föstudagur, 27. janúar 2012

Heimild
Ég er búin að velta þessu fyrir mér fram og til baka. Ég setti sjálfri mér nokkuð háleit markmið í ársbyrjun og ef satt skal segja þá hefur mér ekki tekist sem skyldi að ná þeim. Sjálf hef ég ekki áhyggjur af því að hafa ekki náð markmiðunum, það sem ég hef meiri áhuga á að rannsaka er afhverju ég náði ekki markmiðunum sem ég tilskyldi. Eftir allt þá hef ég alltaf haldið því fram að þetta sé einföld stærðfræði, kalóríur inn, kalóríur út. Hvað er að halda aftur af mér?

Í nokkra mánuði núna hef ég reynt sjálfa mig á því að lifa af meðalhófi. Ég vil trúa því að mér sé treystandi, að ég geti tekið skynsamlegar ákvarðanir, að ég sé nógu vel gefin til að vita hvað er gott fyrir mig og hvað er tilbúin hollusta. Og mér gengur ágætlega. Ég borða hollan og góðan mat á virkum dögum, um helgar fara hlutirnir aðeins úr böndunum og svo tek ég aftur ákvörðun um að borða hollt og gott og geri það alla vikuna. Og ét svo yfir mig um næstu helgi.

Og ég er farin að trúa því að ég geti ekki lifað af meðalhófi. Að sykur hafi meiri og þéttari tök á mér en ég ræð við. Eins heitt og mig langar til að geta sagt að ég sé nógu sterk til að fá mér einn bita, eina sneið, einn mola, þá verð ég núna að viðurkenna að það er bara ekki svo. Ég get haldið nógu vel við mig, svo vel að ég fitna ekki. En ég þjáist enn af lönguninni. Og hún er alveg jafn sterk, alveg jafn brjálæðislega óviðráðanleg og fyrir þremur árum síðan. Láttu mig fá kexpakka og ég hætti ekki fyrr en hann er búinn. Og mér leiðist þessi endalausa barátta. Ég vil bara vera frjáls. Svona eins og ég er frjáls frá sígarettum núna.

Ég prófaði fyrir nokkru síðan að borða engan unninn sykur í mánuð. Mér fannst það fínt, og það var tilraun sem ég var sátt við en þegar öllu var á botninn hvolft þá fann ég ekki mikinn mun. Og ég sé það núna að ég gekk ekki nógu langt. Það er núna kominn tími til að ganga alla leið og taka allan sykur út. Og þá meina ég allan frúktósa. Þar með talið ávexti, ferska og þurrkaða eða í sultuformi. Ég þarf að taka út allan sykur til að frelsa sjálfa mig frá þessari fíkn fyrir fullt og allt. Ég ætla að nota næstu vikuna til að æfa mig og venja mig á þetta smávegis og svo er það bara að taka hann allan út.

Sykur á sér djúpstæðar rætur í okkur öllum. Það er ekki nóg að þurfa að díla við hreina líkamlega fíkn heldur er tilfinningaleg tengsl við sykur ótrúlega sterk líka. Sem verðlaun, huggun, sem félagi. Allt þetta veitir sykurinn og tilhugsunin um að yfirgefa þennan vin er náttúrulega ógnvekjandi. En ég þarf að fá að þekkja líkama minn og þarfir hans án þess stanslaust að berjast við að fæða sykurþörfina fyrst.

Frúktósi veitir enga fyllingu, hann meira að segja vekur þau viðbrögð í líkamanum að troða og troða í sig. Margar rannsóknir sýna að frúktósi hefur ekki sömu rísandi áhrif á insúlin í líkamanum og glúkósi. Þessvegna heldur fólk því fram að agave (90% frúktósi) sé hollustuvara. En þetta er ekki endilega sniðugt vegna þess að insúlin er eitt af hormónunum sem sem stjórnar matarlyst. Að gefa líkamanum því næringarefni sem hann sér sem enga ástæðu til að segja manni að maður sé orðinn saddur, búinn að fá nóg, er þessvegna ekki sniðugt. Og bara ávísun á ofát. Sykur (frúktósi) ruglar í hormónakerfinu í líkamanum, skapar löngun og þráhyggju og leiðir þannig til hins óhjákvæmilega vítahríngs megrunar og ofáts.

Ég ætla þvi að gefa því sjéns að prófa að sleppa frúktósanum í nokkrar vikur og sjá hvernig mér líður. Án þráhyggjunnar ætti ég að geta fundið jafnvægið sem ég er alltaf að leita að.

Ég ætla að sleppa (að venjulegum hvítum sykri og hvítu hveiti að sjálfsögðu meðtöldu):

Ávextir
Ávaxtasafi
Þurrkaðir ávextir
Sulta
Tilbúnar sósur (tómat og bbq)
sojasósa
balsamic edik
hunang
agave
sweet freedom
hlynsýróp
pálmasykur
og auðvitað súkkulaði, gosdrykkir, kex og kökur.

Ég er gífurlega spennt. Mér finnst ég hafa rannsakað málið til hlýtar og hafa komist að vel ígrundaðri niðurstöðu. Mér finnst ég hafa vísindin með mér í liði. Ég hef líka engar sálrænar ástæður fyrir ofátinu. Það eru engar tilfinningabeinagrindur í mínum skáp. Ég verð þessvegna að líta til hins líkamlega og fara að íhuga að ég er kannski bara sykurdópisti. Að ég sé að berjast við efni sem ég hef litla stjórn á. Og að lokum þá veltur velferð mín og hamingja á því að geta verið frjáls. Og til að fá að reyna frelsið verð ég að gefa dópið upp á bátinn. Mér líður betur nú þegar.








þriðjudagur, 24. janúar 2012

Við Ásta í London í nóvember.
Það var í miðju samtali við hana Ástu mína sem ég öðlaðist nýjan fókus. Það er reyndar oft þannig þegar ég tala við hana, hún á það til að benda mér á hitt og þetta sem ég segi og snýr því tilbaka til mín og lætur mig hugsa um það sem ég segi og um það sem ég geri. Ég var að væla. Enn sem áður. Og ég var að nota orð og frasa eins og "dæmd" og "föst" og "ákveða bara að fara á sykurfyllerí" og þar fram eftir götunum. Hún spurði mig þá afhverju ég gæti ekki hugsað um mat eins og ég hugsa um sígarettur. Mig langar sko alltaf smá í sígó. Mér fannst alltaf voða gott að reykja. Og stundum, eins og þegar ég er með eitthvað í glasi, eða eftir góða máltíð, eða þegar ég hitti Rannveigu eða Auði, þá langar mig alveg svakalega í sígó. En ég fæ mér ekki.

Ég ætti að hugsa um sykurmat og hveitibrauð á sama hátt. Mig langar kannski alltaf smávegis í og stundum, við sérstakar aðstæður, kemur mér til að langa alveg voðalega mikið í. En ég fæ mér samt ekki af því að ég veit að það er verra fyrir mig að fá mér en að sleppa því bara.

Ég er búin að vera svona þenkjandi síðan á mánudag. Og sem stendur er ég með skýrasta móti. Ég er að sætta sjálfa mig við tilhugsunina um að "langa alltaf smá" en að það sé bara svona í bakgrunninum og færist svo fjær og fjær. Það eru núna oft löng tímabil þar sem ég man ekkert eftir því að mig langi í smók. Heilu mánuðirnir. Kannski að það verði að lokum bara þannig með glassúrinn og fransarann?

Ja, nema ég fái mér bara rettu og kók?


mánudagur, 23. janúar 2012

Þrjú ár af skólamyndum, loksin í ramma. 

Horft inn í stofu

Nýtt sófaborð, hliðarborð, körfur, lampi, kaffibolli. Vantar málningu.


Hvað ég elska IKEA mikið. Nú er allt í lífi mínu komið í röð og reglu, allt komið ofan í körfu, sett í ramma, í stíl og nett samansett. Það á að sjálfsögðu eftir að mála veggina, það þarf að bíða eftir að gipsið þorni alveg, og við þurfum víst líka að hafa tíma til að gera það almennilega. En þetta er allt í áttina hjá okkur.

Næsta IKEA við okkur er í Warrington, í uþb klukkustundar keyrslu frá Wrexham. Og við áttavilltu hjónin erum ekkert of spennt að leggja á okkur að villast þetta. Eins gaman og mér finnst í IKEA þá er bara heilmikið á hjónabandið lagt þegar við keyrum út. Síðast keyrðum við hring um hafnarsvæðið í Liverpool áður en við komumst aftur heim. Ég held því fram að guðirnir passi vanalega upp á það að úthluta í samband einum lóðsara og einum áttavillingi. En eitthvað fór þetta úr skorðum hjá okkur Dave þvi við erum bæði svo áttavillt að vandræði stafa af. Í hvert sinn sem við reynum að komast eitthvað reynir á hjónabandið til hins ýtrasta þar sem taugarnar þenjast við hverja vitlausa beygju og sveigju og eftir því hversu langt við færumst frá áfangastað. Það hefur nokkrum sinnum komið fyrir að við hreinlega gefumst upp og förum bara heim aftur. En hjónabandið blífur þannig að kannski eru þessir litlu útúrdúrar okkar bara gerðir til að gera okkur að vandaðra pari.

Warrington sjálf er sérlega óspennandi bær, og lítið þangað að sækja. Nema náttúrulega þetta flennistóra IKEA. Við vorum undirbúin, skildum Láka eftir hjá tengdó, vorum með innkaupalista og nógan tíma fyrir okkur. Ég fyllist einhverju ská þjóðarstolti þegar ég kem þangað, ég veit hvað senapssild er og skil nöfnin á húsgögnunum. Við röltum um í rólegheitum, tíndum ofan í körfuna af listanum og skoðuðum eldhús. Fengum okkur að sjálfsögðu kjötbollur og sultu áður en við héldum heim aftur.

Og öllum að óvörum tókum við bara einn aukasveig á leiðinni heim, fórum yfir bæði River Mersey og River Dee og komumst klakklaust frá Englandi heim til Norður Wales. Batnandi fólki er best að lifa.

Ég er núna búin að skrúfa saman stofuborði, hliðarborði og leslampa, setja myndir í ramma og setja allt smáleg í körfur. Allt á sínum stað. Ég er búin að hreinsa út úr öllum skápum, henda drasli og senda í endurvinnslu. Ég er að vona að svona tiltekt, uppfæring og röð og regla sé það sem ég þarf til að koma afgangnum af sjálfri mér í röð og reglu. Mig langar svo til að vera aftur skipulögð og með eld í maganum.

sunnudagur, 22. janúar 2012

Helvítis. Ég bætti á mig öðru hálfu kílói þessa vikuna. Það er kíló í plús síðustu tvær vikurnar og ég nánast aftur á byrjunarreit. Eins og Janúar hafi bara ekki skipt máli. Ég er greinilega enn ekki með hausinn í leiknum. Mér til varnar verð ég þó að segja að ég vann 60 tíma í þessari viku ásamt því að læra, skrifa og aðstoða við flutninga. Síðan á þriðjudag hef ég ekki haft tíma í heilsusamlegan lífstíl. Mér er sama hversu mikill vani þetta er, ég þarf samt amk klukkutíma á kvöldin til að undirbúa mig og ég þarf að komast í búð eða hafa tíma til að komast á netið til að panta matarsendingu. Ég hef ekki haft tækifæri til þess. Í ofan á lag hefur verið of vont veður þegar ég kem heim á kvöldin til að hlaupa.

