vana, þá stóð ég á vigtinni í morgun. Og ég hef lést um hálft kíló. Ég er semsagt ekki brjálæðingur sem er ekki treystandi í nálægð við ísskáp. Ég er fær um að sjá um sjálfa mig.

fimmtudagur, 7. mars 2013
Það er alltaf sama klandrið þetta að reyna að vera örlítið heilsusamlegur. Ég er núna búin að hjóla í og úr vinnu alla þessa viku og ég sé ekki annað en að þetta fyrirkomulag sé komið til að vera. En. Bölvað vesen þetta með föt og málningu. Ég hef enga aðstöðu í vinnunni til að skipta um föt eða hafa mig til utan bara það sem ég get pukrast með svona inni á klósetti. Þannig að ég þarf helst að fara máluð og í vinnufötunum. Nú er ég búin að sannreyna að það er nánast útilokað því ég get ekki verið í venjulegum buxum, þær flækjast fyrir mér og ef ég krumpa þeim saman ofan í sokkana eru þær krumpaðar þegar ég kem í vinnu. Ég get illa hjólað í kjól, til þess er hjólið ekki nógu dömulegt. Ég er þessvegna búin að vera í leggings við smart peysur og fer svo í háa hæla þegar ég er komin í vinnuna. Ég er bara ekki leggings kona, og finnst ég vera að ýta vinnufatareglunni alveg í ystu mörk með þessu. Hárið er náttúrulega bara alveg út úr kú. Til að vera með hjálminn get ég eiginlega bara verið með lágt tagl eða fléttu. Toppurinn klessist allur niður og ég er alveg í vandræðum með mig allan daginn. Málningin hefur verið ókei svona þangað til í morgun. Það rigndi aðeins á leiðinni og það var svo þar sem ég sat í lestinni salíróleg að ég tók eftir spegilmynd minni í glugganum sem sýndi að ég var með maskarann lekinn niður á höku. Sérlega smart.
Ég er allt of hégómagjörn til að vera tilbúin til að hætta að mála mig. Ég get sætt mig við að vera með hárið bara í snyrtilegu tagli, en fötin eru smá vandamál. Ég hef verið að prófa að fara í hjólagalla og skipta svo inni á klósetti. Það er sjálfsagt það sem ég þarf að venjast á að gera en mér finnst það ekki skemmtilegt. Það er reyndar gott að hafa hjólagallann með til að fara í á heimleiðinni því hún er öll upp á mót og ég verð vel rauð í framan við áreynsluna. En mér fínnst erfitt að byrja vinnudaginn á að hlaupa inn á klósett og rífa mig úr og í, allt á fimm mínútum.
En samt. Það er skemmtilegra að hjóla en það er leiðinlegt að vera asnalega klædd.
sunnudagur, 3. mars 2013
Gutter Hill stendur enn alveg jafn tignarleg og mikilfengleg og hún var áður. Hún rís frá jafnsléttu í Johnstown og svo í góðum, jöfnum halla í rúma 1.2 kílómetra með ekki einum einasta slétta parti alla leið til Rhos. Og verður meira og meira aflíðandi eftir því sem lengra er komið. Ég fór út rétt eftir átta í morgun og tók langan hring þannig að mér til varnar var ég búin að fara rúma 20 kílómetra þegar að brekkunni kom. Og ég gafst upp rétt um hálfa leið. Djöfullinn sjálfur. En, engu að síður, gott að hafa svona andstæðing til að halda sér við efnið. Ég mun sigra!
Mér líður afskaplega vel núna. Það er alveg merkilegt hvað andleg vellíðan smitar út frá sér í hugmyndir manns um hvernig maður lítur út og hvernig aðrir sjá mann. Þegar mér líður vel finnst mér ég líta vel út. Þegar ég fór að spá í það þá var alveg útilokað að ganga um líðandi eins og ég væri að drukkna í spiki þegar mér hafði ekki liðið þannig þegar ég var 10 kílóum þyngri. Ég stoppaði þessvegna og átti örlítið samtal við sjálfa mig um það sem er mikilvægt í lífinu og það sem er aukaatriði. Að vera mjór er aukaatriði. Annars væru allir sem eru mjóir hamingjusamir. Og því miður þá er nú víst ekki svo.
