Þegar ég kvartaði hvað hæst á hlaupinu á sunnudaginn bað Ásta mig að hugsa upp sjö ástæður fyrir því hversvegna ég væri að hlaupa, hvað það væri sem gerði þetta allt þess virði.
Það fyrsta sem mér datt í hug var ósköp hégómalegt. Mér finnst svo gaman að kaupa mér föt. Það er hrein unun að labba inn í verslun, sjá eitthvað fínt, máta það og það ekki bara passar heldur er fínt á mér. Það er meira en unun, það er frickin´ awesome!
Mig langaði til að segja að ég hafi síðan talið upp margar göfugar heilsufarslegar og/eða sálarfegrandi ástæður en mér datt næst í hug að ég væri svo sexý. Að ég væri uppfull af "sense of self". Ég fyndi svo mikið meira fyrir sjálfri mér og hver ég væri.
Svo fannst mér það gera þetta þess virði hvað mamma og pabbi eru ánægð með mig. Ekki hvað ég er sæt og mjó, ekki hvað ég hef staðið mig vel heldur hvað þau eru ánægð með hvað ég er ánægð. Það finnst mér góð tilfinning.
Mér datt ekki fleira í hug. Ekki án þess að þurfa að hugsa of mikið um það og þá hefði ég sjálfsagt farið að búa til eitthvað flott, hefði skrifað og endurskrifað það í huganum til að koma upp með eitthvað kúl og töff. Þannig að mér fannst best að stoppa þarna við ástæður sem eru heilar og sannar.
Mér datt í hug að hégómalegu ástæðurnar mínar séu ekki nógu góður og þéttur grundvöllur lengur til að hvetja mig áfram. Af því að það er svo grunnt þetta að vilja að vera fín í kjól að það er bara ekki hvatning fyrir mig lengur. Ég þarf eitthvað dýpra og merkingarfyllra núna til að komast á næsta stig. Svona eins og búddisti kemst áfram á næsta lífsstig.
Það virðist heldur ekki vera nægileg ástæða fyrir mig að vera hraust. Eins og það fyllir mig hamingju þá er ég samt ekki að leggja á mig vinnuna sem þarf til að verða í alvörunni hraust.
Ég hef alltaf haft þessa forgjöf að vera feit. Ég geri allt vel, þrátt fyrir að vera feit.Ég hef alltaf getað notað það sem svona afsökun. Sko, sjá hvað hún stóð sig vel, þrátt fyrir að vera feit. Og það sama er með hlaupin núna. Ég vil fá hrós fyrir að hlaupa 10km af því að ég geri það þó ég sé feit. Og það gefur mér leyfi til að gera það hægt og illa.
Og mér datt í hug að ég haldi í fituna til að missa ekki forgjöfina mína. Hvað ef ég næ að verða 70 kíló og það taki mig samt 80 mínútur að hlaupa 10km? Og það sem verra er; ef ég er bara mjó kélling að hlaupa hvernig á fólk þá að vita hvað ég er að vinna mikið þrekvirki, hversu dugleg ég er??
En ég held líka að það sé enn dýpri ástæða. Að missa forgjöfina mína er flott svona aha! sálarrannsóknarnnaflaskoðunarniðurstaða. En alvöru ástæðan er jafn grunnhyggin og ég er sjálf. Ég er enn einfaldlega löt og gráðug. Ég er logandi hrædd við að þetta sé vont og erfitt. Að ég þurfi í alvörunni að færa mig aftur út úr þægindahringnum sem ég er í núna. Að ég þurfi aftur að fara að leggja á mig, verða sveitt og skítug. Ég er logandi hrædd.
miðvikudagur, 30. maí 2012
mánudagur, 28. maí 2012
Ásta kom til Chester á laugardagskvöld og við höskuðum okkur nokkuð snarlega heim til Wrexham þar sem við elduðum fínan kveldmat og borðuðum úti á palli. Hér er búið að vera það sem heitir Mæjorkaveður í nokkra daga og virtist ekkert lát ætla að vera á um helgina. Þegar sunnudagur rann svo upp var komið að 10km hlaupi í Bangor. Við fengum okkur fínan smoothie í morgunmat og drifum okkur svo af stað.
Ég byrjaði þó daginn á að reka tána í sjálfa mig og uppskar "blátá". Þetta var helvíti sárt og ég hafði nokkrar áhyggjur af því að ég gæti ekki hlaupið vel með þennan áverka.
En það var ekki um annað að ræða en að reima á sig skóna og halda í hann. Leiðin til Bangor frá Wrexham er rétt um tveggja tíma keyrsla þannig að Dave minn fór með okkur og sýndi okkur stoltur landið sitt. Við fengum eitt pissustopp á leiðinni þar sem við fengum okkur gróft brauð með hnetusmjöri til að vera fullar af orku.
Við keyrðum sem leið lá í gegnum Snowdonia sem er þjóðgarður hér í Wales þar sem er mikið farið í fjallgöngur og mikil túristaverlsun við ferðamenn sem koma þangað gagngert til að klífa fjöll, ganga og veiða silunga í vötnum.
Við fundum svo Bangor og Race HQ og skráðum okkur og fengum númer. Bangor er háskólabær og ber þess aðeins merki, þar eru barir og pöbbar í bland við verslanir. Hún stendur við Menai strait og er þar með við sjóinn sem er náttúrlega æðislegt. Að fá þaralyktina í nasirnar með andvaranum var ekkert nema gott.
Við rásmarkið var farið að safnast saman múgur og margmenni, og mér taldist svo til að um það bil 400 manns væru skráðir í hlaupið. Ég var bara hress og kát þarna, uppfull af eðlislægri sjálfsaðdáun og ofurtrú á hæfileikum mínum. Blátá var bara fín og þó það væri næstum 30 stiga hiti hugsaði ég með mér að með Ástu með mér gæti ég hvað sem er.
"Thumbs up!" Ekkert mál, sjáumst eftir 80 mínútur segi ég við Dave, til að hafa vaðið neðan fyrir mig en hafði fyllilega í hyggju að bæta 70 mínútna tímann minn síðan í desember svona inni í mér.
Ásta var ekki með neitt markmið í huga, hún ætlaði bara að vera með mér. Og var jafn hress og ég þegar lagt var í hann. Hlaupið byrjaði ágætlega, ég hélt léttum takti og við leyfðum flestum að fara fram úr okkur. Byrjunin var hægt upplíðandi og ég man að hafa hugsað með mér að þetta hlyti að vera eina brekkan því ég var alveg viss um að hafa lesið að það væri flöt leiðin. Svo hlupum við meðfram sjónum, og í hring um bryggjuna og svo aftur inn í bæinn þar sem átti að fara tvo hringi áður en maður hélt aftur inn í miðbæinn að endamarki. Þegar við komum út af bryggjunni og inn í bæinn sá ég að þar hófst mikil brekka. Þarna vorum við búnar að hlaupa í tæpan hálftíma. Og ég get ekki logið að mér brá smávegis. Allt of heitt fyrir mig og núna brekka! Hálfa leiðina upp gat ég ekki meir og þurfti að labba. Ásta var ekki komin til að ná neinum persónulegum tíma þannig að hún hélt takt við mig frekar en að þeysa af stað. Hún hefði örugglega getað farið þetta á vel innan við klukkutíma en hún hélt verkefninu að halda mér við efnið. Ég skal alveg viðurkenna að ég hagaði mér eins og smákrakki á þessum tímabili. Tveir langir hringir upp, upp, upp, upp brekku. Ég átti erfitt með að ná andanum í þessum hita og mér leið afskaplega illa. Ég kláraði mig eiginlega alveg við þetta og þegar að við lukum við hringina og við tók beinni leið aftur að markinu var ég orðin svo fúl og þreytt að ég þurfti enn að skiptast á að hlaupa og labba. Sem betur fer sagði Ásta að stelpa sem við höfðum farið fram úr þó nokkru áður var að draga á okkur og mér þótti vont að láta hana fara fram úr mér. Keppniskapið alveg í lagi. Ég meira að segja varð ekki glöð þegar ég sá lokamarkið, hugsaði bara með mér að það væri djöfull langt i burtu. En svo byrjuðu áhorfendur að klappa og hvetja mig áfram og einhvern vegin fann ég orku til að skokka þessa síðustu metra. Ég er líka svo meðvituð um áhorfendur og hvernig hlutirnir lúkka að það kom aldrei neitt annað til greina en að spítta í og brosa.
Ásta kom í mark, án þess að svitna eða blása úr nös, alveg jafn sæt og hress og þegar hún lagði af stað.
Og svona var Svava Rán þegar hún kom í mark. Þetta er sjálfsagt munurinn á tuttugu kílóum. Ásta hafði lagt það fyrir mig þegar ég kvartaði hvað hæst að ég þurfti að hugsa upp sjö ástæður fyrir því hversvegna ég væri að hlaupa, hversvegna ég væri betur stödd núna en fyrir þremur árum. Það er gaman að horfa á myndina og og heyra mig segja þar sem ég lá á jörðinni og taldi upp ástæðurnar mínar fyrir Ástu og Dave að hátt á listanum var "I feel sexy". Sexy indeed.
Þegar ég náði svo aftur sönsum fórum við og skoðuðum okkur um. Löbbuðum um ströndina og kældum okkur niður. Tíndum velska steina sem núna eru bollamottur hér á stofuborðinu hjá okkur.
Stoppuðum við í Snowdonia á Alpine Coffee House og fengum post-race skonsur.
Þegar heim var komið var enn sólskin í garðinum og vel við hæfi að fá sér spælegg og franskar. Svo fínt svona eftir erfiði.
Við Ásta þar með búnar að hlaupa 10 km í hjarta Wales. Ég búin að leggja inn hlaup númer fimm í 12 á 12 áskoruninni minni. Ég er dálítið teygð og toguð eftir þetta; það kom út úr þessu miklar pælingar um hversvegna ég hef verið stopp í þyngdartapi svona lengi, ýmislegt sem ég þarf að hugsa um dálítið meira. En í minningunni núna, þegar ég er búin að þvo af mér svitann og andardrátturinn kominn í eðlilegan takt var þetta bara gaman.