Jaddí jaddí jada. Það er samt engin ástæða til að þyngjast. Tímaleysi og stress og ég ætti bara að borða minna. Ég hefði átt að hafa í huga minni hlaup og minnka matinn þessvegna. Fokking fokk. Djöfull er ég leið á þessu.

Og vegna þess að ég er greinilega ekki í fallegu skapi akkúrat núna og mér finnst ég ekki geta skrifað mig frá því þá ætla ég að taka eina eða tvær sun salutations og ná aftur jafnvægi.

þriðjudagur, 17. janúar 2012

Matseðillinn í dag var ferskur og hressandi. Svona drauma "lífstíls" matseðill.

Morgunmatur; 0% Grísk jógúrt með heimalöguðu granóla og frosnum bláberjum.

Snarl; gulrót og matskeið af marokkó kryddaðri húmmús.




Hádegismatur; Kale (grænkál) og kjúklingabaunasalat með radísum og parmesan, næpusnakki og hálfri, grófri kornabeyglu.












Eftirmiðdegissnarl; Kaffibolli og kubbur af hrá-hjónabandsælu.

Kvöldmatur; Cavolo Nero létt svissað á pönnu með hvítlauk og sítrónu og smávegis af serrano skinku.

Kvöldsnarl; handfylli af möndlum sem ég ristaði í hunangi.

Æðislegt.

Skítt þessvegna að ég komst ekki út að hlaupa í dag. Og enn skítlegra að mig langar hrikalega í nammi í kvöld. Þetta er bara þannig kvöld einhvernvegin.

sunnudagur, 15. janúar 2012

Ég hef verið að hugsa þetta allt saman vitlaust að undanförnu. Ég er alltaf stoppandi á þessu að það sé í lagi með mig núna, að fólk horfi á mig og sjái ekki feita manneskju lengur. Og ég finn enga hvatningu í því lengur. Þetta að verða venjuleg. Ég er ofur venjuleg núna.

En ég skráði mig í þrjú mismunandi hlaup núna í kvöld. Í mars, apríl og mai hlaupin í 12 á 12 markmiðinu mínu. Og ég fattaði að ég hef verið að hugsa þetta öfugt. Akkúrat núna eru hlaupin hvatningin mín. Og eitt af tólunum til að verða betri hlaupari er að nota næringuna á réttan hátt. Á sama hátt og það er lífsnauðsyn að fara út í það minnsta þrisvar sinnum í viku, að gera hraða- og taktæfingarnar, að gera líkamlega háttinn á réttan hátt og á áhugarverðan máta, þá á næringin að vera einn meginþátturinn í æfingaprógramminu. Það er þannig sem ég þarf að hugsa þetta allt saman. Borða til að hlaupa. Ekki öfugt.

Það setur óneitanlega skemmtilegri vinkil á málið, ik?

Mig grunar að það sé hægt að segja að ég sé fórnarlamb eigin velgengni. Þegar ég lít tilbaka á síðustu tæpu þrjú árin finnst mér að fyrstu tvö hafi farið í nokkuð stöðugt fitutap og þó nokkra einbeitni af minni hálfu til að léttast. Síðasta árið hef ég svo hinsvegar tekið ægilega á því í viku, svo hálfkákað næstu vikuna, tekið einn dag í algert rugl, nokkra daga í meira hálfkák, heila helgi í rugl, svo aftur í smá tiltekt og þar fram eftir götunum. Ég finn ekkert langt tímabil þar sem ég var einbeitt og heil í verkefninu "léttast um síðustu 15 kílóin." Það kemur að miklu leyti til af því að ég er oftast bara ánægð með sjálfa mig. Ég veit að ég get borðað svo og svo mikið til að viðhalda mér eins og ég er, ég ekki lífshættulega feit lengur (og er stundum meira að segja bara dálítið sæt) og ég get gert vel flest það sem mig langar til að gera núna þegar kemur að hreyfingu. Ég er nokkuð viss um að þetta sé að halda aftur af mér að léttast um þessi síðustu 15. Það er engin örvænting í mér núna.

Örvænting er svo reyndar ekki tilfinning sem ég nenni að díla við lengur. En ég nenni heldur ekki hálfkákinu. Mér finnst ég hafa mér til varnar að ég var eldhúslaus í síðustu viku og þessvegna ætla ég að segja að þetta hálfa kíló sem ég þyngdist um sé ekki vegna hálfkáks eða einbeitningarleysis, heldur vegna "c´est la vie". Svona vikur koma stundum þar sem lífið tekur fram fyrir hendurnar á manni og það verður bara að kljást við þær og gera það besta úr þeim. Ég er ekki með hálfkák, ég er, og var alla síðustu viku, að vinna að markmiðum mínum af fullum krafti og heilindum. Hálft kíló er rassgat í bala og ég læt það ekki slá mig út af laginu.

Ég ákvað að það jákvæða sem ég myndi læra á svona djöfulviku væri að hatast ekki við granóla stykkin sem ég kenni um þyngdaraukninguna heldur hanna uppskrift að mínum eigin sem væru holl og góð. Mér tókst reyndar ekki að búa til stykki sem héldu formi, en á núna góðan skammt af granóla út á jógúrtið í næstu viku. Kókós- og heslihnetugranóla. Gómsætt.

laugardagur, 14. janúar 2012

Nýr veggur, nú þarf gipsið að þorna og svo má mála.
Þessi vika er búin að vera alveg svaðaleg. Á mánudaginn kom hingað flokkur af mönnum til að laga hjá mér veggina. Þeir höfðu komið hér fyrir nokkrum árum en unnu verkið illa og nú var ekkert annað í stöðunni en að rífa allt niður og byrja upp á nýtt. Þessu fylgdi gipsryk um allt hús og nánast ólifnaðarhæft í þrjá daga. Því fylgdi svo þrif langt fram á nætur. Og það í sömu vikunni og ég var í svaka verkefni í vinnunni og var ekki komin heim á kvöldin fyrr en eftir sjö. Ég hafði byrjað vikuna á gífurlega jákvæðan hátt, uppfull af eldmóð. Og reyndi mitt besta að halda uppi heilsusamlegum dampi þrátt fyrir að hafa í raun ekki aðgang að eldhúsi, þrátt fyrir að vera þakin ryki, þrátt fyrir að komast ekki út að hlaupa vegna tímaleysis. Og ég var bara nokkuð ánægð með hvernig gekk. Þangað til á miðvikudag þegar ég keypti, í smá örvæntingu, kassa af morgunverðarorkustöngum til að stinga í nestisboxið mitt af því að ég gat ekki búið neitt til í allri drullunni í eldhúsinu. Ég keypti þær gegn betri vitund. Ég hugsaði meira að segja með mér að það væri betra fyrir mig að kaupa bara fjögur snickers því þá væri ég að minnsta kosti ekki að ljúga að sjálfri mér og heiminum. En nei, eitthvað fannst mér meira "socially acceptable" við að borða granola nut bar klukkan 10 að morgni en snickers. Þrátt fyrir að í granola nut bar væru fjórar mismunandi tegundir af sykri. Í snickers er þó bara ein tegund. Sykur. Og vikan hefur legið nett niður á við síðan, magnast upp af stressi, drullu, tímaleysi, meira stressi vegna þess að ég gat ekki planað matinn, meira stress vegna vinnunnar, þreytu, vöntun á hreyfingu, og allan tímann hakkaði ég helvítis heilsubitann í mig og fór alltaf yfir á kalóríunum á því.... vítahringur frá helvíti. 

Og hvað gera bændur? Jú, klára að þrífa kofann og fara svo út að hlaupa í fyrramálið og halda bara sínu striki. Fokk og enter.  

sunnudagur, 8. janúar 2012

Ég fór með voðalega mikinn harðfisk með mér heim að heiman um daginn. Svo mikið að ég fékk bakpoka lánaðann hjá pabba. Þegar ég svo hljóp til Wrexham í gær ákvað ég að fara með bakpokann svo ég gæti tekið með mér veski, lykla og síma. Bakpokinn er ægilega fínn, úr svona öndunarefni og með mittis- og brjóstkassaólum svo það er hægt að reyra hann fast að líkamanum. Hann er líklegast hannaður fyrir fjallgöngur eða eitthvað slíkt. En ég var hæstánægð með hann. Ég prófaði að hlaupa með hann nánast tóman og svo líka eftir að ég fór í H & B og var með tvo hveitipoka og fernu af möndlumjólk og það var ekkert mál. Ólarnar halda honum alveg föstum á bakinu þannig að það er ekkert mál að hlaupa. Og út frá því fékk ég súperdúper hugmynd. Þegar veðrið skánar aðeins og ég hætti að vera í þungum vetrarfatnaði þá ætla ég að pakka með mér hlaupagallanum í vinnuna. Skipta svo um föt, setja vinnugallann í bakpokann eftir vinnu, taka strætó frá Chester til Wrexham en hlaupa svo frá Wrexham til Rhos. Hversu brilljant er það?! Eina er að pabbi heldur örugglega að hann fái bakpokann tilbaka aftur...

Í morgun fór ég svo í fjallgöngu/hlaup. Ég hef eitthvað laskað á mér hægri ristina í gær og hún er stokkbólgin. Ég er alltaf frekar til í að meiða mig meira til að kanna hvort ég sé í alvörunni slösuð eða hvort ég sé bara að veina að ástæðulausu. Við skulum segja að ég sé ekki að búa þetta til og ég kem til með að slaka á á morgun. En verð nú líka að segja að sársaukinn var útsýnisins virði.

Við fjallsræturnar, uþb 500 m frá húsinu mínu. Flossie fær sér gras. 

Rétt að komast á toppinn.

Horft eftir fjallveginum. 

Horft niður til Rhos.

Á akrinum þar sem ég festist í drullu. 

Nýju skórnir mínir búnir að fá vígslu.

Og svo heim í nýbakaðar rúgmjölsmúffur sem ég skellti í áður en ég lagði í hann. 