Ég er núna á fullu að reyna að finna út hvað virkar fyrir mig. Reyna að finna þegar ég er svöng og skilja muninn á þvi að vera södd og að fá nóg. Ég á það voða mikið til að hella mér út í að troða í mig í hugsunarleysi af því að ég má núna borða allt sem mér dettur í hug. En ég er líka á sama tíma að minna mig á að það að borða hvað sem er er ekki endilega það besta fyrir mig. Ég hef að leiðarljósi að mér eigi að líða betur þegar ég er búin að borða en þegar ég byrjaði. Það er eiginlega ótrúlegt hvað ég stend sjálfa mig oft að því að líða verr eftir að ég borða. Þetta er afskaplega einföld hugmynd en áhrifarík.
Það er enn voðalega skrýtið að lifa án reglanna. Ég er búin að lifa eftir þeim svo árum skiptir og ég er hrædd og týnd án þeirra. En ég er líka algerlega með á hreinu að það er innbyggt bilunarkerfi í reglunum sem gerir það að verkum að að lokum virka þær ekki út af því að ég geri uppreisn gegn þeim. Þetta, að treysta á sjálfa mig, á eftir að vera betra fyrir mig að lokum.

föstudagur, 1. mars 2013
![]() |
| Fiets bergopwarts. |
Það eru fimm inngönguleiðir inn í Rhos, þorpið mitt. Og allar þessar fimm inngönguleiðir eru upp á við. Mismunandi mikið upp á við en upp á við engu að síður. Ég er búin að vera að æfa mig síðan rétt eftir jól að hjóla upp á við svo ég komist heim aftur. Það er nefnilega ekkert mál að þruma að heiman, ég rýk um á þyngdaraflinu einu saman, allt niðrávið svo það hreinlega hvín í mér. En að komast heim hefur verið þrautinni þyngri. Ég byrjaði á bakleiðinni. Þar er bara ein stutt en snögg brekka og svo ein aðeins lengri en meira aflíðandi. Og ég var komin með hana alveg á hreint. Og svo tæklaði ég þá næstu. Þrjár snöggar brekkur, en mjög snarpar og það var ekki fyrr en ég lærði aðeins betur á gírana að mér tókst að komast alla leið heim án þess að stíga af. Og þegar maður hefur sigrast á einni brekku byrja þær allar að falla, ein af annarri. Um helgina fór ég upp þá þriðju og í kvöld þrusaði ég upp Stryt Las. Þá stendur bara Gutter Hill eftir ósigruð. Síðasta brekkan. Sú verður tekin um helgina. Tekin og jöfnuð við jörðu.
miðvikudagur, 27. febrúar 2013
Mér finnst rosalega gaman að gera mig fína. Með lakkaðar neglur, plokkaðar augabrúnir og í háum hælum líður mér vel. Sem er ljómandi gott þar sem ég er í vinnu sem krefst þess að ég sé fín alla daga nema föstudaga þegar það er "casual Friday". En það krefst ægilegrar staðfestu og tíma og viðhafnar að vera fínn stanslaust og ég verð að viðurkenna að ég get aldrei haldið bjútí rútínunni uppi. Ég pússa og lakka neglurnar og dáist að þeim, tek jafnvel af mér lakkið og set nýtt lag en svo gleymi ég því. Og þremur dögum seinna er ég með hálflakk á annarri hvorri nögl og er druslulegri en ef ég hefði bara sleppt lakkinu.
Ég lét alveg fallast fyrir malinu í stelpunni í Clinique deildinni í Boots um daginn. Hún lét mig setjast niður, tók mig í mini make-over, sýndi mér hvað húðin á mér er hrikalega flögnuð, blettótt og alveg laus við öll andoxunarefni, og til að varna þessu öllu ásamt hrukkumynduninni, nuddaði hún mig með allskonar kremum, sápum og tóner þangað til að ég keypti allan pakkann af henni. Ég skjögraði svo út, með afskaplega létta pyngju, sannfærð um að ef ég nota ekki allt draslið þá hreinlega detti af mér andlitið fyrir fertugt. Hún æpti á eftir mér; "money back guarantee" og af einhverjum ástæðum situr það i mér. "Better skin or your money back". Ég er búin að nota sápuna, tónerinn, kremið og hitt kremið af trúarofsa núna í tæpa viku. Og ég ætla að skila öllu draslinu á morgun. Fyrir utan að hafa ekki hálftíma aflögu kvölds og morgna í verkið þá sé ég engan mun. Ég er alveg jafn sæt og ég var á fimmtudaginn.