þriðjudagur, 22. maí 2012
Nú eru bara tvö æfingahlaup eftir í 10 km hlaupið í Bangor á sunnudaginn. Eitt í fyrramálið og eitt á föstudagsmorgun. Bæði eru styttri en æfingahlaupin undanfarið og fókusinn er á að slaka á og finna góðan ryþma. Ég hlakka voðalega til, þó ég sé ekki í alveg jafn góðu formi núna og ég var í desember þá sé ég enga ástæðu til annars en að þetta verði voðalega skemmtilegt. Mig langar þó alltaf til að gera betur og ég er mjög meðvituð núna um hvað ég get gert til að koma þjálfuninni í betra far. Ég les mér til um form og þjálfun í hinum ýmsu ritum og um daginn fékk ég senda grein sem heitir 10 Ways to be a better runner. Og hver er tillaga númer eitt? Jú, lose weight. Þannig að til að hlaupa hraðar þá, eins og mig grunaði, þarf ég að vera léttari. Það er ekki að segja að ég geti ekki hlaupið núna, og það vel, en það er bara engin spurning um að ég gæti hlaupið mun hraðar ef ég væri léttari. Næsta ráðlegging var svo að borða vel. Það er að segja að borða vel næringarfræðilega séð.
Þetta tvennt hef ég fyllilega í hyggju að gera. Og er að gera. Hinar ráðleggingarnar eru svo líka fínar, þverþjálfa, hlaupa meira, finna hlaupafélaga, prófa nýjar leiðir, prófa hraðaskipti og brekkuhlaup. En aðallega fannst mér mest vert um ráðlegginguna að skipuleggja sig betur. Það er engin spurning að þá daga sem ég er búin að planleggja hlaup; veit klukkan hvað ég ætla að vakna, hvert ég er að fara og hvernig ég ætla að hlaupa, eru þeir dagar sem ég stend mig best. Þá morgna sem ég ætla að vakna og gera "bara eitthvað" sný ég mér oftast á hina hliðina og held áfram að hrjóta. En alvöru íþróttamenn plana sína þjálfun. Þeir eru með skipulag, með stundatöflu, með skýrt skilgreind markmið. Þeir gera ekki "bara eitthvað" og þeir snúa sér svo sannarlega ekki á hina hliðina.
Þegar ég set þjálfunina upp heilsteypta, sé fyrir mér stóru myndina og hugsa um sjálfa mig fyrst og fremst sem íþróttamann sem þarf góða næringu og sterkan líkama þá gengur allt mun betur. Það er svoleiðis grundvallarsannfæring sem er drifkraftur í að gera vel. Þegar maður trúir einhverju og gerir það af öllum lífs og sálarkröftum þá getur manni ekki mistekist. Ég er íþróttamaður. Einfalt. Og þegar ég forgangsraða öllu í lífinu mínu þá kemur í ljós að það er mér afskaplega mikilvægt að setja þjálfunina í fyrirrúm. Hugsa stórt - gera stórt.

sunnudagur, 20. maí 2012
Þetta er búin að vera góð helgi. Ég fór á pöbbinn með vinnufélögunum eftir vinnu á föstudagskvöldið og fékk mér einn bitter. Veðrið var ljómandi gott á miðað við hvernig hefur verið að undanförnu og ég fann hvernig gamalt stuðgen sem ég hef erft úr báðum ættum tók sig skyndilega upp. Ég hefði getað setið lengi og drukkið og spjallað og hefði svo vel getað hugsað mér að enda á hverfispöbbnum að hlusta á The New Foos, Foo Fighters tribút bandið. En það er nú svo með stuðgenið í mér eins og súkkulaðigenið, ég hef litla stjórn á þvi þegar ég byrja almennilega. Þannig að það er betra fyrir mig að reyna að sleppa því bara. Ég er nefnilega smávegis eftir á í hlaupaplaninu til að vera alveg tilbúin fyrir Bangor næsta sunnudag. Og ég vissi að ég myndi ekki fara út í valhopp um Plas Bennion ef ég sæti frameftir nóttu með göróttan drukk gólandi "Learning to Fly". Ég kvaddi því fólkið og fór heim.
Hlaupaæfingin á laugardagsmorgun fór svo rosalega vel. Ég er enn rétt rúm 90 kíló og því hægari á mér en ég var þegar ég síðast hljóp 10 km, ég er líka búin að vera að einbeita mér dálítið mikið að brekkuhlaupi til að byggja upp alvöru þol. Mér tóks að hlaupa heilan kílómetra upp á við núna. Það þótti mér tilkomumikið. Það tók þó nokkurn tíma en samt, ég var hæst ánægð. Ég held ekki að mér takist að slá neitt hraðamet á sunnudaginn kemur, en ég er harðákveðin í að skemmta mér. Ég er búin að vera að skoða allskonar plön sem kenna manni hvernig maður getur náð upp tækni til að hlaupa hraðar, en ef ég skil sjálfa mig rétt þá þarf ég bara að vera léttari. Mér finnst það eiginlega bara elementary.
Ég hafði svo í hyggju að taka rólegt hlaup í morgun en hnén höfðu aðrar hugmyndir. Ég var með verk frá hæl og upp í nára sem gekk í bylgjum út frá hné. Engin hlaup á svoleiðis græju. Ég lagðist því í gólfið og tók eina Pilates æfingu. Ég er búin að vera að lesa mér til um hvernig á að gera Pilates rétt og ég er ekki frá því að ég finni heilmikinn mun. Það er meira en að segja það að finna þessa innri magavöðva sem maður virkjar í Pilatesinu. Að líkamsrækt fráskilinni er ég búin að ströggla örlítið í dag. Langar alveg svakalega í eitthvað en veit ekki hvað og vil ekki fá mér bara eitthvað ef það er svo vitlaust eitthvað og mig heldur áfram að langa í eitthvað. Mjög erfitt.
Kannski að ég fái mér bara eitthvað. Eða sleppi því. Það er ekki gott að segja.

miðvikudagur, 16. maí 2012
Mig grunar sterklega að ég sé ekki ein í heiminum sem hefur lent í því að standa á vigtinni alveg á gati við að sjá að hún hefur ekki færst til um gramm, þrátt fyrir að ég hafi gert allt "rétt". Ekki borðað of margar, né of fáar hitaeiningar, passað að stunda bæði þol og vöðvaæfingar, passað að hvíla inn á milli, vigtað allt og kannað hitaeiningafjölda í ókunnum matvælum, ekki verið stressuð,beðið róleg, gert allt rólega, haldið bjartsýnunni, gert allt rétt. Og allt fyrir ekki.
Ég hef oft velt fyrir mér hvað sé að mér. Hversvegna líkami minn virðist streitast svona á móti tilraunum mínum til að gera hann að heilbrigða musterinu sem hann ætti að vera. Sem betur fer hafa nokkrar rannsóknir sýnt að ég er ekki að gera mér þetta upp. Líkaminn reynir að komast aftur í fituástand. Við að fara í megrun (eða lífstíl, það virtist ekki skipta máli hvort fólk léttist hægt eða hratt) byrjar líkaminn að offramleiða hormónið sem stjórnar hungurtilfinningu og bælir niður hormónið sem stjórnar seddunni. Að auki þá hægir líkaminn á brennslu. Og þrátt fyrir tilraunir til að koma brennslu aftur í sama lag og fyrir megrun (eða lífstíl) þá er það nánast ómögulegt. Þannig ætti ég skv BMR að geta neytt 2600 hitaeininga með þeirri æfingu sem ég stunda til að viðhalda núverandi þyngd. Þegar ég borða 2600 hitaeiningar á dag þyngist ég um 2 kíló á viku. Ég er búin að margprófa þetta. Ég get í mesta lagi fengið 1800 hitaeingar yfir daginn. Og það breytist ekki.
Ég er dauðfegin að komast að þessu. Hugsið ykkur þetta eins og að vera með stanslausan magaverk. Og að ganga lækna á milli sem allir segja manni að maður sé að ímynda sér þetta. Að í hvert sinn sem maður segist vera með verkinn þá sakar fólk mann um að hafa gert eitthvað sjálfur sem valdi verknum. Að maður fari smá saman að trúa því að maður sé að gera sér þetta upp. Þangað til að einn daginn finni maður lækni sem sjúkdómsgreinir mann. Segir manni að maður sé með stombón trompón syndróm. Að það sé til nafn á ástandið. Og maður verður svo glaður við það eitt að maður hafi ekki verið að ímynda sér þetta að manni er alveg sama þegar læknirinn svo segir að þetta sé ólæknanlegt en hægt að stjórna með hreyfingu og mataræði.
Mér líður þannig núna. Eins og ég sé búin að fá að vita hvað er að og nú geti ég tekist á við það á réttan hátt. Þetta er vinna og þannig verður það. En nú get ég allavega hætt að klóra mér í hausnum þegar ég geri allt rétt samkvæmt kenningunum og ekkert virkar. Nú get ég alfarið snúið mér að þvi að treysta eigin reynslu og vitneskju.
Ég legg eindregið til að greinin sé lesin eins og hún birtist í NY TIMES. Hún er löng en alveg hrikaleg áhugaverð fyrir okkur sem erum að spekúlera í spiki.