Vigtin og ég góðar vinkonur í dag, upphafsreitur var 90 kíló. Í dag er ég 88.7 og sátt við 1.3 kíló væk eftir vikuna. Öll sorg farin og eftir situr bara gleði og kraftur.

laugardagur, 7. janúar 2012

Um  leið og ég kom heim úr vinnu í gærkvöld smellti ég mér í partýgallann, setti krakkann í pössun og við Dave röltum okkur á einn af lókal pöbbunum hérna í næsta þorpi. Þar hittum við mágkonu mína og svila, Tracy og Garry, sem voru að fá sér öl af því að Garry átti afmæli. Ég er búin að búa hér síðan í júní 2003 og enn er það þjóðfélagsstúdía fyrir mig að fara á pöbbinn hérna. Ég veit bara fátt skemmtilegra því menningarmismunur Íslendinga og Breta er hvergi skýrari en á lókalnum. Við fórum á New Inn sem er í Johnstown. Húsið er eldgamalt og var áður hesthús eða etthvað slíkt en hefur verið pöbb núna í rúma öld. Þegar inn er komið blasir við myndarlegur bar úr þykkri eik og vertinn sem nikkar til manns. Við barinn standa fastagestirnir með dökkan bjór og virðast ekki hafa hreyft sig síðan ég sá þá þegar ég síðast kom þangað í október. Á gólfinu er þykkt og fallegt teppi með rósamynstri og af því leggur aldargamall þefur af humlum og hlandi. Lágt til lofts og gestirnir sitja við lítil borð sem er dreift um fjögur herbergi og skot sem mynda allan pöbbinn. Innst er snooker borð og þar eru nokkrir ungir menn að spila. Hljómsveitin í kvöld er úr þorpinu. Aðalsöngkonan er stórglæsileg kona á sextugsaldri. Hún er í þröngum svörtum rokkbuxum og alskreytt hálsmenum og armböndum. Hún er með sítt, hvítt hár sem fer henni vel. Bandið er á aldrinum 40- 60 ára og eru allir í bolum sem lýsa því yfir að þeir hlusti á The Who, Jimi og Creedence Clearwater Revival og með mismikið af hári. Dave fer á barinn og nær sér í uppáhaldið sitt John Smith sem er ekki lager heldur dökkur bjór sem er kallaður bitter. Sjálf er ég að drekka vatn. Ég spurði sjálfa mig spurninganna sem ég hef einsett mér að spyrja áður en ég borða eða drekk eitthvað sem ekki fellur að heilsusamlegum lífstíl. Þ.e. ég þarf að spyrja er þetta hjálplegt til að koma þér nær markmiði þínu? Ef svarið er nei þá þarf ég líka að spyrja hvort þetta sé hjálplegt til að ég geti lifað raunhæfu lífi án þess að vera súr og "deprived" og sé þannig hjálplegt þegar ég skoða  stóra samhengið. Í þetta sinnið var svarið líka nei, því ég sá að ég myndi skemmta mér alveg jafnvel án víns. En það er önnur saga. Við sitjum hjá Tracy og Garry og upp spretta líflegar umræður um ferskan fisk, tónlist, sumarfrí og mataruppskriftir. Garry er ástríðukokkur og getur talað um mat allt kvöldið. Hinir gestirnir eru í svipaðri stemningu, þegar ég lít í kringum mig eru ég og Tracy einu konurnar. Mennirnir eru allir miðaldra og eldri, sumir fullir, sumir hálffullir, allir í góðu skapi, engin læti. Inn koma svo fleiri gestir, nú menn á aldri við Sigga afa og með þeim ein kona, um sjötugt. Þeir kaupa sér allir "pint", hún fær "half pint". Svona er það bara. Svo byrjar hljómsveitin að spila og það er erfiðara að tala saman. Ég tek eftir að gömlu kallarnir syngja með, "I can´t get enough of your love" syngja þeir með gömlu rokkurunum og dilla sér. Ég er alveg dolfallin. Ekki sér maður fólk á þessum aldri á pöbb á Íslandi og hvað þá syngjandi með rokkslögurum. Svo fer unga fólkið að koma, allir heilsast og faðmast, flestir eru úr þorpinu og eru sjálfsagt skyld. Eins og ég færi á pöbbinn og hitti Huldu ömmu. Það þætti mér varið í hugsa ég með mér og set bak við eyrað að heimta að hún fari á Happy Hour með mér næst þegar ég kem heim. Unga fólkið er fyllra en það gamla. Meiri læti í þeim, eldra fólkið er fullt en ekki með læti. Svo sé ég að þau eru öll að klappa fyrir söngkonunni og hún veifar til þeirra allra og knúsar svo á milli laga. Tracy segir mér að hún sé aðstoðarskólastjórinn og velskukennarinn í Grango skólanum í Rhos, þorpinu mínu. Þau eru sjálfsagt öll gamlir nemendur. Svona eins og mamma væri í bandi með Labba í Glóru og væri að syngja á Gauknum (er hann enn til?) og krakkarnir í Þolló kæmu að sjá hana. Frábært. Svo koma inn fjórar konur á fertugsaldri. Greinilega búnar að staupa sig aðeins heima og þær byrja allar að dansa í svaka stuði. Þær eru heldur glyðrulega klæddar að mínum smekki en það er eitt hér í Wrexham sem ég þarf bara að venjast, konurnar eru glyðrur. Svona er það bara. Þær dansa og skemmta sér og undir lok kvölds er ein þeirra komin í hörkusleik við rótarann. Result! Við lokalagið byrja svo tveir ungu mannanna að slást og er hent út. Örugglega eitthvað með sætu, rauðhærðu stelpuna að gera. Eða þá að þeir eru bara knobheads. Það er ekkert ólíklegt. Bandið klárar svo á bítlalagi og við Dave kveðjum Tracy og Garry og stöndum upp til að rölta upp Gutter Hill, Dave örlítið valtur á fótunum. Bráðskemmtilegt kvöld og eins og ég segi, alltaf jafn gaman að sjá hvernig Bretar gera þetta. Mér finnst skemmtilegt hvað kynslóðirnar blandast vel saman, allir á einum pöbb og ekkert mál. Og að sjá eldra fólkið úti líka er svo gaman. Eitt gera þeir þó alveg eins og við Íslendingar; þeir verða alveg blindfullir.

Á meðan Dave svaf svo á sínu rykuga eyra í morgun fór ég út að hlaupa. Hljóp til Wrexham. 7 km á tæpum 50 mínútum. Þurfti að stoppa og labba aðeins, ég er greinilega aðeins að missa þol. Bara mánuður síðan ég hljóp 10 km en núna með jólin í maganum og minna hlaup út af veðri er ég ekki jafn góð lengur. Ekkert mál, það vinnst fljótt upp aftur. Ég rölti aðeins um bæinn, fór í Holland og Barrett að kaupa rúgmjöl, stoppaði við í New Look og skoðaði skó og fór á Café Nero og fékk mér latte og muffin til að laga smá svima sem ég fann fyrir. Það var ekki fyrr en þá sem ég fattaði að ég hafði sem sagt verið að stússast um bæinn og sat nú á kaffihúsi í hlaupagallanum! Ég er ekki í lagi. Tók svo strætó heim og ætla að slaka á áður en við förum í matarboð. Svo er það bara að stíga á vigtina á morgun. Upphafsþyngd eftir jól: 90 kiló. Fjögur í plús sem þurfa að hypja sig áður en ég er aftur komin á sama reit og fyrir jól. Spennandi.

miðvikudagur, 4. janúar 2012

Möndlu- og döðlusmákökur.

1.5 bolli heilar möndlur í hýði
20 döðlur, létt lagðar í bleyti
3 kúfaðar msk náttúrulegt hnetusmjör
1/4 bolli cacao nibs (eða sykurlaust kakó)
salt
1/2 tsk kanill
tsk vanilludropar

Svo er öllu skellt í matvinnsluvél og hakkað þangað til deiglík kúla kemur í ljós. Ég á ekki alvörumatvinnsluvél þannig að ég þurfti að gera þetta í mörgum litlum skömmtum í litlu hakkavélinni minni. Svo bleytti ég hendurnar vel með köldu vatni og vann þannig út lokadeigið. Svo skipti ég því í 14 litlar kúlur, flatti út og setti á bökunarpappír og inn í ofn í svona 15 eða 20 mínútur (tók ekki tímann) við 160 gráður. Þetta var smá drullumall en voðalega gott að eiga í krukku inni í skáp þegar nagþörfin tekur yfir.

Enn og aftur get ég ekki lagt nógu mikla áherslu á að hér er um að ræða fullt af hitaeiningum. Fullt af þeim. Og það má ekki bara leggjast í að éta þessar eins og um grænkál væri að ræða. En á móti kemur að þær eru líka stútfullar af trefjum, próteini og hollri fitu sem hjálpar til við að gefa fyllingu og maður þarf bara eina til að svala græðginni. Og allt er eins og það á að vera.

þriðjudagur, 3. janúar 2012

Í fyrsta sinn síðan ég byrjaði að hlaupa varð ég að játa mig sigraða í morgun. Ég vaknaði stuttu eftir fimm, tróð mér í gallann og var albúin að fara út. En hreinlega varð frá að hverfa vegna veðurs. Ég hef nú bara aldrei séð annað eins. Eftir götunni fuku ruslatunnur og annað lauslegt, regnið lamdi rúðurnar svo ég sá vart út og ég sá í hendi mér að ég myndi ekki komast langt. Og tók þá epísku ákvörðun að skríða bara aftur upp í heitt bólið hjá eiginmanninum. Og svaf á mínu græna eyra í stað þess að hlaupa. Hafði hugsað mér að hlaupa þá bara eftir vinnu en þegar ég kom heim í kvöld var veðrið bara engu skárra. Og Dave sagði mér að hann lenti í umferðaröngþveiti vegna þess að trampólín hafði fokið úr einhverjum garðinum og lá nú þvert yfir hraðbrautina! Spennandi. Og verra er að mér sýnist samkvæmt spám að sama verði upp á teningnum á morgun. En ég ætla reyndar að gera þá pilates frekar en að leggjast bara á hina hliðina.

Ég kom líka heim úr vinnu í kvöl uppfull af eldmóði og réðist beint í að leika mér í eldhúsinu. Ofnbakaði næpur (parsnips). Mikið ægilega sem það var gott, hafði sem meðlæti með bixí afgangi síðan á sunnudaginn. Ætla næst að prófa að búa til snakk úr þeim, skera þunnar sneiðar og baka eins og kartöfluflögur. Svo bjó ég til ægilega fínar möndlu-og döðlusmákökur, hveiti og sykurlausar. Bjó líka til hveiti úr rúgflögum sem ég hef verið að nota í hrágraut að undanförnu og bakaði úr því bananabrauðbollur í morgunmat en var svo æst yfir að hafa búið til hveiti að ég gleymdi að setja í þær lyftiduft og salt þannig að þær urðu dálítið þungar og braglausar. En hugmyndin góð og ég prófa tvímælalaust aftur og þá með lyftiduftinu.

Þetta allt saman hefur hjálpað mér að díla við sorgina í dag. Ég er nefnilega í ægilegu sykurfráhvarfi núna og það lýsir sér alltaf sem ofboðsleg sorg. Það góða er að ég veit núna að þetta er bara kemísk tilfinning og ég þarf bara að finna mér eitthvað skemmtilegt til dundurs til að dreifa huganum. Og svo líður hún hjá og ég verð aftur eins og ég á að mér. Ekkert mál.

mánudagur, 2. janúar 2012


Ársmarkmið:  Að verða 74 kíló. Þetta eru uþb 15 kíló af eða rétt rúmt kíló á mánuði. Ég man ekki eftir því að hafa nokkurntíman verið þetta létt og ég veit ekki alveg afhverju ég hef á tilfinningunni að 74 kíló sé rétta þyngdin fyrir mig en mér finnst það bara. Ég áskil mér að sjálfsögðu 100% réttindum til að breyta um þetta markmið, upp eða niður.

2 og ½ mánaða markmið: Að ná að verða 80 kíló fyrir 13. mars. Þetta eru rétt rúm 3 kíló af á mánuði og er helvíti snart áætlað fyrir mig, en mig langar til að setja mér hressilegt markmið til að byrja með og til að ná upp smá veltihraða.  Sem stendur er ég stemmd fyrir áskorun og fyrir smávegis vinnu.

Mánaðarmarkmið: 3.5 kíló af fyrir Janúar lok. 