þriðjudagur, 26. febrúar 2013
Ég var ekki gömul þegar ég lærði fyrst að mér væri ekki treystandi þegar um mat var að ræða. Ég man ekki lífið öðruvísi en með skömmustutilfinningu yfir því hvað mig langar til að borða mikið. Mig langaði alltaf í meira. Ég skildi mjög snemma að ég var að gera eitthvað "rangt" þegar mig langaði í meira og það var líka mjög snemma á lífsleiðinni sem valdið var tekið frá mér og ég þurfti að fylgja settum reglum, settum matseðli. Og ég hef trúað því síðan að ég sé bestía, að ég sé magnvana gagnvart mat, að ég hafi enga stjórn á mér, að mér sé ekki treystandi, að ég geti ekki lifað nema eftir settum reglum. Ég trúði því frá unga aldri að ef mér væri gefin laus taumurinn myndi ég bara éta og éta þangað til ekkert stæði eftir af heiminum.
Og þannig borða ég. Ég trúi því inni í mér að ef ég flýti mér ekki, ef ég troði ekki í mig eins fljótt og mögulegt er þá taki einhver matinn frá mér. Þannig kemur til þessi löngun mín til að borða í einrúmi. Ef enginn sér hvað ég er að borða þá get ég bara borðað og borðað og borðað í friði.
En hvað ef ég veit að enginn hefur í hyggju að taka neitt frá mér? Og væri ekki enn betra ef ég segði við sjálfa mig að það eru engar reglur til að fylgja? Að ekki bara að ég geti borðað það sem mig langar í heldur að ég geti borðað það hvenær sem er?
Ef það væri málið myndi ég þurfa að borða af þessari ákefð? Myndi ég þurfa allt þetta magn?
Ég gæti sagt sjálfri mér að ég geti loksins hætt að fylgja reglunum sem ég er búin að reyna og mistakast við að fylgja síðan ég var krakki. Að ég geti bara slakað á því ég sé núna fullorðin manneskja sem veit hvað er mér fyrir bestu. Hvað ef ég treysti bara sjálfri mér?
Ég er ekki vandamál. Ég er ekki biluð.

mánudagur, 25. febrúar 2013
![]() |
Í okkar Dave tilviki er það aðallega að fá okkur kaffi og nördar sem við erum, að lesa bækur. Mikil lukkan sem var yfir mér þegar ég fann mann sem nennir að sitja bara og lesa og stundum tala um það sem maður er að lesa. Það er bara ekki sjálfgefið að allir skilji hversu mikilvægt það er að sitja bara í þögn og lesa. Að njóta andartaksins fyrir það sem það er, ekki fyrir það sem það ætti að vera.
sunnudagur, 24. febrúar 2013
Hundrað milljón sinnum hef ég lést um og þyngst um sömu kílóin. Hundrað þúsund milljón sinnum. Það er bara komið gott núna. Það er mér mun eðlislægara að vera ánægð með sjálfa mig, eins og ég er, frekar en að vera að rembast þetta að breyta sjálfri mér og enda bara full af vonbrigðum. Ég bara á ekki því að venjast að vera óánægð með sjálfa mig. Ég er þessvegna hætt. Hætt að rembast og reyna. Hætt í lífstíl, hætt í megrun. Hætt.
Það er algerlega tilgangslaust að finna upp á enn einni megrunaraðferðinni, trixinu eða viljarstyrksæfingu þegar það sama gerist trekk í trekk; ég finn upp megrunaraðferð, verð glöð og léttist um nokkur kíló, fyllist svo vanþurftartilfinningu, fæ mér nammi, kalla sjálfa mig aumingja og þyngist aftur um öll kílóin.
Ég hef þessvegna núna einungis áhuga á að láta mér líða vel. Ég sé enga frekari ástæðu til að halda áfram að kvelja sjálfa mig. Ég er hraust og ég er sæt, hvað annað þarf ég? Jú, ég væri til í að skilja hvað það er sem lætur mig borða þegar ég er ekki svöng. Það þykir mér áhugavert. En bara alls ekki í þeim tilgangi að léttast um þessi endalausu tuttugu kíló. Þau mega vera ef þeim sýnist svo. Þetta snýst ekki um hvað ég er þung. Þetta snýst reyndar heldur ekki ekki um hvað ég er þung. Ég hef engan áhuga á að verða hundrað og fimmtíu kíló aftur - enda er það að vera hundrað og fimmtíu kíló klénn vitnisburður um sjálfsást.
Nei, ég hef bara enga áhuga á að argast út í sjálfa mig lengur. Ég er búin að reyna að pína sjálfa mig í þrjátíu ár núna og það er ekki að virka. Það að vera hraustur og sætur er bara nóg. Ég, er nóg.