þriðjudagur, 15. maí 2012
Ég hef alveg gleymt að fagna hversu vel mér hefur tekist upp. Í öllum æsingnum við að reyna að ná næsta áfanga
á ég það til að gleyma algerlega að ég er nú þegar komin í hóp elítunnar. Ég er í hópi þeirra þriggja prósenta fólks sem nær að skafa af sér töluverðu magni af spiki og halda því af sér lengur en í ár. Ég held að ég gleymi því hvað ég hef gert vel vegna þess að þetta er enn stanslaus vinna. Það er enginn munur á vinnunni sem ég er að leggja í að viðhalda núverandi þyngd og vinnunni sem ég lagði í að léttast um 40 kiló. Þetta er nákvæmlega jafn mikið streð.
Ég er að skilja að þrátt fyrir að hafa sagt annað þá hélt ég inni í mér að ég myndi einn daginn verða mjó og að allt myndi "lagast" við það. Og af því að ég er stanslaust að bíða eftir þessi mómenti, þessu andartaki sem ég get andað frá mér og slakað á og sagt; "ég er mjó og allt er ókei" þá gleymi ég að stoppa við til að njóta mómentsins sem er núna. En ég er smá saman að láta af þessari hugmynd. Maður getur bara dregið inn magann í visst langan tíma.
Þegar ég hugsa um þetta allt saman í þessu samhengi að þetta sé "endalaus vinna" þá læt ég þetta hljóma eins og þetta sé eintóm kvöð eða pína. Ég held að oft heyrist bara kvörtunar "ó mig auma" tónninn í mér. Það er bara ekki rétt lýsing á því hvernig mér líður. Síðastliðin þrjú ár hafa verið stórfengleg. Ég á erfitt með að lýsa hvað líf mitt hefur tekið miklum stakkaskiptum til hins betra. Ég er langt í frá að vera fullkomin og ég ströggla á hverjum einasta degi með eitthvað og það kemur mér stanslaust á óvart hvað þetta krefst mikillar natni og athygli. En þegar ég hugsa um líf mitt núna og líf mitt eins og það var áður þá er með ólíkindum hvað það er mikið betra núna.
Og það er það sem mig langar til að fagna. Hversu heppin ég er að hafa fengið tækifæri til að leggja í þessar breytingar. Hversu ríkara líf mitt er núna.

sunnudagur, 13. maí 2012
Eftir rúmt ár með gömlu löppuna mína algerlega á afturfótunum gafst hún loks alveg upp núna í vikunni og neitaði að gera nokkurn skapaðan hlut. Svona dálítið eins og ég á sunnudögum. Það var um lítið að ræða annað en að fara og kaupa sér skínandi nýja tölvu. Enda er ég orðin svo stöndug núna, deildarstjóri hjá banking grúpp. Það munar um minna.
Ég er voðalega visjúal manneskja. Ég hef alltaf "séð fyrir mér" hvernig hlutirnir eiga að vera. Þannig er ég alltaf með í huga ákveðna samsetningu á fötum, ég er með í huga "lúkkið" sem ég er að reyna að ná. Ég sé fyrir mér aðstæður og atburði og reyni svo að gera mitt besta til að stjórna hlutunum þannig að þessar fyrirfram ákveðnu myndir sem ég hef í huganum rætist. Þannig er ég loksins núna búin að finna mér minn stíl. Ég veit nákvæmlega hvernig ég vil klæða mig. Og ég er rétt á mörkunum núna þar sem ég passa í fötin sem ég vil vera í. Ég er að fara að taka við ábyrgðarstöðu og ég er ein af þeim sem trúir því að fötin skapi manninn. Ég vil vera velklæddur stjórnandi. Mér finnst það eiginlega vera lágmarkskrafa að vera smart og fín í vinnunni.
Ég er líka á leiðinni til Kaupmannahafnar í lok september. Þangað hef ég aldrei áður komið og fyrir utan að hlakka til að eyða langri helgi með yndislegum stelpum þá sé ég sjálfa mig fyrir mér í Kaupmannahöfn. Ég ætla að hlaupa með Hönnu og ég ætla að kaupa mér vetrarkápu í smart en dálítið edgy stíl sem einhver fínn Dani hefur hannað. Og vetrarkápan sem ég er búin að bíða eftir að kaupa í tvö ár krefst þess að ég sé grennri en ég er núna. Ég sé það fyrir mér.
Við ætlum í sumarfrí til Maplethorpes í júlí. Á sumarleyfisstaðnum er klifurveggur. Ég sé mig fyrir mér klífa vegginn. En ég er í huganum mun léttari en ég er núna.
Um allt þetta hugsaði ég á langa hlaupinu mínu í morgun. Og ég setti upp fyrir mig plan þar sem ég er orðin nógu mjó í lok september til að geta verið í stílnum sem ég vil vera í. Og á sama tíma og ég var að setja það upp fyrir mig var ég að hugsa um að fyrst ég væri komin með svona fínt plan þá væri ekkert að því að fá mér Chunky KitKat í dag. Fresta plani um einn dag. Helmingurinn af heilanum var að plana kalóríur sparaðar, hinn helmingurinn planaði sukk og svínarí. Á sama tíma!
Ég skil ekki alveg afhverju ég finn ekki hvatninguna sem virkar fyrir mig núna. Þetta sem þarf til að maður komi þessum litlu breytingum inn í daglega lífið. Það virðist ekkert hreyfa mig til starfa, hvorki innri hvatning né ytri. Heilsan og hreystið, útlitið og ábyrgð gagnvart þeim sem hafa trú á mér, ábyrgð gagnvart eiginmanni mínum sem þarf á því að halda að ég beri ekki í hann óhollustsu, löngun í stílinn minn, ekkert er nóg til að láta mig sleppa KitKatinu.
Mér datt í hug að nota það sem kom mér af stað í byrjun. Og það er svo basic, svo mikið grundvallaratriði að mér finnst nánast vandræðalegt að segja frá því. Mér fannst einfaldlega svo gaman að sjá tölurnar fara niður á við og prósentuna upp á við á excel skjalinu mínu. Það var svo gaman að sjá svona á blaði hvernig öll vinnan mín var að gera sig. Ég hlakkaði til að vigta mig.
Þannig að enn einu sinni ætla ég að fara gegn öllu því sem prédikað er af þeim sem vita betur núna. Og hlakka til að vigta mig.

þriðjudagur, 8. maí 2012
Ég elska haframorgunmúffurnar mínar. Þær eru ein af ástæðunum fyrir því að fer á fætur á morgnana. Þær láta hjarta mitt syngja. Ég held að ég finni seint morgunmat sem er jafn frábær og þær. Það má endalaust breyta þeim og bæta við eða taka út - gera þær sætar eða grófar, flóknar eða einfaldar og eins hollar eða óhollar og manni lystir. Chia kryddaðar haframúffur með pistasíu streusel hljóma alveg hrikalega vel. Og ég myndi eflaust kaupa þær og borða rymjandi af ánægju á fínum kaffihúsum um heim allan. Lukkan yfir mér þessvegna að ég þarf ekki að fara lengra en inn í eldhúsið heima hjá mér.
Ég sturtaði í þessar bara öllu sem ég fann í skápunum hjá mér; quinoaflögum, byggi og höfrum, rúsínur og ristaðar heslihnetur, og svo tveimur matskeiðum af chia krydd tei. Chia te er bara te með kanil og öðrum sætum kryddjurtum og er eina teið sem ég get drukkið. (Nánast áratugur í Bretlandi og ég get ekki drukkið te!) Það gefur þeim framandi en dásamlegt bragð og láta mér líða eins og heimsborgara. Ég fullkomnaði þær svo með að strá yfir þær pistasíuhnetustreusel sem ég bjó til úr hnetum, kókósolíu, höfrum og teskeið af demarara sykri. Ahhh, og heimurinn er góður staður. Er leyfilegt að smjatta aðeins?