Vikuleg markmið:  Ég ætla að byrja aftur að skipuleggja vikumatseðil á sunnudegi, verlsa markvisst í matseðilinn og vera skipulagðari hvað mat varðar. Ég þarf að hafa í huga næringargildi og ég þarf að huga mun betur að magni. Ég þarf að vigta og mæla betur það sem ég borða. Ég ætla að byrja aftur að rannsaka nýjar matartegundir og gera tilraunir. Ég ætla að hlaupa 3 sinnum í viku og gera líkamsþyngdaræfingar 3 sinnum í viku.  Ég ætla að endurtaka 10Km prógrammið með það í huga að ná betri hraða. Ég ætla að verða vöðvastælt og sterk.

Dagleg markmið:  Ég ætla að skrásetja daglega það sem ég borða – og rannsaka hvað hentar best mínum líkama til að léttast. Ég ætla að passa það sem ég sting upp í mig án þess að taka eftir því og taka á því.  Ég ætla að drekka meira vatn. Ég ætla að halda mig innan BMR marka. Og það gildir líka um laugar- og sunnudaga.

Þetta er grófa planið mitt. Það eru að sjálfsögðu allskonar smáatriði sem þarf að huga að og svo þarf að koma þessu líka í framkvæmd.  Mér finnst dálítið erfitt að setja fram svona skýr markmið hvað vigtina varðar, það er langt síðan ég dansaði við þann djöful. En ég er bara í svona stemningu núna. Og ekkert að því að nota svona hressleika til stórverka. 

sunnudagur, 1. janúar 2012

Það er ekkert sem jafnast á við nýtt ár. Maður sér fyrir sér endalausa möguleika á breyttri og betri hegðan, allt gamalt er gleymt og grafið og framtíðin óskrifað blað. Ég fyllist alltaf sömu ákefðinni í að setja upp nýtt plan, gera betur en í fyrra, verða betri manneskja. Að setja upp nýtt plan á mánudegi eða um mánaðarmót jafnast að sjálfsögðu ekkert á við nýja planið sem tekur við á nýju ári. Og ég er orðin nógu vön núna til að segja að ég geti sett upp nýtt plan og svo staðið við það lengur en rétt út janúar. Eða nógu hrokafull.

Þegar ég leit tilbaka og athugaði hvar ég stóð fyrir ári kom í ljós að ég hef ekki notað 2011 til mikilla verka. Ég léttist um 2 kíló allt í allt. Á heilu ári. Frekar klénn árangur. En það er bara þegar maður skoðar "the random number generator" eins og Ragga Nagli vildi kalla vigtina. Ég byrjaði að hlaupa af alvöru og hljóp 10 km hlaup þrisvar sinnum, þar af einu sinni í skipulögðu hlaupi. Ég hélt uppi heilsusamlegum lífstil og sannaði fyrir sjálfri mér enn einu sinni að ég er í alvörunni breytt manneskja. Ég byrjaði árið í skinny jeans í númer 18 og endaði það í super skinny jeans í númer 14. Og það segir meira en vigtin getur sagt.

Framundan eru svo bara skemmtilegheit.

Ég ætla að halda áfram að rækta sjálfa mig og gera betur í að skilja hvað gerir mig í alvörunni hamingjusama og hvað það er sem veitir mér tímabundna hamingju sem er svo í raun bara glópagull. Ég hef sett mér aftur skýr markmið hvað kílóafjölda varðar. Mér finnst gaman að vinna að skýru verkefni og ég hlakka til að vinna í því að lifa innan ákveðins ramma.  Ég er búin að gera andlegu vinnuna sem ég þurfti og nú er aftur komið að líkamlega þættinum. Ég ætla að vera orðin 80 kíló fyrir 13. mars. Það er best að smella því bara hér inn til að fá aðhaldið sem því fylgir.

Því markmiði ætla ég að ná með því að byrja aftur að vigta og mæla og ég ætla að byrja aftur að njóta þess að stússast í eldhúsinu. Það var kominn ákveðinn leiði í mig þar en núna er ég aftur að fyllast gleði yfir því að prófa og hanna nýjar uppskriftir.

Ein af stelpunum á hlaupanámskeiðinu sagðist ætla að gera 12 á 12. Það er að segja hún ætlar að taka þátt í skipulögðu hlaupi eða skipuleggja sitt eigið fyrir hvern mánuð á árinu 2012. Þetta fannst mér frábær hugmynd og ég ætla að taka hana upp sjálf. Ég ætla að setja upp dagatal þar sem ég ætla að fylla inn þau skipulögðu hlaup sem ég finn hér í grenndinni eða á heimangengt í og taka þátt í þeim. Þá mánuði sem ég finn ekkert ætla ég að hlaupa mitt eigið hlaup. Hvort sem það er bara gamli góði hringurinn minn eða hvort ég geri eitthvað úr því skiptir ekki máli, ég ætla að mæla tíma og gera það eins og um kapphlaup væri að ræða. Þetta finnst mér gífurlega spennandi og fyrsta hlaupið var hlaupið í morgun 1. Janúar 2012. 5K um Rhos á persónulegu Garmin meti; 34:44.

Svona byrjaði ég 2012. Hvað með þig?




föstudagur, 30. desember 2011

Það er aldeilis hvað ég elska Garminn minn mikið. Hann lætur mig vera betri hlaupara. Og er ótrúleg hvatning til að drífa sig út. Ég er svo spennt að safna upplýsingum til að geta borið saman hitt og þetta. Hann er líka örlátur á kaloríur brenndar þannig að mér finnst ég hafa gert ægilega mikið í hvert sinn sem ég fer út með hann. Í morgun ákvað ég að passa að fylgja fyrirmælum hlaupaþjálfarans míns og byrja hægt og auka svo hraðann. Ákvað að hver kílómetri yrði að vera hraðari en sá síðasti. Hljóp þann fyrsta í rólegheitum og kláraði á 7:39. Sá næsti yrði þá að vera betri en það og ég jók aðeins í . Við annan km pípti garmurinn. 7:35. Fín aukning þar, og ég enn  bara að hita upp. Sá að ég gæti alveg haskað mér örlítið í viðbót. Sá þriðji búinn og ég fór á 7:22. Úff, hugsaði ég með mér þá, sá fjórði verður að vera helvíti harkalegur. Ég spitti í og vandaði mig við að halda takti. Píp píp sagði garmur innan skamms. 6:47! Shit! Það þýðir að sá síðasti þarf að vera all svakalegur á minn mælikvarða. En ekki fer ég að gefast upp núna. Og áður en ég vissi af pípir enn í mér. Og ég náði að fara síðasta kílómetrann á 6:22. Frábært! Og ég þarf greinilega að fara að endurskoða hvað ég get og hvað ég held að ég geti. Það býr greinilega miklu meiri orka mér en ég held. Og bara þetta að keppa svona við sjálfa mig hvetur mig áfram.

Ég er að nota síðustu fríklukkutímana mína í dag. Við Lúkas bara heima í nettri Legó stemningu. Ég er búin að þrífa allan kofann og ætla svo að nota daginn í að: 1) líta yfir árið 2011 2) Gera aðgerðaáætlun fyrir 2012.

Það er aftur kominn tími til að huga að sjálfinu.

miðvikudagur, 28. desember 2011

Ég reiknaði örsnöggt í huganum stærðfræðijöfnu nú áðan þegar ég renndi augunum yfir það helsta á facebook. Einhver vina minna hafði sett inn tengil um frétt af glamúrmódeli íslensku sem hefur þyngst um 3 kíló í jólafríi á Íslandi. Sjálf velti ég lítið fyrir mér hversu klént fréttaefnið væri en einbeitti mér því meira að stærðfræðinni. Gefum okkur að glamúrgellan sé 50 kíló. Þriggja kílóa þyngdaraukning er bara þó nokkuð og ég skil hana vel að hafa áhyggjur. Nú er ég ekki langt frá að vera næstum helmingi þyngri en hún og ég hef áhyggjur af þessum sömu þremur jólakílóum. En hristi það fljótt af mér því stærðfræðin sagði mér að ég ætti enn tvö kíló til góða til að fitna í sömu hlutföllum og glæsikvinnan. Best að ná sér í annað staup af beilís.

mánudagur, 26. desember 2011

Til þess að reyna að brjóta upp átið og koma mér í einhvern annan gír í dag ákvað ég að fara til Wrexham, fara í Next og ná í stígvél og pils sem ég hafði pantað í gegnum Next Directory og kíkja á útsöluna sem hófst þar í dag. Next útsalan er eitt af þessu sem ég hef alltaf fylgst með af öfund. Þegar ég vann hjá D & A sá ég Next út um gluggann hjá okkur og þessi annan í jólum útsala var alltaf alveg rosaleg. Verslunin opnar um 6 leytið á morgnana og oftar en ekki er fólk búið að standa í biðröð lengi fyrir utan til að komast í bestu leppana. Útsalan er góð, allt á 50% afslætti  og það er ekki slæmt að fá fínni vinnuföt þar, buxur á 20 pund sem áður voru 40 og svo framvegis. Það er nú eiginlega bara í fyrra og svo núna í ár sem ég get samt tekið þátt af einhverju marki. Áður var náttúrulega ekkert til á mig.  Og núna ef ég ætlaði mér að ná í eitthvað í minni stærð hefði ég sjálfsagt þurft að vera í biðröðinni klukkan 6 í morgun af því að 14 og 16 eru greinilega vinsælustu númerin og fara fyrst. Þannig að ég gat ekki að því gert en að fyllast smá spenningi við tilhugsunina um að loksins geta keypt mér föt á þessari frægu Next útsölu. Þegar ég var feit var Next eitthvað sem ég bjó til sem viðmið um þar sem ég þráði að geta verslað. Falleg og klassísk föt, allt svona smart casúal sem passaði vel í vinnuna, ekki of dýrt og svo langt utan seilingar fyrir mig. Ég hef þessvegna alltaf sveipað Next einhverjum töfraljóma, fór þangað inn í nánast hverju hádegishléi og ímyndaði mér hvernig lífið væri ef ég gæti bara labbað þangað inn og keypt mér hvað sem mig langaði í. Ég er enn að venjast því að geta bara labbað inn í hvaða búð sem er og þarf í rauninni að fara að víkka sjóndeildarhringinn og fara að labba inn í fleiri búðir en bara Next.

Tilgangurinn var nú samt ekki bara að kaupa á útsölu, ég var aðallega að ná í pöntunina mína. Fór beint upp og mátaði stígvélin. Og skilaði aftur. Þau pössuðu en voru asnaleg á ökklanum. Skrýtið. Ég hafði einhvernvegin alltaf gert ráð fyrir að þegar maður væri komin í venjuleg númer að allt væri bara fínt á manni. Þannig að ökklakrump á stígvélum fara meira í pirrurnar á mér en ella. Ég átti bara ekki von á þessu. Skoðaði pilsið og var mjög efins um að ég myndi nota en út af útsölunni var ekki hægt að máta þannig að ég ákvað að taka það með mér heim. Fór niður og rölti einn hring um búðina. Varð hálf ringluð af mannmergðinni. Sá rauða jólakjólinn minn sem ég keypti í lok ágúst á 45 pund núna niðursettur á 20. Og varð pirruð. Sá einn ágætan vinnukjól á 18 pund en setti aftur á slána þegar ég sá röðina til að borga. Hikaði fyrir framan ullarvinnubuxnaslána, eftir át síðustu dagana finnst mér ég vera 200 kíló og langar ekki í þykkar buxur. Snerist að lokum á hæli og fór út og heim, nennti þessu ekki. Eftir alla þessa tilhlökkun hrökklaðist ég semsagt tómhent og rugluð út.