Það sem ég hef áhuga á er að komast að því afhverju ég segi að mér finnist matur bara svo góður, mér finnist bragðið svo gott þegar ég svo borða þannig að ég finn ekki bragð. Ég borða svo hratt að ég finn ekkert bragð. Afhverju ég segi að mér finnist matur svo fallegur þegar ég svo er búin að troða honum svo hratt upp í mig að ég sé ekki hvernig hann lítur út. Það getur bara ekki verið að mér finnist þetta mikið varið í mat ef ég borða hann þannig að ég hvorki sé hann né finn bragð.
Héðan í frá ætla ég að njóta hvers einasta bita sem ég set upp í mig. Ég ætla að spyrja mig hvort ég sé svöng. Og ef ég er svöng þá ætla ég að borða það sem mig langar í. Og ég ætla að hætta að borða þegar ég er orðin södd. Og ég ætla að vera ánægð með sjálfa mig.

laugardagur, 23. febrúar 2013
Við Dave ákváðum að stjarna vikunnar ætti skilið að fá að kaupa sér eitthvað smotterí og buðum honum þessvegna í smá rúnt til Wrexham til að kíkja í dótabúð. Ég notaði tækifærið og hjólaði til Wrexham í kappi við strákana mína í því sem stjarnan kallaði "The race to Wrexham". Ég kom bara sex mínútum á eftir þeim þannig að það er augljóst að það er allt sem mælir með því að nota hjólið til að komast á milli staða. Við byrjuðum á að fara með hjólið á verkstæði til að láta setja á það bretti og til að laga gírana. Ég veit ekki hvað veldur en það festist alltaf í fyrsta gír og svo dettur keðjan af. Þetta þurfti að laga. Ég skildi hjólið eftir á verkstæðinu og við röltum um Wrexham. Þegar Lúkas var búinn í sinni dótabúð var komið að okkur Dave. Nei, ekki þannig dótabúð, nammibúð öllu heldur. Það var komið að vikulegum innkaupum á kaffi. Það er voðalega skemmtilegt að fara inn í Wrexham Just Tea and Coffee, eigendurnir eru gott fólk og mikil uppspretta visku um allt kaffi-og tetengt.Við förum þangað inn svona á viku til tveggja vikna fresti og kaupum poka af Draig Espresso (Dreka Espresso) sem er sérbrennt fyrir verslunina og svo veljum við okkur eitt nýtt drykkjarkaffi. Drekinn fer í latte gerð, tilraunakaffið er fíni morgunbollinn. Þetta er bráðskemmtilegt áhugamál, við fáum að prófa nýtt kaffi og það er svo gaman að fylgjast með þeim í búðinni mala kaffið og tala um það á meðan ilmurinn af nýmöluðum baununum fylla vitin. Við höfum enn ekki tímt að kaupa Kopi Luwak kaffi (þetta sem kötturinn skítur) og höfum heldur ekki lagt í að leggja út fyrir Jamaican Blue Mountain en fundum í dag kaffi frá Súmötru sem notar sömu baun og þessi frá Jamaica. Og þó það sé aðeins dýrara en hin "köffin" í búðinni þá er það langt í frá að vera jafn dýrt og Blue Mountain en býður engu að síður upp á ótrúlega þétt bragð. Ríkur ilmur sem lofaði bragði af karamellu, súkkulaði og berjum og með þessu jarðarbragði sem kaffi frá Súmötru eiga sameiginlegt. Besta kaffi sem ég hef smakkað hingað til.
Við verðum svo stanslaust meiri heimsborgarar hér í rassgati; nú er komið Starbucks í Rhostyllen, sem er næsta þorp hér við okkur. Við ákváðum því að ég myndi fá svona "pit-stop" á leiðinni heim þegar hjólið var tilbúið. Ég rauk því til Rhostyllen og vann keppnina. Traffíkin var orðin slík að þeir sátu fastir í bílnum á meðan ég skaust um, frí og frjáls, og var komin á kaffihúsið langt á undan þeim. Okkur finnst voða gott að sitja á Starbucks, þó ég myndi ekki mæla með því fyrir kaffifólk sem bara drekkur espresso þá er það gósenland fyrir okkur sem hafa gaman af mjólkurblönduðum kaffidrykkjum.