mánudagur, 7. maí 2012
| Draumurinn úti. |
Mér hefur að undanförnu liðið eins og ég sé ægilega vond manneskja fyrir að vilja grennast. Í alvörunni, ég eyddi rúmum þrjátíu árum í að verja það að ég væri feit og barðist vonlausri baráttu við fordómafullt samfélagið um minn rétt til að fá að vera metin að innri verðleikum en ekki útliti og svo núna loksins þegar ég er að verða fitt þá fer allt samfélagið á fúll svíng í að berjast fyrir fituréttindum og margbreytilegu útliti. Really!?? Núna? Því miður þá er ég bara of skilyrt til að þrá það eitt að vera mjó að ég er eiginlega bara fúl út í allar þessar herferðir og greinaskrif og baráttu til að fá að vera feitur í friði. Hvar voruð þið þegar ég þurfti á ykkur að halda? Svo núna allt í einu þarf ég að verja það að vilja vera grennri en ég er núna. Að ég vigti mig. Eins og það sé glæpur. Ég stend á vigtinni og lít orðið flóttalega í kringum mig til að passa að það sjái enginn til mín við þetta glæpsamlega athæfi. En ét möndlucroissant á meðal almennings eins og enginn sé morgundagurinn. Málið er að ég finn alveg gífurlegan mun á mér eins og ég er núna, 91 kíló eða eins og ég var þegar ég var 86 kíló. 5 kílóa munur þýðir að ég er hægari um rúmar 30 sekúndur á hvern kílómetra sem ég hleyp. 30 sekúndur! Það er bara alveg heilmikið og fer gífurlega í taugarnar á mér. Þannig að þetta allífsmarkmið mitt um að vera hraust veltur bara heilmikið á því að ég sé mjó líka. Og ég get ekki að því gert en að hugsa með mér með mínum besta stærðfræðiheila að ef ég hleyp þetta mikið hraðar þegar ég er 86 kíló að ég hljóti þá að þjóta um eins og vindurinn ef ég væri 71 kíló. Þannig að ég verð bara að halda áfram að vera hræðileg manneskja og segja með þjósti að ég vilji vera mjó. Er það í alvörunni svo hræðilegt að vilja prófa það? Ég hef aldrei á ævinni verið grönn, hversvegna ætti ég ekki að fá að prófa það?
sunnudagur, 6. maí 2012
Ég hljóp 7 km í gærmorgun. Ekki í frásögur færandi en hlaupið varð til þess að ég sá hluta af vandamálinu sem ég stend frammi fyrir akkúrat núna. Ég hljóp þessa 7 km á réttum 50 mínútum. Snemma morguns og enn var örlítið morgunkul í lofti en hlýnaði skart á meðan ég hljóp enda glampandi sólskin. Ég var í stuttbuxum en frekar þykkri flíspeysu að ofan. Þegar ég kom á áfangastað í Wrexham var ég aðeins sveitt en ekki andstutt og leið bara vel. Tók meira að segja síðustu hundrað metrana á spretti. Og átti enn bensín í tanknum.
Ég rölti um og fékk mér kaffibolla og las morgunblaðið á Café Nero á meðan ég beið eftir að Marks og Sparks opnaði. Og þar sem ég sat og sötraði lattebollann varð mér hugsað þrjú ár aftur í tímann. Og ég man ekki betur en að ég hafi þá lagt heilmikið á mig til að ná árangrinu sem ég er svo stolt af. Ég byrjaði að hreyfa mig. Og í hvert sinn sem ég gerði eitthvað þá lét ég það skipta máli. Ég svitnaði, ég var eins og plóma á litinn í framan, ég svitnaði, ég varð andstutt. Og í hvert sinn sem ég fann að ég svitnaði minna, eða varð bara eins og humar eða náði andanum þá jók ég ákefðina næst. Á sama tíma og ég kom hreyfingunni þannig fyrir í lífinu að það var jafn sjálfsagt að fara út að hlaupa og að bursta tennurnar þá passaði ég líka stanslaust að vera með sjálfa mig fyrir utan þægindasvæðið, ég var stanslaust að þröngva sjálfri mér út í smávegis óþægindi.
Sama var með mataræðið. Þó svo að ég hafi fundið allskonar hollan, ljúffengan mat til að borða, þó ég hafi fundið gífurlega ánægju við að hanna uppskriftir og stússast í matargerð á ókunnugum heilsusamlegum hráefnum, þá var ég líka stanslaust með sjálfa mig fyrir utan þægindasvæðið. Ég minnkaði skammtana mína um helming. Og það tók á að borða helmingi minna en ég var vön. Ég hætti að borða sælgæti, kökur og kruðerí að mestu leyti til. Og það var erfitt. Ég man eftir að hafa stikað um, kreppt hnefana og stundum þurfti ég að halda fast í eitthvert húsgagn til að ég myndi ekki standa upp og hlaupa út í Co-Op til að kaupa snickers. Ég þurfti að taka á því.
Ég á 20 kíló eftir í kjörþyngd. Ég er allavega 5 kílóum yfir þyngdinni sem leyfir mér að hreyfa mig óhindrað. Ég skil þessvegna ekki alveg hversvegna ég hélt að ég væri komin á það stig að geta leyft sjálfri mér að fá mér croissant í morgunmat. Þetta var það sem ég fattaði þegar ég hljóp. Ég var ekkert að reyna á mig. Þetta var bara næs og þægilegt. Og algerlega tilgangslaust til að ná tilgangum sem er að geta hlaupið hraðar. Og það sama gildir um mataræðið. Það er næs og þægilegt. Ég borða það sem mig langar í, ég borða stundum allt of mikið, mikið af tíma mínum fer enn í að halda mig innan réttra hitaeiningamarka. Ég eyði löngum stundum í að útskýra fyrir sjálfri mér að "svona borðar venjulegt fólk, það fær sér það sem því langar í þegar það er svangt." Þetta allt saman er fine and dandy. Þegar ég er ORÐIN 71 kíló. Þetta er ekki fine and dandy á meðan ég er enn svona langt frá markmiði. Ég er ekki venjulegt fólk. Mér gæti ekki verið meira sama um hvað við rembumst við að kalla þetta lífstíl. Að lokum þá er alltaf nauðsynlegt að vera að miklu leyti fyrir utan þægindasvæðið, maður þarf að verða sveittur og rauður í framan og sum kvöld, sum kvöld þarf maður að vera smá svangur og í fýlu af því að maður ætlar ekki að borða neitt fokkings snickers. Það er sjálfsagt að reyna að gera þetta eins skemmtilegt og mögulegt er. Að sjálfsögðu. Lífstíll eða megrun þetta eru samt breytingar. Og breytingar þýða líka oftast smávegis átök. Og ég hef ekki verið að taka á því núna í rúmt ár.
Mig langar til að segja eitthvað epískt eins og "og nú skal tekið á því!" eða "nú skal dansinn hefja!" eða "hífa!!". En ég þori því ekki. Ég er hætt að treysta sjálfri mér. Ég ætla samt að gefa mér sjéns. Og krosslegg fingur um leið og ég hnykla linann sjálfsstjórnarvöðvann. Geri ráð fyrir harðsperrum á morgun.

laugardagur, 5. maí 2012
Það virðist sem svo að ég sé búin að fullkomna þetta að "byrja bara aftur" dæmi. Ég vaknaði á miðvikudaginn eftir gubbveisluna og fór út að hlaupa, tók smá pilates, rúllaði og taldi kalóríur allan daginn. Og hef gert síðan. Ekkert mál. En eitthvað hefur gubbveislan skilið eftir sig. Ég er búin að vera hálfdofin síðan, á erfitt með að setja niður fyrir sjálfa mig hvað ég er eiginlega að spá akkúrat núna. Ég veit bara nokkrar staðreyndir fyrir víst:
1. Mér líður vel þegar ég er undir 87 kílóum. Allt þar yfir og ég verð þung á mér og á erfiðara með hreyfingu. Ég vil því reyna að halda mér þar undir.
2. 86-90 kíló er örugg þyngd fyrir mig. Þegar ég fer yfir 90 kíló fer ég á taugum og líður afskaplega illa í sálinni.
3. Ég stunda sjálfsblekkingu og lygar af miklum krafti, mest lýg ég að sjálfri mér. Ég lýg því að sjálfri mér að ég sé búin að koma mér inn í heilsusamlegan lífstíl þegar hver heilvita maður getur séð að ég er pikkföst í "binge-repent-starve" vítahringnum.
4. Eins og velska ljóðskáldið Dylan Thomas sagði; "Do not go gently into that good night.." Ég er langt í frá búin að gefast upp.
Ég er bara ekki glöð.
Mig langar ekki til að stanslaust þurfa að "byrja aftur". Ég vil aldrei hafa hætt.