Mátaði pilsið þegar ég kom heim og ég hefði átt að skila því strax eins og ég vissi, það er ekki sjéns að fá mig í pils. Veit ekki hvað ég var að spá. Þannig að núna þarf ég að gera mér ferð í búð eftir vinnu á miðvikudag. Fór svo á netið til að skoða útsöluvörurnar á netinu og það fyrsta sem ég sé er þetta pils, sem ég var rukkuð 38 pund fyrir núna hægt að fá á 18 pund. Ekki spurning núna um að því verði skilað. Ég þoli ekki útsölur og skil ekki hvað ég var að öfundast út í fólk að geta verlsað. Ég þarf þá alla vega núna að sleppa því algerlega að versla í Next allt 2012. Þá kannski gæti ég verið ánægð með útsölukaup á annan í jólum næst. Ég er bara ekki hagsýn eða sniðug eða með svona útsölugrams í mér.


sunnudagur, 25. desember 2011

Strákarnir mínir rétta mér aðalpakkann.
Ætli þessara jóla verði ekki minnst sem hlaupajólanna miklu. Ég fékk nýja hlaupaskó, hanska og húfu (hanskar of stórir, húfa of lítil -aftur! Ég er greinilega með litlar hendur/stóran haus. Ekki gott kombó), hlaupasokka og hinn langþráða Garmin. Já, ég er komin með Garmin 305 í hendurnar. Hlóð hann í gærkveld um leið og hann kom upp úr pakkanum og setti inn tölvukerfið í löppuna og var þess vegna albúin að fara út í einn hring í morgun. Fór í allt nýtt og út. Ég var smávegis upptekin við að ýta á takka og fatta hvernig allt virkaði þannig að það í blandi við alveg hrikalegt rok þýddi 5 km á 36 mínútum. Eða ég ætla alla vega að afsaka seinaganginn með því (ásamt að sjálfsögðu að vera með svín, malt og appelsín, rjómagraut og konfekt í mallakút síðan í gærkveldi). Ég fór útmælda 5km hringinn minn og Garmin segir hann vera 4.6 km. Þannig að ég er miklu hægari en ég hélt. Ég hef því ákveðið að í dag er dagur eitt í mælingum. Ég byrja bara upp á nýtt. En gott var það að byrja daginn á skokki.

Lukkan yfir einni kjéllingu!
Öll statíkin og tölfræðin sem fylgir úrinu lokkuðu og löðuðu stærfræðinördinn sem ég er gift og nú er ég að vona að ég geti táldregið hann með mér í hlaupin. Maður hleður inn öllum upplýsingum um hlaupin og það er fyrirsjáanlegt að maður fyllist keppnismóð við að grannskoða og analýsera allar upplýsingarnar. Sé fyrir mér að ég stýri 5km prógramminu með honum á kvöldin, hlaupi bara mitt 10 km prógramm á morgnana. Það væri alveg æðislegt að fá hann í þetta með mér, ekki væri leiðinlegt að vera saman hjónin á hlaupum um allt.

Aðfangadagur-og kvöld semsagt að harðíslensku sniði hér í Wales, en með breskara móti á jóladag. Og án þess að lasta ættleiddu fósturjörðina þá bera íslensk jól herðar og höfuð yfir þau bresku. Hér er fólk bara fullt og í joggingöllum. Ég er búin að amast við þessu núna í 9 ár og ætti að fara að slaka á yfir þessu, en virðist bara ekki getað komist yfir þennan menningarmismun. Mjög hrokafullt af mér, ég geri mér grein fyrir því, en mér sýnist ég ekki geta breytt viðmóti mínu úr þessu. Vorkenni Dave reyndar smávegis því ég veit að hann vildi að Lúkas fengi að prófa að vakna á jóladagsmorgun og hlaupa niður í spenninginn við að opna pakka. Ég veit ég er vond að þverneita öllum málamiðlunum en svona verður þetta bara að vera. Það er stundum ekki hægt að þóknast öllum.

Nú ligg ég á meltunni eftir kalkúninn hjá tengdó og þakka gvuði og gæfunni fyrir að hafa hlaupið í morgun. Ekki það að ég hafi náð að vinna mér inn debit fyrir öllu því sem ég át en samt skárra en ekkert. Og nudda saman höndum af tilhlökkun þegar ég verð orðin nógu svöng aftur til að fá mér slettu af jólagraut. Hann tókst með eindæmum vel í ár.

þriðjudagur, 20. desember 2011


Ég og mamma í Wales sumarið 2006.
Ég var eitthvað að grufla í tölvunni hans pabba og fann þar myndaalbúm sem mamma hafði sett inn af heimsókn þeirra til okkar Dave og Lúkasar sumarið 2006. Þónokkrum árum áður en ég byrjaði að garfa í að breyta lifnaðarháttum mínum á annan hátt en að fara bara öðruhvoru í frantískar megrunir og svo eftirfylgjandi átköst. Mér sýnist ég jafnvel feitari þarna en ég var í mars 2009. Myndin kom sem ágætis áminning í kvöld. Þrátt fyrir að hafa byrja dagana á sama háttinn hér og ég geri heima; með nettum skammti af hafragraut og svo skemmtiskokki með mömmu þá finn ég hvernig ég er alltaf að eiga meira og meira erfitt á kvöldin. Kæruleysið "það eru nú jólin og ég er á Íslandi og ég er svo foxý og ég fæ aldrei Nóakropp" er alveg að fara að taka yfir. Og þrátt fyrir að vera þó nokkrum Nóa kropps pokum frá því að verða aftur eins og ég er á myndinni þá er alltaf undirliggjandi örlítill ótti að ég sé enn fyllilega fær um að koma mér aftur á þennan stað. Og það er oft sem ekkert af trixunum mínum dugar og ég ræ um í skelfingu yfir tilhugsuninni. Ég veit vel að ég get fengið mér smá Nóa kropp og haldið svo áfram mínu striki. En ég get ekki að því gert en að hugsa með mér að ég sleppi bara nartinu þegar ég er minnt svona óþyrmilega á hvernig ég var. Ég man þetta nefnilega vel. Hversu hægt ég labbaði. Hvað ég var með sár lærin af núningi. Hvað ég átti ekkert af fötum sem hentuðu sumarhitanum. Hvað ég svitnaði undir brjóstunum. Hvað ég var skelfingu lostin að setjast í stól á veitingastað sem leit ekki út fyrir að halda þunganum. Hvað þetta var ERFITT. Ég hef sagt það áður og ég segi það enn; það er erfiðara að vera svona feitur en að fara út að hlaupa. Það er erfiðara að vera svona feitur en að neita sér um einn Nóakroppspoka. Það er miklu, miklu erfiðara.

Tilgangurinn er ekki að láta fólki líða illa á aðventunni. Auðvitað fylgir eðlilegu lífi örlítið kæruleysi og smávegis nautnalíf. Mig langar frekar til að minna fólk á að það er alltaf til von. Að það er alveg sama hversu svart þetta virðist að það er alltaf leið út úr ógöngunum. Og að það er alltaf ástæða til að halda áfram.
Þannig að ég ætla bara að leggja frá mér pokann og njóta Íslands á annan hátt en með lúkurnar útataðar í súkkulaði. Til dæmis svona:


Ég og mamma á skokki í morgun.


mánudagur, 19. desember 2011

Það hefði þótt saga til Eyrabakka fyrir nokkru síðan ef ég hefði byrjað afmælisdaginn á léttu skokki um snæviþaktar gangstéttar heimabæjar míns. 37 ára og aldrei verið betri. Opnaði pakka, knúsaði mömmu og pabba og Lúkas og fór svo út að hlaupa. Á Íslandi er kalt og dimmt. Og miklu kaldara og dimmara en manni finnst í minningunni. Mér bregður alltaf smávegis þegar ég kem heim og finn kuldann. Klæddi mig bara aðeins betur en í Rhos og fór út. Þorpið mitt hefur breyst á þessum 9 árum sem ég hef verið í burtu, og það mikið að ég fann allskonar göngustíga og slóða sem ég kannaðist ekkert við. Horið fraus í nefinu við hvern andardrátt og ég verð að viðurkenna að ég hefði átt að klæða lærin betur, þau urðu helblá. En djöfull var þetta gaman. Trax gormarnir svínvirka, ég var öruggari en þegar ég hleyp í rigningu í Wales. Og hnéð fraus bara og ég fann ekkert fyrir bólgu eða verkjum. Frábært. Síðan þá hef ég ekki komist út fyrir veðri. Er meira að segja farin að íhuga að nota bretti út í íþóttahúsi. Ég veit samt að ég þarf að byrja aftur í prógrammi. Síðan ég hljóp 10 km hef ég verið að hlaupa bara svona eitthvað og vantar orðið meiri staðfestu. Ég ætla að endurtaka 10 km prógrammið. Mér finnst best að vera með plan.
Þollararnir fríðu.
Afmælispartýið var svo líka alveg frábært þó sjálf hafi ég orðið aðeins of spennt og æst og þurfti að lokum að leggja mig. Ég er bara ekki í þjálfun! Áfengi er eitt af því sem mér fannst fínt að sleppa, ég sakna þess ekki að fá mér eitt og eitt glas, get alveg sleppt því og sparað mér hitaeiningarnar.

Ég er svo bara á fullu í að njóta þess að vera heima. Fæ öðruhvoru svona kast inni í mér þar sem ég hugsa að ég verði að hlaupa út í búð að kaup Nóa kropp og Lindubuff á meðan ég hef tækifæri til, en stoppa sjálfa mig svo af vegna þess að ég finn að þetta er tilbúin tilfinning. Mér finnst bara að ég þurfi að fá þetta en langar ekki í í alvörunni. Ég held að mig vanti alltaf smá drama. Áður fyrr hefði ég látið dramann ráða ferðinni og eftir ákvörðunina um að hætta að borða mat og drekka bara laxerolíu á meðan ég tjaldaði í ræktinni hefði óhjákvæmilega fylgt dramatískt atriði þar sem ég myndi troða í andlitið til að bæta upp skortinn. Ég held mig enn við dramatíkina. Tek mismunandi ákvarðanir, ríf í hár mitt og skegg og kveina um að léttast hægt, breyti um skoðun og taktík stanslaust. Munurinn er að undir dramanum núna er stöðugur grunnur sem ég get alltaf leitað til og heldur dramanum í skefjum. Draminn kryddar þetta bara og gerir spennandi. En það að vita að undir niðri er ég samkvæm sjálfri mér er það sem þetta snýst um í alvörunni.

Hrossabjúgu í kvöld. Namm.

fimmtudagur, 15. desember 2011

Við Lúkas erum búin að pakka niður Legó jóladagatalinu, gommu af sokkum og nærbrókum úr Primark og kuldaskóm. Þorlákshöfn bíður í ofvæni.

mánudagur, 12. desember 2011

Það var alveg voðalega gaman á laugardagskvöldið og ekki síður fyrir það að mér fannst ég vera ægilega foxý. Og ekki bara foxý heldur líka mest kúl af öllum kellingunum á svæðinu. (Það var ekki jafn gaman á sunnudagsmorgun og ég var hvorki kúl né foxý þá en við látum það liggja á milli hluta.)