föstudagur, 22. febrúar 2013
| Þar fann ég gallerí sem var með sýningu á súperhetjumyndum og ég skoðaði svona mest með son og eiginmann í huga. Þeir hefðu gaman af þessu. |
| Í Chester er enn líka hægt að finna sérverlsanir sem eru hvergi annarstaðar. Allstaðar í Bretlandi eru litlu , einkarreknu búðirnar og veitingahúsin að deyja út en hér er enn haldið í sérstöðuna. |
| Þegar heim var komið tók ég saman afrakstur dagsins; haframjöl, kókós og trönuber til að búa til hafragraut sem nærir bæði sál og líkama. |
| Peysa og buxur til að minna mig á að ég er þess virði. |
| Hárolía bara svona til að bæta við lúxus. |
| Og ein kúla af heimatilbúnum kaffi- og kókósís (uppskrift fylgir ef einhver vill) af þvi að það er svo gaman að skapa eitthvað nýtt. |
þriðjudagur, 19. febrúar 2013
Eitt af því sem mér líkar hvað best við sjálfa mig er að ég er alltaf bjartsýnog tilbúin að sjá jákvæðu hliðina á málinu. Og að mestu leyti er ég enn jákvæð og bjartsýn. En að undanförnu hefur mér hröplast aðeins og ég hef dottið niður í að reyna að kúga sjálfa mig til að ná árangri. Og ég finn að ég hef smásaman verið að tapa gleðinni inni í mér. Ef þú reynir að grennast með því niðurlægja þig, svipta sjálfa þig nauðsynjum og hræða sjálfa þig þá endarðu niðurlægð, soltin og hrædd. Það er augljóslega ekki leiðin að hamingju.
Ég er alltaf að berjast á móti hinu og þessu. Berjast við sjálfa mig og aðstæður mínar og með því að berjast á móti því sem ég er að upplagi er ég einungis að skapa sjálfri mér óhamingju. Ég er kúguppgefin og þreytt andlega og líkamlega. En málið er að þetta er algerlega af mínum eigin völdum. Ég hefði getað valið að sjá og skilja aðstæðurnar eins og þær eru og lært að takast á við það frekar en að óska þess að hlutirnir væru öðruvísi. Það er komin tími til að sætta mig við hlutina eins og þeir eru.
Það þýðir alls ekki að ég sé að gefast upp. Að sætta sig við raunveruleikann þýðir ekki að gefast upp. Það er eðlilegt að spyrja hvernig get ég breytt einhverju ef ég sætti mig bara við núverandi ástand? En það er þegar maður sér ástandið eins og það er, sættir sig við það sem á undan kom og lærir af því, sem það er hægt að breytast. Þannig er ég ekki lifandi í ástandi sem segir mér að hlutirnir "ættu" að vera á einhvern vissan hátt og ég endalaust frústreruð að berja höfðinu upp við vegg.
Geneen Roth skrifar í bók sinni Women, food and God;
“. . . hell is wanting to be somewhere different from where you are. Being one place and wanting to be somewhere else . . . . Wanting life to be different from what it is. That's also called leaving without leaving. Dying before you die. It's as if there is a part of you that so rails against being shattered by love that you shatter yourself first. (p. 44)”
Nei, ég er ekki að gefast upp. Þvert á móti. Ég er uppfull af nýrri von. Ég er bara hætt að berjast á móti sjálfri mér. Ég ætla frekar að vinna með sjálfri mér. Við erum sko saman í liði. Ég bara vil ekki lifa lífinu óskandi þess að ég sé stödd annarstaðar. Ég vil bara vera ánægð eins og ég er á meðan ég er að gera það sem er best fyrir mig. Ferlið er markmiðið.

sunnudagur, 17. febrúar 2013
Ég er búin að reyna árum saman að koma af stað súrdeigsstarter en algerlega án árangurs. Ég er búin að reyna allt. Ég er búin að prófa allar aðferðir sem ég get fundið skrifað um eða heyri talað um eða sé í sjónvarpinu. Um daginn tókst það svo loksins. Ég ákvað að gera síðustu tilraunina. Lagði allt mitt í. Og af einvherjum óskiljanlegum ástæðum kviknaði líf í skálinni. Ég horfði á hana bubbla upp og fylltist ægilegum spenningi. Nostraði og fitlaði við, tók úr og bætti í og allt eftir kúnstarinnar listum. Og svo var komið að því að baka. Ég veit fátt betra en gott súrdeigsbrauð. Hef horft á það í fínum bakaríum og öfundast út í það árum saman og tilhugsunin um að búa til mitt eigið fyllti mig von og hamingju.