þriðjudagur, 1. maí 2012
| Mamma, pabbi og Láki. |
Ég tók afskaplega meðvitaða ákvörðun um að sleppa fram af mér beislinu á meðan mamma og pabbi væru hér í heimsókn. Annað væri nú. Mér þótti bara við hæfi að fá mér rauðvínssopa með þeim. Og fara með þau út að borða. Við vorum jú í Liverpool að borða hjá Jamie Oliver. Það var líka ekkert að því að fá jarðaber með rjóma í eftirrétt. Mér þótti meira segja í fínu lagi að opna lakkríspokann og narta á lakkrís með þeim eitt kvöldið. Það sem var ekki í lagi var hvernig græðgin stigmagnaðist hjá mér þannig að ég var farin að bera súkkulaði og hnetur á borð kvöld eftir kvöld. Það sem var ekki í lagi var hvernig ég leyfði "geðveikinni" minni að ráða förinni. Hvernig ég byraði að plotta og ljúga og plana og ákveða næsta "skammt". Í staðinn fyrir að tala blíðlega til sjálfrar mín og minna mig á hvað ég vil fá út úr lífinu og hvað það er sem gerir mig í alvörunni hamingjusama, þrjóskaðist ég við og snéri upp á mig með þjósti. Ég á þetta nammi skilið og ENGINN getur tekið það frá mér! Ég endaði svo á borða svo mikið í gærkvöldi að ég gubbaði. Ég þandi svo á mér magann að hann gat ekki tekið við meiri mat en ég hélt samt áfram að borða. Þangað til maturinn hreinlega kom aftur til baka.
Þetta er ekki fallegt.
Og þá er nú víst lítið annað að gera en að trappa sig niður aftur. Minnka skammtinn í dag. Fara út að hlaupa. Tala blíðlega til sjálfrar mín. Ég veit hvað ég vil og svona útúrdúrar eru bara til að færa mér enn betur sanninn um hvað það er.
Ekki sé ég nokkra einustu ástæðu til að vera með samviskubit. Andskotakornið.
sunnudagur, 29. apríl 2012
þriðjudagur, 24. apríl 2012
Það var alveg mega lélegt hlaupið mitt í dag. Prógrammið sagði 45 mínútna þægilegt hlaup og ég festi hausinn eitthvað of mikið í "þægilega" gírnum og hljóp eitthvað minna en ella og labbaði aðeins of mikið. Ég ætlaði eitthvað smávegis að skamma sjálfa mig fyrir en svo datt mér í hug að það er jú, samkvæmt minni eigin heimspeki betra að gera eitthvað en ekki neitt, og í ofan á lag þá kemur dagur eftir þennan og ég get alveg reynt aftur á morgun. Ég var bara eitthvað annars hugar í dag. Enda mamma og pabbi að koma í heimsókn og ég farin að hlakka all svaðalega til. Það er alltaf svo gaman að fá þau hingað, við gerum alltaf eitthvað skemmtilegt fyrir utan að mér finnst einfaldlega alltaf best að vera í millinu hjá þeim. Það hefur bara ekkert elst af mér.
Það er líka alltaf gaman að fá sendingar frá Íslandi. Ég man þegar ég flutti hingað fyrst þá var listinn langur; allskonar súkkulaði, Lindu buff, flatkökur og normal brauð, puslusinnep, remúlaði og sveppasmurostur, harðfiskur og söl, SS pulsur, hangikjöt og súpujurtir, krossgátur... núna er listinn eiginlega bara harðfiskur. Lakkrís og söl ef fólk nennir en ekkert nauðsynlegt. Harðfiskurinn er það eina sem ég get bara ekki lifað án. Enda held ég að það finnist ekki betri heilsuvara en harðfiskur. Ætli þetta þýði að ég sé minni Íslendingur orðinn? Ég veit að ég er meira pirruð á Íslendingum núna en ég var, ég á miklu auðveldara með að sjá það sem er að í fari okkar Íslendinga en ég gerði áður. Hversu hrokafull við erum en eigum sjaldnast inni fyrir því. Hversu hjákátleg hún er þessi sannfæring okkar um að við séum miðja alheimsins. Hversu rangt við höfum fyrir okkur þegar við segjumst vera heimsborgarar. Hversu mikill misskilningur það er að við vinnum mikið og langan vinnudag á miðað við aðrar þjóðir. Ég verð stundum voðalega pirruð.
En svo man ég eftir harðfiski og hætti að vera pirruð. Mikið sem harðfiskur er góður.

sunnudagur, 22. apríl 2012
"Every line crossed, every mission accomplished" stendur á hliðinu sem maður fer í gegnum þegar maður kemur í mark í London Maraþoninu í ár. Ég er að horfa á allskonar fólk koma í mark eftir að hlaupa af allskonar ástæðum og á allskonar tíma. Það hlýtur að vera ótrúleg tilfinning að komast í það mark. Ég finn ekki neina sérstaklega löngun til að taka þátt, ég finn það að ég er búin að "fara yfir mína línu" með að hlaupa 10 km. Það var einhvern veginn nóg fyrir mig til að sanna fyrir sjálfri mér hversu langt ég hef náð. Og þó ég haldi áfram að bæta við mig, reyni að hlaupa hraðar og haldi áfram að skora á sjálfa mig með að reyna við nýjar áskoranir (ég ÆTLA að klífa vegg einn þessara daga) þá þarf ég ekki á því að halda að sanna neitt. Engu að síður þá var voða gaman að hlaupa í morgun, með hugann við fólkið í London. Ég fór rétt tæpa 8 km með nokkrum valhoppum á meðan fólkið frá Kenýa fer 42 km á tveimur tímum. Enginn munur.
Ég er búin að léttast heilmikið þessa viku. Það hefur komið svona nokkuð náttúrulega; ég hef misst áhugann á mat. Ég geri mér engar gyllivonir um að það endist eitthvað, ég get ekki ímyndað mér annað en að ég verði byrjuð að skoða uppskriftir, prófa, hanna, hugsa um og elda mat innan skamms. En ef satt skal segja þá er ég himinlifandi. Ég vakna á morgnana, hendi samloku og jógúrtdós í nestisboxið mitt og fer í vinnuna. Svo borða ég það þegar ég verð svöng. Þegar ég kem heim á kvöldin elda ég það sem er til, og borða þangað til ég er södd. Ég ímynda mér að svona lifi venjulegt fólk. Þetta er voðalega skrýtið. Hingað til hef ég þurft að plana allt. Og það að plana sex máltíðir á dag þýðir að ég er stanslaust hugsandi um mat. Ég hef alltaf haldið að það að plana ekki myndi þýða að ég myndi bara éta allt sem tönn á festir, að ég myndi láta undan óseðjandi hungrinu mínu. En það virðist sem svo að ég sé ekki botnlaus. Ég er loksins orðin södd. Og ég hef ekki hugmynd um af hverju. Ef satt skal segja þá langar mig ekki til að rannsaka. Ég vil bara njóta á meðan varir. Sem þýðir lélegt blogg, en góð Svava Rán.