Ég er rétt um 86 kíló. Og án þess að vera eitthvað að segja að nú sé ég hætt og búin að gefast upp og gefa sjálfri mér veiðileyfi á næstu Makkintossdollu nú á jólavertíðinni þá verðum við líka að vera raunhæf. Það er stundum bara betra að láta sig berast með straumnum frekar en stanslaust að vera að berjast á móti með pusið í andlitið endalaust. Í stað þess að einblína á vigtina nú næstu dagana ætla ég að halda áfram að skemmta mér.

Mér finnst nefnilega gaman núna. Tengdó gaf mér pening í afmælisgjöf og ég fór í Next á sunnudaginn og keypti mér gallabuxur; slim fit, númer 14. Mig langaði til að fá mér feitan borgara og Pringles í þynnkunni en rétti mig við með buxunum. Það er kannski dálítið drasktískt en mig vantaði eitthvað áþreifanlegt til að minna mig á að það er svo miklu betra að passa í slim fit buxur en að fá feitan borgara. Og það allt án þess að finnast ég vera undir einhverri pressu. Ég borða KitKat og fæ smá samviskubit, en svo jafna ég það út með hreyfingu og með skynsamlegum ákvörðunum í þynnku og með 95% súperhollu fæði að öðru leyti.

Svo er ég farin að hlakka til að koma heim. Er með snjógormana tilbúna á hlaupskónum þannig að ég ætti að geta hlaupið smávegis á milli þess sem ég borða pissuköku og hitti vini og fæ mér göróttan drukk og sýni Láka jólaljósin á Íslandi. Og ég og alheimurinn erum í jafnvægi.

laugardagur, 10. desember 2011

Þegar maður er að berjast við feituna og/eða ljótuna þykir mér skynsamlegast að gera þveröfugt við það sem manni langar til að gera. Tilhneigingin er að fara í joggarann eða mussu, setja hárið í lufsulegt tagl, sleppa málningunni og láta augabrúnir missa lit og lögun. Þetta hjálpar ekki til við ljótu og feitu. Eins erfitt og það er þegar þessi skaðvaldur ber á dyr þá er alveg lífsnauðsynlegt að taka á því sem allra, allra fyrst og lita og plokka, fara helst í partýgallanum  út í Kaupfélag og mála sig enn meira en vanalega. Kaupa jafnvel rauðan varalit, eða byrja að nota kinnalit. Varast skal þó öfgar og ég mæli eindregið gegn róttækum aðgerðum eins og klippingu á þessum tímapunkti. Það getur aldrei endað vel.

Sjálf er ég búin að berjast við eitthvað sem ég held að ég ein í heiminum þjáist af. Ég er búin að vera með  mjóuna alla vikuna. Mér finnst ég svo mjó. Það er náttúrulega alveg ljómandi tilfinning og það eina slæma sem mjóunni fylgir er hálfgert kæruleysi. Þetta byrjaði allt með hringunum mínum á mánudagsmorgun. Vanalega hef ég fengið mér eitthvað skrýtið á sunnudegi en öfugt við öll mín plön eftir kapphlaupið sem sögðu að ég gæti étið eins og mig lysti eftir hlaup, þá bara gleymdi ég að troða í mig. Þannig að þeir hringluðu á beinunum á mánudeginum. Og ég sá að ég var þvengmjó. Á þriðjudeginum fékk ég svo að heyra frá samstarfsmanni mínum að ég væri alltaf að grennast. Hann sæji mun á mér dag frá degi. Og þar með kom það. Ég er mjó og þarf ekki frekar að pæla í þessu. Í sambland við þetta er svo búið að vera brjálað að gera í vinnunni þannig að ég hef verið að borða á hlaupum lítið og illa. Er eiginlega búin að vera svöng alla vikuna sem náttúrulega endar með því að ég fæ mér kitkat á miðvikudegi. Og fimmtudegi.Og eftilvill á föstudegi líka.  Hlaup voru bara tvö 5 km spretthlaup sem er einn þriðji af því sem ég vanalega geri.

Partýgallinn útpældur og tilbúinn
Þetta allt samanlagt þýðir að ég vakna svo í morgun með feituna. Er að fara í svakalegt jólapartý í kvöld í galla sem krefst þess að ég sé ekki bara mjó heldur með mjótt hugarfar líka. Þannig að ég er núna búin að gera gagnárás. Er komin í feitustu fötin mín og ætla ómáluð og hrikaleg til Wrexham með Láka í klippingu. Þannig verð ég feit og ljót í allan dag og þegar ég svo fer í mjóa gallann minn og set á mig stríðsmálningu kem ég til með að finna svo svakalegan mun að ég verð aftur þvengmjó. Up there for thinking!

sunnudagur, 4. desember 2011

Við byrjunarreit. 
Og svo rann hann upp. Sunnudagurinn þar sem ég tók þátt í alvöru kapphlaupi. Helena Tipping minningarhlaupið er árlegur viðburður hjá hlaupurunum hér í Wrexham og nágrenni og það var greinilegt á allri skipulagningu og uppsetningu. Við skildum Láka eftir hjá tengdó og keyrðum þangað sem hlaupið var haldið í útjaðri Wrexham. Þar voru samankomnir uþb 300 manns og mér féllust smávegis hendur þegar ég var komin á byrjunarreit; ég var sennilega ein sem leit "venjulega" út. Allir hinir voru greinilega margreyndir hlauparar í hlírabolum og knallstuttum stuttbuxum í grenjandi rigningu og roki. En það var of seint að hætta við, ég var komin til að hlaupa.

Ég kom mér fyrir alveg aftast til að vera ekki fyrir neinum og áður en ég vissi af var flautað og við lögðum af stað. Á undir þremur mínútum fóru allir fram úr mér og ég var komin alveg aftast. Var alveg síðust. Ég hugsaði með mér að það skipti í alvörunni ekki máli, ég myndi örugglega sjá fólk hægja á sér og byrja að labba von bráðar ef það ætlaði að byrja svona skart. Hélt mér á tæpum 7 mínútna hraða og naut þess þegar sólin skein skyndilega í gegnum skýin og rigningunni slotaði. Það var smávegis skrýtið að vera öftust, sjúkrabíll keyrði löturhægt á eftir mér og ég gat ekki gert neitt nema haldið tempói. Ég sá alltaf í aftari hópinn á þessum tíma og naut þess bara að vera úti og hlaupandi. Tók svo fram úr tveimur hlaupurum og var þá að minnsta kosti ekki síðust lengur. Nikeplus pípti svo til að láta mig vita að ég hafði hlaupið í hálftíma og ekki löngu eftir það sá ég 3ja mílna merkið. Það voru engin kílómetra merki svo ég reiknaði fljótt út að ég þyrfti að fara rétt rúmar 6 mílur.

Rétt að komast í mark
Það var á þessu marki sem ég tók eftir að ég var ein. Ég sá engan á undan mér og ég heyrði ekki lengur í þeim sem voru fyrir aftan mig. Ég fann að ég var að hlaupa dálítið hratt og hægði á mér til að eiga orku lengur. Skyndilega sá ég 4 mílna merkið og hugsaði að þó ég væri orðin þreytt þá gæti ég örugglega komist 2 mílur í viðbót. En svo byrjaði að rigna. Og rigna og rigna og rigna. Þykkt lag af grárri rigningu svo ég sá vart úr augum. Og sjúkrabíllinn fór fram úr mér, bílstjórinn gaf mér thumbs up og keyrði svo í burtu. Mér datt helst þá í hug að þessi tveir sem voru fyrir aftan mig hefðu gefist upp og nú væri ég aftur orðin síðust. Skiptir engu, ég er hérna, ég er hlaupandi, ég hef ekki stoppað og ég held bara áfram. Skiptir ekki máli þó það sé smá vandræðalegt.

Við fimmtu mílu var ég alveg búin á því. Þurfti þá að nota hugsanir sem snérust um hvað ég væri dugleg. Hvað ég hefði gert miklar og góðar breytingar á lífi mínu. Og svo pípti tækið og sagði að ég hefði hlaupið í klukkutíma.Gat ekki annað en kíkt á nikeplus til að sjá hvað það væri langt eftir. Og sá að ég hafði farið rúma 9 kílómetra. Vissi þá að nikeplus var ekki að mæla þetta rétt, eins og ég reyndar vissi alveg eftir að hlaupið með Hörpu og Ólínu í Chester og garmin tækin þeirra sýndu allt annað en græjan mín. Fylgdist eftir það vel með og þegar tækið mitt sýndi 10 km hafði ég hlaupið í 67 mínútur. Sem miðað við hin vitlaust mældu hlaupin mín er náttúrulega gífurleg bæting. Svo var ekkert annað en að halda áfram í gegnum rokið og rigninguna.

Lokamarkið kom svo nokkuð óvænt. Dave beið eftir mér, stóð úti í rigningunni til að hvetja mig áfram og ná af mér mynd.

Ég fann lítið fyrir adrenalíni eða hvatningu frá öðrum hlaupurum af því að ég var alltaf ein. Næst myndi ég vilja taka þátt í hlaupi þar sem fleiri á mínu leveli taka þátt. Og ég ætla að nota næstu 12 mánuðina til að léttast og æfa mig og næst þegar ég tek þátt verð ég ekki öftust.

Fyndnast er að þetta var mitt fyrsta 10 km hlaup. Hin skiptin sem ég hljóp þessa vegalengd hef ég sjálfsagt bara farið 9.5. Þannig að ég ætla að taka þessu sem persónulegu meti. Samkvæmt opinberum tímamælingum skipuleggjaranna hljóp ég 10 km á 70:24. Og var fimmta frá botni. Ég skil þessvegna alls ekki hvar hinir fjórir hlaupararnir voru, ég tók alls ekki eftir því að það væru fleiri en tveir á eftir mér.

Ég er gífurlega stolt af sjálfri mér. Þetta var alveg svakalega skemmtilegt og nú hef ég alvöru markmið til að koma 10 km hraðanum mínum niður fyrir 70 mínútur. Og ég er líka búin að vera rosa góð stelpa í ár og fæ vonandi garmin frá jólasveininum. Mér finnst ég eiga það skilið.

föstudagur, 2. desember 2011

Það hreinlega rýkur af mér akkúrat núna. Ég er hoppandi um af æsingi og þarf að reyna að róa mig niður. Vegna vinnu hef ég ekki komist út að hlaupa síðan á þriðjudagsmorgun og með hugann við að ég ætla að taka þátt í kapphlaupi á sunnudag var ég farin að iða að komast í eitt gott æfingahlaup til að vera viss um að ég væri í formi. Þannig að þegar ég kom heim, leyfði ég bara þvottinum að vera ósamanbrotinn og Legó að liggja á gólfinu og tannkremsklessunni að vera í vaskinum, fór frekar í gallann og beint út að hlaupa. Og ég veit ekki hvað það var, hvort allt fólkið sem var á ferli hafði þessi áhrif á mig, eða hvort það henti mér betur að hlaupa seinnipartinn eða hvort ég sé einfaldlega að verða betri hlaupari en ég setti persónulegt hraðamet. 5 km á 32 mínútum. Jása! Þetta var æðislegt. Í hvert sinn sem mig langaði til að hægja á mér, hugsaði ég um buxurnar sem ég keypti í gær.