Og eftir alla þessa vinnu, eftir allan þennan tíma, eftir alla þessa eftirvæntingu og tilhlökkun, eftir allt þetta var brauðið nánast óætt. Bragðlaust, þurrt og leiðinlegt. Mér datt í hug að þetta væri eins og dæmisaga um þetta lífstílsævnitýri mitt. Árum saman hef ég þráð það eitt að vera mjó og ég setti alla mína trú á það að bara ef ég væri mjó þá myndi allt annað smella saman. En kannski er ég að elta eitthvað sem reynist svo bara vera bragðlaust, þurrt og leiðinlegt?
Ég veit það eitt að ég er orðin ósköp leið á að eltast við eitthvað sem virðist bara ekki ætla að gerast hjá mér. Og ég get ekki haldið áfram að verða fyrir stanslausum vonbrigðum með sjálfa mig. Ég held að það sé komin tími til að endurmeta vonir mína og drauma.
| Líf í skálinni |
| Tekið úr og bætt í |
| Deigið hefur sig undir hveitiþöktum klút |
| Bakað í potti |
| Tilbúinn hleifurinn |
Ég veit það eitt að ég er orðin ósköp leið á að eltast við eitthvað sem virðist bara ekki ætla að gerast hjá mér. Og ég get ekki haldið áfram að verða fyrir stanslausum vonbrigðum með sjálfa mig. Ég held að það sé komin tími til að endurmeta vonir mína og drauma.
laugardagur, 16. febrúar 2013
Það hefur örugglega komist í fréttirnar heim hrossakjötsskandallinn hérna í Bretaveldi. Það kemur semsagt í ljós að einhver kriminal element hafi komist inn í "supply chain" og hrossakjöt hefur verið selt sem nautakjöt í tílbúnum máltíðum. Hér er hrossakjöt ekki matur og fólk þessvegna að sjálfsögðu í miklu uppnámi yfir þessu. Þegar ég flutti frá Íslandi voru svona tilbúnar skyndimáltíðir ekki mikið til, mig minnir að 1944 réttirnir hafi verið til í nokkur ár og svo mátti alltaf kaupa sér Ömmupizzu en að öðru leyti eldaði maður sjálfur það sem maður borðaði. Hér er þetta allt annað mál. Fólk horfir á mig í forundran þegar ég tala um að baka brauð, baka kökur, og elda eitthvað "from scratch" eins og þeir segja. Það er alvanalegt að kaupa bara pakkamat og fylla frystinn og henda svo bara inn í ofn eða örbylgju þegar heim er komið. Ju minn eini! segja góðar húsmæður um allan heim.. Ég held að það sé nánast útilokað að útskýra fyrir Íslendingum hvernig lífið virkar fyrir sig hérna. Hér er nánast engin þjónusta við börn þannig að maður þarf að koma þeim fyrir í allskonar geymslum fyrir og eftir skóla. Það kostar mánaðarlaunin að geyma barnið einhverstaðar þannig að maður þarf að vinna ógrynni af yfirvinnu líka. Þannig byrjar maður og endar daginn. Þar á undan er eðlilegt að eyða nokkrum klukkustundum í ferðalag í vinnu. Ég t.d tek fjóra klukkutíma á hverjum degi í að komast í og úr vinnu. Það er erfitt að fá frí, og maður fær kannski ekki endilega þá daga sem maður vill, manni er bara úthlutað dögum. Er nema von að fólk komi heim kannski að verða átta og nenni ekki að elda? Ég skil það vel.
En það afsakar það samt ekki. Ég skil það en ég afsaka ekki. Ég eyði nefnilega fjórum klukkutímum á dag í ferðalag, ég vinn yfirvinnu, ég skrifa ritgerðir og blogg, ég stunda líkamsrækt, ég el upp son minn, elska manninn minn og held (nokkurn vegin) hreinu húsi. Og ég elda minn mat. Þannig að ættleidda þjóðin mín má syrgja hrossaborgarana sína eins og þeim lystir en ég vorkenni ekki.