miðvikudagur, 18. apríl 2012
Mér fannst vera kominn tími til að prófa að hlaupa í stuttbuxum. Mér finnast þær svo pró. Skellti mér í þær eftir vinnu og lagði af stað. Ég var voðalega fegin að mér finnst súper dúper gott að hlaupa í þeim, hafði ægilega á tilfinningunni að ég myndi nudda saman lærum þannig að ég myndi meiða mig en það var ekki. Læri eru enn aðskilin. Mér fannst ég vera tilskyld til að hlaupa aðeins hraðar líka svona til að gangast upp í ímyndinni. Að öðru leyti var ekki mikið öðruvísi við búninginn en vanalega. Engu að síður þá fékk ég sjö bílflaut, tvö "vúhú!" og eitt thumbs up. Fyrir utan thumbs up sem var frá eldri konu þá komu lætin frá karlmönnum.
Ég skil þetta ekki alveg. Ég er ekki alveg nógu flott til að fá svona aðdáunarflaut frá ókunnugum. Ég er líka aðeins of gömul held ég. Mér datt í hug að kannski aftanfrá, með sítt taglið væri hægt að halda að ég væri yngri og flottari framan frá, en samt ekki. Ég held að fjóluhvítt litarhaftið og hálfrakaðir leggirnir komi upp um mig.
Gömul skelfing tók sig þá upp. Hvað ef það er verið að flauta til að gera grín að mér? Mér finnst sjálfri ég ekki alveg nógu feit til að fá neikvætt bílflaut. Engu að síður þá varð ég voðalega meðvituð um allar mínar misfellur og klumpa allan tímann sem ég var að hlaupa. Ég hef verið í þeirri aðstöðu að fá að heyra hvað ég sé feit og hrikaleg og veit hvað fólk getur verið ógeðslega dónalegt að ástæðulausu. Það er ekkert jafn ömurlegt að fá skítkast frá ókunnugum fyrir það eitt að vera feitur. Ekki man ég eftir því að hafa hossa mér á fólki svona til að kæfa það eða neitt. En samt sáu sumir ástæðu til að æpa á mann að maður væri feitur. Eins og ég hafi ekki tekið eftir því.
Ég er ægilega hissa á þessum viðbrögðum mínum. Ég var algerlega sannfærð um að ég væri svo sjálfhverf og ánægð með mig að ég myndi bara getað tekið bíbinu sem hrósi. En eitthvað eru gömul særindi að dingla sér í heilanum á mér. Eiginmaðurinn var reyndar sannfærður um að ég hafi skilið eftir slóð brostinna hjarta á milli Chester og Wrexham. Hann er kannski ekki alveg dómbær á það. En samt. Er ekki best að trúa honum bara?
sunnudagur, 15. apríl 2012
| "Tár, bros og keiluskór." |
| "Lífstílsbloggari gripinn við að graðga í sig hammara!" |
Ég skrifaði um daginn um þetta fyrirbæri að fatta ekki að maður sé að fitna aftur. Maður hefur séð þetta milljón sinnum, fólk grennist, er súper ánægt og með allt á hreinu en svo sér maður það næst og það er búið að fitna aftur. Og meira til. Maður hugsar með sér hvernig gat þetta gerst, hvernig gat hún leyft þessu að gerast? Ég hef gert þetta sjálf. En ég er búin að fatta þetta núna. Það er einhvern vegin með þetta að maður þarf stanslaust að læra sömu hlutina upp á nýtt aftur og aftur. Það er eins og viskan og uppgötvanirnar sem maður gerir og öll þessi "aha!" andartök bara stoppi ekki við í heilanum á manni. (Hugsanir um súklaði taka of mikið pláss.) Þegar ég byrjaði fyrst í mars 2009 taldi ég hitaeiningar. Í fyrstu borðaði ég það sem ég hélt að mér þætti gott en hélt mér bara innan vissra hitaeiningamarka. Svo fór ég að velja hitaeiningarnar mínar af meiri kostgæfni og svo enn betur og svo komu allar þessar pælingar um næringarefni og súperfæði, sykurleysi og allt það. Um daginn ákvað ég að byrja aftur að telja hitaeiningar. Ég hafði týnt mér aðeins eftir sykurleysið og vantaði fastan byrjunarpunkt. Ég ákvað að borða bara hvað sem mig langaði í, en innan vissra hitaeiningamarka. Fór og keypti mér ægilega fínt granóla með súkkulaði og macadamia hnetum. Næstum fjögur pund pakkinn, lífrænt og mannvænt og endurunninn kassinn og fairtrade og ég veit ekki hvað. Ég taldi út að 30 gramma skammtur myndi kosta mig 170 hitaeiningar. Með 200 grömmum af fitulausu grísku jógúrti væri ég komin með fínan morgunmat, prótein og kolvetni. Í þrjá morgna borðaði ég þetta. Og engdist um að hungri. 30 grömm af granóla með súkkulaði og macadami hnetum er nefnilega ekki upp í nös á ketti. Þetta er rétt um ein matskeið. Á fjórða degi gafst ég upp. Vigtaði út 30 grömm af haframjöli, eldaði með vatni og saltklípu, bakaði eplasneið með kanil og setti út í. Kældi niður og setti jógúrt út á. Gamli góði hafragrauturinn minn. Og hugur, magi og hjarta sungu englasöng af hamingju. Ég södd og fullnægð langt fram yfir hádegismat og hafði notað sama hitaeiningamagn og hina þrjá dagana. Þetta hafði ég sko uppgötvað snemma í mars 2009. En þurfti að fatta þetta upp á nýtt. Og þannig förum við af því að fitna aftur. Maður fyllist hroka og heldur að maður viti þetta allt. Að það sé ekkert sem maður hafi ekki prófað. Að það sé ekkert sem enginn getur sagt manni eða kennt manni. En svo kemur í ljós að það er endalaust hægt að læra eitthvað nýtt. Meira að segja það sem maður hafði lært áður.
laugardagur, 14. apríl 2012
| Asics Gel Kayanos 17 og Nike Dri-Fit Compression sokkar. |
Það var líka erfitt að hlaupa í dag. Læri voru stirð og þreytt og ég var í gömlum brjóstahaldara þannig að ég var bara út um allt. Hausinn alveg í lagi í dag. Þetta voru einungis líkamlegir erfiðleikar. Og ég komst að mikið merkilegri fílósófískri niðurstöðu. Þegar hausinn er í lagi get ég þröngvað líkamanum til að gera ótrúlegustu hluti, alveg sama hvað hann kvartar og kveinar. En þegar hausinn neitar að leika er nánast útilokað að gera nokkurn skapaðan hlut, meira segja þó líkaminn sé fír og flamme. Þetta er ALLT í hausnum á manni. Þannig að ég hljóp upphitunarkílómetrana, spretthlaup upp brekku, spretthlaup á flötum velli og svo 20 mínútur fartlek. Allan tíma vældu læri og brjóst en ég hló bara að þessum aumingjaskap. Það er nefnilega alveg lífsnauðsynlegt að komast í gegnum þessar erfiðu æfingar. Því að þegar maður kemst í gegn um þær og svo næst þegar maður fer út lendir maður kannski í góðu hlaupi. Þessu þegar hjarta og heili vinna saman. Þegar fætur og andardráttur eru í fullkomnum takti. Þegar maður getur hlaupið og hlaupið og hlaupið. Þegar maður slekkur á heilanum og ekkert kemst að annað en næsta fótatak, næsti andardráttur. Og eitt og eitt erfitt hlaup er sko þess virði til að komast í þetta góða.
föstudagur, 13. apríl 2012
Það er mikið gaman frá því að segja að með vinnu, dugnaði, eljusemi og öðru sem vinnuveitendur kunna að meta þá fær maður að lokum stöðuhækkun. Já, ég er loksins, eftir rúm tvö ár hjá Lloyd´s Banking Group, komin í alvöru stöðu. Ég er orðin deildarstjóri og sé um hóp starfsmanna sem finnur auðveldari greiðsluleiðir fyrir vanskilaskuldara. (ef það er orð.) Eða eitthvað á þá leið. Eftir nokkuð stress, próf og viðtal fékk ég starfið. Yfirmaður minn var búin að leggja inn gott orð fyrir mig en að mestu leyti þá fékk ég starfið vegna þess hversu vel ég hef staðið mig í minni núverandi stöðu. Já, það er víst með það eins og annað; ef maður leggur á sig vinnu þá að lokum uppsker maður sem maður sáir. Ég hugsa bara vart að ég gæti verið ánægðari, alvöru staða á framabraut. Jess!
Þrátt fyrir að eyða vikunni í að bíða eftir að fá að heyra góðu fréttirnar hefur mér tekist vel að telja kalóríur og halda mig innan því sem ég tel að sé gott fyrir mig. Ég prófaði líka að borða gott súkkulaði. Ég hef löngum verið svag fyrir því að verða súkkulaði connoisseur. Mér finnst svo smart að borða dökkt súkkulaði, þefa af því, tilkynna eftir smá smjatt að hér sé um að ræða 80% kakómassa frá Ekvador, með vott af vanillu og jasmín og undirtón af eik og basil. Eða eitthvað þannig. Svo finnst mér það líka svo svakalega aðlaðandi þetta sem súkkulaði conniosseurs gera. Þeir fá sér EINN mola, smjatta og umla, og hætta svo. Einn moli af dökku, eðal súkkulaði á að vera nóg til að fullnægja sætindaþörfinni. Hingað til hefur þetta ekki virkað fyrir mig. Ég er bara algjört chav (white trash) þegar að súklaði kemur. Mér finnst best að borða bara sex Lion Bar. Það er að segja þangað til ég fann Lindt Excellence. Og sér í lagi þetta með vott af sjávarsalti. Dökkt, en sætt súkkulaði og svo öðru finnur maður fyrir saltkorni sem bráðnar og blandast saman við næstum biturt kakóbragðið. Og saltið dregur fram sætuna og einhverskonar fullkomnun á sér stað. Og það best af öllu er að það er í alvörunni nóg að fá einn mola. Gott kaffi, einn moli (smá pistastíur og ein daðla) og það er bara allt í lagi með mig. Allt í fínu lagi.
| Bar Excellance! |
fimmtudagur, 12. apríl 2012
Ég sat hér í gærkveldi og gúgglaði eins og mófó. Hitt og þetta, mest megnis spurningar sem vakna hjá mér yfir daginn um holla lifnaðarhætti. Og ég rak mig á umræðu á "Runner´s World" þar sem það var varað við því að hlaupa á tómum maga. Að það að hlaupa á tómum maga væri ekki til að maður léttist heldur yrði það til þess að maður gengi á vöðvaforða frekar en fituforða. Og ég byrja að panikka. "Ég er að gera allt vitlaust, ekki nema von ég sé ekki að léttast, ó nei, ó nei, ó nei!"
En svo fór ég að spá í þessu. Málið er að ég hleyp oftast rétt um fimm leytið á morgnana. Ég brölti fram úr, bursta tennur og pissa og fer út. Ég hef hvorki tíma til né áhuga á að borða þá. Ég fæ mér staðgóðan morgunverð eftir hlaup. Á ég núna að hætta að hlaupa á eina tíma dagsins sem hentar mér vegna þess að vísindin segja að ég léttist ekki við það? Hvort er skárra að ég hlaupi þegar mér hentar af ástæðunni "ég hef gaman af því" eða ég hætti að hlaupa vegna þess að ég hef svo miklar áhyggjur af því að ég sé ekki að gera eins og vísindin segja?
Mér datt svo í hug öll þessi umræða um hvað maður á og á ekki að gera í líkamsrækt. Maður á að gera tabata og lyfta og bara hlaupa ef maður hleypur hratt og maður á að gera hitt og maður á að gera þetta. Ég stend sjálfa mig að því að fá samviskubit þegar ég tek langt, rólegt hlaup. Samviskubit. Yfir því að hlaupa! Málið er að hvað öllum reglunum líður þá hlýtur alltaf að vera betra að gera eitthvað en ekki neitt. Í alvörunni. Hvað er ég eiginlega að nenna að gúgla þessu öllu saman? Ef ég ætla að vera hraust, hamingjusöm og halda áfram að minnka á mínum forsendum þá skiptir ekkert máli nema að gera það sem mér hentar. Eða eins og Jillian Michaels segir;"Count your calories, work out when you can, and try to be good to yourself. All the rest is bullshit." Gott. Einfalt.