Enn sem áðurhafði ég  misst af strætó. Í stað þess að sitja fúl og pirruð á stoppistöðinni minni ákvað ég að taka 5 mínútna röltið niður í bæ í Chester og skoða jólaljósin, skrautið og fólkið og ná svo strætó heim þaðan. Af einhverjum ástæðum álpaðist ég inn í New Look og fann þar alveg óvart buxur sem ég er búin að vera að leita að síðan í september. Greip þær í 16 og mátaði. Var í þykkum sokkabuxum en nennti ekki úr þeim og fór í buxurnar yfir. Og þær voru nokkuð rúmar. En alveg jafn flottar og ég var að vona. Ákvað að spreða pening sem ég á ekki til í þær. En á leiðinni að kassanum fór ég að hugsa. Þessar voru rúmar. Væri ekki gáfulegra að eyða pening sem ég á ekki til í buxur sem eru smá litlar núna en duga þá allavega lengur? Skilaði 16 á rekkann og greip 14. Hafði ekki tíma til að máta og fór bara og borgaði og tók andköf af spenningi. Myndi ég geta farið í buxurnar strax eða þurfti ég að bíða? Hugsa með sér! Buxur, úr efni, í stærð 14 (FJÓRTÁN!) og ég í þeim. Ótrúlegt. Og það gekk eftir. Um leið og ég kom heim reif ég mig úr sokkabuxunum og í buxurnar og voílá! Ég er í þeim. Hneppi án þess að halda í mér andanum og er svo fín.

Að hugsa sér. Þegar öll von er úti og það er ekkert eftir nema að drekkja sér í súkkulaðibaði, er hægt að snúa öllu við og enda í buxum í stærð 14. Það er vinna og það er erfitt og stundum er það óréttlátt og einstaka sinnum leiðinlegt en mestmegnis er vinnan bara skemmtileg. Og gefandi. Og upplífgandi. Og maður endar í buxum í stærð 14. Ég held ég geti ekki lagt nógu mikla áherslu á það. Að meira að segja gersamlega glötuði keisi eins og mér er viðbjargandi. Ég gat slitið ævilöngu ástarævintýri mínu með súkkulaði og fundið betra og meira gefandi samband. Við sjálfa mig.

Og þar var ég í kvöld. Á hundrað kílómetra hraða, hlæjandi í vindinum. Taglið sveiflaðist í takt við fótatökin og í hvert sinn sem andardrátturinn varð þungur eða lungun kvörtuðu hugsaði ég um buxurnar mínar. Þetta fléttast nefnilega allt saman. Hamingjan sem ég finn einfaldlega vegna þess að ég get hlaupið á hundrað kílómetra hraða. Og hamingjan sem ég finn þegar ég er sæt í buxum úr efni.

Það er allt hægt.


þriðjudagur, 29. nóvember 2011

Og ég vaknaði á mánudagsmorgun, hljóp sex kílómetra, pakkaði niður útmældan og útpældan hádegismatinn og pældi ekki meira í sunnudeginum og ofátinu sem honum fylgdi. (Note to self; setningarmyndun sýnir fjarlægð frá ábyrgð á ófáti. Verð að skoða) Ég veit nefnilega hvernig það hugsanaferli virkar. Einn slæmur dagur er bara einn slæmur dagur, ég get alveg haldið áfram að borða í einn eða tvo daga. Eða, þetta er bara eitt súkkulaðistykki, ég get alveg fengið mér annað. Eða, þetta er bara ein æfing sem ég er að sleppa, ég get alveg sleppt annarri og annarri. Og annarri. Og einni eftir það. 


Ég hef gert það svo oft núna að ég veit að til þess að viðhalda velgengni í leit minni að heilsu og hamingju get ég bara leyft eina slæma ákvörðun í einu. Og svo verð ég að skrifa hana á lífsreynslu, brosa og halda áfram. 


Ég trúi af algerri festu á meðalhóf og að hlusta á mína innri rödd. Að hún viti hvað mér er fyrir bestu. En ég veit líka að röddin sem biður um spínat og líkamsrækt er ósköp mjóróma og það er oft erfitt að heyra í henni í gegnum öskrin í hinni röddinni sem heimtar annað Snickers. Það er enn eins og það sé smávegis fórn að gefa Snickersið upp á bátinn en ég er að vinna að því.


Tvö æfingahlaup í viðbót og svo alvöru kapphlaup á sunnudaginn. Spennandi!

sunnudagur, 27. nóvember 2011

Ég skil ekkert í því hvað ég er róleg akkúrat núna. Venjulega væri ég komin í angistarkast og að mestu leyti búin að gefast upp. Búin að segja sjálfri mér að hætta bara að rembast við heilsuna, þetta komi aldrei til með að virka. Nú er nefnilega komin heljar langur tími þar sem ég er að léttast á jarðflekahraða. Eða bara ekki að léttast neitt. Meðalhófið er bara að gera sig hjá mér í andlegu hliðinni. En hvað þá líkamlegu varðar er annað upp á teningnum. Upp og niður, upp og niður, sömu þrjú kílóin. Ég er búin að vera mjög ánægð með vinnuna sem hefur farið hér fram undir nokkuð luktum hurðum, ég er búin að vera að lagfæra svakalega margt í heilanum og hef ekki fundið neina þörf til að setja það allt saman niður á blað.

Allt of langur texti án þess að hafa mynd.
En því miður þá finn ég samt að það er ansi oft sem ég er á brúninni. Það er allt of oft sem ég þarf að segja við sjálfa mig "jæja, þá er það að byrja upp á nýtt" þegar mér þykir mikilvægara að geta sagt "jæja nú held ég bara áfram."  En þegar ég stend á brúninni hvað geri ég til að toga mig tilbaka? Ég er orðin það sjóuð núna að ég þarf einhvern vegin ekki að gera það núna. Ég þarf aldrei að tala sjálfa mig til í að fara út að hlaupa. Ég þarf aldrei að halda langar rökræður við sjálfa mig um hvort ég ætti að fá mér hollari kostinn. Ég geri það bara. En ég þarf stanslaust að passa magnið. Ég get enn borðað endalaust.

Og svo koma dagar eins og dagurinn í dag. Þar sem ég vakna með blús í sálinni. Og alveg sama hvað tækni ég nota (klappa viðbein, sýna sjálfri mér ást og hörku á sama tíma, skoða myndir, máta minnstu fötin mín, spjalla við stelpurnar í hlaupagrúppunni, setja "þú finnur það ekki hér það sem þú leitar að" merkið á ísskápinn) þá held ég samt áfram að troða í mig og það langt fram yfir seddu og velsæmismörk. Og ég sé fyrir mér að innan þriggja mánaða væri ég búin að sóa næstum þremur árum af vinnu.

Ég hef svona per se ekki áhyggjur af því að ég geti ekki stoppað. Það er ekki vandamálið. En ég sé líka ekki tilganginn í þessum dögum hjá mér. Þeir gera afskaplega lítið fyrir mig. Fullnægja ekki neinni sykur-eða átþörf því undantekningarlítið er ég ekki að borða það sem mig langar í. Ég er bara að ryksuga upp hvað sem á vegi mínum verður - þegar ég ætti bara að sleppa því og fara út í búð og kaupa Ben & Jerry og snickers og njóta þess. Nei, þessir dagar gera ekkert nema að auka á blúsinn, gera mig eilítið grama og fresta því að ég nái markmiðum mínum.

Það eru nefnilega enn markmið sem ég hef í sigtinu. Mig vantar enn að losna við 20 kíló. Mest megnis til að auðvelda hlaupin. Að hluta til vegna þess að mig vantar minna álag á hnén. Smávegis af hégóma. Mig langar bara svo til að sjá hvernig ég er alveg mjó. En hvað er ég er að gera í að ná þessum markmiðum? Og hvernig á ég að fá þau til að samræmast meðalhófinu?

Ég næ alltaf að stoppa sjálfa mig í niðurrifi - ég þekki orðið einkennin og ég kem núna alltaf fram við sjálfa mig af ástúð og væntumþykju. Það virkar miklu betur en hitt. Ég lifi líka í sannfæringunni um að það sé í lagi með mig. Að mér sé viðbjargandi og að ég sé þess virði að leggja þessa vinnu í mig. Og það er grundvöllurinn.

Hitt er svo framkvæmdin.

Ég ætla að byrja að vigta mig aftur. Ég er viss um að ég sé núna orðin nógu sterk til að geta höndlað tölurnar á vigtinni þannig að upp á við tala rústi ekki fyrir mér deginum eða vikunni. Að ég geti séð tölu upp á við og frekar skilgreint hvað ég gæti þá verið að gera betur.

Ég ætla að borða minna. Ég er að borða hollan og góðan mat; ég borða einfaldlega of mikið af honum.

Ég ætla að vera markvissari í annarri líkamsrækt en hlaupunum. Mig vantar að byggja upp miklu betra "core".

Ég ætla að byrja aftur að gera tilraunir og stunda rannsóknavinnu. Og þar ber hæst módelið sem ég er að byggja fyrir breyttan lífstíl. Ég verð að lifa eftir prédikunum mínum.

Hljómar vel? Mér líður alltaf best þegar ég er með plan.

miðvikudagur, 23. nóvember 2011

Það kemur nú aldeilis fyrir að maður leiti langt yfir skammt. Þannig er ég núna búin að leita logandi ljósi að edamame baunum síðan ég fór á Wagamama með Ástu í Lundúnum. En finn hvergi hér í sveitinni. Á leið heim úr vinnu í dag kom ég við í Marks & Spencer. Þar er hægt að fá allskonar fínerí, aðeins of dýrt svona til að versla dagligdags, en ef manni vantar óvenjulegt krydd eða sósu í krukku eða gott kex þá er allt í lagi að fara þangað svona spari. (Mig vantaði reyndar bara klósettpappír í dag og notaði það sem afsökun til að fara inn og skoða jóladótið.) Og fann þar poka af sugarsnap peas. Ekki veit ég hvað þær heita á íslensku, þetta eru bara ferskar, grænar baunir í belg. Þetta eru nú bara ofurvenjulegar baunir, sem er hægt að fá hvar og hvenær sem er. Greip með til að hafa með kvöldmatnum, grillað butternutsquash og sausage. Og ég er hæstánægð með þær sem staðgengil fyrir edamame. Gufusauð og saltaði og þær voru bara ljómandi alveg hreint. Og þarf þá ekki að hafa frekari áhyggjur af því.

Í þessari sömu ferð fann ég svo líka míní makkarónur. Og ég sem hélt maður þyrfti að vera í Brussel eða New York eða París fyrir svoleiðis fínerí. Ekki aldeilis.  Bauð upp á þær sem eftirrétt í kvöld með latte. Reyndar þá voru þær ekki jafn geðveikislega góðar og þessar sem ég fékk hjá Paul´s en samt, nógu góðar. Ég held að mér finnist mest varið í hvað þær eru fallegar, það hefur meiri og betri áhrif en bragðið. Og hver þeirra er einn munnbiti og samræmast hugmyndum mínum um meðalhóf fullkomlega.