Það eina sem þarf er smá skipulag. Ég eyði klukkutíma á sunnudegi í að búa til matseðil fyrir vikuna. Ég á uppskrifabók sem ég hef sett inn allar uppáhaldsuppskriftirnar mínar og ég skoða hana og vel úr. Stundum bæti ég við einni nýrri, en ég reyni að hafa það einfalt. Ég elda mikið mat sem dugar í tvo daga eins og chili, bolognese, súpur og kássur. Ég nota uppskriftir sem þurfa að malla aðeins svo ég geti notað þann tima í að taka til og finna til salat fyrir hádegi daginn eftir. Ég nota svipaðan strúktur alla daga og er ekkert að flækja málin. Ég skoða skápana mína og veit hvað ég á til og hvað vantar. Ég á alltaf til lauk og kjötkraft og get alltaf búið til djúsí lauksúpu. Þetta er hljómar kannski eins og ég sé innkaupalista fasisti en þetta er svo þægilegt. Það þarf bara að gera þetta í tvær vikur til að finna hvað það er gott og einfalt að hafa allt svona tilbúið. Og eftir það er útilokað að gera þetta ekki.
Og svo náttúrulega stundum planar maður að panta bara pizzu frá Kúrdunum á horninu.

þriðjudagur, 12. febrúar 2013
![]() |
| Jesús er sáttur. |
sunnudagur, 10. febrúar 2013
Dyggir blogglesendur eru eflaust farnir að velta fyrir sér hvort ég sé enn þunn. Og þeir hafa að vissu leyti rétt fyrir sér, ég eyddi síðust viku í óskaplegt þunnildi. Fór í vinnuna, kom heim, horfði á sjónvarp, svaf og þess á milli las ég fjórar skáldsögur. Eyddi hinsvegar engum tíma í að velta fyrir mér spiki. Lét það bara alveg vera. Hugsaði ekki um það einu sinni. Og þegar ég steig á vigtina í morgun var ég búin að þyngjast um eitt og hálft kíló. Sem er sérstaklega skemmtileg áminning um að ég er ekki enn hæf til að taka augun af markmiðinu. Ég þarf að vera með allavega 90% heilans fókusuð á spik ef ég ætla að bara viðhalda núverandi þyngd, hvað þá að léttast. Góð áminning.
Þegar ég flutti til Wales fyrir rétt tæpum 10 árum síðan var ég haldin gífurlegum ranghugmyndum um Ísland. Og sérstaklega þá um ýmislegt sem ég hélt að væri íslenskt. Sagan af Nínu og Geira til dæmis. Það er bara alls ekki íslenskt lag heldur Ammrískt. Og vatnsdeigsbollur. Þær heita profiteroles hér og eru bara enn eitt kruðeríið. Ég veit reyndar ekki hversvegna í ósköpunum ég hélt að bollur væru íslenskar, þegar ég hugsaði um það þá eru þær einmitt sérlega óíslenskar en svona er þetta bara. Maður er svo lítill heimsborgari. Ég ákvað í ár að nota gömlu uppskriftina mína en prófa líka að nota uppskrift frá Mary Berry af Great British Bake off frægð. Sjá hvort það væri munur. Efnin þau sömu, hveiti, vatn og smjör ásamt eggjum en bretinn notar líka salt og sykur, en íslenska uppskriftin segir örlítið lyftiduft. Og hlutföllin öll önnur. Breska uppskriftin mun blautari og erfiðari að móta en kemur fallegri út úr ofninum. En þar er yfirburðir þeirra bresku uppurnir. Að öllu öðru leyti er íslenska uppskriftin betri. Meira bragð, betri áferð, meiri fylling. Allt. Þannig að ég ætla að halda áfram að kalla bolludag íslenskan og bollurnar eins íslenskar og hrossabjúgu.
Ég fæ ekki saltkjöt í ár frekar en þau síðustu tíu. Ég get búið til baunasúpu og geri það vanalega. Og á þriðjudag er hér Shrove Tuesday þegar bretar nota upp sín egg og hveiti í undirbúing fyrir páskaföstuna í pönnukökur. Sem var annað sjokk. Bretar gera nefnilega örþunnar "íslenskar" pönnukökur. Og þeir gera það án þess að nota pönnukökupönnu. Þeir bjóða reyndar upp á þær með sykri og sítrónusafa sem ég get ekki vanist. Ég efast reyndar um að ég bjóði Bretunum mínum upp á pönnukökur í ár, bollurnar eru nóg. Og svo er ég að spá í að taka á mig yfirskin trúaranda og nota páskaföstuna til að koma einbeitningu aftur að. Það eru nefnilega ekki bara tvö kíló í boði núna heldur þrjú og hálft. Og það er bara ekki jafn flott slagorð.