þriðjudagur, 10. apríl 2012
| Nýja dagbókin (já ég hugsa allt of mikið á ensku) |
Veðrið hér í Bretlandi er jafn ófyrirsjáanlegt og á Íslandi og þó í síðustu viku hafi ég spókað mig um á hlírabol í tuttugu stiga hita þá er aftur komið hrollkalt haust núna. Þannig að þegar vekjaraklukkan hringdi klukkan fimm í morgun og vindurinn lamdi regni og trjágreinum í gluggann hjá mér í svartamyrkri varð ég voðalega glöð að ég hafi sett "án samningarétts" klausuna á þetta hjá mér. Það var ekki undan komist þó bólið hafi verið ósköp notalegt.Ég veit nefnilega hvað mér finnst gaman að hlaupa í myrkri og rigningu. Mér finnst ég vera svo svaðalegur nagli þegar ég geri það. Ég veit nefnilega líka hvað mér líður vel þegar ég hleyp. Ég verð alltaf jafn hissa og glöð yfir því að geta það. Og ég veit líka hvað ég liður vel þegar ég er búin. Tilhugsunin um að sitja í sjö klukkutíma á rassgatinu fyrir framan tölvu verður mun bærilegri þegar ég veit að ég er búin að leggja inn sjö kílómetra með sprettæfingum. Og það er sko á hreinu að eina æfingin sem maður sér eftir er sú sem maður gerði ekki.
mánudagur, 9. apríl 2012
sunnudagur, 8. apríl 2012
Páskadagsmorgun og eggjaleitinni lokið hér á heimilinu. Lúkas Þorlákur búinn að finna þrjú egg í mismunandi stærðum, tvö bresk og eitt íslenskt. Ég beið aðeins eftir að rigning breyttist úr slagveðri og í léttan úða áður en ég fór út að hlaupa. Ég hef ekki hlaupið í viku núna. Það er komið gott af pásu. Og enn og aftur kemur í ljós að ég gef sjálfri mér ekki nægilega mikið credit. Ég sá fyrir mér að eftir viku pásu myndi ég vera komin á byrjunarreit aftur, myndi sjálfsagt þurfa að byrja á byrjun á 5km prógramminu. En ég fór út og hljóp 4.3 km á 30 mínútum án þess að stoppa. Ég var hissa allan tímann. Ég skil ekki afhverju ég held alltaf að ég missi allt þol ef ég slaka svona á í nokkra daga. Ég skil ekki afhverju eftir allan þennan tíma held ég enn að ég sé veikur og stjórnlaus ræfill. Ég ákvað í huganum að ef ég færi 4 km á hálftíma þá myndi ég kalla þetta hlaup númer fjögur í 12 á 12 og skýra það "Með hausinn í lagi" hlaupið. Og það gekk eftir, ég náði því sem ég setti mér og get núna haldið áfram að gera mitt besta fram að hádegi.
Þar með breytti ég hugsun í verk. Ég ætla líka að sjá hvort ég sleppi ekki að stela mola frá Láka allavega þangað til eftir lamb. Mig langar ekki að skemma fyrir mér hádegismatinn með hugsunarlausu súkkulaðimauli. Ef ég fæ mér mola þá ætla ég að búa mér til kaffi, setjast niður í þægilegt sæti og smjatta á honum með gleðilátum. Og halda svo bara áfram. Sko, tvær hugsanir orðnar að verki í dag. Er ekki kominn rífandi gangur á þetta?

laugardagur, 7. apríl 2012
![]() |
| Hvatningar kúrfan (Heimild) |
Málið er að það er óhjákvæmilegt á svona langri leið að maður komi ekki að tímabilum þar sem afturför er allsráðandi. Það er bara eðlilegt. Það sem skiptir máli er hvernig maður tekur á því. Fólk sem nær árangri notar svona tímabil sem hvatningu til að endurvekja áhugann og til að fínpússa markmiðin. Það sem maður þarf að gera er að finna það sem olli stoppinu og reyna að nota það til að læra af því. Til dæmis að nota það sem tækifæri til að breyta planinu. Og það ætti að vera til þess að skerpa einbeitninguna og koma manni aftur í gang. Þetta er munurinn á að gefast bara upp ef maður étur aðeins of mikið í eina máltíð eða sleppir nokkrum æfingum og hellir sér þá bara aftur út í fjölskyldustærð af KFC og líter af Ben og Jerry í morgunmat og á okkur sem þurrkum súkkulaðið af hökunni og höldum svo bara áfram.
Það sem ég get ekki séð út núna er hvort þetta er tímabundið "setback" eða hvort ég sé að slaka of mikið á. Ég finn einhvern veginn ekki milliveginn á að hugsa með mér að ég sé í gallabuxum númer 14, get hlaupið 10 km og klifrað efst upp í klifurgrindina á róló og er þessvegna bara fín og get alveg tekið pásu frá hollum lifnaðarháttum og byrjað svo bara aftur, og því að langa til að halda áfram að léttast og fara í stresskast þegar ég tek svona pásu vegna þess að hungrið inni í mér er óseðjandi.
Þarf ég kannski að endurmeta markmiðin mín? Hversu mikið vil ég ná þeim? Má vera að ég sé kannski bara búin að missa áhugann á að léttast? Ég er búin að ná mér niður í nokkuð lifanlega stærð. Ég er líka búin að ná að hlaupa 10 km. Ég las einhverstaðar að ef markmiðin hafa litla merkingu fyrir manni eða eru manni ekki mikilvæg þá er auðvelt að tapa áhuganum. Elemental myndi ég segja. Kannski er það að léttast bara ekki mikilvægt fyrir mig á þessum tímapunkti. Akkúrat núna þarf ég að einbeita mér að vinnunni og náminu. Ég á eina ritgerð eftir í Masterinn. Eina. Og ég er svoooooona nálægt alvöru stöðuhækkun í vinnunni. Kannski er bara eðlilegt að ég sé að einbeita mér að því. Það sem angrar mig aðeins hér að að ég geti ekki unnið að stöðuhækkun OG haldið áfram að afþakka kex í tíu kaffinu.
Ég ætla því að taka þessu öllu hálfan dag í einu. Stundum er bara of mikið að horfa á allt sem þarf að gera í einu. Stundum er þetta allt saman bara manni ofviða. Þannig að ég ætla að taka daginn frá átta til tólf og gera mitt besta í öllum þáttum lífsins. Svo reyni ég bara að gera mitt besta til að halda áfram að gera mitt besta. Akkúrat núna virðist þetta vera málið. Stressið í vinnunni, í náminu, í lífstílnum, allt er að verða of mikið fyrir mig. En það er hægt að gera sitt besta hálfan dag í einu.
Það hefur alltaf reynst mér vel að einfalda hlutina. Ég á það til að laðast að öfgum og ég skal alveg viðurkenna að á mínum dimmu og dökku stundum, í rökkurtímanum mínum, þegar ég er búin að eyða heilum degi í slæmar ákvarðanir þá byrja hugsanirnar sem segja að ég þurfi að; "hætta ÖLLU", kaupa mér svitagalla, fasta, hlaupa meira, éta ekki neitt, refsa, refsa, refsa. En það eru einföldu lausnirnar sem virka. Í staðinn fyrir að horfa á Grey´s Anatomy, skrifa 500 orð. Í staðinn fyrir smjör og ost á þýska brauðið, nota bara ostinn. Þessar litlu breytingar eru varanlegar og vænlegar til árangurs. Ég á þetta alltof mikið til, ætla að hætta ÖLLU á mánudaginn. Þegar ég veit að það sem virkar eru litlu hlutirnir.
Rannsóknir sýna að það að taka ákveðið skref fram á við, í átt að markmiðinu, hversu lítið sem það er gefur manni ástæðu og hvatningu til að taka það næsta.Ég ætla að nota trix úr sjálfhjálpardeildinni. Ég hef í hyggju að skrifa niður hvað það er sem er að halda aftur af mér núna og hvað ég tel að myndi hjálpa mér til að taka skref í átt að markmiðunum en ekki frá þeim. Meira að segja ef lausnin er að breyta þessum markmiðum. Svo ætla ég að skoða listann og gera eitthvað af honum. Breyta einni hugsun í verk. Sjá svo til hvort það komi mér af stað.
Hugsun í verk. Þetta líkar mér.
þriðjudagur, 3. apríl 2012
Tvisvar sinnum áður á ævinni hef ég náð að léttast eitthvað svo um munaði. Ég tók 9.bekk (sem þá var síðasta árið í grunnskóla, ég var síðasti árgangurinn sem aldrei fór í 10. bekk) í kalórítalningu, nokkuð stíft eróbikk (sem þá var "cutting edge" hreyfing) og breytti hugarfari þó nokkuð hvað varðaði þáttöku í íþróttaiðkun svona almennt. Þangað til þá hafði ég frekar kosið lestur góðra bóka en að vera eitthvað að anda að mér mikið fersku lofti. Ég léttist heilmikið og þegar að skólaferðalagi um "Norðurfirði", eins og ég kaus að kalla þann hluta landsins sem heim var sóttur, kom var ég ekki mikið feitari en vinkonur mínar. Svo fór ég í menntó, borðaði pizzur, reykti og drakk (og skemmti mér konunglega). Ég get ekki bent á neinn tímapunkt þar sem ég tók eftir því að ég hafði fitnað aftur. Ég veit bara að þegar ég var í öðrum bekk var ég aftur orðin feit. Ég man alls ekki fyrir mitt litla líf eftir neinu millibilsástandi. Ég man ekki eftir að hafa hugsað að einhver föt pössuðu ekki lengur, eða að ég þyrfti að fara að passa mig eða neitt. Eina stundina var ég þvengmjó í sundi á Sauðárkrók að fagna því að vera búin með grunnskóla, næsta sem ég veit er að ég er feit í menntó. Badabúmmbadabing.
Næst tók ég svo á því þegar ég er í háskóla. Fór í einkaþjálfun, borðaði undir 1200 kalóríum á dag í næstum ár og léttist heilmikið. Svo mikið að ég var sannfærð um að það væri orðið í lagi með mig. Að ég væri læknuð. Ég stundaði lyftingar og sund og fannst ég vera ægilega hraust. Ég var reyndar banhungruð en ég var mjó. Og svo man ég ekki meir. Eina stundina var ég þvengmjó í heimsókn hjá José Manuel í Madrid, þá næstu var ég rorrandi um í spiki á Hornafirði. Og ég tók aftur ekki eftir nokkrum sköpuðum hlut. Ég sé ekkert millibils ástand, alveg sama hvað ég hugsa stíft um þessi tímabil. Ég var mjó (ish), svo var ég feit.
Ég hef engan áhuga á að fljóta svona sofandi að þeim feigðarósi aftur. Þannig að þegar svona helgar koma þegar ég borða meira en æðra sjálfið þarf á að halda klíp ég aðeins í sjálfa mig. Þegar ég borða þannig að ég sé gömlu Svövu Rán speglast í ísskálinni, þegar ég borða þannig að ég fæ ónot í magann þá minni ég sjálfa mig á að setjast upp og taka vel eftir. Minni sjálfa mig á að fylgjast vel með svo ég meðvituð um hvað ég sé að gera. Ég hef engan áhuga á að vakna upp einn daginn orðin 140 kíló.
Þetta er mikil rússíbanareið þetta stúss allt saman. Þessi síðustu þrjú ár hef ég tekið mig á, lést mikið, ráfað svo aðeins og tussast svo aftur af stað. Ráfað svo meira, væflast um en komið mér af stað aftur. Að miklu leyti má segja að ég hafi verið í jójó megrunarkúr.Akkúrat núna er ég á ráfi. Og hluti af sjálfri mér er skelfingu lostin að ég vakni upp 140 kíló. Það er svo auðvelt að gleyma sér, og það er svo auðvelt að festast í hugarfari sem segir að þetta sé keppni, að það sé verið að taka tímann með skeiðklukku, að maður þurfi að komast í mark, að maður þurfi að "klára dæmið". Og ég ætla að halda áfram að vera meðvituð og taka eftir því hvað ég er að gera.
En ég neita að leyfa skelfingunni að taka yfir. Það stendur enginn með skeiðklukku og vigt yfir mér. Skelfingin þjónar engum tilgangi nema að þrýsta mér út í 1200 kalóríur og hungur. Svo lengi sem ég er vakandi og þjóna æðra sjálfinu mínu þá er ég að gera rétt. Hversu langan fokkings tíma sem þetta tekur mig.