Ég er nefnilega orðin helvíti lunkin við meðalhófið. Ekki alveg fullkomin en það er sko allt í áttina. Ég er alls ekki búin að ákveða mig með hvort þetta sé málið fyrir mig, þetta frelsi, en það er að virka sem stendur. Við sjáum svo til í framtíðinni.

sunnudagur, 20. nóvember 2011

Ég þarf oft að passa í mér pirringinn. Það kemur mér nefnilega ekkert við hvað annað fólk gerir og hvað því hentar best til að ná af sér einhverjum aukakílóum. Hvað veit ég svosem? Það er hálfkjánalegt að láta hluti fara í pirrurnar á sér og samræmist engan veginn minni lífsýn og heimspeki. Engu að síður þá verð ég alltaf ægilega pirruð þegar matur og ákveðnir matarkúrar komast í tísku. Ég bara skil ekki afhverju fólk sér ekki að þetta snýst um að "borða mat. Ekki of mikið af honum. Helst grænmeti." Þetta er svo einfalt. Að eltast við eitthvað sem er "fram að jólum" eða " í nóvember" eða "engin kolvetni" eða "bara grænn matur" eða það sem ég verð allra, allra pirruðust á "sjeik í hádeginu". Mér ber engu að síður skylda til að kanna allt saman. Ég get náttúrulega ekki verið með sleggjudóma byggða á mínum fordómum ef ég hef ekki rannsakað málið og það nýjasta sem ég hef verið að skoða er frummannamataræði, eða Paleo diet.

Hér er kenningin sú að forfeður okkar og mæður hafi borðað þann mat sem best hentar mannslíkamanum. Það er að segja kjöt, fisk og egg ásamt hnetum, grænmeti og ávöxtum. Ekkert kornmeti og enga mjólkurvöru. Nú hef ég ekki rannsakað þetta nóg til að geta sagt af eða á, ég veit bara út frá eigin reynslu að mataræði sem bannar mér að borða ákeðna fæðutegund er algert nó nó fyrir mig. Ég er ekki tilbúin til að gefa upp á bátinn haframjöl og gríska jógúrt. No way, no how.

Það forðar því ekki að þegar ég horfi á daglegan matardiskinn minn þá á ég alltaf í mesta basli við að fá rétt hlutföll á prótein og kolvetni. Ég er kolvetnakelling mikil. Eins og algengt er með fitubollur. Mér þótti þessvegna ekkert að þvi að skoða Paleo með það í huga að fá hugmyndir að kolvetnaminni uppskriftum.

Granola er í algeru uppáhaldi hjá mér. En ég hafði um daginn séð hugmynd (ég finn ekki greinina þar sem ég sá þetta og gerði uppskriftina bara eftir besta minni) að granola sem notaði bara hnetur og fræ, sleppti alveg haframjölinu svona í anda frummanna og datt í hug að það gæti verið gaman að prófa. Þetta tókst alveg ljómandi vel, svo vel að ég efast um að ég borði mikið af þessu í morgunmat, hér er frekar um að ræða eftirrétt eða millimálasnarl.


1/2 bolli döðlur, gróft skornar
1/2 bolli vatn
1/2 tsk kanill
1/2 tsk vanilludropar

Allt sett í pott og mallað þar til hægt er að mauka döðlurnar með gaffli. Sett til hliðar til að kólna aðeins.

Hita ofn í 160 gráður.

2 bollar möndlur í hýði
1/2 bolli aðrar hnetur (mér finnst voðalega gott að nota heslihnetur og pistasíur, ekki jafn hrifin af valhnetum)
1 bolli fræ (ég nota blöndu af sólblóma, grasker, sesam og furuhnetum)

1/2 bolli kókós

Hneturnar gróft skornar og allt nema kókós blandað saman í skál, döðlumaukið blandað við þar til allt er þakið í því. Sett á bökunarpappír á plötu inn í ofn í hálftíma. Fylgjast vel með því þetta getur auðveldlega brunnið. Taka út og blanda kókós strax við. Nota svo út á jógúrt eða sem snakk til að maula á. Ég gerði þetta ægileg fínt í morgun, setti lag af granola og svo lag af jógúrti og jarðaberjum nokkrum sinnum. Jógúrtið lak svo aðeins til áður en ég náði að taka fína mynd. Engu að síður, þá var þetta nú varla morgunmatur, eiginlega ætti þetta að vera eftirréttur.

Það rosalega margt gott að segja um að léttast. Heilsan og líðan líkamlega er öll önnur. Til lengri tíma litið er það afskaplega mikilvægt. En það eru líka atriði sem eru kannski ekki jafn göfug eða háleit sem engu að síður eru svakalega skemmtileg. Ég er að tala um að vera loksins orðin gella. Ég hef alltaf passað mig að vera snyrtileg. Æfði mig árum saman í að stíga létt til jarðar, bera mig teinrétt og bera af mér góðan þokka. (Kannski að ég hefði átt að eyða tímanum sem ég eyddi í að æfa göngulag í að fara út að hlaupa!) En að lokum var alltaf komið að því að það var bara svo mikið sem ég gat falið og hulið og 130 kíló sitja ekki fallega á neinum líkama alveg sama hversu fislétt göngulagið er. Þannig að núna, þó ég sé enn í stærð UK16 finnst mér ég vera eins sexý og sæt og Claudia Schiffer. Kannski að ég ætti bara að halda mér hér, ég veit um konur sem eru í stærð 8-12 og eru samt alls ekki ánægðar með sjálfar sig, Craazyy!

Ég er vön því að vera alveg takmörkuð við hvað er í boði til að fara í. En nú þegar það takmark minnkar og úrvalið magnast er ég jöfnum höndum skríkjandi af gleði og lömuð af valkvíða. Ég veit orðið nokkurn vegin hvað ég vil og hvaða stíl ég er hrifnust af og get núna loksins passað í  föt. Ég á það samt enn til að kaupa bara eitthvað rugl til að prófa hvort mér líki. Ég er voðalega mikil kjólakerling, er eiginlega alltaf í kjól og líður vel í þeim. 

Bankagrúppan mín er núna búin að bjóða í allsherjarjólapartý í desember. Matur, diskó og ókeypis vín allt kvöldið. Og mig langar til að fara í einhverju alveg spes. Mig langar ekki í LBD eins og ég veit að allar hinar corporate druslurnar sem ég er að vinna með ætla í. Nei, mig langar til að nota þetta nýfundna frelsi mitt til hins ýtrasta og fara bara í rokkgalla. Og er núna búin að vera aðleika mér við að púsla honum saman. Hvít blússa og glimmer veski úr Zara, gervileður skinny buxur úr Next, killer háir hælar og svo skreytt með risastóru gullarmbandi. 

Bara þetta að geta farið búð og búð og púslað saman svona búningi er eitthvað sem fær mig til að taka andköf af ánægju. Og það er líka eitthvað sem gerir mig þakkláta fyrir að hafa verið feit. Ef ég hefði aldrei verið feit þá myndi ég líka ekki skilja hvað þetta eru mikil forréttindi. Að hafa tækifæri til að velja að vera rokkpía á bankaballi. Ótrúlegt. 

laugardagur, 19. nóvember 2011

Ein af stelpunum á tíu kílómetra námskeiðinu var viku á eftir áætlun og átti eftir að hlaupa sitt lokahlaup. Hún fann hvergi skipulagt hlaup og var ekki jafn heppin og ég að hafa vinkonu til að hlaupa með sér og hvetja sig áfram. Ég og tvær aðrar á námskeiðinu buðumst þessvegna til að hlaupa með henni í anda. Hún býr í Ástralíu þannig að tímamismunurinn var of mikil til að gera það alveg nákvæmt en engu að síður þá vaknaði ég í morgun klukkan sex og rauk út með það í huga að bara hafa gaman að þvi að hlaupa. Ég var ekki með neina áætlun í huga, ekki með neitt tímamarkmið, ég meira að segja sá ekkert sérstaklega fyrir mér að hlaupa alla tíu kílómetrana, ég ætlaði bara að vera úti að hlaupa til að styðja vinkonu.

Ég horfði á sólina koma upp sem er alveg spes fyrir mig af því að ég er vanalega hlaupin og farin áður en hún kemur upp. Ég hlustaði á fuglana syngja og greip eina dömu sem var "doing the walk of shame", glimmerkjóll og maskari út á kinn. Ég fór örlítið nýja leið, heilmikið hæðótta en sá líka ref. Svo áður en ég vissi af pípti tækið til að láta mig vita að ég hafði hlaupið í klukkutíma. Ég leit á það og sá að ég hafði farið 8.6 km og því engin ástæða til að hætta. Ég ákvað meira að segja að haska mér aðeins til að athuga hvort ég gæti ekki náð þessu á undir 70 mínútum. Og jú, það tókst; 69:28. Frábært! Núna ætla ég að láta þessi lengri hlaup í friði fram að kapphlaupinu og einbeita mér bara að valhoppinu og þeim æfingum.

Ég er smávegis þreytt í hnjánum. Ég finn að ég er að leggja dálítið á þau núna. Er þessvegna líka voða fegin að ég er (hægt og rólega) að skafa af mér spik aftur núna.

Þegar ég fór í sokkubuxurnar eftir sturtu í morgun fann ég ægilega til í einni tánöglinni. Ægileg eymsli og þrýstingur. Getur verið að ég sé að fá svona hlauparaneglur sem verða svartar og detta svo af? Það væri nú aldeilis spennandi! Ég myndi rífa mig úr og sýna við hvaða tækifæri og ótækifæri sem er.

Þetta er samt allt að verða eðlilegra. Ég þarf ekki jafn svakalega mikið á viðurkenningunni og aðdáuninni að halda núna og fyrst þegar ég byrjaði. Það er eiginlega það skrýtnasta við þetta. Tilfinningin um að þetta var mér svo framandi og svo ótrúlegt að ég þurfti að fá klapp og hrós við hvert skref er farin. Núna nýt ég þess bara að hreyfa mig og þó ég sé stolt af vegalengdunum þá er það líka að verða eðlilegt. Hver hefði trúað því að það að setja einn fót fram fyrir hinn og endurtaka það svo færði manni svona mikið?

miðvikudagur, 16. nóvember 2011

Ég er afskaplega stolt af hlaupinu mínu á sunnudaginn. Og það skrýtna er að ég er stoltust af því hvað það var ófullkomið. Það er nefnilega heilmikill munur á því hvernig maður sér fyrir sér og ímyndar sér velgengi og hvernig velgengi lítur út í alvörunni. Velgengi þýðir að maður skoðar mismunandi möguleika og prófar sig áfram, rekur sig á þegar maður gerir mistök og maður lærir af mistökunum. Og fyrir mér hefur það allra mikilvægasta verið að ég hef alltaf fléttað markmiðin mín við lífið eins og það er. Markmiðið var að hlaupa 10 kílómetra, en það markmið er líka bara eitt lítið skref í allsherjar prógramminu; hreysti fyrir lífstíð. Eitt 10 kílómetra hlaup er bara einn þáttur í stóru myndinni. Og stóra myndin inniheldur nefnilega líka vináttu og salsadans og romm og rölt og pizzu og lyftingar og allt hitt sem gerir lífið þess virði að taka þátt í því. Ég veit ekki hvað ég á að segja það oft en þetta er ekki tímatakmarkað verkefni. Þetta er lífið.

Og eins stolt og ég var af hlaupinu mínu á sunnudaginn var ég ennþá stoltari af því að á þriðjudagsmorgun, nákvæmlega eins og ég hef gert í marga mánuði núna, vaknaði ég klukkan fimm, reimdi á mig hlaupaskóna og fór úr að hlaupa eins og ekkert hefði í skorist. Og það er það sem þetta snýst um.