| Breskar á kökufati, sú íslenska fremst á diski. |

sunnudagur, 3. febrúar 2013
Við fórum á ægilegt skrall í gær maðurinn og ég. Mágkona mín og svili buðu okkur að koma með sér á pöbbinn að horfa á fyrsta leikinn í "6 Nations" keppninni í rugby. Eins og allir vita erum við Veilsverjar miklir rugby aðdáendur og það er að sjálfsögðu heimsfrægt að við unnum þessa keppni með "Grand Slam" í fyrra, þeas við unnum alla okkar leiki. Þetta er alvitað. (Eða er rugby jafnfrægt á Íslandi og handbolti er hér?) Við röltum okkur niður til Johnstown þar sem Lúkas fékk að gista hjá nain og taid (ömmu og afa) og hann var heldur betur sáttur við það enda var Cade frændi hans þar líka og ætlaði að gista. Við vissum semsé að það myndi ekki væsa um þá kumpána.
Við Dave héldum því á pöbbinn og fyrsti bjórinn kominn á borðið klukkan hálftvö um leið og leikur hófst. Ég hafði sagt við Dave fyrr um daginn að nú væri sko aldeilis tími til að sýna framsýni og fyrirhyggju. Fyrst við værum að fara að fá okkur í stórutána svona yfir daginn þá væri nokkuð ljóst að við myndum sjálfsagt vera komin aftur heim snemma. Við myndum líka sjálfsagt vera rallhálf. Og að vera rallhálf er ávísun á kæruleysi og tvöfaldan beikonborgara. Ég fór þessvegna í langan hjólatúr um morguninn og kom við í búð og kippti með mér því sem þarf í heilsusamlegt kalkúnapastalauslasagne. Og hafði það til þar um morguninn þannig að þegar við kæmum heim um kvöldð með mallann fullan af bjór og óstjórnlega löngun í eitthvað djúsí, nú þá þyrfti ég bara að stinga lasagne inn í ofn og hey presto! við hefðum indælis, djúsí mat tilbúinn og enga ástæðu til að fara í chippie. Við hófum því drykkju án nokkurra vandkvæða og vönduðum okkur til við verkið. Wales hóf leik illa, var komið 17 stigum undir Írland þegar þeir loksins tóku þumalputt úr rassgati og byrjuðu að skora stig. En allt kom fyrir ekki, við töpuðum. Og þurftum að sjálfsögðu að drekkja sorgum okkar. Gerðum það vel og vandlega og höfðum gaman af. Horfðum svo á Skota tapa fyrir Englendingum sem er eins hræðilegt og hugsanlegt er og þurftum að sjálfsögðu að skála í sorg fyrir keltneskum bræðrum og systrum í Skotlandi. Þegar hér var komið sögu var farið að halla mikið á hlutföllin stuð versus skynsemi. Eins og allir vita þá segir jafnan að því meira stuð, því minni skynsemi. Það var komið fast að kvöldmat og okkur fannst öllum tilvalið að panta hálfsmetralangar pulsur í brauði og franskar með um leið og við pöntuðum næsta bjór. Og þessu var svo skolað niður með meiri bjór.
Eftir því sem ég best veit var alveg hrikalega skemmtilegt, ég var með harðsperrur í kinnum þegar ég vaknaði í morgun. Ég á hinsvegar enn tilbúið heilsusamlegt lasagne inni í ísskáp. Það var ekki sjéns að ég fengi mér eitthvað heilsusamlegt. Nei, fita,hveiti og sykur var það sem minn líkami krafðist og það var það sem hann fékk. Við Dave fórum í rómantískan morgunverð á Frankie & Benny´s og fengum ammríska útgáfu af breskum morgunmat og í eftirrétt fékk ég svo möndlucroissant á Café Neró. Ég hreinlega gæti ekki verið sáttari. Stundum þarf maður bara að láta stuðið eftir sér svona til að geta tekist á við alla skynsemina alla hina dagana.
Ég klára janúar með þriggja og hálfs kílóa tapi og byrja febrúar á stærðfræði formúlunni (93.5-71)/11=2.05. Tvö kíló í febrúar. Við sjáum til. Kannski er ég bara hamingjusöm eins og ég er. Bara hamingjusöm.
![]() |
| Lee Halfpenny í stuði. |
![]() |
| Bacon pancake stack. |
Ég klára janúar með þriggja og hálfs kílóa tapi og byrja febrúar á stærðfræði formúlunni (93.5-71)/11=2.05. Tvö kíló í febrúar. Við sjáum til. Kannski er ég bara hamingjusöm eins og ég er. Bara hamingjusöm.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)