sunnudagur, 1. apríl 2012
| Mark Knopfler hringdi. Hann vill fá svitabandið sitt tilbaka. |
Mér var því ekki til setunnar boðið í morgun og ákvað að taka nýjan hring til að vígja svitabandið. Ég prófaði að hlaupa í gegnum Pen-Y-Cae (penníkæ), framhjá Plas Bennion, niður í Ruabon og svo Johnstown og upp í Rhos aftur. Gullfalleg leið og sólin skein í heiði og ég hafði rétt um sjö kílómetra til að hugsa málin. Ég þurfti líka að taka langan hring. Til að hreinsa hugann. Til að koma mér inn í æfingaprógramm upp á nýtt. Ég er svakalega hrifin af því að hafa eitthvað til að stefna að í líkamsrækt. Það er svo miklu skemmtilegra þegar maður er að vinna að ákveðnu verkefni. Það setur fútt í hlutina. Á meðan að stóra myndin er að vera almennt hraustur þá held ég að það sé bara til að halda áhuganum lifandi að hafa ákveðið verkefni með skýru tímamarki að vinna að. Svona eins og maður tekur próf, nær eða fellur og kemst áfram á næsta stig eða þarf að læra meira.
Ég sagði um daginn að ég sé ekki lengur í 10 km formi. Jæja, það er náttrúlega ekki að gera sig og ekkert annað í stöðunni en að komast aftur í það form. Ég er búin að skrá mig í 10 km hlaup í Bangor núna í lok maí. Passar ákkúrat, tveir mánuðir til að þruma sér í form og hlaupið sjálft er eitthvað til að hlakka til. Ég sé fyrir mér gullfallega leið meðfram Menai strait og skemmtilegan dag í Bangor með strákunum mínum. Og ég hef eitthvað að stefna að. Ég þarf að hafa eitthvað að stefna að.
fimmtudagur, 29. mars 2012
Ég hef aldrei á ævinni klárað nokkurn skapaðan hlut. Ég byrja á endlausum verkefnum af krafti og einurð en missi svo áhugann og sný mér að einhverju öðru af sama krafti og einurð. Píanónám í æsku, endasleppt skiptinemavist í Bandaríkjunum, stjórnmálafræði, lögfræði og svo tók það mig áraraðir að klára enskuna. Ég komst meira að segja inn í FÍH í söngnám en einhvernvegin lét það svo bara fjara út. Ég hef alltaf talið þetta vera ljóð á ráði mínu, næstum persónuleikabrest. Það er nefnilega ekki gert ráð fyrir fólki eins og mér í samfélaginu. Það eru kröfur gerðar til manns að maður festi ráð sitt við eitt áhugamál, stundi nám í beinni línu og að eitthvað komi út úr öllu sem maður gerir. Að allt beri eitthvern ávöxt. Hvar er launaseðillinn, hvar er allt monníið? er maður spurður. Ég hristi oft höfuðið yfir sjálfri mér, hugsa jafnvel stundum með mér að ég sé að sóa tíma mínum og hæfileikum með þessu einbeitningarleysi. Að ég sé að sóa sjálfri mér. Og það sama virtist vera með breytingarnar sem ég hef gert á hreyfingu og mataræði. Ég gríp eitthvað á lofti, helli mér út í verkefnið af fullum krafti, slæ um mig með stórum yfirlýsingum... en fæ svo leið og breyti um og helli mér af sama krafti út í allt aðra aðferð.
En þegar ég sest niður og hugsa málið þá held ég að loksins sé komið að því að þetta sveimhuga mentalitet, þetta einbeitningarleysi sé að koma sér vel. Ég held að ég hafi fundið ástæðuna fyrir því að eitthvað hefur loksins að mestu leyti gengið upp hjá mér. Fyrri tilraunir til spiksköfunar hafa allar verið litaðar af því sem samfélagið ætlast til af mér; þeas ég hef rembst við og reynt að fylgja áætlun, fylgja prógrammi með upphafi, miðju og enda. En það er bara ekki ég. Ég fúnkera ekki í beinni línu. Þannig að þegar ég leyfði sveimhuganum að taka yfir og hætti að skammast mín fyrir að skipta um taktík og plan jafnóðum og ég skipti um nærbrók þá loksins fór þetta allt að virka.
Ég er að hugsa um að vera þessvegna loksins glöð og ánægð með að vera eins og ég er. Og þakklát fyrir að hafa loksins fundið eitthvað sem sýnir einbeitningarleysið í jákvæðu ljósi. Ég hef lært á öllum þessum hliðarsporum mínum að það þarf ekki bara að vera ein útkoma, ein niðurstaða möguleg. Og ég hef lært að díla við óvæntar uppákomur og óvæntar útkomur betur en ella. Ég breyti bara um ef niðurstaðan er mér ekki þóknanleg.
Það er ekkert til sem heitir endir eða lokaniðurstaða. Markmiðið er nefnilega ekki að fullkomna og klára, heldur að aðlaga og breyta og halda gleðinni út allt lífið. Og ef það eitthvað sem ég geri vel og af einurð og krafti þá er það að vera glöð.
| Bara alltaf í stuði! |

þriðjudagur, 27. mars 2012
| Rúllandi á IT-bandinu (illiotical band) |
| Hætt að geta brosað, of sárt. Aaargh! |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)